Morgunblaðið - 06.07.1988, Blaðsíða 56
tingiiiiWbKfetfe
fíORk}
Tork þurrkur.
I>oi>iir hrvlnlii'tl cr miuitiiyn.
<m asiaco hf
’ Vesturgötu 2 Póstholf 82(
826
121 Reykjavik Simi (91) 26733
MIÐVIKUDAGUR 6. JULI 1988
VERÐ I LAUSASOLU 70 KR.
Handleggsbrotið í fangageymslunni:
Lögreglumaður
dæmdur í 20 þús-
und króna sekt
SAKADÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær fyrrverandi lög-
reglumann til að greiða 20 þús-
und króna sekt til ríkissjóðs
vegna gáleysis i starfi þegar
tvítugur Eskfirðingur hand-
leggsbrotnaði í fangaklefa í lög-
reglustöðinni á Hverfisgötu að-
faranótt 13. febrúar sl. Dómur-
inn sýknaði hins vegar lögreglu-
varðstjóra af öllum kröfum
kákæruvaldsins í málinu. Engin
skaðabótakrafa var lögð fram
af hálfu piltsins.
Lögreglumanninum fyrrverandi
var gefið að sök að hafa gerst of-
fari í starfi þegar hann, ásamt
tveimur öðrum lögreglumönnum,
færði piltinn úr yfirhöfn vegna fyr-
irhugaðrar vistunar hans í fanga-
klefa. Hann hefði tekið báðum
höndum um vinstri handlegg pilts-
ins og sveigt hann aftur fyrir bak
"með þeim afleiðingum að hann hefði
hlotið brot á neðanverðu upphand-
leggsbeini.
í niðurstöðum dómsins segir m.a.
Landbúnaðarvönir;
Niður-
greiðslur
hækka
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
niðurgreiðslur á hefðbundnum
landbúnaðarafurðum hækki til
jafns við hækkanir á söluskatti
sem urðu við búvöruverðshækk-
un í mars og júní. Var þetta sam-
þykkt á ríkisstjórnarfundi í
síðustu viku og miðast við 1. sept-
ember en þá verður ársfjórð-
ungsleg búvöruverðshækkun.
Gert er ráð fyrir að hækkun sölu-
skatts vegna verðhækkananna
nemi um 160 milljónum króna
og hækka niðurgreiðslur þá sem
því nemur.
Framleiðsluráð landbúnaðarins
reiknaði út bráðabirgðaverð á land-
búnaðarafurðum miðað við að hlut-
fall niðurgreiðslna héldist. Stað-
festing hefur borist Framleiðsluráði
frá viðskiptaráðuneytinu á útreikn-
ingum ráðsins varðandi niður-
greiðslur á nautakjöti en ekki hefur
enn borist staðfesting varðandi út-
reikninga um niðurgreiðslur á mjólk
og kindakjöti, að sögn Gísla Karls-
sonar framkvæmdastjóra ráðsins.
Þegar tekinn var upp söluskattur
á matvæli um síðustu áramót var
ákveðið að endurgreiða söluskatt á
hefðbundnum landbúnaðarafurðum
í formi niðurgreiðslna. Eftir búvöru-
verðshækkanirnar á árinu var deilt
um það í ríkisstjórninni hvort
greiðslurnar ættu að vera óbreyttar
eða hækka í hlutfalli við hækkun
búvöruverðs og um leið söluskatts,
sem varð síðan niðurstaðan.
að pilturinn, sem sé grannur og
lágvaxinn, hafi verið í átökum við
þrjá lögreglumenn og einn fanga-
vörð þegar handleggur hans, sem
lögreglumaðurinn fyrrverandi hafi
haldið í lögreglutaki, brotnaði. Þrátt
fyrir að tak þetta sé kennt öllum
verðandi lögreglumönnum verði að
leggja þeim þá skyldu á herðar að
beita því með þeim hætti að menn
slasist ekki alvarlega. Því verði að
telja að lögreglumaðurinn hafi ekki
sýnt nægilega varkámi þegar hann
hélt um handlegg piltsins, enda
þótt hann hafi veitt mikla mót-
spymu þegar reynt hafi verið að
færa hann úr yfirhöfn, eins og
skylda sé.
Hins vegar beri að sýkna lög-
reglumanninn af þeirri ákæru að
hafa fyrrgreinda nótt farið fyrir og
stjórnað för lögreglumanna að dval-
arstað piltsins og handtekið hann
þar að nauðsynjalausu vegna kæru
sonar lögreglumannsins á hendur
piltinum fyrir meint spjöll á bifreið.
