Morgunblaðið - 10.06.1988, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988
41
Rússamir koma
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Björgum Rússanum („Russkies").
Sýnd í Bíoborginni.
Bandarisk. Leikstjóri: Rick Ros-
entahl. Handrit: Alan Jay Glu-
eckman og Sheldon Lettich.
Framleiðendur: Mark Levinson
og Scott Rosenfelt. Kvikmynda-
taka: Reed Smoot. Helstu hlut-
verk: Whip Hubley, Leaf Phoen-
ix, Peter Billingsley og Stefan
DeSaUe.
í batnandi heimi er best að lifa
er máltæki sem segir allt um mynd-
ina Björgum Rússanum („Russki-
es“), sem sýnd er í Bíóborginni. Það
er drengjamynd um batnandi sam-
skipti stórveldanna sett í einfaldar,
jrfirborðskenndar, auðskildar og
væmnar Hollywood-umbúðir fyrir
krakka.
Drengjamyndir, ef einhveijir eru
í vafa, eru myndir um ævintýri
stráka („Stand By Me“ er dæmi-
gerð) þar sem stelpur eru í mesta
lagi leiðinlegar systur og foreldrar
leiðinlegur óþarfi. Strákamir lesa
hasarblöð, eru í stríðsleikjum og
eiga leynistað og einn daginn í
Björgum Rússanum finna þeir skip-
reika Rússa á leynistaðnum sínum.
Það verða í fyrstu engir fagnaðar-
fundir enda drengirnir aldir upp á
hasarblaðahetjunni Slammer, sem
er sífellt að beija á vondum Rúss-
um. Getur verið að Rússar hafi ráð-
ist inn í Bandaríkin? Ah, nei ekkert
svo B-myndalegt. Fyrr en varir
hefur tekist vinátta með Rússanum
og snáðunum ef ekki gagnkvæmur
skilningur.
Vilji er allt sem þarf og bara
með því að tala saman má eyða
ótta og auka trúnað er ein af fjöl-
mörgum hjartnæmum yfirlýsingum
myndarinnar sem er í flesta staði
gerð fyrir krakka sem hafa ekki
allt of mikinn skilning á stöðu
heimsmála, eins og skiljanlegt er.
Þegar handritshöfundamir reyna
að kafa dýpra veldur það einungis
ruglingi (atburðimir í Ungveija-
landi ’56 fara sjálfsagt fyrir ofan
garð og neðan hjá krökkum eins
og pabbi eins drengjanna rekur þá
í myndinni).
En drengimir hafa mjög mótaðar
hugmyndir um Rússland miðað við
að þeir eiga ekki að vera miklu eldri
en tíu eða 12 ára og geta rifist um
heimsvaldapólitík. Þeir hafa allan
sinn fróðleik frá hasarblaðahetj-
unni, sem er góður punktur í mynd-
inni; það er hætt við að hin Ram-
Úr myndinni Björgum Rússanum.
bóíska heimsmynd skíni skærast í
augum smásnáðanna.
Alit Rússans á Bandaríkjunum
er auðvitað allt á einn veg; dásam-
legt, dásamlegt, dásamlegt. Hann
talar einum of oft um „liti“, „tón-
list" og „frelsi" landsins. Það næg-
ir kannski að nefna að annar hand-
rithöfundur myndarinnar, Sheldon
Lettich, skrifar handritið að Rambó
þijú með Sly.
Boðskapur myndarinnar er auð-
vitað mjög viðkunnanlegur og tíma-
setningin gæti ekki verið betri en
Björgum Rússánum kemst sjaldn-
ast yfir meðallagið, rís sjaldnast
yfir einfeldni sína til að koma manni
á óvart. Allt er svo gott og fallegt
að meira að segja vondu kallamir
eiga í erfiðleikum með að vera vond-
ir.
En sumt er líka gott. Helstu
áhrifin sem Rússinn hefur á líf
drengjanna liggja í betri bók-
menntasmekk. Aður en yfir lýkur
hafa snáðarnir hent hasarblöðunum
og lagst í Stríð og frið Tolstojs.
Höfn:
Morgunblaðið/Jón Gunnar Gunnarsson
Hinn nýi minnisvarði um sjómenn og sjósókn sem vígður var á Höfn
í Hornafirði á sjómannadaginn.
Minnisvarði vígður
á sjómannadaginn
Höfn, Hornafirði.
AFHJÚPUN minnisvarða um sjó-
menn og sjósókn verður sá at-
burður á sjómannadegi á Höfn í
ár, sem menn munu minnast. Til
athafnarinnar var boðið nokkrum
gestum og sjómenn og Hafnarbú-
ar fjöbnenntu.
Óskar Helgason, formaður minnis-
varðanefndar afhjúpaði varðann,
séra Baldur Kristjánsson vígði hann
og flutt voru stutt ávörp. Heiðraðir
voru tveir aldnir sjómenn, Rafnkell
Þorleifsson einn af fyrstu útgerðar-
mönnum á Höfn og Þórlindur Helga-
son frá Eskifirði.
Jóhann Clausen, fyrrverandi bæj-
arstjóri á Eskifirði og áhugamaður
um byggingu varðans, flutti kveðju
austfirskra sjómanna. Höfundur
minnisvarðans er Helgi Gíslason,
listamaður. Áletrun á plötu á varðan-
um er „Minnisvarði um sjómenn og
sjósókn Homfirðinga og Austfirð-
inga.“
Hátíðarhöld vegna dagsins hófust
hinsvegar í gær, en þá var róðrar-
keppni 18 liða í höfninni. Þar eftir
fóru stærri bátar með gesti í siglingu
út fyrir ós, sem venja er. Eftir há-
degi á sunnudag var sjómannamessa
fjölsótt. Að henni lokinni voru hátí-
ðarhöld í fþróttahúsinu, en rigningar-
úði var og þvf óhægt um vik úti við.
Góðum sjómannadegi á Höfn lauk
svo með dansleikjum á Hótel Höfn
og í Sindrabæ.
- JGG
Þig íangar alltaf í meira þegar þú
grillar marineruð rif frá SS
varanlegt skjól
Skúlagotu 42, Pósthólf 5056
125 Reykjavík, Slmi (91)11547
HARPA lífinu lit!