Morgunblaðið - 10.06.1988, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988
Gamli bærinn í Laufási opnaður:
Þessar sögulegu minjar
mega ekki glatast okkur
- segir séra Bolli Gústavsson
Framkvæmdir hafa að undanförnu staðið yfir í gamla bænum
í Laufási við Eyjafjörð og hefur hann nú verið opnaður gestum.
Skipta þurfti um gólf í hluta bæjarins auk þess sem styrkja þurfti
vegg og smíða þurfti nýjan stiga upp á baðstofuloftið. Þjóðminjasaf-
nið á og rekur bæinn í Laufási, en viðhald hefur fylgt prestsem-
bættinu þar og það er séra Bolli Gústavsson, kona hans, Matthild-
ur Jónsdóttir, og böm sem séð hafa um bæinn síðustu 23 árin eða
frá því BoIIi gerðist prestur þar.
„Það er vissulega erfítt að reka
og halda við slíkum minjum. Það
er ekki nóg að opna á vorin og
loka á haustin. Það verður sífellt
að halda húsunum við, endumýja
og hlaða torfið upp á nýtt,“ sagði
Bolli þegar Morgunblaðsmenn
heimsóttu Laufás í gærmorgun.
Gamli bærinn var byggður árið
1865 og var búið í honum allt til
ársins 1936. Séra Bjöm Halldórs-
son stóð fyrir byggingunni og
síðastur presta bjó þar séra Þor-
varður G. Þormar. Bolli segir að
gamli bærinn njóti óskiptrar at-
hygli ferðamanna, sem heimsækja
Laufás, enda hefur verið reynt að
róta sem minnstu til frá því menn
bjuggu þar. Meira að segja segist
Bolli kveikja undir hlóðunum til
að fá lyktina í bæinn sem tilheyrði
gamla tímanum. Kirkjan var byggð
um svipað leyti og er hún gjörsam-
lega óbreytt frá fyrstu tíð. A 100
ára afmæli hennar, 1965, var hún
þó styrkt og bætt öll, en engar
breytingar hafa verið gerðar.
Tryggvi Gunnarsson fyrrverandi
bankastjóri sem jafnframt var
lærður timburmeistari byggði
kirkjuna, en bæði faðir hans og
afí höfðu þjónað í Laufási. Séra
Bjöm kom í Laufás sem aðstoðar-
prestur Gunnars, föður Tryggva,
og sem kennari. I kirkjunni má sjá
ýmsa sögulega muni svo sem pred-
ikunarstól síðan 1698.
í gamla bænum bjuggu að stað-
aldri um 30 manns, prestsfjöl-
skyldan, ráðsmaður ásamt fjöl-
skyldu sinni og sextán vinnuhjú.
Jörðin þótti og þykir enn mikil
bújörð og sem dæmi um það feng-
ust 100 kg af æðardún á vori
hveiju um það leyti er byggingin
reis. Auk varpsins var þar stundað-
ur hefðbundinn búskapur, kúa- og
fjárbúskapur, og var presturinn
jafnframt hluthafi í hákarlaútgerð.
Bolli segir að bærinn hafi að
mestu verið notaður undir geymsl-
ur frá því flutt var úr honum 1936
allt fram til ársins 1957 þegar
ráðist var í uppbyggingu. Þá þurfti
að endumýja allt torf í bænum,
en innviðir fengu að mestu að
halda sér. Bærinn var síðan endur-
hlaðinn að nýju upp úr 1980 og .
sagði Bolli að það þyrfti að gera
á 20 ára fresti svo vel ætti að-
vera. „Ég á von á því að gamli
bærinn fái að halda sér í núver-
andi mynd enda yrði það mjög
sorglegt ef við töpuðum þessum
sögulegu minjum auk þess sem
Laufás ætti sér merka sögu og
prestatal síðan 1045. Rætt hefur
verið um að sameina prestaköll,
en Laufásprestakall er mjög vel í
sveit sett og þjónar yfir 800
manns, allt frá Grenivík, allri Sval-
barðsströnd og að Akureyri." Bolli
segir að gamla bæinn vanti úðun-
arkerfi á torfþökin þegar þurrkar
séu miklir og ennfremur blásturs-
kerfi, sem nota mætti inni í bænum
eftir veturinn.
