Morgunblaðið - 10.06.1988, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDÁGUR 10. JÚNÍ 1988
Mikil skreiðar-
verkun fyrir
Ítalíumarkað
TÖLUVERT af fiski er nú verk-
að í skreið fyrir Ítalíumarkað,
einkum á Norðurlandi, þar sem
skilyrði til verkunar eru betri
en sunnanlands. Búizt er við
svipaðri framleiðslu og á síðasta
ári, eða um 20.000 pökkum. í
fyrra var meðalverð á pakka
um 480 dalir, um 21.000 krón-
ur. Talið er mögulegt að ná
hærra verði nú og útflutnings-
verðmæti heildarinnar gæti þá
orðið um 420 milljónir króna.
Ragnar Siguijónsson, fram-
kvæmdastjóri Skreiðardeildar
Sambandsins, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að ekki hefði enn
verið gengið frá verði á fram-
leiðslu þessa árs, en sökum minni
framleiðslu í Noregi nú en á
síðasta ári vegna aflabrests við
Lófóten, væri lítilsháttar verð-
hækkun möguleg. í fyrra kvörtuðu
ítalir undan lélegri skreið, sem
verkuð var sunnanlands. Ekki var
kvartað vegna norðanskreiðar og
leystist málið með afslætti á verði
sunnanskreiðarinnnar.
Þorvarði Helgasyni, höfundi og Andrési Sigurvinssyni leikstjóra „Ef ég væri þú“ fagnað í gærkvöldi.
Fagnað á Listahátíð
Leikrit Þorvarðar Helgasonar „Ef ég væri þú“ var frumflutt á Litla sviði Þjóðleikhússins á Listahátíð í
gærkvöldi. Höfundi, leikstjóranum Andrési Sigurvinssyni og öðrum þeim sem að sýningunni stóðu var
mjög vel fagnað í lok sýningarinnar. Leikritið er byggt á fjórum einþáttungum eftir Þorvarð og fjalla þeir
allir um konur.
Á dagskrá Listahátíðar í gærkvöldi voru einnig tónleikar finnska baritónsins Jorma Hynninen með Sin-
fóníuhljómsveit íslands undir stjóm finnans Petri Sakari. Á efnisskránni voru m.a. sönglög eftir Sibelius
og óperuaríur eftir Verdi. Áhorfendur fögnuðu ákaflega í lok tónleikanna og sagði Egill Friðleifsson, gagn-
rýnandi Morgunblaðsins, Hynninen vera stórkostlegan söngvara á heimsmælikvarða.
Morgunblaðið/Bjami
Finnski baritóninn Jorma
Hynninen.
Ragnar sagði, að neyzla skreið-
agnar
ar á Italíu hefði dregizt verulega
saman síðustu 10 ár. Árið 1979
hefði neyzlan verið 6.294 tonn en
í fyrra aðeins 3.597, eða 42%
minni. Verð á skreiðinni hefði ver-
ið hátt eins og á öðrum fiskafurð-
um og ennfremur drægi úr neyzlu
skreiðarinnar, þegar gamlir siðir
dæju með gömlu fólki. Sem dæmi
um verð á skreið út úr búð á ít-
alíu mætti nefna, að kílóið kostaði
560 til 800 krónur, kíló af kjúkl-
ingum 130 og nautakjöti 450.
Skreiðin væri því allt að 6 sinnum
dýrari en kjúklingamir.
Staðfestingarkæra hugsan-
leg vegna hvalveiða í sumar
- segir talsmaður bandaríska viðskiptaráðuneytisins
TALSMAÐUR bandariska við-
skiptaráðuneytisins segir að eins
og máium sé háttað núna, sé
mögulegt að Bandaríkjastjórn
gefi út staðfestingarkæru þegar
Kútur með eitruðum
lofttegundum sprakk
ALLIR starfsmenn yfirgáfu hús Raunvísindastofnunar Háskóla íslands
í gær, þegar kútur með eitruðum lofttegundum í efnafræðistofu sprakk.
Fljótlega varð þó ljóst að engin hætta var á ferðum og var eldurinn
slökktur með handslökkvitæki.
