Morgunblaðið - 26.05.1988, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1988
53
Bandaríkjunum. Þessar sprengjur
orsökuðu dauða fólks og skemmdir
á mannvirkjum. Hvaða þjóðir dæma
ekki slíkan mann? Um slæman að-
búnað hans í fangelsi á Kúbu hafa
Kúbanir skýr svör. Til eru sannanir
í formi videómynda, þar sem skáld-
ið fatlaða sést gera sínar daglegu
leikfimisæfíngar uppréttur og
hress. Fangelsið, sem hann dvaldi
í, er opið fréttamönnum og öðrum
sem vilja kynna sér fangelsismál á
Kúbu. Við fengum tækifæri til að
heimsækja kvennafangelsi í Hav-
ana. Þar var aðbúnaður mjög góður
og aðaláhersla lögð á endurmennt-
un kvennanna. Má nefna, að þetta
sama fangelsi hafa Bandaríkja-
menn nefnt sem hina verstu holu
og miðstöð pyntinga. Þar sáum við
bjartsýnar konur í huggulegu um-
hverfi.
En hér snýst umræðan um mann-
réttindi ekki eingöngu um þetta.
Mannréttindi eru einnig rétturinn
til matar, menntunar og heilsu-
gæslu. Verður mönnum þá tíðrætt
um risann í norðri, þar sem bæði
bamadauði og ólæsi er hærra en á
Kúbu.
Alþjóðahyggjan
Alþjóðahyggjan er einn af hom-
steinum utanríkisstefnu Kúbana.
Fidel hefur sagt við fleiri tækifæri,
að hvar sem þjóðir beijist fyrir sjálf-
stæði sínu, rétti Kúba þeim hjálpar-
hönd. All sérstæð er aðstoð Kúbana
í menntun fólks frá þriðja heimin-
um. Á Kúbu stunda nám um 24
þús. nemendur frá 80 þriðja heims
löndum. Kúba ber allan kostnað af
þessum skólum og fá nemendur
kennslu á sínu eigin tungumáli,
þannig að með nemendunum koma
kennárar, sem fá þjálfun og aðstöðu
á Kúbu. Flestir þessara skóla em
á Æskueyjunni, úti fyrir suður-
strönd landsins.
Um 50 þús. alþjóðahyggjumenn
frá Kúbu em starfandi í þriðja
heims ríkjum. Þeir em læknar,
kennarar, verkamenn, bygginga-
menn og starfsmenn í her. Kúb-
anskar herdeildir em í Angóla, sem
kljást við suður-afríkanska innrás-
arherinn.
Það þykir mjög virðingarvert að
hafa boðið sig fram sem alþjóða-
Háskólann
ítölsku-
kennsla
hafin
í Háskólanum hefur verið tekin
upp kennsla f ítölsku. Nú standa
yfír ítölskunámskeið ætluð nem-
endum skólans sem og öllum al-
menningi. Námskeiðin standa yfir
f fjórar vikur, 3 tíma á dag og eru
þau bæði ætluð byijendum og
þeim sem lengra eru komnir. Að
sögn endurmenntunarstjóra Há-
skólans, Margrétar S. Bjömsdótt-
ur, hefur ásóknin f námskeiðin
verið mikil og ekki reyndist til
dæmis unnt að taka við nema um
fjórðungi þeirra sem sóttu um að
komast á byijenda námskeiðið.
Námskeið þessi eru haldin af end-
urmenntunamefnd Háskólans og
Heimspekideild í samvinnu við
ítölsku menningarmálastofnunina,
„Mondo Italiano“ sem hefur aðsetur
f Róm. Það er sendikennari stofnun-
arinnar, Robert Tartaglione, sem sér
um kennsluna en með honum hér á
landi er einnig forstöðumaður stofn-
unnarinnar, Ugo Letti. Kosnaður við
námskeiðin er af verulegu leyti
greiddur af ítölsku menningarmála-
stofnuninni. í fyrrgreindu samtali við
Margréti S. Bjömsdóttur kom einnig
fram að ef vel tækist til við þessi
sumamámskeið mætti jafnvel búast
við framhaldi af ítölskukennslu við
Háskólann næsta haust. Önnur sum-
amámskeið í Háskólanum á vegum
endurmenntunamefndar sem nefna
mætti eru t.d. endurmenntunamám-
skeið fyrir framhaldskólakennara,
tölvunámskeið og endurmenntun-
amámskeið fyrir tannlækna.
