Morgunblaðið - 10.06.1988, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988
Moskva:
Jeltsín verður
fulltrúi á flokks-
ráðstefnunni
Verður fulltrúi sovétlýðveldisins
Karelíu, sem liggur að Finnlandi
Moskvu. Reuter.
BORIS Jeltsín, ákafur umbóta-
sinni, sem var rekinn úr emb-
ætti formanns kommúnista-
flokksins í Moskvu, hefur verið
kjörinn fulltrúi á flokksráð-
stefnuna síðar í mánuðinum.
Gennadíj Gerasimov, talsmaður
Sovétstjómarinnar, sagði frétta-
mönnum, að Jeltsín hefði verið
kjörinn fulltrúi fyrir sovétlýðveldið
í Karelíu, sem liggur að Finn-
landi, og bætti því við, að við full-
trúarkjörið hefði ekki verið tekið
neitt tillit til búsetu.
Jeltsín, sem er 57 ára gamall,
missti formennskuna í Moskvu-
deild flokksins og sæti í stjóm-
málaráðinu eftir átakafund í mið-
stjóminni þar sem hann gagnrýndi
hve seint gengi að koma á umbót-
um. Honum var þó ekki kastað út
í ystu myrkur eins og oft hefur
gerst með þá, sem falla í ónáð,
heldur skipaður fyrsti varaformað-
ur í byggingaráætlanaráði ríkis-
ins. Jeltsín hefur líka eftir sem
áður látið í sér heyra um sovésk
Noregur:
Mannaskipti
í stjórninni?
Ósló. Reuter.
GRO Harlem Brundtland forsæt-
isráðherra hefur á prjónunum
að endurskipuleggja ríkisstjórn
sína að hluta í næstu viku, þegar
sumarfrí þingmanna hefst, að því
er sagði í forsíðufrétt í norska
dagblaðinu Arbeiderbladet í
gær.
stjómmál og í síðustu viku hvatti
hann til, að Jegor Lígasjov, hug-
myndafræðingur flokksins, yrði
látinn víkja.
Míkhaíl Gorbatsjov, leiðtogi
Sovétríkjanna, tók þessi ummæli
Jeltsíns óstinnt upp og sagði, að
hann yrði að skýra þau fyrir mið-
stjóminni, en samt er litið svo á,
að þeir Jeltsín og Gorbatsjov séu
samheijar. Gorbatsjov hefur skor-
að á flokksdeildir vítt og breitt um
landið að kjósa umbótasinnaða
fulltrúa á ráðstefnuna en ljóst er,
að ekki hefur alls staðar verið
orðið við því.
Fulltrúar á flokksráðstefnunni,
þeirri fyrstu frá árinu 1941, verða
5.000 talsins og eiga þeir að taka
afstöðu til umbótaáætlunar Gor-
batsjovs.
Tyrkland:
Faðir fórnar
dóttur sinni
Ankara, Reuter.
TYRKI játaði fyrir lögreglunni
að hafa drepið eins árs gamla
dóttur sina eftir að hafa dreymt
að trúarleiðtogi hefði skipað sér
að fórna því sem hann mæti mest.
„Mér þótti afar vænt um dóttur
mína. Ég klæddi hana sem brúði,
kyssti hana og fór með hana í tekke
(trúarhús múslíma) með hníf með-
ferðis. Síðan skar ég hana á háls
og baðst fyrir. Ég sé ekki eftir
neinu," er haft eftir manninum.
Lögreglan yfírheyrir nú manninn
og leitar að trúarleiðtoganum.
Báturinn, sem Jóannes Andreasen ætlar
að sigla frá Færeyjum til Hjaltlands, er
eins go siglandi hjónarúm. Myndin var
tekin á reynslusiglingu við Færeyjar og
er sægarpurinn á innfelldu myndinni.