Gamli bærinn í Laufási við Eyja-
flörð er opinn daglega frá kl. 10.00
til 18.00 nema á mánudögum og
er aðgangseyrir 100 krónur.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Séra Bolli Gústavsson í Laufási. A veggnum situr sonur hans, Pétur, sem í sumar sýnir gestum
bæinn. Heimilishundurinn Plokkson fékk að vera með á myndinni.
Morgunblaðið/Rúnar Þór Bjömsson
Steinunn Stefánsdóttir með dóttir sina Vilborgu sem er 5 ára.
Húsfrejja i Gríms-
ey verkar fés á
markað í Portúgal
STEINUNN Stefánsdóttir, húsfreyja i Grimsey, hóf verkun á fésum
i febrúar síðastliðnum. Fésin fara á markað í Portúgal í gegnum SÍF
og fást 65 krónur fyrir hvert kg af stærri gerðinni og 45 krónur
fyrir minni gerðina, en hausarnir eru flokkaðir i tvær stærðir. Hún
hefur ásamt manni sinum Sigurði Bjarnasyni, sem rekur vélaverk-
stæði í eynni, komið sér upp aðstöðu i húsi, er notað var áður undir
rafstöð þeirra Grímseyinga og býst fastlega við að halda starfsem-
inni áfram.
Verkunin fer þannig fram að
hausinn er klofinn og hausbeinið
skorið úr. Hausinn er saltaður í kör
og látinn standa í þijá sólarhringa.
í fimm sólarhringa stendur afurðin
síðan á bretti og er pakkað eftir
þann tíma í 55 kg umbúðir, þá tilbú-
in til útflutnings. Ársframleiðslan á
íslandi fer vaxandi og voru um það
bil 800 tonn af fésum söltuð á
landinu öllu á nýlokinni vertíð. Stein-
unn hefur framleitt um 10 tonn frá
því hún byijaði verkun.
Steinunn segist hafa þurft að fjár-
festa í einni véi upp á 230.000 krón-
ur auk annarra smærri hluta svo sem
kör og salt til framleiðslunnar. Eig-
inmaðurinn ætti síðan vörubíl, sem
kæmi að góðum notum við að flytja
hausana frá fískverkunarhúsunum
og upp í gömlu rafstöðina. Að öðru
leyti sæi hún ein um framleiðsluna,
en hefði stundum notið aðstoðar
tengdaföður síns. Steinunn sagðist
hafa hinar sæmilegustu tekjur upp
úr verkuninni og nefndi hún tíu til
fimmtán þúsund krónur á dag á
meðan á vertíðinni stóð.
Hún segist hafa unnið í salthúsi
í Grímsey áður en hún fór út í eigin
atvinnurekstur. „Ég er Ólafsfirðing-
ur og hvatti pabbi mig að fara út í
þetta enda hefur hann sjálfur stund-
að fésverkun heima á Ólafsfirði í
eina þijá vetur. Vertíðin var alls
ekki góð hér hjá okkur eins og ann-
ars staðar svo það gæti verið miklu
meira að gera hjá mér ef vel aflað-
ist. Ég ætla að sjá til í sumar hvort
ég get hirt eitthvað af hausunum,
en þeir mega ekki vera smærri en
24 sm útflattir," sagði Steinunn.
Hún sagðist ekki fá greitt fyrir
framleiðsluna fyrr en þetta fimm til
sex vikum eftir að fésin færu af
landi brott áleiðis ti! Portúgal. Áður
fyrr fengu verkendur greitt áður en
afurðin var send út, en vegna undir-
boða Norðmanna á markaðnum hafa
íslendingar jafnframt orðið að veita
greiðslufrest.