Óhappið varð skömmu eftir hádeg-
ið. Enginn slasaðist og litlar
skemmdir urðu við sprenginguna, en
varlegra þótti að rýma húsið þar til
ljóst væri hvort hætta væri á ferðum
vegna mengunar. Að stuttri stundu
liðinni snem starfsmenn aftur til
vinnu.
Ingvar Ámason, forstöðumaður
efnafræðistofu sagði að um væri að
ræða eitraðar lofttegundir sem
kviknaði i ef þær kæmust í snertingu
við andrúmsloft. Kælibrúsi utan um
þær hefði spmngið og því kviknað
eldur, sem greiðlega hefði gengið að
slökkva. Ingvar sagði loftegundimar
álíka hættulegar koltvísýringi, sem
m.a. er að finna í útblæstri bifreiða.
Islendingar hefji hvalveiðar i sum-
ar og Ijóst sé að frekari viðræður
verði að fara fram milli þjóðanna.
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra segir að þjóðimar muni
fljótlega hafa samband sin á milli
vegna hvalveiðanna, sennilega í
gegnum sendiráðin, en áætlað sé
að hvalveiðar hefjist upp úr miðj-
um júni.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Brian Gorman, upplýsingafulltrúi hjá
bandaríska viðskiptaráðuneytinu, að
það væri tilfinning manna í ráðuneyt-
inu að ályktun sú um hvalveiðar Is-
lendinga, sem samþykkt var án at-
kvæðagreiðslu á ársfundi Alþjóða-
hvalveiðiráðsins fyrir skömmu, væri
svipaðs eðlis og ályktun sú sem sam-
þykkt var á ársfundinum 1987. Ekki
væri hægt að skilja ályktunina á
annan veg og ef íslensk stjómvöld
væru annarrar skoðunar vissi hann
ekki um ástæðu þess. Haft var eftir
Ilalldóri Ásgrímssyni sjávarútvegs-
ráðherra í Morgunblaðinu eftir árs-
fund hvalveiðiráðsins að ályktunin
væri viðunandi og orðalag hennar
Möguleikar eru á
mjölsölu til Kína
mun mildara en ályktunarinnar sem
samþykkt var 1987.
Halldór sagði við Morgunblaðið í
gær að það væri í sjálfu sér sama
hvemig menn vildu túlka þessa
ályktun. Aðalatriðið væri það að
byggt væri á samkomulaginu sem
er milli Bandaríkjamanna og íslend-
inga og kennt við Ottawa. „Það er
vinsamlegt samband á milli aðila, við
erum með ákveðið samkomulag og
við ætium okkur að standa við það.
En til að það geti farið vel úr hendi
verða menn að tala saman og við
höfum gengið frá því við Bandaríkja-
menn að einhveijar viðræður eigi sér
stað," sagði Halldór.
Brian Gorman sagði ljóst að frek-
ari viðræður yrðu að fara fram milli
Bandaríkjanna og íslands áður en
hvalveiðiskip byijuðu að veiða en
eins og málum væri háttað nú gæti
Bandaríkjastjóm hugsanlega gefíð
út staðfestingarkæru hvað sem síðar
yrði.
Halldór Ásgrímsson sagði að ekki
væri endanlega ljóst hvenær hval-
veiðamar byijuðu, eða hvort fyrir-
huguðum kvóta yrði breytt, en áætl-
að er að veiða 80 langreyðar og 20
sandreyðar í sumar.
Eldvarnaeftirlitíð lok-
ar skemmtístöðum
Eldvamaeftirlit Reykjavíkurborgar hefur látið loka tveimur veitinga-
stöðum í borginni, þar sem ekki hefur verið sinnt kröfum um úrbætur
þar á bæ. Þetta eru Casablanca við Skúlagötu og veitingahúsið i
Glæsibæ og Ölver.
