Morgunblaðið - 10.06.1988, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ '1988
AÐALFUNDUR SAMBANDS ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
Nær 600 milljóna króna tap á SÍS og kaupfélögunum:
Endurskipulagning Samvinnu-
verslunarinnar þolir enga bið
Frá aðalfundi Sambands
íslenskra samvinnufélaga í
Bifröst i gær. Valur Arnþórsson,
stjórnarformaður, er í ræðustól.
Lengst til vinstri er forstjóri
Sambandsins, Guðjón B.
Ólafsson.
- sagði Guðjón
B. Ólafsson
forsljóri
Sambandsins
MIKIÐ tap á rekstri Sambands-
ins og kaupfélaganna var helsta
umræðuefnið á 86. aðalfundi
Sambandsins í Samvinnuskólan-
um i Bifröst í gær. „Þetta er al-
varlegri staða en við höfum séð
um áratuga skeið,“ sagði einn
þeirra sem tók til máls á fundin-
um. Tap félagsins á árinu 1987
er nær 220 milljónir króna, ef
sala eigna er dregin frá, og tap
kaupfélaganna á landinu er 358
milljónir króna. Guðjón B. Ólafs-
son, forstjóri Sambandsins, sagði
í ræðu sinni að óhagstæð afkoma
verslunardeildarinnar væri
helsta skýringin á rekstrarhalla
Sambandsins, en verslunardeUd-
in var rekin með 219 mUIjóna
króna halla. „Stjórn sambandsins
hefur þungar áhyggjur af rekstri
þess og kaupfélaganna og það
er krafa stjómarinnar að for-
stjóri og f ramkvæmdastjóm
komi fram með áætlanir til að
snúa þessu við og það mjög
fljótt,“ sagði Valur Amþórsson,
formaður stjórnar Sambandsins,
í opnunarræðu sinni á fundinum.
Enn reynt að semja um
Svalbarðseyri
Undanfarið ár var annasamt hjá
Sambandinu og hvert stórmálið rak
annað, sagði Valur Amþórsson.
Valur minntist stuttlega á nokkur
stærstu málin sem hefðu komið
fyrir stjómina frá síðasta aðal-
fundi, svo sem Útvegsbankamálið,
Smárahvammsmálið og ágreining-
inn í stjóm Iceland Seafood, en
staldraði síðan nokkuð við málefiii
Kaupfélags Svalbarðseyrar. Vaiur
sagði að Sambandið hefði áður var-
að menn við að gangast í ábyrgðir
fyrir kaupfélög og gerði það enn.
Þeir bændur sem hefðu beðið Sam-
bandið um að létta af þeim ábyrgð-
um vegna Kaupfélags Svalbarðs-
eyrar hefðu ekki haft samráð við
Sambandið um það. Sambandið
hefði þó leitast við að létta ábyrgð-
um af að hluta gegn því að bændur
og bankar legðu til á móti. Valur
sagði að samningaviðræður um
þetta mál stæðu enn yfír.
Valur nefndi erfíð rekstrarskil-
yrði, samdrátt í landbúnaði og
fólksfækkun á landsbyggðinni sem
hluta af skýringunni á erfíðri stöðu
Sambandsins og kaupfélaganna.
Hann sagði að hrikalegur halli væri
á samvinnuversluninni og nefndi
hugmyndir sem fram komu í svo-
kallaðri Sesam-skýrslu um endur-
skipulagningu verslunarrekstrar-
ins, þar sem lagt var til að verslun-
ardeild Sambandsins yrði gerð sjálf-
stæðari. Sagði Valur að sú stefna
hefði tekið á sig ákveðna mynd á
undirbúningsstofnfundi Samtaka
samvinnuverslana sem haldinn var
á Bifröst á miðvikudag.
Tap þrátt fyrir
mikla eignasölu
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri
Sambandsins, sagði í byijun ræðu
sinnar að fyrirsjáanlegur samdrátt-
ur í efnahagslífinu þýddi að íslensk
atvinnufyrirtæki yrðu að standast
samkeppni, ekki aðeins innanlands
heldur einnig erlendis frá. Hann fór
því næst yfír rekstur Sambandsins
á síðasta ári. Velta Sambandsins
jókst um 12,9%, í 17,5 milljarða,
en samt hefði Sambandið í raun
tapað markaðshlutdeild sinni frá
fyrra ári. Útflutningur, sem er að
stærstum hluta sjávarafurðir, nam
55% af heildarveltu Sambandsins
og er það aukning frá síðasta ári.
Halli af reglulegri starfsemi
Sambandsins nam 100 milljónum
króna á árinu ’87 á móti 114 millj-
óna króna hagnaði á árinu áður.
Hagnaður af svokallaðri óreglulegri
starfsemi varð 73,6 milljónir króna,
en stærsti liðurinn þar er sala á
Sambandshúsinu við Lindargötu og
vörugeymslumar við Geirsgötu
sem, ásamt annarri eignasölu, skil-
aði 167 milljóna króna hagnaði.
Heildamiðurstaða rekstrarreikn-
ings fyrir 1987 er 49 milljóna króna
halli.
Afkoma einstakra deilda
„Rekstrarhalli Sambandsins á sl.
ári orsakaðist fyrst og fremst af
óhagstæðri afkomu verslanadeild-
anna, bæði verslunardeildar og bún-
aðardeildar, ásamt miklum halla á
ullariðnaði“. Af einstökum deildum
var langmestur halli á verslunar-
deild, 219 millj. kr. á móti 88 millj.
kr. halla 1986. Halli á ullariðnaði
fer líklega uppí 117 millj. Halli á
búnaðardeild var 44 millj. kr. á
móti 1 millj. kr. hagnaði 1986. í
skipadeild var 9 millj. kr. halli á
móti 76 millj. kr. hagnaði í fyrra.
