Morgunblaðið - 10.06.1988, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988
fclk í
fréttum
GAULVERJABÆR:
Endurfundir 60 ára fermingarbarna
Gaulverjabæ.
Það var frísklegur hópur saman-
kominn í Gauiverjabæjarkirkju
á hvítasunnudag. Flest gátu verið
á að giska sextug að aldri en hópur-
inn var reyndar samankominn
vegna sextíu ára fermingarafmælis.
Þannig má bæta fjórtán árum við
aldurinn.
Þau voru viðstödd fermingu Kristín-
ar Úlfarsdóttur, eina fermingar-
bamsins þetta vorið. Á eftir fór
hópurinn saman út að borða á Sel-
fossi og voru rifjuð upp gömul
kynni. Sum höfðu ekki sést síðan á
fermingardaginn eða í sex áratugi.
Alls fermdust tíu böm vorið 1928
og eru átta af þeim enn á lífi.
Morgunblaðið/Valdimar Guðjónsson
Fremri röð frá vinstri: Séra Úlfar Guðmundsson Eyrarbakka, Margr-
ét Elíasdóttir frá Haugi, fermingarbarnið Kristin Úlfarsdóttir, dótt-
ir séra Úlfars, og Helga Júníusdóttir frá Rútsstöðum. Aftari röð:
Gissur Sigurðsson frá Syðri-Gegnishólum, Guðmundur Elís Guð-
mundsson frá Vorsabæjarhjáleigu, Páll Þórðarson, alinn upp i Rúts-
staðarnorðurkoti, Sigursteinn Olafsson frá Syðra-Velli og Stefán
Jasonarson bóndi og fréttaritari í Vorsabæ.
Lætur af störfum eftir 64 ár
Syðra-Langholti.
SIGURÐUR Ágústsson í Birt-
ingaholti lét nýlega af störfum
sem organisti við Hrepphólakirkju
en hann hefur gegnt því starfi í
rétt 64 ár.
Sigurður var aðeins þrettán ára
gamall þegar hann lék fyrst á
orgei við messu og alla tíð hefur
hann starfað mikið að tónlistar-
málum í Ámssýslu og verið af-
kastamikið tónskáld.
Við starfmu tekur Heiðmar Jóns-
son en hann verður einnig organ-
isti við Hrunakirkju. Aðalstarf
hans verður tónlistarkennsla við
Flúðaskóla en hann mun setjast
að á Flúðum. Heiðmar er Hún-
vetningur að ætt en hefur starfað
að undanfömu hjá söngmálastjóra
þjóðkirkjunnar.
Sigurði Ágústssyni vom færðar
alúðarþakkir fyrir störf hans við
Hrepphólakirkju í kaffisamsæti
sem haldið var í safnaðarheimilinu
á Hrepphólum að lokinni messu á
Sigurður Sigmundsaon
Séra Halídór Reynisson með þeim Sigurði Ágústssyni og Heiðm-
ari Jónssyni í Hrepphólakirkju.
hvtasunnudag. Jafnframt var slarfa.
Heiðmar boðinn velkominn til - Sig.Sigm.
Hér er Fergie með bros á vör þrátt fyrir allar raunir. Eins og sjá
má hefur hún blómstrað allvel upp á siðkastið.
FERGIE
Raunir hertogaynjunnar
að á ekki af Söm Ferguson
að ganga þessa dagana. Faðir
hennar, Ronald Ferguson, hefur
valdið gífurlegu hneyksli undanfar-
ið vegna óreiðu í kvennamálum
sínum og Elísabet drottning sér
rautt því Ronald var tíður gestur í
höllinni og talinn mikill vinur
drottningar. Fergie er sögð taka
þetta mjög nærri sér því hún hefur
alltaf verið mikil pabbastelpa.
Það er fleira sem veldur Fergie
áhyggjum m.a. hefur hún þyngst
mikið á meðgöngunni eða um 14
kíló á 6 mánuðum og þykir sumum
nóg um. Aðrir telja víst að Fergie
gangi með tvíbura og gæti það ver-
ið skýringin á þessari miklu þyngd-
araukningu.
Enn eitt vandamálið er að Fergie
finnst Andrew prins, eiginmaður
sinn eyða of litlum tíma með sér.
Hann hefur ýmsum skyldum að
gegna sem gerir það að verkum að
hann er mikið í burtu. Rætnifullar
rægitungur segja að Fergie sitji nú
heima í höllinni og borði sér til
hugarhægðar.
Þessar þijár litlu dugnaðarhnátur komu með hópnum og tóku þátt
í framkvæmdunum. Þær heita Ástríður Halldórsdóttir, Guðríður
Harðardóttir og Kolbrún Ösp Gestsdóttir.
VESTMANNAEYJAFERÐ
Vistmenn Sólheima
í skemmtiferð
Vistmenn og starfsfólk á Sól-
heimum í Grímsnesi brugðu sér
í skemmtiferð til Vestmannaeyja
um mánaðarmótin. Ferðin var farin
í samráði við bæjaryfirvöld í Vest-
mannaeyjum og voru menn sam-
mála um að hún hefði tekist í alla
staði mjög vel. Það voru 23 manns
sem tóku þátt í ferðinni og gistu
þau í Skátaheimilinu á staðnum.
Þau fóru í sundlaugina og í skoðun-
arferð um bæinn auk þess sem ÍBV
bauð þeim á landsleik íslendinga
og Svía sem var haldinn um þetta
leyti. Þrátt fyrir að ferðin hafi fyrst
og fremst verið farin til skemmtun-
ar, þá hafði hún einnig sinn tilgang
því ferðalangarnir tóku með sér
lúpínurætur sem þeir gróðursettu í
hlíðar Eldfells og Helgafells eða
milli fella eins og það kallast í Vest-
mannaeyjum. Þetta stórkostlega
framtak vistmanna og starfsfólks á
Sólheimum mun hindra að ein-
hveiju leyti frekari uppblástur og
sandfok á þessum slóðum. Þess ber
að geta að Reynir Pétur Ingvarsson
var tilnefndur plöntunarstjóri enda
er hann nokkuð fróður um plöntur
og annan gróður. Hópurinn gróður-
setti samtals 13.000 plöntur en þá
voru eftir 2.600 plöntur sem Eyja-
menn munu sjá um að gróðursetja.
Á þessu ári eru liðin 15 ár síðan
síðasta gosi lauk og eru þessar
framkvæmdir í gangi af því tilefni.
s