Morgunblaðið - 26.05.1988, Blaðsíða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 1988
félk í
fréttum
VÍKINGUR
Haldið upp á
10 ára siffurgöngu
IÞRÓTTA- og tómstundaráð
Reykjavíkur efndi nýlega til hófs
fyrir handknattleiksmenn Víkings
og nokkra forráðamenn félagsins.
Tilefnið var að heiðra Víking fyrir
10 ára samfellda sigurgöngu, en
árin 1978 til 1987 unnu Víkingar
annað hvort Islandsmótið eða bikar-
keppnina í handknattleik og tvö
árin bæði mótin. Einn leikmaður,
Kristján Sigmundsson, vann það
einstæða afrek að vinna til allra
titlanna eða 12 alls. Til hófsins
mættu flestallir leikmenn Víkings
á þessu árabili. Ávörp fluttu Júlíus
Hafstein, formaður íþrótta- og tóm-
stundaráðs, Hallur Hallsson, form-
aður handknattleiksdeildar Víkings
og Olafur Jónsson, leikmaður
Víkings og fyrrum fyrirliði lands-
iiðsins.
J
m
r •
Morgunblaðid/Bjami
Leikmenn Víkings og tveir af þremur þjálfurum, sem stýrðu liðinu sigurtímabilið, þeir Karl Benedikts-
son og Árni Indriðason. Bogdan Kowalczyk var staddur í Póllandi.
Reuter
í
ÞUNGUM
ÞÖNKUM
Miklir hitar
og sólskin
hafa verið í
Belgíu undan-
farna daga,
og festi ljós-
myndari
nokkur mann
þennan á
filmu, þar
sem hann sat
í þungum
þönkum og
naut veðurbl-
íðunnar.
Gestir hlýða á ræðu Júlíusar Hafstein.
Fjórir kunnir kappar, Ámi Indriðason, Karl Benediktsson, Ólafur
Jónsson og Viggó Sigurðsson.
Páll Björgvinsson og Sigurður Jónsson, fyrrv. formaður HSÍ ræðast
við.
Kolbeinn Pálsson og Július Hafstein ræðast við. Milli þeirra stendur
Guðrún Jóhannsdóttir eiginkona Kolbeins.
COSPER
— Maðurinn minn hefur verið með flensu, en fékk leyfi
til þess að fara í smágöngu i dag.