Morgunblaðið - 06.07.1988, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 06.07.1988, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐE) IÞROTTIR MIÐVTKUDAGIJR 6. JÚLÍ 1988 j* KNATTSPYRNA / ENGLAND * HÉ Mm FOLK ■ ALÞJÓÐA knattspyrnusambandið, FIFA, hefur boðið Guatemala sæti Mex- íkó í knattspyrnukeppninni á Ólympíu- leikunum í Seoui. Guatemala varð næst í röðinni á eftir Mexíkó í riðli þeirra í undankeppninni. Mexíkanar voru sem kunnugt er dæmdir í tveggja ára bann frá alþjóðlegum knattspymumótum vegna svindls í heimsmeistaramóti unglinga. H SOVÉSKI landsliðsmaðurinn, Igor Belanov, mun leika með fyrstu deildar félaginu Atlanda á Ítalíu á næsta keppn- istímabili. Samkvæmt því sem fram- kvæmdastjóri ítalska liðsins, Franco Landri segir, munu laun Belanovs verða um 170.000 kr. á mánuði. Auk þess mun hann fá frían bíl hjá félaginu. Þá mun sovéska knattspyrnusambandið fá 6,5 milljónir kr. í sinn hlut. Þessar upphæðir eru vægast sagt lágar miðað við það sem annars er borgað fyrir sterka erlenda leik- menn í ítölsku fyrstu deildinni. Til saman- burðar má geta þess að fyrrum Liverpool leikmaðurinn Ian Rush, sem lék með Ju- ventus á síðasta keppnistímabili, kostaði um 207 milljónir kr. Það hefur heyrst að sovéska knattspyrnusambandið fengi einn- ig í sinn hlut 13 milljóna kr. virði í olíu, en Landri neitaði því alfarið er hann ræddi við fréttamenn í gær. Belanov mun fara til Atlanda í næstu viku til þess að hitta verðandi félaga sína. ■ PAT Nevin, sóknarmaðurinn snjalli frá Chelsea, skrifaði undir samning við Everton í gær. Liðin hafa deilt um verðið og Chelsea vill fá 1.7 millj. punda en Everton vill hinsvegar aðeins borga 400.000 pund. Dómstóll enska knatt- spyrnusambandsins mun því ákveða hvað sé sanngjarnt verð. I MIROSLA V Okonski er hættur við að fara til Anderlecht og fer líklega til AEK Aþenu. Þjálfari Hamburg, Erich Ribbeck og forseti gríska liðsins hafa kom- ist að samkomulagi og AEK Aþena mun borga Hamburg um 25 millj. ísl kr. fyrir Okonski. ,Gefum ungu mönnunum tækifæri" ■ segir Bobby Charlton, sem hefur leikið 106 landsleiki fyrir England Bobby Charlton, fyrrum stjórnandi enska landsliAs- ins - í HM 1966 í Eng- landi og 1970 í Mexlkó. „VIÐ verðum að horfast í augu við það, að það eru ekki margir leikmenn sem voru eftir heima, sem eru betri heldur en þeir tuttugu sem fóru til Vestur-Þýskalands. Það eru þó nokkr- ir ungir leikmenn, sem eiga að fá tæki- færi til að spreyta sig fyrir England," sagði Bobby Charlton, fyrrum fyrirliði enska landsliðsins og leikmaður með Manchester United, sem lék 106 iandsleiki fyrir England. Bobby bendir á, að fyrirliði enska liðsins í Evrópukeppn- inni, Bryan Robson, hafi sagt eftir keppnina: „Ástæðan fyrir því að við náðum ekki betri árangri - er að við lékum mjög illa. Við náðum okkur aldrei á strik.“ „Þetta er rétt. Enska liðið náði aldrei að sýna eins góðan leik og liðið sýndi í undankeppni Evrópu- keppninnar. Liverpool-leikmennirn- ir John Barnes og Peter Beardsley ollu vonbrigðum. Þar getur spilað þar inn í, að þeir áttu mjög erfitt keppnistímabil með Liverpool og voru þreyttir. Pressan var mikil á þeim. Það er þó ekki hægt að horfa fram hjá því, að John Barnes hefur aldrei náð að sýna getu sína-í enska landsliðsbúningnum. Hvað getum við leyft okkur að gefa honum mörg tækifæri til viðbótar?" sagði Charlton. „Við verðum að fara að byggja upp landslið fyrir unadankeppni heims- meistarakeppninnar á Ítalíu 1990. Gefa ungum leikmönnum tækifæri til að spreyta sig og til þess er tilvalið tækifæri á Wembley í sept- ember, þegar Englendingar og Dan- ir leika þar vináttulandsleik. Bruce besti vamarmaðurinn Það á að gefa Steve Bruce, mið- verði Manchester United, tækifæri. Hann var besti miðvörðurinn í