í tveimur deildum var hagnaður á
árinu 1987; í búvörudeild var hann
38 millj. kr. á móti 13 millj. 1986
og í sjávarafurðadeild, sem er
stærsta deildin með 7,9 milljarða
kr. veltu, var 27 millj. kr. hagnað-
ur, en var 44 millj. í fyrra.
„Afkoma Sambandsins er mjög
slæm miðað við allt venjulegt og
eðlilegt mat á afkomu fyrirtækis
og sérstaklega ef miðað er við sjálf-
sagða og eðlilega kröfu um arð af
því eignarfé sem í fyrirtækinu er
bundið." Sjálfsagt væri að gera
kröfu um 10% ávöxtun af 2,5 millj-
arða kr. eignarhluta Sambandsins
í ýmsum fyrirtækjum, þ.e. 250
millj. kr., en greiddur arður af
hlutabréfum hefði aðeins verið 18,1
millj. kr. á sl. ári.
Samvinnuverslun í kreppu
í 200 litlum búðum
Guðjón fjallaði nokkuð ýtarlega
um vanda verslunardeildanna.
„Sambandsverslunin á Islandi verð-
ur ekki rekin til langframa í yfír
200 litlum búðum, sem nánast hver
um sig hefur sjálfstæða innkaupa-,
útlits- og þjónustustefnu. Annað
Morgunblaðið/Þorkell
anna var 358 millj. kr. á sl. ári á
móti 69 millj. kr. hagnaði í fyrra
og sagði Guðjón að það væri ljóst
að það væri fyrst og fremst fjár-
magnskostnaðurinn sem væri að
sliga rekstur félaganna.
„Nýtum stærðina og
stöndum saman“
í lok ræðu sinnar sagði Guðjón:
„Hin ytri rekstrarskilyrði hafa verið
með eindæmum erfið í þeim grein-
um sem Sambandið og kaupfélögin
starfa aðallega. Hér er fyrst og
fremst átt við fískvinnslu, verslun
á dreifbýlissvæðinu, vinnslu og
verslun með landbúnaðarvörur og
ullariðnað. Miklar og stöðugar
hækkanir á innlendum kostnaðar-
liðum, samfara svonefndri „fast-
gengisstefnu" hafa nánast kippt
rekstrargrundvelli undan þessum
greinum, einkum eftir mitt ár 1987.
Jafnframt er ljóst að þörf er innri
aðgerða bæði í Sambandinu og í
kaupfélögunum til að auk hag-
kvæmni í rekstri. Þar ber okkur
skylda til að nýta þá möguleika sem
stærðin býður uppá og standa sam-
an að lausn hinna ýmsu verkefna."
Fulltrúar á aðalfundi Sambandsins.
hvort yrði að samræma stefnu og
vinnubrögð í Sambandinu og kaup-
félögunum eða Samvinnuhreyfingin
yrði undir í vaxandi samkeppni um
verslun. „Endurskipulagning Sam-
vinnuverslunarinnar þolir enga bið,
við höfum ekkert bolmagn til þess
að halda áfram þeim mikla halla-
rekstri sem við höfum orðið að þola
á verslun í Sambandinu og kaup-
félögunum á undanfömum árum.“
Heildarvelta kaupfélaganna jókst
um 23,7%, úr 19,9 milljörðum í
24,6 milljarða kr. Tap kaupfélag-
Rannsóknarþing um æðakölkun:
Neysla á fiskí talin minnka
hættu á hjartasjúkdómum
Á NORRÆNU rannsóknarþingi um æðakölkun, sem hófst í gær
á Hótel Loftleiðum, kom meðal annars fram að hætta á hjartasjúk-
dómum minnkar við neyslu fiskmetis. Umræða að morgni fyrsta
ráðstefnudags snerist um fiskfitu og áhrif hennar á hjarta og
æðakerfið.
Opnunarræðu ráðstefnunnar
flutti danski sérfræðingurinn Jom
Dyerberg, sem rannsakað hefur
eskimóa á norðanverðu Grænl-
andi, en á meðal þeirra eru hjarta-
sjúkdómar nær óþekktir.
Á þessum slóðum er enga fæðu
að fá nema úr sjónum og því er
fíta sú sem eskimóamir neyta
mest fískfíta. Dyerberg taldi að
þetta benti til þess að samhengi
væri á milli neyslu físks og tíðni
hjartasjúkdóma.
I kjölfar rannsókna Dyerbergs
hafa farið fram rannsóknir víða
um heim sem rennt hafa stoðum
undir þessa kenningu, að hans
sögn. Þetta gæti síðar leitt til stór-
aukinnar fískneyslu á meðal al-
mennings, og þá um leið aukinna
tekna fyrir Islendinga. Kvað Dy-
erberg það vera hugsanlegt að
langlífi íslendinga sjálfra væri
meðal annars fískneyslu þeirra
að þakka.
Sigmundur Guðbjarnarson, há-
skólarektor, flutti erindi þar sem
hann fjallaði um áhrif mataræðis,
streitu og aldurs á efnasamsetn-
ingu frumuhimnu í hjarta og áhrif
{ess á skyndilegan hjartadauða.
erindi hans kom það meðal ann-
ars fram að ævilíkur á Norðurl-
öndum em hæstar á meðal fisk-
neysluþjóðanna, íslendinga og
Færeyinga.
Norrænu rannsóknarþingi um
æðakölkun lýkur síðdegis í dag.