Morgunblaðið - 10.06.1988, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988
„SÖFNUM KRÖFTUM“
eftírAlfreð G.
Alfreðsson
í dag og á morgun standa Lands-
samtök hjartasjúkiinga fyrir fjár-
söfnun um land allt til þjálfunar-
og endurhæfingarstöðvar fyrir
sjúklinga með hjarta-, æða- og
lungnasjúkdóma. Félagar og vel-
unnarar Landssamtaka hjartasjúkl-
inga munu þá bjóða til sölu hjarta-
löguð merki á 200 krónur og er það
von samtakanna, að almenningur
bregðist vel við og kaupi merkin
og styrki þar með mjög brýnt verk-
efni. Verkefni, sem gæti komið þér,
samlandi góður, eða þínum nánustu
að gagni í framtíðinni, þegar þið
kynnuð að þurfa á slíkri endur-
hæfingu að halda.
Forsaga þessa máls er sú, að
fyrir um það bil ári var stofnuð
nefnd að frumkvæði Landssamtaka
hjartasjúklinga til undirbúnings
stofnunar þjálfunar- og endurhæf-
ingarstöðvar, sem helgaði sig sér-
staklega endurhæfíngu sjúklinga
með hjarta- og æðasjúkdóma eða
lungnasjúkdóma. í nefndina voru
tilnefndir tveir fulltrúar frá eftir-
töldum aðilum: SÍBS, Hjartavemd,
Landssamtökum hjartasjúklinga,
Landspítalanum, Borgarspítalan-
um, Landakotsspítalanum og
Reykjalundi. Nefndin hefur haldið
marga fundi um málið og er ein-
huga um þörfína fyrir slíka endur-
hæfíngarstöð til viðbótar þeirri að-
stöðu, sem þegar er fyrir hendi á
Reykjalundi, á Borgarspítala og
víðar. Unnið hefur verið mikið og
markvisst starf til undirbúnings því
að hrinda þessari hugmynd í fram-
kvæmd. Meginþættir slíkrar endur-.
hæfíngarstarfsemi munu vera sem
hér segir:
I. Endurhæfíng í beinu fram-
haldi af sjúkrahúsdvöl skv.
tilvísun læknis, sem starfrækt
verður í náinni samvinnu við
Reykjalund og endurhæfíng-
arstarf spítalanna.
II. Almenn þjónusta endurhæf-
ingarstöðvar (göngudeild), þar
sem fyrrverandi sjúklingum
gefst kostur á viðhaldsþjálfun
og endurhæfingu undir hand-
leiðslu sérmenntaðs starfs-
fóiks. Þjálfun sem i sumum
tilfellum gæti verið æviþjálf-
un.
III. Ráðgjafar- og upplýsingaþjón-
usta varðandi ýmsa sam-
tengda þætti, eins og t.d. lifn-
aðarhætti, mataræði, réttindi
sjúklinga o.fl. Einnig almenn
fræðsla fyrir sjúklinga, bæði
um hjarta- og æðasjúkdóma
og lungnasjúkdóma, og áhrif
þjálfunar á líkamann.
Árlegur fjöldi nýrra sjúklinga
með hjarta- og æðasjúkdóma, sem
þyrftu á þjálfun að halda í beinu
framhaldi af sjúkrahúsdvöl, er áætl-
aður 400—500 manns. Þar af má
reikna með að 200—250 manns
fari í þjálfun og endurhæfíngu á
Reykjalund eða Borgarspítala, en
200—250 manns þurfí því á þjón-
ustu hinnar nýju endurhæfingar-
stöðvar að halda samkvæmt starfs-
þætti I. Gera má ráð fyrir, að þetta
þjálfunartímabil sé þrír mánuðir
samtals og að á þeim tíma komi
hver sjúklingur í 30 skipti.
Auk þess er áætlað, að 100—150
sjúklingar bætist við í viðhaldsþjálf-
un á ári hverju og er þá miðað við
30% af heildarfjölda sjúklinganna.
Þessir sjúklingar munu njóta þjón-
ustu samkvæmt starfsþætti II. Gera
má ráð fyrir að þeir komi a.m.k.
tvisvar í viku í þjálfun, allt frá
nokkrum vikum upp í 12 mánuði á
ári. Ekki er alveg ljóst hve margir
lungnasjúklingar munu sækja þessa
þjálfun en reikna má með a.m.k.