Dómurinn telur að handtakan
hafi ekki verið að nauðsynjalausu
þar sem pilturinn hafi verið gmnað-
ur um refsiverðan verknað og
ósannað sé að hann hafi svarað
spurningum lögreglumannanna
sem að handtöku hans stóðu, um
nafn og heimilisfang. Ekki verði
heldur slegið föstu að lögreglumað-
urinn hafí verið vanhæfur til að
handtaka piltinn þrátt fyrir að náið
skyldmenni hans hafi átt hagsmuna
að gæta.
I dóminum segir einnig að sýkna
beri varðstjóra af þeirri ákæru að
hafa, er komið var með piltinn á
lögreglustöðina, ákveðið vistun
hans í fangaklefa enda þótt enga
nauðsyn hefði borið til slíkrar vist-
unar. Ekkert hafi komið fram í
málinu sem mæli því í gegn að
varðstjórinn hafi einvörðungu ætlað
að vista piltinn vegna öryggissjón-
armiða til skamms tíma uns af hon-
um rynni áfengisvíman.
Dómari í málinu var Ingibjörg
Benediktsdóttir sakadómari.
Rosabaugur um sólu
Morgunblaðið/Óláfur K. Magnússon
MIKILL baugur umkringdi sólina á mánudag. Að sögn Páls Bergþórssonar, veðurfræðings, er al-
gengast að svona baugar séu kailaðir rosabaugar og þykja þeir fyrirboðar roks og rigningar. En
af sumum eru þeir nefndir þráviðrisbaugar og þá hafðir til marks um það að veður muni haldast
óbreytt. Baugurinn á mánudaginn var sérstakur að því leyti að í honum voru litbrigði efst og neðst.
Helsinki:
Grænfriðmigar komu í veg
fyrir fermingu Urriðafoss
SEX grænfriðungar hlekkjuðu
sig við tvo stóra hafnarkrana í
Helsinki-höfn skömmu fyrir mið-
nætti í gær að finnskum tíma til
að hindra að hægt yrði að skipa
frystigámum með hvalkjöti um
borð í Urriðafoss og endursenda
þá þar með til Islands. Að sögn
Lars Lundstens, fréttaritara
Morgunblaðsins í Finnlandi, sem
staddur var í höfninni, var fjöldi
lögreglumanna mættur á stað-
inn, en lögreglan þorði ekki að
reyna að ná mönnunum niður af
ótta við að slys hlytist af, en
þeir voru í um 20-30 metra hæð.
Þegar Morgunblaðið hafði síðast
spurnir af var Urriðafoss enn í
höfninni í Helsinki, en skipið átti
að leggja af stað til íslands í nótt.
Hafnaryfirvöld höfðu lokað hlið-
um að svæðinu þar sem hvalkjötið
var geymt, en grænfriðungum tókst
að laumast þar inn í skjóli nætur.
Lögreglan tók niður borða sem
grænfriðunga höfðu hengt upp, þar
sem á var letrað: „Ef við getum
ekki bjargað hvölunum, hvernig
getum við þá bjargað okkur sjálf-
um?“ Þá hafði lögreglan afskipti
af dráttarbáti sem grænfriðungar
höfðu leigt og notuðu til að flytja
mat og vistir til mannanna í krönun-
um.
Eihn talsmanna grænfriðunga
sagði í samtali við fréttaritara
Morgunblaðsins að vissulega væru
aðgerðir þessar ólöglegar, en sú
ákvörðun finnskra stjórnvalda að
endursenda kjötið í stað þess að
gera það upptækt, stríddi gegn
finnskum lögum. Grænfriðungar
hygðust hindra fermingu þar til
Urriðafoss væri farinn, en þá
myndu líða tvær vikur þar til næst
kæmi skip á leið til íslands og þann
tíma myndu grænfriðungar nota til
að reyna að telja stjórnvöldum hug-
hvarf. Talsmaðurinn sagði að
mennirnir sex gætu þó varla verið
í krönunum nema til morgundags-
ins, í dag, þar sem þeir myndu þá
tefja aðra starfsemi í höfninni.
Gámarnir, sem innihalda tæp 200
tonn af frystu hvalkjöti, hafa beðið
flutnings í um tvær vikur eftir að
finnsk stjórnvöld ákváðu að endur-
senda þá þar sem ekki mætti flytja
hvalkjöt í gegnum Finnland.