Fulltniar vinabæjanna hittast
Fulltrúar vinabæja Akureyrar hittast á Akureyri um helgina til
skrafs og ráðagerða. 25 ára gömul hefð er fyrir vinarbæjamótum og
er nú í bígerð fimm ára áætlun slikra móta sem nær ekki aðeins til
íþrótta- og æskulýðsstarfsemi, eins og tíðkast hefur til þessa, heldur
á hún einnig að taka til tónlistar- og menningarstarfsemi. Þá er vænt-
anlegur um helgina 80 manna hópur grænlenskra unglinga. Þeir dvelj-
ast í Lundarskóla og etja kappi við jafnaldra sína hér á Akureyri í
íþróttum.
Vinarbæir Akureyrar eru Lahti í
Finnlandi, Vásterás í Svíþjóð, Rand-
ers í Danmörku, Álesund í Noregi
og Narssarsuaq í Grænlandi. Tveir
fulltrúar koma frá hveiju landi fyrir
sig, en frá Grænlandi koma fimm
fulltrúar. Slíkir fulltrúafundir eru
haldnir árlega til skiptis í bæjunum
og vinabæjamót eru jafnframt árleg-
ir viðburðir. Næsta vinabæjamót fer
fram um miðjan ágúst í Randers.
Ætla má að þangað komi 50 manna
hópar frá hveiju landanna fyrir sig
og verða þátttakendur á sviði mynd-
listar og tónlistar. Frá Akureyri fer
20 manna hópur Stórsveitar Tónlist-
arskólans auk tveggja myndlistar-
hópa á grunnskólastigi og eins á
framhaldsskólastigi og hópur frá
Norræna félaginu á Akureyri.
Ingólfur Ármannsson menningar-
fulltrúi Akureyrarbæjar sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að á næsta
ári yrði vinabæjamót haldið í Noregi
þar sem lögð yrði megináhersla á
tónlist og árið 1990 yrði það haldið
í Svíþjóð þar sem menningarsaga
og félagsstörf ýmiskonar yrðu á
dagskránni. Á Akureyri yrði vina-
bæjamót árið 1991 þar sem fjallað
yrði aðallega um bókmenntir og leik-
listin yrði meginþemað í Finnlandi
árið 1992.
Sigfús Jónsson bæjarstjóri og
Gunnar Ragnars forseti bæjarstjóm-
ar taka þátt í fulltrúafundinum fyrir
hönd Akureyrarbæjar. Ingólfur
sagði að hugmyndin væri með þess-
ari fimm ára áætlun að víkka þann
hóp sem hingað til hefði tekið þátt
í vinabæjamótunum. Þá verður rætt
um svokallaða vinabæjapassa, sem
gefíð hafa handhöfum þeirra ýmis
hlunnindi í viðkomandi bæjum.
Reynslan af þeim hefur hinsvegar
ekki skilað sér nægilega vel og eru
uppi vangaveltur um breytingar á
því fyrirkomulagi. í þriðja lagi verð-
ur rætt um inngöngu Grænlendinga
í þennan vinabæjahring. Narssaq er
einungis vinabær Akureyrar, en ekki
hinna bæjanna. Þeir hafa þó áhuga
á að kanna málin og af því tilefni
var þeim boðið til Akureyrar nú.
Lacoste-
mótum
helgina
að Jaðri
Lacoste-mótið I golfi fer
fram um helgina að Jaðri.
Leiknar verða 36 holur
með og án forgjafar. Mótið
hefst á morgun, laugar-
dag, kl. 9.00 og því lýkur
á sunnudag. Vænst er mik-
illar þátttöku.
Þá er unnið af krafti að
undirbúningi Arctie Open-
mótsins, sem fram fer að Jaðri
24. og 25. júní. Þátttökufjöldi
er takmarkaður við 120
manns og eru þeir, sem áhuga
hafa á þátttöku, hvattir til að
láta skrá sig sem fyrst því
skráningu lýkur að kvöldi 19.
júní. Von er á milli 50 og 60
erlendum kylfíngum á mótið,
en mikið hefur verið ritað um
þetta miðnæturmót í erlendum
fagtímaritum.
IE
UþtKlOC
ALLTAF A UPPLEIÐ
Landsins bestu .
TtrrrrTT m opið um helgar frá kl 11.30 - 03.00
FIZiZiLK Virkadagafrákl. 11.30-01.00