Ásmundur Jóhannesson, verk- tíma hefðu menn aðeins litið eftir
þessum stöðum og öðmm að degi
til. Nokkuð hefði borið á því að rang-
ar upplýsingar væru veittar af eig-
endum eða stjómendum skemmti-
staða. Það hefði komið í ljós, þegar
staðimir hefðu verið skoðaðir að
nóttu til og dansleikir verið í há-
marki. Svo hefði verið gert fyrir
nokkm og hefðu þá allir staðir utan
6 reynzt í lagi. Frest til úrbóta hefðu
allir nýtt sér nema umræddir staðir
og þeim því verið lokað.
efnastjóri hjá eldvamaeftirlitinu,
sagði í samtali við Morgunblaðið, að
ástæða lokunarínnar værí sú, að
ekki hefði verið sinnt kröfu eftirlits-
ins um að bæta möguleika fólks á
að komast út um neyðardyr, þyrfti
á því að halda. Neyðarútgangar
hefðu verið lokaðir og frestur til úr-
bóta hefði ekki verið nýttur. Þessir
staðir yrðu því ekki opnir gestum
fyrr en barið hefði verið í brestina.
Ásmundur sagði, að til skamms
Tilraunasending austur í haust
MÖGULEIKAR á sölu fiskimjöls til Kina virðast nú vera að opn-
ast. í gær voru undirritaðir samningar um tilraunasendingu þang-
að í haust og vonast bæði kínversku kaupendurnir og islenzku
seljendurnir til þess að það verði upphafið að frekari viðskiptum.
Fiskimjölsnotkun í Kína er tals-
verð, í kringum 200.000 tonn á
ári, og fer vaxandi. Til þessa hafa
Kínveijar aðallega keypt fiskimjöl
frá Suður-Ameríku og Thailandi.
Miðað við að verksmiðjur hér á
landi taki á móti einni milljón
tonna af loðnu til vinnslu á hverri
vertíð, má áætla að framleiðsla
mjöls nemi um 160.000 tonnum.
Undanfama daga hefur opinber
sendinefnd frá Kína verið hér á
landi til að kynna sér möguleikana
á fiskimjölskaupum héðan fyrir J
milligöngu fyrirtækisins XCO,
sem flytur inn mikið af vörum frá
Kína. í gær var svo samningur
um tilraunasendingu undirritaður
af fyrirtækinu R. Hannessyni og
kínversku nefndinni. Hugmyndin
um þessi viðskipti er nokkurra ára
gömul og hefur flutningskostnað-
ur meðal annars staðið í vegi fyr-
ir mögulegri sölu. Það mál mun
nú leyst að sögn Sigtryggs R.
Eyþórssonar, framkvæmdastjóra
XCO.
Formaður kínversku sendi-
nefndarinnar er frú Yang Fenglin.
Hún sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að Kínveijar hefðu lengi
haft áhuga á auknum viðskiptum
við ísland. Nú hefðu þeir í fyrsta
sinn komið hingað til að kynna
sér aðstæður og gæði mjölsins,
sem á boðstólum væri. Heimsókin
hingað hefði í alla staði verið
ánægjuleg, verksmiðjumar virt-
ust góðar og hráefni væri mjög
ferskt þegar það bærist að landi.
Gæðin væru því mikil og mjölið
próteinríkt, sem mestu máli skipti.
Hún sagðist vonast til þess, að
viðskipti og önnur samskipti ís-
lands og Kína gætu aukizt báðum
þjóðpnum til hagsbóta.
Starfshópur fjall-
ar um flugstöðina
SKIPAÐUR hefur verið starfs-
hópur á vegum fjármálaráðuneyt-
isins og utanríkisráðuneytisins,
sem fjalla á um framkvæmda-
áætlanir við flugstöð Leifs Eiríks-
sonar á Keflavikurflugvelli. Einn-
ig á hann að yfirfara óuppgerða
reikninga frá verktökum þar.
Fulltrúar fjármálaráðuneytisins í
starfshópnum eru _ Sveinbjöm
Óskarsson og Baldur Ólafsson, og
fulltrúar utanríkisráðuneytisins eru
Kjartan Gunnarsson og Þorsteinn
Ingólfsson.
Nefndin kom saman í gær, og í
samtali við Morgunblaðið sagði Þor-
steinn Ingólfsson að þegar lægi fyrir
listi frá verktökum um þau verkefni
sem þeir teldu að þyrfti að inna af
hendi, ætti framkvæmdum við flug-
stöðina að teljast lokið. Starfshópn-
um er svo falið að athuga hversu
mikið það er sem greiða þarf á þessu
ári, leita leiða til að semja um þær
greiðslur sem unnt er að semja um
og tímasetja verklok.