Morgunblaðið - 10.06.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.06.1988, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988 JL j Morgunblaðið/Bj arni Ifylgdmeð fullorðnum BÖRNIN, sem fara í góða veðrinu niður að Tjöm til að gefa öndunum brauð, hafa nú fleiri að fæða en áður, því fyrstu ungamir eru skriðnir úr eggjunum. Þeir telja þó ömggara að fara ekki langt frá móðurinni á meðan þeir em að læra sundtökin. Heimsókn forsætisráðherra til Finnlands: Rætt víð Holkeri um alþjóðleg samskipti Frá Lara Lundsten, fréttaritara Morfjunblaðsins. FORMLEG dagskrá Þorsteins Pálssonar í Helsinki hófst I gærmorg- un. Er þetta i fyrsta sinn sem forsætisráðherra Islands kemur í opin- bera heimsókn til Finnlands. Hitti Þorsteinn bæði Mauno Koivisto forseta og Harri Holkeri forsætisráðherra að máli í gær og síðdegis flutti hann fyrirlestur hjá Paasikivi-samtökunum, og fjallaði hann um utanríkis- og öryggisstefnu íslands. Forsætisráðherrahjónin Þor- samskiptum Finna og íslendinga. steinn Pálsson og Ingibjörg Rafnar komu til Helsinki á miðvikudag, en formleg dagskrá hófst ekki fyrr en í gær þar sem Mauno Koivisto for- seti var í Ungverjalandi þangað til í gær. Harri Holkeri forsætisráð- herra er staðgengill forsetans og gat þess vegna ekki sinnt sínum skyldum sem forsætisráðherra og gestgjafi íslensku forsætisráðherra- hjónanna á meðan. Formlegar viðræður hófust milli Þorsteins og Harris Holkeris í við- hafnarbústaði finnsku ríkisstjómar- innar í miðborg Helsinki strax í gærmorgun. Engin vandamál eru í VEÐUR IDAGkl. 12.00: Heimild: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspá kl. 16.16 í gær) VEÐURHORFUR / DAG, 10. JUNl 1988 YFIRLIT f GÆR: Yfir hafinu suður af landinu er víðáttumikil 1.038 mb hæð og frá henni hæðarhryggur norðvestur um Grænland, en 992ja mb lægð við Labrador. Áfram verður hlýtt um allt land, eink- um þó norðaustanlands. SPÁ: í dag verður áframhaldandi suðvestlæg átt á landinu, skýjað og súld öðru hverju með 10-15 stiga hita vestanlands en bjart veður og víða 15-20 stiga hiti austanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Suðvestlæg átt, skýjað og dálítil súld vestanlands, en léttir smám saman til austanlands. Hiti 10-17 stig, hlýjast á Norður- og Norðausturlandi. y, Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus V Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld CXD Mistur —{- Skafrenningur Þrumuveður % f % VEÐUR VÍÐA UMHEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 20 alskýjað Reykjavfk 10 þoka i grennd Bergen 17 léttskýjað Helsinki vantar Jan Mayen 2 léttskýjað Kaupmannah. 26 léttskýjað Narssarssuaq 13 léttskýjað Nuuk 14 alskýjað Osló 26 léttskýjað Stokkhólmur 24 hálfskýjað Þórshöfn 13 léttskýjað Algarve 19 skýjað Amsterdam 1S skúr Aþena vantar Barcelona 21 skýjað Chicago 11 heiðskírt Feneyjar 22 þokumóða Frankfurt 20 skýjað Glasgow 17 léttskýjað Hamborg 16 þokumóða Las Palmas 22 skýjað London 13 súld Los Angeles 13 heiðskírt Lúxemborg 18 skýjað Madríd 14 súld Malaga 20 alskýjað Mallorca 28 skýjað Montreal 9 skýjað New York 13 skúr Paris 23 léttskýjað Róm 23 léttskýjað San Diego 14 heiðskírt Winnipeg 12 iéttskýjað Helst er brýnt að finna íslenskan vaming sem Finnar vilja kaupa, en undanfarið hafa viðskipti landanna verið nokkuð óhagstæð íslending- um. Viðræður forsætisráðherranna snerust um þróun alþjóðamála, sam- skipti risaveldanna eftir leiðtoga- fundinn í Moskvu og sameiningar- stefnu Vestur-Evrópu innan vé- banda Evrópubandalagsins. Forsæt- isráðherramir voru nokkuð sam- huga um að þróun samskipta aust- urs og vesturs sé að komast í réttar skorður. Bæði Flnnar og íslendingar fylgjast náið með þeirri þróun sem miðar að því að