100—150 manns á ári og meirihluti
þessara sjúklinga mun fara í við-
haldsþjálfíin samkvæmt starfsþætti
II. Hver sjúklingur, sem fer í endur-
hæfíngu í beinu framhaldi af
sjúkrahúsdvöl (starfsþáttur I), fer
í læknisskoðun og álagspróf í byij-
un og lok meðferðar. Meðferðin er
síðan sniðin eftir þörf hvers og eins.
Samskonar mat þarf einnig að
framkvæma á þeim sjúklingum,
sem koma í viðhaldsþjálfun (starfs-
þáttur II), hafí einhver tími liðið frá
fyrra þjálfunarskeiði. Enda þótt
meðferð sjúklinga sé einstaklings-
bundin er einnig gert ráð fyrir hóp-
þjálfun, u.þ.b. 20 manns í hverjum
hópi.
Samhliða þjálfun og endurhæf-
ingu mun fara fram almenn ffæðsla
fyrir sjúklinga um hjarta- og æða-
sjúkdóma og lungnasjúkdóma og
áhrif þjálfunar á líkamann (starfs-
þáttur III). Gert er ráð fyrir 4—6
kennslustundum a.m.k.fyrir hvem
hóp.
Eins og glöggt má sjá af framan-
rituðu, þá er þörfín brýn og verk-
efni stór. Fullkomin þjálfunar- og
endurhæfíngarstöð þyrfti því að
vera allstór í sniðum og myndi krefj-
ast verulegs húsnæðis og starfsliðs,
sem kalla myndi á mikið fjármagn,
sennilega meira en liggur á lausu
í þjóðfélaginu um þessar mundir.
Þess vegna er það að undirbúnings-
nefndin, sem áður er minnst á,
áformar að hefja vísi að þessari
starfsemi nú þegar í haust, eða eins
fljótt og hægt verður, og þá í
smáum stíl til að byija með og láta
síðan reynsluna skera úr um fram-
haldið. I því skyni hefur verið leitað
eftir hentugum samastað og m.a.
kannað húsnæði og aðstaða hjá
Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra.
í athugun er að taka það húsnæði
á leigu að afloknum starfsdegi
stofnunarinnar. Hefur þeirri mála-
leitan verið vel tekið af húsráðend-
um. Engin ákvörðun hefur þó verið
tekin í þessu sambandi.
Þrátt fyrir það, að undirbúnings-
nefndin hafí tekið mjög svo raun-
hæft á hlutunum og ætli sér ekki
að ana út í tug- ef ekki hundruða
Alfreð G. Alfreðsson
milljóna fjárfestingu með full-
kominni endurhæfingarstöð ásamt
öllu tilheyrandi, heldur ætli sér að
byija smátt, þá þarf mikla fjármuni
til þess að kaupa sérhæfð tæki til
starfseminnar og að hrinda henni
af stað. Það er til þess, sem Lands-
samtök hjartasjúklinga, ætla að
safna fé í dag og á morgun með
merkjasölunni.
Tvisvar sinnum áður hafa Lands-
samtök hjartasjúklinga efnt til
merkjasölu. Fyrst til öflunar fjár til
kaupa á tækjum fyrir hjartaskurð-
deild Landspítalans, sem samtökin
áttu stóran þátt í að hrinda af
stokkunum, og síðara skiptið til
kaupa á tækjum fyrir endurhæfíng-
ardeildir hjartasjúklinga að Reykja-
lundi og Borgarspítala. í bæði skipt-
in tók almenningur þessum merkja-
sölum mjög vel og Grettistökum var
lyft í tækjakaupum, sem viðkom-
andi stofnanir hefðu seint getað
keypt sjálfar. Auk þess afla Lands-
samtökin fjár með jólakorta- og
minningarkortasölu, og talsvert
hefur verið um gjafir og áheit. Öllu
fé sem safnast er varið til styrktar
hjartasjúklingum með kaupum á
tækjum, sem gefín hafa verið til
stofnana sem hafa með hjartasjúkl-
inga að gera. Auk þeirra, sem áður
er getið, hafa verið gefín tæki til
hjartadeildar Landspítalans, Borg-
arspítalans, Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri og Fjórðungssjúkra-
hússins á Neskaupstað.
Kjörorð söfnunarinnar á föstu-
dag og laugardag er „Söfnum kröft-
um“. Verum öll samtaka í að hjálpa
þeim, sem þjást af hjarta- og æða-
sjúkdómum eða lungnasjúkdómum,
til að safna kröftum og verða aftur
færir um að lifa eðlilegu lífí. Gerum
endurhæfingarstöðina að veruleika.
