Morgunblaðið - 06.07.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988
23
Útgáfa í ald-
arminningu
Friðriks
A. Brekkan
SKÁLDSAGAN „Saga af Bróður
Ylfing" eftir Friðrik Asmunds-
son Brekkan hefur verið endur-
útgefin í 500 eintökum í tilefni
af því að 28. júlí næstkomandi
eru liðin hundrað ár frá fæðingu
rithöfundarins.
í frétt frá útgáfustjórn segir að
rithöfundarferill Friðriks A.
Brekkan skiptist í tvö tímabil. Það
fyrra spanni þriðja tug aldarinnar
en þá ritaði hann á dönsku, líkt og
nokkrir aðrir landar hans á þeim
tíma. Síðara tímabilið á ferli
Friðriks nær frá fjórða og fram á
sjötta áratuginn en þá ritar hann á
íslensku.
Mörg ritverk Friðriks voru þýdd
á íslensku og áttu vinsældum að
fagna. Má þar einkum nefna „Sögu
af Bróður Ylfing" í eigin þýðingu
höfundar. Skáldsagan vakti einnig
athygii þegar sr. Bolli Gústafssoh
las hana sem framhaldssögu i út-
varpi fyrir nokkrum árum.
Efniviður skáldsögunnar er feng-
inn úr Njálssögu, nánar tiltekið
aðdragandanum að Btjánsbardaga
á írlandi snemma á 11. öld þar sem
áttust við norrænir víkingar og írar.
Nafn Friðriks Á. Brekkan tengist
einnig sögu bindindismála á íslandi
svo og Bandalagi íslenskra lista-
manna en hann var einn af stofn-
endum þeirra samtaka og í forsvari
þeirra um árabil á fjórða tug aldar-
innar.
Lokaorð Jóns Böðvarssonar í
formála útgáfunnar eru á þessa
leið: „Einmitt nú - þegar sagnalist
á í vök að veijast - er lofsvert að
draga fram í sviðsljós höfunda sem
lengi hafa leynst að tjaldabaki.
Vonandi tekst að draga gleymsku-
traf af menningarstjörnum sem
skært skinu fyrir hálfri öld.“
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Friðrik Ásmundsson Brekkan
með bókina sem gefin var út í
aldarminningu afa hans og
nafna.
Nordfoto
Nýr skóla-
stjóri Tóm-
stunda-
skólans
VILBORG Harðardóttir hefur
verið ráðin skólastjóri Tóm- “
stundaskólans og tekur við störf-
um af Ingibjörgu Guðmunds-
dóttur, hinn 1. ágúst nk. Vilborg
hefur undanfarin ár starfað sem
útgáfusljóri Iðntæknistofnunar
íslands.
Reynir Sæmundsson við líkanið af léttbyggingunni fyrir gíraffana í dýragarðinum í Kaupmannahöfn.
Islenzkur arkitekt vekur athygli í Kaupmannahöfn:
Hannaði léttbyggingu fyrir
gíraffana í dýragarðinum
Jónshúsi, Kaupmannahöfn.
NÝLEGA var í Berlingske Tid-
ende grein eftir Poul Skriver
Svendsen um nýútskrifaðan
islenzkan arkitekt, Reyni Sæ-
mundsson. Var farið mjög lof-
samlegum orðum um hann og
prófverkefni hans á Konunglegu
listaakademíunni, en hann gerði
léttbyggingu ætlaða fyrir gíraff-
ana í dýragarðinum í Kaup-
mannahöfn.
Reynir Sæmundsson er fæddur í
Reykjavík 1956 og lærði þar húsa-
smíði og vann við hana 2 ár eftir
sveinspróf. Hingað kom hann 1982
og nam þá fyrst við byggingatækni-
skóla og lauk þar námi sem iðn-
fræðingur. Hann var svo heppinn
að komast að á Listaakademíunni,
og útskrifaðist Reynir þaðan 17.
júní við hátíðlega athöfn.
Aðspurður segir Reynir, að það
hafi komið sér mjög vel í að náminu
að vera vanur húsasmiður og þann-
ig hafi margir arkitektar verið
menntaðir hér áður. í skólanum var
blandaður hópur, þar sem sumir
höfðu ekki starfsreynslu, en lang-
skólanám að baki, en aðrir höfðu
unnið í faginu.
Hugmyndina að lokaverkefninu
fékk Reynir við heimsókn í dýra-
garðinn og sá þar hve margt var
hægt að færa til betri vegar, t.d.
hjá gíröffunum. Ákvað hann að
gera nýtt hús handa þeim, enda
mikið rætt um áð flytja gíraffana
yfir í Söndermarken, þar sem skóg-
urinn er líkari gresjunni, sem er
eðlilegt umhverfi dýranna. Reynir
fékk góð ráð hjá yfirmönnum dýra-
garðsins og teiknaði gíraffahús,
sem hentar á nýja staðnum og gerði
Leiðrétting
ÞAU leiðu mistök urðu í blaðinu
í gær, í frásögn af erfiðleikum
andamömmu á Lækjartorgi, að
nafn mannsins sem tók að sér
að vísa öndinni aftur á Tjörnina
var rangt. Maðurinn heitir Sigur-
jón Jónsson og er stöðuvörður í
Kolaporti.
svo módelið undir handleiðslu kenn-
ara síns, Stig Lykke.
