Morgunblaðið - 10.06.1988, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1988
SERBLAÐ
á fímmtudögum
Auglýsingar í viðskiptablaðið
þurfa að hafa borist auglýsinga-
deildfyrirkl. 12.00.
á mánudögum.
Gífurleg lóða■
eftirspum
Nmr 50% aukning 4 umferð
um hðfnina á ári
Velgengni Útgerðar-
félags Akureyringa
nýrari fastrignaisalflr
- en betri?
jfHorgunblabib
VIÐSKIPTIAIVINNULÍF
-blaá allra landsmanna
-U
SigurðurB. Árna-
son umsjónarmaður
Fæddur 29. september 1928
Dáinn 2. júní 1988
Sigurður Bachmann Ámason var
ráðinn húsvörður við Sjómannaskól-
ann 1. september 1973. Við Sigurð-
ur störfuðum náið saman sl. 15 ár.
Nú á kveðjustund þegar leiðir skilj-
ast, kemur margt upp í huga
manns.
Efst er þakklæti fyrir gott sam-
starf og þægilegt viðmót, samstarf-
ið var með ágætum. Á þessu tíma-
bili fóru fram miklar viðgerðir og
endurbætur á húsinu, skipt um
glugga, viðgerð á þaki og fleira og
hafði Sigurður umsjón með öllum
þessum verkum fyrir okkur skóla-
stjórana.
Sigurður var mjög vinsæll af
kennurum, nemendum og starfs-
fólki skólanna fyrir lipurð og lagni
við störf sín, oft á tíðum var starf-
ið annasamt og ónæði mikið í starfi
hans, en hann tók því með jafnaðar-
geði og reyndi að leysa hvers manns
vanda. Margar vökunætur átti Sig-
urður og fjölskylda hans í miklum
vatnsveðrum, því þá þurfti beinlínis
að ausa skólahúsið, lekinn var svo
mikill, stundum var varla hægt að
kenna í skólanum, vegna þess að
allt var á floti, en guði sé lof að
þetta er liðin tíð. Sigurður setti
metnað sinn í það að skólahúsið
væri vel þrifið, hann hafði gott sam-
starfsfólk sér til aðstoðar og var
það mikið starf að stjóma því öllu
saman og skipuleggja. Gestir hafa
haft orð á því hve skólahúsið væri
hreint og snyrtilegt og er það að
þakka Sigurði og starfsfólki hans.
Sigurður var snyrtimenni og mikill
smekkmaður og vildi hafa allt
snyrtilegt í kringum sig.
Sigurður hafði einnig umsjón
með heimavist skólanna og þar af
leiðandi mikil samskipti við heima-
vistarbúa, var það starf einnig til
fyrirmyndar, reyndi hann að gera
nemendum, sem voru allir utan af
landi, vistina eins heimilislega og
hægt var.
Við fyrrverandi samstarfsmenn
Sigurðar Bachmanns minnumst
hans sem góðs félaga og þökkum
liðnar samverustundir sem varpa
yl og ljóma á liðna ævi hins lífsglaða
og góða drengs. Við kveðjum hann
með þakklátum huga og sendum
aðstandendum hans hlýjar samúð-
arkveðjur.
Blessuð sé minning Sigurðar
Bachmanns.
Andrés Guðjónsson
Mig langar í fáum orðum að
minnast tengdaföður míns, Sigurð-
ar, en hann lést í Landakotsspítala
aðfaranótt 2. júní, eftir langvarandi
veikindi.
Sigurður var sonur Árna
Grímssonar, múrarameistara, og
Kristínar Sigurðardóttur, en þau
bjuggu lengst af á Langholtsvegi
32 í Reykjavík. Þau eignuðust þrjú
böm: Elstur var André, en hann
lést 8 ára gamall við mikla sorg
allra. Þá kom Sigurður og yngst
er Andrea, en hún hefur verið bú-
sett í Kalifomíu um árabil. Hún er
gift Eysteini Þorsteinssyni raf-
virkjameistara og eiga þau þrjá
syni.
Siggi, eins og hann var alltaf
nefndur, steig mikið gæfuspor er
hann kvæntist Valgerði Jakops-
dóttur þann 10. febrúar 1949. Hún
er frá Steinhólum við Kleppsveg.
Þau hjón eignuðust átta börn: Elst-
ur er André, þá Jakop, Sigurður,
Halldóra, Heiðar, Sigurbjöm, Jó-
hannes og yngst er Kristín. Bama-
bömin em orðin 15.
Siggi starfaði við ýms störf.
Hann var lengi vaktformaður hjá
Strætisvögnum Reykjavíkur og
starfaði um árabil hjá Þjóðleik-
húsinu. Síðustu þrettán árin var
hann umsjónarmaður í Sjómanna-
skólanum. Átti þá þar sitt heimili
og var einkar vel liðinn af öllu sam-
starfsfólki sínu.
Fyrir ári fluttu þau Siggi og
Vala í íbúð í Nóatúni 32. Alltaf var
jafn gott að koma til þeirra og heim-
sækja þau. Öllum tekið opnum örm-
um og gestrisnin alltaf jafn mikil á
þeirra fallega heimili.
Elsku Vala mín og Addý, Guð
styrki þig í þinni miklu sorg og þína
fjölskyldu. Blessuð sé minning
tengdaföður míns.
Kar þú í fndi,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Emilía Ásgeirsdóttir
BIFREIÐAEIGENDUR ATHUGIÐ!
Aðeins það besta
ernógugott
. ■ iiworðvirí'-
FX-05V
HS-200
Vegna breytinga á rekstri fyrirtækis okkar, verðum við að
rýma vörugeymslur. Næstu daga munum við því selja takmarkaðar birgðir af sumar-
hjólbörðum á verði sem slær öllu við.
2.145 175x14 kr. 3.000
2.490 165x15 kr. 3.275
187/70 x 13 kr. 2.790 185/70 x 14 kr. 3.417
155x12 kr.
165x13 kr.
OHTSU - FALKEN eru japanskir
hágæða hjólbarðar þar sem
öryggi, gott grip og frábær ending
haldast íhendur.
- Staðgreiðsluafsláttur
- VISA - EURO
impex Sf. - Básendar sf.
Iðavöllum 10b, Keflavík, símar: 92-14344, 92-14345 og 92-11099.
Söluumboð á íslandi fyrir
OHTSU - FALKEN Sumitomo-hjólbarða.