Morgunblaðið - 01.06.1988, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1988
Reuter
Námsmenn mótmæla
Námsmenn í Suður-Kóreu hafa um leið uppþotanna, sem urðu langt að brenna sig til bana og
síðustu daga efnt til mótmæla i borginni Kwangju árið 1980. var myndin tekin við útför
gegn stjómvöldum og minnst Einn stúdentanna gekk svo hans.
Tilraunadýr í rannsóknum:
Hjartafrumur í
stað tilraunadýra
Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgnnblaðsms.
SAMTOK í lyfjaiðnaði í Evrópu
veittu í gær viðurkenningu fyrir
rannsóknaraðferðir sem draga úr
notkun tilraunadýra við leit og
prófanir á nýjum lyfjum. Þetta
er annað árið í röð sem viðurkenn-
ing samtakanna er veitt fyrir ár-
angur á þessu sviði. Það vora belg-
iskir visindamenn sem hlutu viður-
kenninguna að þessu sinni.
Belgísku vísindamennimir, sem
vinna við rannsóknastofu Janessen-
lyflafyrirtækisins, þróuðu aðferðir
sem gera þeim kleift að nota einstak-
ar hjartafrumur við tilraunir sínar á
áhrifum hjartaiyfja. Töluverð um-
ræða hefur verið um notkun tilrauna-
dýra við prófanir á nýjum lyfjum
innan Evrópu undanfarin ár og með
verðlaunaafhendingunni í ár og
sömuleiðis í fyrra vilja samtök lyfja-
framleiðenda hvetja menn til að leita
annarra leiða. Ljóst þykir að tilrauna-
dýr verða um langa framtíð nauðsyn-
leg við lyfjaframleiðslu en skikkan-
legt þykir að rejma að draga úr notk-
un þeirra sem frekast er unnt.
í samtökum lyfj aframleiðenda
(EFPIA) í Evrópu eru framleiðendur
í sextán Evrópulöndum. Eitt af
markmiðum samtakanna er að stuðla
að aukinni samvinnu rannsókna-
stofnana og lyflaframleiðenda með
því m.a. að beina athygli manna að
mikilvægi rannsókna af ýmsu tagi.
Ekkert íslenskt fyrirtæki á aðild að
EFIPA.
Játa Rússar fjölda-
morðin í Katynskógi?
Afganistan:
Sovézki herinn far-
inn úr Panjsherdal
Islamabad. Reuter.
SVEITIR sovézka innrásarhers-
ins og afganska stjórnarhersins
eru horfnar með öUu úr Paiys-
herdalnum og er hann þvi að
fullu undir yfirráðum skæruliða,
að sögn talsmanna þeirra.
Að sögn talsmannsins lögðu
sovézku og afgönsku sveitimar
jarðsprengjur áður en þær hörfuðu
úr dalnum. Hefði það tafíð flótta-
menn í því að snúa aftur til fyrri
heimkynna þar. Talið er að um
5.000 sovézkir hermenn hafi verið
í dalnum undir það síðasta.
Heimkynni skæruliðaforingjans
Ahmad Shah Massoud eru í Panjs-
herdal, sem hefur mikla hemaðar-
lega þýðingu þar sem vegurinn frá
Kabúl til sovézku landamæranna
liggur um hann. Sovézki innrásar-
herinn hefur gert ítrekaðar tilraun-
ir til að leggja dalinn undir sig en
sveitir Massouds hafa hmndið
hverri stórsókn þeirra af annarri.
Vestrænir stjómarerindrekar
sögðu í gær að Sovétmenn hefðu
hafið brottflutning innrásarliðs síns
frá helztu borgum Afganistans, s.s.
Gardez og Ghazni í suðausturhluta
landsins, Kandahar í suðurhlutan-
um og Herat í vesturhlutanum.
Reuter
Æxlunartími svína lengdur
Vísindamenn við háskólann í
Sydney i Ástralíu hafa að und-
anförau gert tilraunir sem
miða að því að fá svin til að
æxlast og fjölga sér allan ársins
hring. Æxlunartími svina hefur
til þessa verið bundinn við
haust og vetur og afkvæmin
fæðast á vorin. Ef þessar til-
raunir bera árangur er gert ráð
fyrir að hagnaður af svinaeldi
muni margfaldast. Dr. Bob
Love sem stjórnar tilraununum
sagði að með hormónagjöfum
væri reynt að fá svínin til að
æxlast á þeim tima sem eðlisáv-
isun dýranna segði þeim að
gera það ekki.
Moskvu. Sunday Telegraph.
SOVÉSK stjóravöld gáfu í fyrsta
sinn tíl kynna á laugardag, að þau
kynnu að gangast við einu við-
bjóðslegasta illvirki Stalíns — kal-
drifjuðu morði á um 12.000 pólsk-
um liðsforingjum i Katynskógi í
nágrenni Smolensk i Vestur-
Rússlandi.
Sú deild Moskvuútvarpsins, sem
sendir út á enskri tungu, sagði, að
nauðsynlegt væri orðið að endurmeta
þá „viðteknu skoðun", að ijöldamorð-
in í Katynskógi hefðu verið framin
af hemámsliði nasista 1941. „Nú
verðum við að líta á þennan atburð
sem auða síðu í sögu þjóðanna,"
sagði Moskvuútvarpið og bætti við,
að þýsk skjöl, sem greindu frá því,
að sovéskar kúlur hefðu fundist í
líkunum, hefðu nýlega „komið upp á
yfirborðið".