íslendingar, hvar á landinu sem
þið eruð. Söfnum kröftum. Kaupið
merki Landssamtaka hjartasjúkl-
inga föstudag og laugardag. Lifið
heil, með fyrirfram þökk.
Höfundur er varaformaður
Landssamtaka hjartasjúklinga.
Kosið um opnun áfeng-
isútsölu Borgarnesi
Borgamesi.
BÆJARSTJÓRN Borgarness samþykkti nýverið að fram skuli fara
atkvæðagreiðsla meðal bæjarbúa um hvort opnuð skuli áfengisútsala
í Borgarnesi. Tillagan var lögð fram af Eyjólfi Torfa Geirssyni for-
seta bæjarsljómar og var hún samþykkt með sex atkvæðum gegn
einu. Ákveðið hefur verið að atkvæðagreiðslan fari fram samhliða
forsetakosningunum þann 25. júní nk.
Að sögn Eyjólfs Torfa Geirssonar,
flutningsmanns tillögunnar, þá er
aðaltilgangurinn með þessari tillögu
að auka almenna verslun í Borgar-
nesi, „við Borgnesingar lifum á þjón-
ustu við nágrannabyggðarlögin og
ég lít á það sem eitt af aðalhlutverk-
um bæjarstjórnarinnar að auka þá
þjónustu og efla.“ Sagði Eyjólftir
Torfí að ef tillagan yrði samþykkt
þá myndi bæjarstjómin óska eftir
því að áfengisútsala yrði sett á fót
í Borgamesi. Kvaðst Eyjólfur telja
að meirihluti bæjarbúa væri fylgjandi
því að onuð yrði áfengisútsala í Bor-
gamesi. Aðspurður kvaðst Eyjólfur
ekki óttast að dryklqa ykist samfara
opnun áfengisútsölu í Borgamesi.
Kvaðst Eyjólfur telja að mesta breyt-
ingin yrði sú að fólk í Borgamesi
þyrfti þá ekki lengur að gera sér
ferð út á Akranes eftir áfengi og
vegalengdin styttist verulega fyrir
fólk úr nágrannabyggðarlögum Bor-
gamess að nálgast þessa vöm.
- TKÞ
Vinir íslands í
Bandaríkjunum
VINIR íslands nefnast samtök
sem hafa verið stofnuð í
Ameríku. Ná þessi samtök fyrst
og fremst yfir Bandaríkin og
einnig til Kanada og víðar. Kynn-
ingarbréf fyrir samtökin var sent
út af Erni Aðalsteinssyni form-
anni íslendingafélagsins í Delaw-
are Valley, til allra íslendingafé-
laga vestra og annarra samtaka
er ætla má að hefðu áhuga, sem
og fjölda einstaklinga. Meðal
þeirra sem taldir eru upp í frétta-
bréfi um málið má nefna: Walter
Mondale, blaðamennina Dan Rat-
her og Peter Jennings auk fjölda
þekktra Bandaríkjamanna.
Það voru þau Guðrún Martyny,
Öm Aðalsteinsson og Úlfur Sigur-
mundsson, sem lögðu kannske mest
af mörkum við undirbúninginn að
stofnun þessara samtaka, en margir
aðrir lögðu einnig hönd á plóg.
Markmið samtakanna er að vetja
hagsmuni íslands í öllum málum og
koma á framfæri réttum upplýsing-
um til almennings, sem og að þrýsta
á stjómmálastofnanir og stjóm-
málamenn þar sem _ slíkt skiptir
máli fyrir hagsmuni íslands og fs-
lendinga.
MeðaJ meðlima er fólk sem er
fætt á íslandi, afkomendur fslend-
inga, makar og vinir þessa fólks,
Bandaríkjamenn sem eiga viðskipti
við ísland sem og ýmis önnur nor-
ræn félög og hópar.
Reiknað er með að tala meðlima
muni fljótlega skipta hundmðum
þúsunda.
Allir þeir sem vilja styrkja þessi
samtök geta skráð sig hjá Guðrúnu
Martyny, 8410 Brewster Drive,
Alexandria, VA. 22308, USA, en
hún mun sjá um rekstur samtak-
STOFNFUNDUR Ferðamálasam-
taka höfuðborgarsvæðisins verð-
ur haldinn á Hótel Sögu næst
komandi mánudag.
