Morgunblaðið - 19.05.1988, Blaðsíða 78
78
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Miskowic kemur
til Akureyrar
Ræðirviðforráðamenn KA um helgina
JÚGÓSLVINN Miaten
Miskowic er vœntanlegur til
Akureyrar um heglina til við-
ræðna við KA-menn um að taka
að sér þjáflun félagsins næsta
vetur.
Að sögn Aðalsteins Jónssonar,
formanns handknattleiks-
deildar KA, telja þeir að allt bendi
til að hann taki að sér þjálfun fé-
lagsins næsta vetur. „Það er eðli-
legt að hann vilji skoða aðstæður
áður en hann skrifar undir og því
fáum við hann hingað. Við höfum
verið í símasambandi við Miskiowic
og hefur hann sýnt þessu áhuga
og við eru bjartsýnir á að hann
skrifí undir um helgina," sagði
Aðalsteinn.
KA er eina liðið í 1. deild sem enn
á eftir að ganga frá þjálfaramálum
fyrir næsta vetur.
GOLF
Úlfar, Sigurður og Ragnar
á Evrópumeistaramótið
rír kylfíngar hafa verið valdir í landsliðið fyrir Evrópumeistara-
mót einstaklinga I golfi sem haldið verður 9.-12. júní í sumar.
Jóhann Benediktsson, sem ráðinn hefur verið landsliðseinvaldur í stað
Björgvins Þorsteinssonar, hefur valið J)á Úlfar Jónsson, GK, og GR-
ingana Sigurð Pétursson og Ragnar Olafsson, til þátttöku á mótinu.
GOLF
Sveinn sigraði
á LEK-móti
Landsamtök eldri kylfinga, 55
ára og eldri, héldu fyrsta mótið
á árinu á Grindavíkurvelli, laugar-
daginn 14. mai. Yfír 50 kylfíngar
mættu til leiks, karlar og konur.
Veður var hlýtt, en allsnarpur vind-
ur af hafí gerði sumar brautimar
mjög erfíðar. Það var maður með
40 ár að baki í golfi, sem sigraði í
karlaflokki: Sveinn Snorrason,
Golfklúbbnum Keili og fyrsti form-
aður LEK eftir að það var stofnað.
Sveinn er með 13 í forgjöf, en lækk-
aði sig þama niður í 12 og bar sigur-
torð af þremur, sem eru með mun
lægri forgjöf. Það bar einnig til
tíðinda, að maður sem nýlega hefur
tekið upp golfleik: Sveinn Bjöms-
son, listmálari og lögregluforingi í
Hafnarfírði, fór holu í höggi á 18.
braut, sem er par 3. Var Sveinn á
100 höggum sléttum, þegar kom á
18. teig og fannst þá rétt að bæta
aðeins einu höggi við. Lengdin á
þeirri 18. er um 130 metrar, en
undan allhárri brekku.
Urslit urðu annars þessi I karlaflokki:
An forgjafar:
1. Sveinn Snorrason, GK, 77 höggum.
2. Gísli Sigurðsson, GK, 78 höggum.
3. Þorbjöm Kjærbo, GS, 83 höggum.
Með forgjöf:
1. Sveinn Snorrason GK, 64 höggum
2. Gísli Sigurðsson GK, 70 höggum
3. Birgir Sigurðsson GK, 72 höggum.
Konur:
1. Elísabet Möller NK, 105 höggum.
2. Steindóra Steindórsdóttir NK,110 höggum.
3. Elín Ámadóttir NK, 122 höggum.
Þær sigruðu einnig með forgjöf í sömu röð.
KNATTSPYRNA / 1. DEILDIN (SL-DEILD)
Morgunblaöið/Bjarni
Lúðvík Bergvlnsson, leikmaður Leifturs, sést hér sækja að marki Skagamanna í leik liðanna sl. sunnudag. Mark
Duffield og Heimir Guðmundsson ná ekki að stöðva hann.
Valsmenn leika gegn
Leiftri í Ólafsfirði
Keflvíkingarfá KR-inga í heimsókn í kvöld
LEIK Vals og Leifturs, sem fara
átti fram á Valsvelli f kvöld,
hefur verið frestað til morguns
og fer þá fram á heimavelli
Leifturs í Ólafsfirði og hefst
klukkan 20.