Sifflt á rúmi frá Fær-
eyjum til Hiaitlands
Þórshöfn, frá Snorra Halldórssyni, frétta
ÞAÐ ER ólíklegt að Þórshafn-
arbúinn, Jóannes Andreasen,
eigi væran svefn fyrir höndum
nú næstu daga þó svo að hann
komi til með að dveljast i rúm-
inu. Hann hyggst nú um miðjan
júni sigla á bát, sem einna helst
likist rúmi, frá Færeyjum til
Hjaltlandseyja. Tilgangur
ferðalagsins er að safna fé tii
sundlaugarbyggingar á Nólsey.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Jóannes reynir „rúmsiglingu" því
að hann hefur áður keppt á sama
báti í róðri. I þeirri keppni gekk
honum að vísu ekki vel að fylgja
hinum bátunum eftir en hlaut
ira Morgunblaðsins
sérstök verðlaun fyrir skemmti-
legasta bátinn. Eftir þá keppni
endurbætti Jóannes bát sinn,
smíðaði stefni og styrkti kjölinn,
auk þess sem hann kom fyrir á
honum 40 hestafla utanborðsmót-
or.
Nú stefnir Jóannes á að sigla
þær 196 mílur sem á milli eyjaklas-
anna eru á 20 mílna meðalhraða.
Enn hefur brottfarardagur ekki
verið endanlega ákveðinn enda
verður að leggja af stað í algjörri
stillu. Þegar Jóannes var spurður
að því hvort honum þætti líklegt
að ætlunarverkið tækist sagði
hann möguleikana ekki ýkja mikla
enda siglingin aðallega farin til
að safna fyrir sundlaugarbygg-
ingu eins og áður sagði. Ætlast
er til að fólk geti sér til um hversu
margar mflur Jóannes nái að
sigla, sá sem næst kemst réttri
vegalengd vinnur sér inn ferð til
Florída.
Arkitektar hafa þegar teiknað
sundlaugina sem reisa á á Nólsey
en hún mun verða í laginu eins
og víkingaskip. Við laugina verður
komið fyrir líkani af bát Ovi Joen-
sen, „Diana Victoria", en Ovi réri
bátnum alla leið til Kaupmanna-
hafnar í fjáröflunarskyni fyrir
sundlaugina.
Blaðið, sem öðrum þræði er mál-
gagn ríkisstjómar Verkamanna-
flokksins, segist hafa þetta eftir
heimildum innan ríkisstjómarinnar.
Embættismenn vilja ekkert um
málið segja.
í frétt Arbeiderbladet segir, að
tveir kvenráðherrar, Kirsti Kolle
Gröndahl kirkju- og menntamála-
ráðherra og Vasla Vetlesen aðstoð-
amtanríkisráðherra muni ömgg-
lega víkja úr ríkisstjóminni. Alls
sitja nú átta konur í norsku ríkis-
stjóminni, fleiri en í nokkm öðm
ríki í heiminum.
Frönsku þingkosningarnar:
Jafnaðarmenn hvetja menn
til að nota atkvæðisréttínn
París. Reuter.
FRANSKIR jafnaðarmenn ótt-
ast mjög að ná ekki meirihluta
á þingi í kosningunum á sunnu-
dag og reyndu því í gær að
Tóbaksréttarhöldin í Bandaríkjunum:
Þrjú fyrirtæki sökuð um
rangfærslur oer samsæri
Newark. Reuter. ^
Newark. Reuter. ’
ALRÍKISDÓMUR tók á þriðju-
dag til meðferðar mál á hendur
þremur bandarískum tóbaks-
fyrirtækjum, sem sökuð eru um
að hafa veitt almenningi villandi
upplýsingar um áhrif reykinga
og valdið dauða konu í New Jers-
ey-.
I dómsmáli þessu hafa kviðdóm-
endur í fyrsta sinn haft aðgang að
trúnaðarskjölum fyrirtækjanna um
heilsufarslega skaðsemi reykinga.
