Morgunblaðið - 06.07.1988, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988
15
Morgunblaðið/BAR
Sveinn Björnsson forseti ÍSÍ afhendir dr. Gunnari Þór Jónssyni gjöf-
ina fyrir hönd íþróttahreyfingarinnar og Liónsklúbbs Reykjavíkur.
ÍSÍ og Lionsklúbbur Reykjavíkur:
Borgarspítalanum
gefín fullkomin liðsjá
Flug'ferðir á
Öræfajökul
ÚTSÝNISFLUG Tindflugs upp á
topp Oræfajökuls mun hefjast á
næstu dögum. Nú er unnið er að
framkvæmdum til móttöku
ferðalanga upp á tindinum og
er þeim að verða lokið.
I samtali við Morgunblaðið sagði
Ingólfur Guðlaugsson hjá Tindflugi,
sem nú er á Öræfajökli að ganga
frá flugvelli og göngubrautum, er
allt að verða klappað og klárt til
þess að taka á móti ferðamönnum
á toppi jökulsins. Alls hafa þeir
Tindflugsmenn lent tíu sinnum á
Öræfajökli, en að sögn Ingólfs settu
tryggingafélögin það skilyrði að
öryggislendingar yrðu að minnsta
kosti fimm áður en farið væri að
feija fólk upp á tindinn.
Ingólfur kvað nú verið að ljúka
við að troða og fínvinna 500 metra
flugbraut sem staðsett er skammt
frá Rótarfellshnjúki. Þaðan er svo
verið að leggja göngubrautir upp á
Hvannadalshnjúk, hæsta tind
landsins.
Ferðimar verða' tveggja tíma
langar og verður stoppað í hálfan
annan tíma á fjallstindinum.
Hálftíma verður svo varið í útsýnis-
flug um nágrennið. Flogið verður
frá flugvellinum í Skaftafelli með
Cessna 206 flugvél. Fimm farþegar
komast með í hveija ferð og verður
fargjaldið innan við 5000 krónur,
að sögn Ingólfs.
NÝLEGA afhentu íþróttasam-
band íslands og Lionsklúbbur
Reykjavíkur Slysa- og bæklunar-
deild Borgarspítalans fullkomin
tæki til notkunar við framkvæmd
skurðaðgerða á liðamótum. Það
var Sveinn Bjömsson forseti ÍSÍ
sem afhenti dr. Gunnari Þór Jóns-
syni yfirlækni tækin fyrir hönd
gefenda.
Sveinn gat þess í ávarpi sem hann
flutti við afhendinguna, að tvö ár
væru liðin frá því hugmyndir hefðu
vaknað um að gefa Slysa- og bækl-
unardeild Borgarspítalans skurðað-
gerðatæki af þessari tegund. Þar sem
um nokkuð dýrt tæki væri að ræða
hefði þetta þurft sinn aðdraganda.
íþróttahreyfíngin hefði fengið Lions-
klúbb Reykjavíkur í lið með sér og
væru hann gefandi tækjanna að
hluta. Sveinn kvað íþróttahreyfíng-
una eiga vaxandi samstarf við lækna
á ýmsum sviðum, og væri afhending
þessa tækis einn liður í því samstarfí.
Dr. Gunnar Þór Jónsson sagði að
lækningar á meiðslum íþróttamanna
hefðu haft í för með sér örar tækni-
framfarir á sviði tækjabúnaðar til
lækninga, og væri liðsjárskurðtækið
eitt dæmið um það. Sagði hann
mögulegt að gera skurðaðgerðir í
gegnum liðsjána án þess að opna
þyrfti liðinn, og flýtti það mjög fýrir
bata sjúklinga. Áður hefði verið al-
gengt að sjúklingur væri 4—6 vikur
að jafna sig eftir aðgerð af þessu
tagi en nú ætti það ekki að taka
nema 2—3 vikur eða skemmri tíma.
Liðsjárskurðtækið hefur þegar
verið tekið í notkun á Borgarspítalan-
um, og hafa á fáum dögum verið
gerðar margar skurðaðgerðir með
því.
Sumarbústaður til sölu
í nágr. Reykjavíkur. Trjárækt og lóðafrág. að mestu lok-
ið. Mögul. á rafmagni. 1,7 ha eignarland. Verð kr. 1700
þús. Uppl. í síma 686115 frá kl. 9-17 og 666715 e. kl. 17.
Verksmiðja
Höfum fengið í sölu eina af virtari plasteinangrunarverk-
smiðjum landsins. Mikil sjálfvirkni og góð aðstaða.
Ej3 Fasteigna- og fyrirtækjasalan,
IMS Tryggvagötu 4, sími 623850.