1. júní fékk Reynir góðan dóm
og mikið hrós hjá fjögurra manna
dómnefnd. Húsið er 30 metra langt,
12 m breitt og rúmir 7 m á hæð,
líkt og skermur (pavillion) yfir 180
m2 svæði, þar sem gíraffarnir geta
hreyft sig að vild, stað fyrir fóður
og afdrep fyrir karldýrið, er kven-
dýr eru með unga sina.
G.L.Ásg.
„HUGMYNDIR Félags íslenskra
iðnrekenda um breytingar á
íslenska fjármagnsmarkaðinum
eru allrar athygli verðar en ég tel
þó að þær séu engin fullnaðar-
lausn. Þessar hugmyndir eru
áhugaverðar sem hluti af hugsan-
legum aðgerðum í efnahagsmál-
um en það þarf fyrst og fremst
að ná jafnvægi í þjóðarbúskapnum
í heild til að koma lagi á lánamark-
aðinn,“ sagði Jón Sigurðsson, við-
skiptaráðherra, í samtali við
Morgunblaðið.
FII vill meðal annars að íslenskum
spariQáreigendum og lántakendum
verði gefið fullt frelsi til að binda
sparnað sinn og lántökur hérlendis
við gengi erlendra gjaldmiðla. Er-
lendum bönkum verði leyft að stunda
bankastarfsemi á íslandi og athugað-
ir verði möguleikar á tengingu krón-
unnar við myntkerfi eins og ECU.
„Ríkisstjórnin skipaði nefnd í vor
til að íjalla um verðtryggingu fjár-
skuldbindinga og nefndin mun skila
áliti síðar í þessum mánuði,“ sagði
Jón. „Ég hef sjálfur komið með hug-
myndir um að íslendingar fái heimild
til a' fjárfesta erlendis og erlendir
bankar fái leyfi til starfsemi hérlend-
is. Seðlabankinn er langt kominn
með að semja reglur fýrir ríkisstjórn-
ina um kaup íslendinga á erlendum
verðbréfum. Tenging krónunnar við
myntkerfi er hugmynd sem hefur
Tómstundaskólinn tók til starfa
haustið 1985 og hefur Ingibjörg
Guðmundsdóttir verið skólastjóri
síðan. Það er Menningar- og fræðs-
lusamband alþýðu sem á og rekur
skólann, sem býður námskeið um
ýmis konar efni. I vetur stunduðu
um 1100 manns nám í skólanum á
samtals 114 námskeiðum. Flest
námskeiðanna eru haldin í Iðnskó-
lanum í Reykjavík, þar sem skólinn
leigir kennsluaðstöðu, en skrifstofa
skólans er að Skólavörðustíg 28. I
haust hefst skólastarfið í september
og verða eins og áður mörg nám-
skeið í boði.
(Úr fréttatilkynningu)
Fjármagnsmarkaðurinn:
Hugmyndir FÍI
athygli verðar
- segir Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
verið í sérstakri athugun frá því í
haust. Tengingin gæti haft gildi til
að veita jafnvægi í þjóðarbúskap-
inn,“ sagði Jón.
Vilborg Harðardóttir
Ferðaskrifstofa ríkisins:
Yfirtöku hluthafa
frestað til 1. september
Þriðjungur bréfa í Ferðaskrifstofu
Islands hf. eign ríkisins
HIÐ opinbera hættir rekstri
Ferðaskrifstofu ríkisins 1. sept-
ember næstkomandi en heldur þó
þriðjungi bréfa í hlutafélagi sem
stofnað verður um rekstur nýrrar
ferðaskrifstofu. Starfsfólk
Ferðaskrifstofu ríkisins hefur
forkaupsrétt að hlutabréfunum
og á kost á sambærilegum störf-
um við nýja fyrirtækið.
Sala ferðaskrifstofunnar er að
sögn Ragnhildar Hjaltadóttur í sam-
gönguráðuneytinu í samræmi við þá
stefnu ríkisstjórnarinnar að einkaað-
ilar yfirtaki rekstur ríkisfyrirtækja
þar sem það er unnt og mun fara
fram samkvæmt lögum sem sam-
þykkt voru í lok síðasta þings.
Yfírtöku hluthafa sem vera átti
1. júlí var frestað um tvo mánuði
vegna anna á Ferðaskrifstofu ríkis-
ins. Rekstur fyrirtækisins verður
alfarið úr höndum hins opinbera 1.
september en ekki er enn ljóst hvern-
ig stjórn hlutafélags um Ferðaskrif-
stofu Islands verður skipuð. Ekki
er fjárhæð hlutabréfa heldur ákveðin
ennþá. Áskriftarskrár hluthafa
liggja nú frammi hjá starfsfólki
ferðaskrifstofunnar og í samgöngu-
ráðuneytinu sem annast söluna fyrir
hönd ríkissjóðs.
Það var 26 stiga hiti
í fyrsta áœtlunarfluginu til Milanó m Enga útúrsnúninga,
það var f borginni sjáifri ekki vélinni.
' ARNARFLUG