Sækjandinn hefur látið þau orð
falla, að skjölin skjóti stoðum und-
ir þær ásakanir, að tóbaksfyrirtæk-
in hafi gert samsæri um að sann-
færa almenning um, að reykingar
væru skaðlausar, þótt þau hefðu
undir höndum upplýsingar um, að
svo væri ekki.
Réttarhöldin eru framhald mál-
sóknar gegn tóbaksfyrirtækjunum
Liggett Group, Philip Morris og
Loews Corp’s Lorillard. Stefnandi
í því máli var Antonio Cipollone,
en eiginkona hans, Rose, sem
reykti sígarettur, lést úr lungna-
krabbameini 1984.
Tóbaksfyrirtækin halda fram, að
Rose Cipolone hafi verið skaðsemi
reykinga kunn. Meðal þess, sem
dómurinn verður að taka afstöðu
til, er, hvort fyrirtækin hafí hafst
eitthvað það að fyrir árið 1966
(þegar farið var að merkja vindlin-
gapakka með viðvörunum um skað-
semi vörunnar fyrir heilsu fólks),
sem komið hafí Rose Cipolone til
að byija eða halda áfram að reykja.
Dómurinn verður einnig að
ígrunda, hvort reykingar konunnar
fyrir árið 1966 hafi valdið lungna-
krabbameininu, sem dró hana til
dauða.
„Sækjandinn verður að sýna
fram á, að meiri líkur séu til, að
reykingar frú Cipolone hafi átt
beinan þátt í veikindum hennar og
dauða en að svo hafí ekki verið,"
sagði dómarinn.
höfða til kjósenda, sem talið er
að hafi setið heima í fyrri um-
ferð þingkosninganna sl. sunnu-
dag.
Bannað hefur verið að gera
skoðanakannanir frá því viku fyrir
fyrri umferð frönsku þingkosning-
anna, eða í 12 daga. Menn, sem
vinna kannanir af þessu tagi,
sögðu í gær að útkoman á sunnu-
dag væri mjög tvísýn. Jafnaðar-
menn gætu því aðeins gert sér
vonir um öruggan sigur að þeim
tækist að koma þeim kjósendum
í kjörklefana, sem sátu heima í
fyrri umferðinni.
„Úrslitin ráðast í kjörklefanum
á sunnudag, það er ekkert fyrir-
fram gefíð. „í að minnsta kosti
eitthundrað kjördæmum eru úr-
slitin það tvísýn að 1-2 prósent
kjósenda koma til með að ráða
hver hnossið hreppir,“ sagði Mic-
hel Rocard, forsætisráðherra í
gær.
Leiðtogar jafnaðarmanna, með
Rocard í aðalhlutverki, voru á þön-
um í gær að reyna að vinna kjós-
endur á sitt band. Notuðu þeir
hvert tækifæri sem til gafst til að
gagnrýna samstarf, sem mið- og
hægriflokkarnir annars vegar og
Þjóðemisfylking Jean-Marie Le
Pen hins vegar hafa gert með sér
í nokkrum kjördæmum til þess að
freista þess að koma í veg fyrir
kjör jafnaðarmanns. Rocard líkti
samkomulaginu við mengunarslys
og sagði það hafa skaðað álit
Frakklands út á við.
Alls sátu 34% kjósenda heima
í fyrri umferð frönsku þingkosn-
inganna og er það met út af fyrir
sig. Til þess að vinna þingsæti
varð frambjóðandi að hljóta a.m.k.
50% atkvæða. Endanleg úrslit
fengust þá í 122 kjördæmi og
verður því kosið um 455 sæti á
sunnudag.
Spár, sem byggðar eru á niður-
stöðum í fyrri umferðinni, gera ráð
fyrir því að Jafnaðarmannaflokk-
urinn hljóti allt að 40 sæta þing-
meirihluta, en útreikningamir
þykja ekki áreiðanlegir vegna
lítillar kjörsóknar síðastliðinn
sunnudag. Sigri jafnaðarmenn
ekki og öðlist meirihluta yrði það
meiriháttar áfall fyrir Francois
Mitterrand, nýkjörin forseta.