hyggjumaður og enginn skortur er
á sjálfboðaliðum. Sem dæmi má
nefna Nicaragua. Þar em starfandi
um 3.000 kennarar. Þegar auglýst
var eftir þessum kennurum buðu
sig fram 30 þús. manns, aðallega
konur. Þegar andbyltingarmenn
drápu nokkra þeirra, þá buðu 100
þús. sig fram til að koma í stað
hinna föllnu.
P.S. Þessi grein var boðin tíma-
ritinu Þjóðlífi til birtingar, enda var
þar nýverið slælega unnin grein sem
var full af hleypidómum um Kúbu.
Eftir rúmlega viku umhugsun hafn-
aði ritstjórinn greininni og gaf eftir-
farandi skýringu: „Mér finnst ekki
ástæða til að birta þau sjónarmið
sem þama koma fram.“ Einnig var
óskað eftir því að Þjóðviljinn birti
greinina en því var hafnað á sömu
forsendum
Höfundar eru við nám á Kúbu.
Sölutjöld 17. júní 1988 í
Reykjavík
Þeir sem óska eftir leyfi til sölu úr tjöldum á þjóöhátíðardaginn
17. júní 1988 vinsamlegast vitjið umsóknareyðublaða
að Fríkirkjuvegi 11, opið kl. 08.20-16.15.
Athygli söluhafa er vakin á því að þeir þurfa að afla
viðurkenningar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkursvæðis á
sölutjöldum og leyfi þess til sölu á viðkvæmum neysluvörum.
Umsóknum sé skilað í síðasta lagi
föstudaginn 3. júní kl. 16.15. íþrótta-og
TÓMSTU N DARÁÐ
AlXlÆDHR
TRÉGUIGGAR
KYNNING FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG KL. 13:00 -17:00
í SÝNINGARSAL GLUGGASMIÐJUNNAR, SÍÐUMÚLA 20.
Álklæddir trégluggar er nýjasta vöruþróun-
arverkefni Cluggasmiðjunnar. Þetta verkefni
er unnið í samvinnu við Iðntæknistofnun .
íslands og markmiðið er að ná fram betri
og þéttari gluggum, en áður hefur verið
unnt. Auk þess eru þessir gluggar viðhalds-
fríir að utan.
Nú þegar hefur þessi aðferð verið reynd við
nokkur sérhönnuð verkefni, til dæmis:
Hótel Loftleiðir, Útvarpshúsið, Holiday Inn
hótelið, Framtíð v/Skeifuna og Sunnuhlíð í
Kópavogi. Sú þekking og reynsla sem fengist
hefur við þessar framkvæmdir verður nú
notuð til að þróa og aðlaga álklæðningu
fyrir almenna notkun í íbúðarhúsum.
HELSTU KOSTIR ÁLKLÆDDRA
TRÉGLUGGA:
Cluggarnir eru viðhaldsfríir að utan.
Álklæddir trégluggar eru ódýrari en
álgluggar og ekki dýrari en venjulegir
trégluggar, ef tekið er tillit til viðhalds-
kostnaðar.
Álklædda tréglugga er mun einfaldara að
glerja við erfitt veðurfar. Ekkert kítti er
notað að utan og því þarf ekki að bíða
eftir þurru veðri.
Fúavandamál eru hverfandi.
Verðmæti hússins eykst.
Útlit hússins verður öðrum til fyrirmynd-
ar.
Gluggasmiðjan hf.
SÍÐUMÚLA 20 - 108 RFYKJAVÍK - SÍMI 681077
04.01