Það eru Samtök sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu sem standa að
samtökum þessum og er tilgangur
þeirra að móta samræmda stefnu í
ferðamálum höfuðborgarsvæðisins.
Sambærileg samtök eru þegar starf-
andi í flestum öðrum landshlutum.
Á blaðamannfundi sem undirbún-
ingsnefnd að stofnun Ferðamála-
samtaka höfuðborgarsvæðisins hélt
til kynningar á samtökunum kom
Guðrún Martyny
anna fyrst um sinn. Er hún forseti
íslendingafélagsins í Washington.
- SHÞ
fram, að þeim er meðal annars ætl-
að að verða hlekkur á milli aðila
ferðamálaiðnaðarjns og hins opin-
bera, og auðvelda tillögum til úrbóta
að berast á milli þessara aðila.
Ferðamálasamtökunum er ætlað
að kynna höfuðborgarsvæðið og þá
möguleika sem þar bjóðast. Verður
kynningunni beint jafnt til ferða-
manna, erlendra sem innlendra, og
íbúa þeirra níu sveitarfélaga sem eru
á svæði samtakanna. Jafnframt
munu þau beita sér fyrir samræmd-
um staðli í þjónustu, svo sem stjömu-
gjöf hótela.
Ferðamálasamtök stofn-
uð á höfuðborgarsvæðinu
Húsnæðismiðlun stúdenta:
Abyrgðartryggð-
ir leigutakar
Húsnæðismiðlun stúdenta stendur um þessar mundir fyrir átaki til
þess að auka framboð á leiguhúsnæði fyrir stúdenta. Miðlunin býður
húsnæðiseigendum nú upp á þá þjónustu að skylda leigutaka á vegum
miðlunarinnar að kaupa sér sérstaka leigjendaábyrgð um leið og þeir
ganga frá leigusamningi. Mun hér vera um alveg nýja tegund trygg-
ingar að ræða.
Húsnæðismiðlun hefur verið rekin
hjá Stúdentaráði Háskóla íslands um
árabil. Síðastliðinn vetur var rekstur
hennar hins vegar I höndum Félags-
stofnunar stúdenta. „Núverandi
stjóm Stúdentaráðs ákvað hins vegar
í síðasta mánuði að axla sjálf ábyrgð
á rekstri miðlunarinnar, enda mat
stjómarinnar að hún hafí ekki geng-
ið nógu vel hjá Félagsstofnun," sagði
Sveinn Andri Sveinsson formaður
Stúdentaráðs í samtali við Morgun-
blaðið.
í lok síðasta mánaðar náðust
samningar milli Stúdentaráðs og
tiyggingarfélags um nýja tegund
ábyrgðar, svokallaða Ieigjenda-
ábyrgð. Ábyrgð þessi felst í því að
stúdent sem leigir húsnæði í gegnum
miðlunina kaupir ábyrgðartryggingu
vegna skemmda sem hann kann að
valda og er bótaskyldur fyrir.
Ábyrgðin nær til tjóns sem nemur
allt að 300.000 krónum, sjálfsábyrgð
nemur 30.000 krónum, en sjálf
tryggingin kostar 2.000 krónur.
„Heimildir Stúdentaráðs kveða þessa
tryggingu vera einstaka í sinni röð;
er hér um alveg nýja tegund trygg-
ingar að ræða," sagði Sveinn.
Að sögn Sveins er það aðallega
tvennt sem býr að baki þessari nýju
tryggingu: í fyrsta lagi er verið að
reyna að bæta úr því neyðarástandi
sem ríkir í húsnæðismálum stúdenta.
Til að bæta ástandið þarf að stór-
auka framboð á húsnæði til leigu
handa stúdentum og til þess að reyna
að laða að húsnæðiseigendur er með-
al annars boðið upp á þessa trygg-
ingu. í öðru lagi er upp á þessa trygg-
ingu boðið til að vetja stúdenta fyrir
fjárhagslegum skakkaföllum; þeir
mega almennt verr við því að lenda
í þungum skaðabótakröfum.
Húsnæðismiðlun stúdenta hóf að
bjóða þessa tryggingu 2. júní síðast-
liðinn. Þann dag og hinn næsta tvö-
faldaðist framboð á leiguhúsnæði frá
því sem hafði verið allan mánuðinn
á undan. „Virðist hið nýja fyrirkomu-
lag að minnsta kosti gefa góð fyrir-
heit,“ sagði Sveinn að lokum.