gera Vestur-Evrópu að einu markaðssvæði. Hvorki Finnar né íslendingar hafa í hugað aðild að EB en hvorugum er kleift að einangra sig og loka augunum fyrir þessari þróun, enda vom þessi mál einnig umræðuefni forsætisráð- herranna. Um hádegi var móttaka í forseta- höllinni og stuttar viðræður við Mauno Koivisto forseta. Síðan var hádegisverður í boði forsetans og þar á eftir heimsókn í skipasmíða- stöð Wartsilá sem er stærsti skipa- framleiðandinn í Finnlandi um þess- ar mundir. í smíðum hjá Muártsilá er m.a. kjamorkuknúinn ísbrjótur sem Sovétmenn hafa pantað. Deginum lauk með kvöldverði í boði Harris Holkeris í embættis- bústað forsætisráðherra Finna, Villa Bjálbo, eftir ræðu Þorsteins Páls- sonar hjá Paasikivi-samtökunum. Formlegri dagskrá forsætisráð- herra í Finnlandi lýkur í kvöld en hann fer til Álandseyja um helgina og heldur svo áfram til Stokkhólms í fylgd með Holkeri á sunnudags- kvöldið. Forsætisráðherramir taka þar þátt í sumarfundi forsætisráð- herra Norðurlanda. Bændur lang- lífari en aðrir Hreyfa sig meira, drekka og reykja minna BÆNDUR eru langlífir og deyja síður úr krabbameiní og hjartasjúk- dómum en aðrir íslenskir karlar. Þetta er þakkað því að bændur hreyfi sig meira, en reyki og drekki minna en annar karlpeningur, að því er segir í fréttatilkynningu Vinnueftirlitsins um rannsókn á dánarmeini íslenskra bænda. Rannsókn Vinnueftirlitsins náði til tæplega 6.000 manna, sem greiddu í lífeyrissjóð bænda 1977- 1985. Vegna þess hve fáar konur voru í þeim hópi var þeim sleppt í rannsókninni. Rannsakað var hversu margir bændur hefðu dáið á umræddu tímabili og síðan athug- að hve mörgum dauðsföllum hefði mátt búast við hjá samsvarandi hópi íslenskra karla almennt. 286 bændur höfðu dáið, en búast mátti við 474,27 að mati Vinnueftirlitsins. Þótt færri bændur hafi dáið úr flestum tegundum krabbameina, öndunarfæra- og hjartasjúkdómum en aðrir, þá deyja fleiri úr krabba- meini í húð og vörum. Er þar kennt um mikilli útiveru og útfjólublárri geislun sólarinnar. Þá deyja óvenju- margir bændur úr hvítblæði. í fréttatilkynningu Vinnueftirlitsins segir að ekki sé Ijóst hvað valdi því, en menn hafi velt því fyrir sér hvort vissir búskaparhættir ráði einhveiju, til dæmis komrækt, mjólkurframleiðsla eða notkun plágueyða og tilbúins áburðar. Utanríkisráðherra um Rockall: Danir samþykkja ekki mikil réttindi okkar „Elleman-Jensen sagði ennfrem- ur að Danir gætu ekki samþykkt að íslendingar ættu mikil réttindi við Rockall. Ég spurði hann hvort ég mætti hafa þetta eftir honum í íjölmiðlum og hann játaði því," sagði Steingrímur einnig. Hann sagði að þetta hefðu verið lauslegar samræður og þeir myndu ræðast betur við í dag og þá myndu málin væntanlega skýrast betur. Meðal annars ætlaði hann að at- huga hvort ekki væri hægt að ákveða fund milli þjóðanna um þetta málefni. dalkurl „Við ræddum lítillega um Rockall í dag, bæði hvað varðar bráðabirgðaniðurstöður nefndarinnar og einnig þá stað- reynd að hugsanleg olía er á miklu dýpi og engin tækni tiltæk i dag til þess að nýta hana,“ sagði Steingrímur Hermannsson, ut- anríkisráðherra, í samtali í gær við Morgunblaðið, aðspurður um viðræður sínar við Uffe Elle- man-Jensen, utanríkisráðherra Danmerkur, en Steingrímur sit- ur nú fund utanríkisráðaherra Atlantshaf sbandalagsríkj anna, sem haldinn er í Madrid. í • l LISTAHÁTÍÐ í REYKJAVIK Dagskráin föstudag 10. Kl. 20.00 Þjóðleikhúsið Marmari eftir Guðmund Kamban Kl. 20.30 Þjóðleikhúsið, Litla sviðið Ef ég væri þú eftir Þor- varð Helgason Kl. 20.30 Kjarvalsstaðir Svava Bemharðsdóttir og Anna Guðný Guð- mundsdóttir íslensk tónlist fyrir lág- fiðlu og píanó I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.