Valsmenn vildu fresta leiknum
fram í júní eðajúlí, en Leifturs-
menn vildu leika sem fyrst. Þeir
buðu að skipta á heimaleikjum, en
Valsmenn voru því mótfallnir þar
til mótanefnd KSÍ ákvað að setja
leikinn á gervigrasið í Laugardal í
dag klukkan sex.
Leiftursmenn, sern gerðu marka-
laust jafntefli við ÍA í fyrstu um-
ferð, byija því á þremur heimaleikj-
um. „Við vildum að sjálfsögðu
fylgja mótaskránni og leika við Val
fyrir sunnan sem fyrst, en okkur
var sagt að vellir væru ekki fyrir
hendi. Að okkar mati er allt betra
Óskar Inglmundarson, þjálfari
Leifturs.
en að fresta leik í lengri tíma og
því buðum við að skipta á heima-
leikjum, en það er slæmt að eiga
þijá heimaleiki í röð — kemur okk-
ur í koll í byijun seinni umferðar,"
sagði Óskar Ingimundarson, þjálf-
ari Leifturs, við Morgunblaðið í
gær.
Hilmar Sighvatsson, sem rekinn var
af velli í meistarakeppninni, tekur
út bannið í leiknum og getur því
að öllu forfallalausu leikið með Val
gegn Skagamönnum í þriðju um-
ferð.
Möl í Keflavík
Keflvíkingar leika sinn annan
heimaleik í röð í kvöld, þegar KR-
ingar koma í heimsókn. Heimamenn
unnu Völsunga 3:1 á mölinni í
fyrstu umferð og eins og þá verður
leikið á malarvellinum í kvöld, en
viðureignin hefst klukkan 20.
KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Mlchaal Coopor skoraði sigurkörfu Lakers.
Cooper var
hetja Lakers
Skoraði sigurkörfuna gegn Utah Jazz
MICHAEL Cooper, hinn fjöl-
hæfi leikmaður Los Angeles
Lakers, skoraði sigurkörfu liðs
síns þegar Los Angeles tók á
móti Utah Jazz í fimmta leik lið-
anna í úrslitakeppninni í NBA-
deildinni á þriðjudagskvöld.
Leikur liðanna sem fram fór í
Forum-höllinni í Los Angeles
var geysifjörugur og þegar aðeins
örfáar sekúndur voru eftir var stað-
an 109:109. Cooper
Gunnar fékk þá knöttinn um
Valgeirsson sex metra frá körf-
skrifar unnj pr^tt fyrir að
hann hefði ekki
skorað stig í leiknum fram að þessu,
tók hann strax skot sem rataði rétta
leið í körfuna. Utah náði ekki að
jafna og Lakers hafa þar með náð
3-2 forystu í keppni liðanna. Hafa
Lakers þar með heldur betru snúið
keppninni sér í hag eftir að Utah
hafði náð 2-1 forystu fyrir síðustu
helgi. Liðin eigast við að nýju í nótt
í Salt Palace íþróttahöllinni í Salt
Lake City og getur Los Angeles
tryggt sér sæti í úrslitum Vestur-
deildarinnar með sigri í þeim leik.
í keppni Dallas og Denver hefur
Dallas nú náð 3-2 forystu eftir
110:106 sigur á Denver á útivelli.
í þeim fimm leikjum sem liðin hafa
leikið fram að þessu hefur heimalið-
inu aðeins tvisvar tekist að sigra.
Dallas getur komist í úrslit Vestur-
deildar með sigri yfír Denver í nótt.
LANDSLIÐ
Leikið
gegn
Svíum
31.maí?
m
Íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu skipað leikmönnum
tuttugu og eins árs og yngri
ieikur gegn Hollendingum og
Finnum í Evrópukeppninni í
haust og var ekki gert ráð fyrir
leikjum fyrir þá. Á því getur
samt orðið breyting, því Svíar
vilja koma hingað til lands og
leika þriðjudaginn 31. maí KSI
að kostnaðarlausu.
Að sögn Sigurðar Hannessonar,
framkvæmdastjóra KSÍ, er verið
að athuga málið með tilliti til
leikja í 1. deild, en allt bendir
tii að landsleikurinn verði.
Þjálfari 21 árs liðsins er Júrí
Sedov, þjálfari Víkings.