ÞÝSK OG ÍTÖLSK
BAROKKTÓNLIST
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Aðrir tónleikamir á sumartón-
leikunum í Skálholti voru að efni
til verk eftir Telemann, sem er
almennt talinn vera forsprakki
rókokkótónlistarinnar í Þýska-
landi, svo og barokktónskáldið
Vivaldi og Giovanni B. Bonan-
cini, en bæði faðir og bróðir þess
síðastnefnda voru frægir tón-
smiðir. Tónleikarnir hófust á
tríósónötu eftir Telemann og lék
Camilla Söderberg á blokkflautu
og Sverrir á óbó, sem hann sjálf-
ur hefur smíðað eftir 18. aldar
óbói. Helga Ingólfsdóttir og Ólöf
S. Óskarsdóttir sáu um „bassó
continue“. Sverrir er liðtækur
óbóleikari og stóð sig vel í sam-
spili við þá reyndu og skóluðu
barokkhljóðfæraleikara, sem hér
áttu hlut að máli.
Tvær kantötur eftir Telemann
voru á efnisskránni en þær flutti
hin efnilega söngkona Marta G.
Halldórsdóttir mjög glæsilega og
var .samleikur Camillu Söderberg
og söngkonunnar og þá ekki
síður „continue“-leikurinn, frá-
bærlega vel samstilltur. Á millli
kantötuverkanna var flutt Di-
vertimento eftir G.B. Bonancini
og tónleikunum lauk svo með
Tríósónötu eftir Vivaldi.
í heild voru þetta mjög
skemmtilegir tónleikar, enda gaf
hér að heyra fallega og vel flutta
tónlist, auk þess sem fróðlegt er
að fýlgjast með þroska söng-
konunnar Mörtu G. Halldórs-
dóttur, sem nú hyggur á fram-
haldsnám erlendis. Það fer ekki
á milli mála að þar er á ferðinni
efnilegur tónlistarmaður.
Sumartónleikar
Sumartónleikarnir í Skáiholti
hófust um síðustu helgi með gít-
arleik Josef Ka-Cheung Fung. Á
efnisskránni voru verk eftir
Dowland, Praetorius, J.S. Bach,
Britten og einleikarann. Fung
hefur starfað hér á landi í nokk-
ur ár en þetta eru fýrstu eigin-
legu einleikstónleikar hans, sem
undirritaður hefur hlýtt á. Leikur
Fungs var mjög góður, hvort sem
hann lék einfaldar tónsmíðar eft-
ir Dowland og Praetorius eða
flókinn tónvefnað eins og heyra
mátti í Prelúdíu, fúgu og allegro
í Es-dúr, sem Bach samdi fyrir
lútu en var hér leikin tónflutt í
D-dúr fyrir gítar. Þá var margt
fallega gert í löngu verki eftir
Britten, sem nefnist Nocturnal,
op. 70. Britten samdi verkið fyr-
ir Julian Bream og var það frum-
flutt á tónlistarhátíðinni í Alden-
burgh árið 1964. Noctumal er
byggt á lagi eftir Dowland, Come
heavy sleep (1597) og endar
verkið á því að lagið er leikið í
gerð Dowlands.
Moment for Solo Guitar eftir
Fung er á margan máta vel gerð
tónsmíð og var sem og öll önnur
verkin á tónleikunum mjög vel
flutt. Með þessum tónleikum
hefur Josef Ka-Cheng Fung
skipað sér í flokk bestu gítarleik-
ara hér á landi, en hann hefur
í nokkur ár starfað hér, bæði sem
kennari og tónsmiður og tekið
þátt í ýmsum samleikstónleikum,
þar sem aðallega var flutt nú-
tímatónlist.
FLUG'BÍLL/SÖMARHÚS í VIKÖ
Kaupmannahöfn
Verð á mann frá ........................ 19.850,-
* 15.955,-
Luxembourg
Verð á mann frá ........................ 20.750,-
* 15.050,-
Salzburg
Verð á mann frá ........................ 30.605,-
*21.805,-
Hamborg
Verð á mann frá ........................ 21.305,-
♦18.255,-
Amsterdam
Verð á mann frá .......................... 22.810,-
* 17.845,-
London
Verð á mann frá ......................... 22.595,-
♦19.345,-
* Flug og bíll í vlku.
Verð er miðað við 2 fullorðna og 2 börn, á gengi 30. júni 1988.
Líttu inn og fáðu upplýsingar bjá okkur.
Það borgar sig að panta tímanlega!
FERÐA.. Ce+itcat
MIÐSTOÐIN Tcavd
AÐALSTRÆTI 9-REYKJAVlK - S. 2 8 1 3 3