Morgunblaðið - 10.06.1988, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988
19
Landslið Islands í opnum flokki á Norðurlandamótinu í brids. Frá vinstri eru: Sævar Þorbjömsson,
Valur Sigurðsson, Sigurður Sverrisson, Hjalti Eliasson, Þorlákur Jónsson, Karl Sigurhjartarson og Jón
Baldursson.
Norðurlandamótið í brids:
Mótið talið eitt sterkasta
bridsmót heimsins í ár
ÖLL Norðurlöndin senda sitt skipað Esther Jakobsdóttur, Erlu Valgerði Kristjónsdóttur og Önnnu
sterkasta lið til keppni á Norður- Siguijónsdóttur, Hjördísi Eyþórs- Þóru Jónsdóttur. Fyrirliði er Jakob
landamótinu í brids sem haldið dóttur, Kristjönu Steingrímsdóttur, R. Möller.
Kísiliðjan skil-
aði 12,2 milljóna
króna hagnaði
AÐALFUNDUR Kísiliðjunnar hf.
verður haldinn í Mývatnssveit
mánudaginn 13. júní nk. í tengsl-
um við aðalfund félagsins verður
þess minnst að 20 ár era liðin frá
upphafi kísilgúrframleiðslu
verksmiðjunnar. Gestir Kísiliðj-
unnar hf. verða m.a. Friðrik
Sophusson, iðnaðarráðherra, og
æðstu yfirmenn Manville Corp-
oration í Evrópu. Um 50 erlendis
gestir koma til landsins af þessu
tilefni.
Á árinu 1987 skilaði Kísiliðjan
hf. 12,2 milljóna króna rekstrar-
hagnaði. Það verður að teljast við-
unandi miðað við erfíð ytri skilyrði.
Mikil samkeppni ríkti á kísilgúr-
mörkuðum og gengisþróun var
óhagstæð. Efnahagsstaða félagsins
31. desember 1987 var góð. Hjá
verksmiðjunni störfuðu að meðatali
63 menn. Framkvæmdastjóri er
Róbert B. Agnarsson.
Kísiliðjan hf. framleiðir kísilgúr,
sem notaður er til síunar á ýmsum
vökvum. Dæmi um slíka vökva eru
vatn, bjór, olía og vín. Kísilgúrinn
notast einnig sem fylliefni, t.a.m: í
tannkrem og málningu. Hráefni
verksmiðjunnar eru skeljaleifar
kísilþörungsins, sem lifir í Mývatni.
Jarðgufa úr Bjamarflagi er notuð
til þurrkunar á kísilgúmum.
Kísiliðjan hf. er sameignarfélag
íslenska ríkisins, fjölmargra sveit-
ar- og bæjarfélaga á Norðaustur-
landi og bandaríska fyrirtækisins
Manville Corporation.
Sölufélagið Manville hf. á
Húsavík sér um sölu á framleiðslu-
vömm Kísiliðjunnar hf. Nær öll
framleiðslan er seld á markað í
Evrópu. Sölufélagið er í eign Man-
ville Corporation. Framkvæmda-
stjóri er Höskuldur A. Sigurgeirs-
son.
(Fréttatilkynning)
verður ( Reykjavík dagana 26.
júni til 1. júlí. Má því búast við
að þetta verði eitt sterkasta
bridsmót í heiminum í ár, en á
Evrópumótinu á síðasta ári voru
Norðurlandaþjóðir i fjórum af 6
efstu sætunum.
Árangur Norðurlandaþjóðanna á
alþjóðlegum bridsmótum hefur vak-
ið talsverða athygli og jafnvel kom-
ið til tals að Norðurlandamótið gefí
rétt til að keppa á heimsmeistara-
mótinu í brids sem haldið er annað-
hvert ár. Evrópa hefur rétt á tveim-
ur sveitum á heimsmeistaramótið
og hingað til hafa tvær efstu sveit-
irnar á Evrópumótinu verið sendar.
Á síðasta Evrópumóti urðu Svíar
efstir, Norðmenn urðu i 3. sæti,
íslendingar í 4-5. sæti og Danir í
6. sæti.
Norðurlandamótið í ár er það 21.
í röðinni en fyrsta mótið fór fram
árið 1946. Mótið er að jafnaði hald-
ið annaðhvert ár og er þetta í 3.
skiptið sem það er haldið á íslandi.
Áður var mótið haldið hér árin 1966
og 1978.
íslendingar hafa þrisvar endað í
3. sæti, árið 1966, 1982 og 1984.
Svíar og Norðmenn hafa oftast orð-
ið Norðurlandameistarar, en núver-
andi Norðurlandameistarar eru
Danir.
Bæði er keppt í opnum flokki og
kvennaflokki á mótinu. Sex sveitir
spila í opnum flokki tvöfalda um-
ferð, en Færejdngar bættust í hóp-
inn árið 1984. í kvennaflokki keppa
aðeins 3 sveitir þrefalda umferð.
íslenska liðið í opna flokki er
skipað Jóni Baldurssyni, Karli Sig-
urhjartarsyni, Sigurði Sverrissyni,
Sævari Þorbjömssyni, Val Sigurðs-
syni og Þorláki Jónssyni. Fyrirliði
er Hjalti Elíasson. Kvennaliðið er
Bílskúr
brann í Hruna-
mannahreppi
BÍLSKÚR brann að Auðsholti í
Hrunamannahreppi aðfaranótt
þriðjudags og eyðilögðust í brun-
anum tæki og efni til sælgætis-
gerðar en húsið sjálft er
óskemmt. Greiðlega gekk að
slökkva eldinn, sem talið er að
hafi kviknað út frá neista úr
garðsláttuvél.
Heimamenn brugðu við skjótt og
slökktu eldinn á skömmum tíma
með kröftugri vatnsdælu sem er á
bænum. Húsið er lítið sem ekkert
skemmt og er góðri einangrun fyrir
að þakka, að sögn slökkviliðsins á
Fiúðum en þegar það bar að, höfðu
heimamenn að mestu ráðið að nið-
urlögum eldsins.
Fijáls á fjórum hjólum
og í „eigin“ húsi!
Verðdæmi:
LUXEMBORG: Flug + bíll í 2 vikur frá kr. 17.880 á mann.* SUPER-APEX verð. Bíll í B-flokki.
WALCHSEE: Flug + íbúð í Ilgerhof í 2 vikur frá kr. 28.640 á mann.* Flogið til Salzburg.
Tímabilið 10. júlí til 28. ágúst. Bíll í B-flokki í 2 vikur kr. 24.060.
BIERSDORF: Flug + íbúð í 2 vikur frá kr. 20.390 á mann.* Flogið til Luxemborgar.
Tímabilið 18. júní til 9. júlí. SUPER-APEX verð. Bíll í B-flokki í 2 vikur kr. 19.300.
SALZBURG: Flug + bíll í 2 vikur frá kr. 25.240 á mann.* Bíll í B-flokki.
* Meðaltalsverð á mann miðað við 2 fullorðna og 2 böm, 2ja — 11 ára.
FLUGLEIÐIR
-fyrírþíg-
Allar nánari upplýsingar á söluskrífstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum um allt land og ferðaskrífstofum.