Morgunblaðið - 10.06.1988, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988
23
virðulegan mann, sem var þekktur
sem gangandi alfræðisafn yfír allt,
sem laut að sjúkratryggingum í
landinu. í áratugi hafði ekki neinu
máli, sem einhveiju nam, verið ráð-
ið til lykta á þeim vettvangi, án
þess að hans atbeini kæmi til. Að
svo miklu leyti sem einhver gat
talist vera óskeikull í þessum mála-
flokki, þá var það hann. En kvíði
minn um samstarf þessara tveggja
einstaklinga af ólíkum kynslóðum
hvarf fljótt. Gunnar tók mér svo
vel og ljúfmannlega, að á betra
varð ekki kosið. Hann var óþreyt-
andi að kenna mér og leiðbeina, án
nokkurrar tilhneigingar til að auð-
mýkja þann, sem svo lítið vissi, með
yfírlætislegum athugasemdum. Ég
naut þess að hann var fæddur kenn-
ari og hafði unun af því að fræða
og leiðbeina. Ekki höfðu margir
dagar liðið í mínu nýja starfi, þegar
ég hafði áttað mig á því hvílíkur
ávinningur það var að kynnast
Gunnari J. Möller. Hann var stór-
gáfaður maður og hafði afburða-
þekkingu á sínu sviði. Hann vissi
ekki eingöngu allt, sem vita þurfti
um sjúkratryggingakerfíð, heldur
var lögfræðiþekkingu hans og mál-
flutnings'næfni viðbrugðið. En þótt
þessir kostir væru vissulega ráðandi
og grípandi, þá held ég, að það
hafí verið annað, sem varð til þess
að ég laðaðist svo mjög að honum,
eins og átti eftir að koma á daginn.
Fyrir innan þá skel Gunnars, sem
sumir menn sáu aldrei bak við, var
annar maður, einkar áhugaverður.
Það var í raun hugljúfur listamað-
ur, unnandi hinu stóra og fagra í
listunum, ekki síst tónlistinni. Og
umfram allt góður og heiðarlegur
maður.
Það voru víðlend umræðuefnin,
sem Gunnari voru hugleikin. Hann
var tónlistarmaður og tónlistarunn-
andi, gerði miklar kröfur um listræn
gæði, en var um leið sanngjam og
þakklátur njótandi. Hann tók afar
hart á ambögum í málfari, enda
hvort tveggja í senn málamaður og
smekkmaður.
Við lögðum okkur fram báðir
tveir að fínna okkur stund á hveij-
um virkum degi til að rabba saman
yfír kaffíbolla. Auðvitað vorum við
ekki sammála um hvað eina, en
sjónarmið okkar féllu ótrúlega vel
saman og áhugamálin voru áþekk.
Svo mikið mátum við þessar stund-
ir, að við gerðum okkar ýtrasta til
að tryggja okkur þær, þótt við ynn-
um ekki lengur á sama vinnustað.
Gunnar hvarf frá SR og var sett-
ur forstjóri Tryggingastofnunar
ríkisins um skeið og ég tók við
hans starfí. En það raskaði ekki
okkar daglegu fundum. Mitt nýja
starf hjá borginni gerði þessar
stundir okkar að sjálfsögðu stop-
ulli, en fjarri var að þær féllu niður.
Gunnar J. Möller stjómaði lengi
samningaviðræðum við lækna fyrir
hönd tryggingakerfísins. Ég var um
hríð lærlingur hans þar. Læknar
hafa sagt mér, að stundum hafi
þeim þótt formaður samninga-
nefndar viðmælenda sinna óþarf-
lega fastur fyrir og þeim stóð vissu-
lega ógn af þekkingu hans og ótrú-
legu minni. Hann gat rakið forsend-
ur einstakra samninga ofan í
smæstu atriði, áratugi aftur í
tímann. Því var erfítt fýrir hann
að eiga ætlaði einhver sér að hag-
ræða forsendum, viljandi eða óvilj-
ajimgilak.
UPP UM FJOLL OG
Hvort sem þú ætlar í stutta gönguferð í Heiðmörk eða í úti-
legu í Þórsmörk þá hefst ferðin hjá okkur í Skátabúðinni.
Mikið úrval af útilegubúnaði fyrir reynt sem óreynt útiveru
fólk. Faglegar leiðbeiningar. Aðeins þekkt vörumerki.
Upp um fjöll og firnindi með-Skátabúðinni.
fWAUK
SNORRABRAUT 60 SÍM112045
SKATABUÐIIM
- 1
(é Já ?!
.Ví' 5
L .
I
Áskriftarsíminn er 83033
_^^uglýsinga-
síminn er 2 24 80
Ódýr 26 létta máttíð????
Jd, í veisluborginni Amsterdam.