Pólsku liðsforingjamir voru í
fangabúðum og þeirra var gætt af
liðssveitum NKVD, rússnesku leyni-
þjónustunnar, forvera KGB, eftir að
Hitler og Stalín skiptu Póllandi.
Tveimur árum síðar tilkynnti yfir-
maður þýska innrásarhersins, þegar
hann var kominn til Smolensk, að
fundist hefði fiöldagröf í Katyn-
skógi, og bauð hann alþjóðlegri nefnd
að rannsaka líkin. Stalín vísaði þess-
um ásökunum á bug og kallaði þær
nasista-áróður.
í tíð Samstöðu, frjálsu verkalýðs-
félaganna í Póllandi, var reistur
minnisvarði í Varsjá um fómarlömb-
in í Katynskógi. Á veggspjöldum,
sem gerð voru við það tækifæri,
sagði, að Sovétmenn bæru ábyrgðina
á morðunum.
Þessi gjörbreytti tónn hjá Moskvu-
útvarpinu kom fram í frétt af minn-
ingarathöfn við hið opinbera minnis-
merki vegna fjöldamorðanna. Á því
minnismerki er nastistum kennt um
voðaverkið. Fréttamaðurinn tók samt
fram, að verið væri að „endumýja"
minnismerkið. Hann sagði hins vegar
ekki, hvort endumýjunin næði til
áletmnarinnar á því.
Þegar Mikhail Gorbatsjov kom til
Varsjár í fyrra, tilkynnti hann, að
sovésk-pólsk nefnd mundi rannsaka
„auðar síður" í sameiginlegri sögu
þjóðanna tveggja. Sú ákvörðun að
nefna fjöldamorðin í Katynskógi
„auða síðu“ kemur heim og saman
við þá stefnu Gorbatsjovs að gera
upp sakimar við Stalíns-tímabilið.
Þar á hann sennilega langt og erfitt
starf fyrir höndum.
Bretland:
Þyngja refsingar fyr-
ir unga afbrotamenn
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frimannssyni, fréttantara Morgunblaðsms.
YFIRVÖLD munu í þessarí viku
gera opinberar ýmsar aðgerðir
til að þyngja refsingar þeirra
ungu afbrotamanna, sem ekki
eru dæmdir í fangelsisvist. Von-
ast er til, að þær fækki föngum
um fimm til tíu þúsund á árí.
Nýlega lýsti innanríkisráðherr-
ann, Douglas Hurd, því yfir, að
hafin yrði bygging á mörgum nýjum
fangelsum til að bæta aðstöðu
fanga. í breskum fangelsum eru
mun fleiri fangar en þau geta með
góðu móti hýst.
Ýmsir dómarar hafa verið tregir
til að dæma unga afbrotamenn í
betrunarvinnu vegna þess að hún
væri ekki nægileg refsing. Umsjón
með henni hefur verið losaraleg og
dómstólamir hafa enga umsjón
haft með þeim, sem dæmdir hafa
verið í betrunarvinnu. Nú munu
dómstólamir taka upp slíkt eftirlit
og verður fylgst með hverjum og
einum.
Þeir, sem dæmdir verða í betrun-
arvinnu, en ekki í fangelsi, verða
að mæta á réttum tíma á hveijum
degi og erfiða allan daginn við að
þrífa sóðaskap eins og slagorð af
húsveggjum og msl og ræsa fram
skurði. Þeir, sem ekki stunda vinn-
una, verða dregnir fyrir dómara á
nýjan leik og eiga á hættu að lenda
í fangelsi í staðinn.
Leitast verður.við á láta þessa
ungu afbrotamenn vinna á þeim
svæðum, þar sem þeir bmtu af sér,
til þess að þeir sjái skaðann, sem
þeir hafa valdið, og læri að bæta
samfélaginu það, sem þeir hafa
gert. Einnig er líklegt, að þeim verði
gert að greiða fómarlömbum ódæð-
isverka sinna af launum sínum.'
John Patten aðstoðarinnanríkis-
ráðherra gefur út yfirlýsingu um
þetta í dag. Hann sagði í blaðavið-
tölum í gær og um helgina, að yfir-
völd væm staðráðin í að skapa beint
samband milli afbrotamannanna og
þess samfélags, sem þeir hafa skað-
að, og láta þá bæta skaðann. í sum-
ar munu yfírvöld gefa út bók um
refsingar, þar sem mótuð er stefna
í fangelsismálum fram að aldamót-
um. Meginatriðið í henni verður að
sögn minni áhersla á fangelsi en
meiri á betmnarvinnu utan fangels-
is.
Þessar nýju reglur koma til fram-
kvæmda síðar á þessu ári og krefj-
ast ekki lágasetningar. Rökin fyrir
þeim em einkum mikill fjöldi fanga
annars vegar og hins vegar hafa
fangelsi oft slæm áhrif á unga
fanga og beina þeim beinlínis inn
á braut frekari afbrota. Auk þess
er betmnarvinna mun ódýrari í
framkvæmd en fangelsun.