Eng- landi síðast liðið keppnistímabil - betri heldur en þeir leikmenn, sem hafa leikið með landsliðinu. Tony Adams, Dave Watson, Mark Wright og Terry Butcher. Hann er fram- tíðarleikmaður í vörninni. Paul Gascoigne hjá Newcastle er sterkur miðvallarspilari og skot- fastur. Hann er hugsanlegur sem maður framtíðarinnar. Til að finna það út, verður hann að fá tækifæri. Einnig á að gefa Arsenal-parinu David Rocastíe og Paul Davis tækifæri til að leika. Þeir eru mjög hugmyndaríkir leikmenn og vinna vel saman. Nigel Clough, sóknarleikmaðurinn ungi hjá Nottingham Forest, er mjög hættulgur. Hann leikur stórt hlutverk í hinu unga Forest-liði. Þá hefur hann skorað mikið af mörkum fyrir enska 21 árs landsliðið. Gefum Clough tækifæri til að skjóta okkur aftur á toppinn," sagði Bobby Charlton. DOMARAMAL / GUÐMUNDUR HARALDSSON „Þú getur ekki sýnt mér gula spjaldið!" að er ótrúlegt hve margir knattspyrnumenn eru fáfróð- ir um reglur í knattspymu. Sem dæmi um það langanr mig til að segja frá furðulegu atviki er ég upplifði í leik milli Skotlands og ísraels í forkeppni heimsmeistara- keppninnar sem ég dæmdi. Það voru liðnar um 10-12 mín. af ieiknum er Graeme Souness og ísraelski leíkmaðurinn Avi Cohen lentu í baráttu um boltann, en Cohen þessi og Souness léku saman hjá Liverpool á þessum tíma. Souness hafði betur í baráttunni um boltann en þá gerð- ist það að Cohen greip um Sou- ness með báðum höndum og hélt honum föstum. Ég dæmdi aukaspyrnu á Cohen og sýndi honum gula spjaldið, en þá skeði undrið. Cohen varð „stjörnuvitlaus" er hann sá spjald- ið og sagði: „Þú getur ekki sýnt mér gulta spjaldið.“ Ég varð meira en lítið undrandi við þetta og bar forvitnin mig ofurliði svo að ég sagði við hann: „Hvers vegna ekki?“ Og ekki stóð á svarinu. „Ég verð fyrst að koma við boltann til þess að þú getir áminnt mig með gulu spjaldi en ég hef ekki ennþá snert boltann.“ Já, það var atvinnumaður sem þannig mælti. En maður getur hugsað sér hvem- ig ástandið yrði á leikvellinum ef þessi ágæti leikmaður hefði rétt fyrir sér og leikmenn gætu geng- ið hamförum áður en þeir snerta boltann í fyrsta skipið í leiknum. Og svo er maður að fárast yfir því hvað áhugamennirnir okkar eru oft fáfróðir um knattspyrnu- lögin! Mótmæli Oft koma fyrir undarleg atvik í knattspyrnuleikjum. Ég minnist þess er ég dæmdi leik í Evrópu- keppninni á milli Leeds frá Eng- landi og Valetta frá Möltu. Möltuliðið spilaði mjög sterkan vamarleik, eins og lið frá Möltu gera alltaf, reyndu þeir ekki sókn- arleik allan leikinn. Þegar langt var liðið á leikinn, og staðan 3-0 fyrir Leeds, dæmdi ég vítaspyrnu á Möltuliðið og var sú vítaspyrna mjög augljós. Einn sóknarmaður Leeds var kominn í gegnum vörn- ina hjá andstæðingunum er hon- um var brugðið illa. En til mikill- ar furðu mótmæltu Möltuleik- mennimir mjög kröftuglega sem endaði með því að einn leikmaður fékk að sjá gula spjaldið. Þegar svo leikmennirnir loksins komu sér út úr vítateignum, sneri einn Möltuleikmaðurinn sér að mér, og sagði: Jæja, allt í lagi, en þú verð- ur þá að „gefa“ okkur vítaspymu. Við þessi orð leikmannsins lang- aði mig svo sannarlega að svara honum, en gerði að sjálfsögðu ekki. En það var komið fram á varir mínar að segja: Þið verðið þá að fara inn í vítateiginn hjá Leeds, en þangað höfðu þeir aldr- ei komist. En að sjálfsögðu, þó skopsky- nið sé fyrir hendi verður dómarinn oftast nær að sitja á sér. En um leið og ég flautaði til leiksloka, komu tveir Möltuleikmenn sem höfðu hrópað hvað hæst er ég dæmdi vítaspyrnuna og báðu mig afsökunar og sögðu að þeir hefðu aðeins verið að reyna að fá mig til þess að skipta um skoðun. Síðan brostu þeir breitt. Með dómarakveðju, Guðmundur Haraldsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.