Morgunblaðið - 06.07.1988, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988
17
„UT AN STEFNUR VIU-
UM VÉR ENGAR HAFA“
eða hvað vill Alþýðusamband íslands?
eftirJón Sigurðsson
Frá því segir í íslandssögu, þegar
Hákon háleggur Noregskonungur
var að tryggja yfirráð sín yfir Is-
landi um aldamótin 1300, að hann
boðaði tvær tylftir höfðingja og
bænda utan til viðræðna og að
líkindum til að fá þá til að sverja
konungi hollustueiða. Máli þessu
lauk á Alþingi 1302 með samningi
við konung, endurnýjun Gamia sátt-
mála. Lifað hefur með þjóðinni hinn
knappi og einarði fyrirvari, sem
íslendingar settu konungi í þessari
samningsgerð:
„Utanstefnur viljum vér engar
hafa . . .“
Nú hafa þeir atburðir gerst í við-
skiptum forystu Alþýðusambands
íslands og stjórnvalda, að vert er
að rifja þessa sögu upp. Ósætti
stjómar alþýðusambandsins við ný-
sett bráðabirgðalög um aðgerðir í
efnahagsmálum varð til þess, að
Alþýðusamband Íslands hefur kært
POTTRÖR
OG
FITTINGS
LEITIÐ FAGLEGRA
UPPLÝSINGA
HJÁ OKKUR
WVATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 - 685966
LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416
brothec
Prentarar
Skipholti 9. Símar 24255 og 622455.
FerÖa
tryggingar
ríkisstjórn íslands fyrir Alþjóða-
vinnumálastofnuninni.
Nú er það að vísu svo, að bar-
átta ASÍ í þessu sambandi sýnist
vera í þágu þeirra launþegahópa
innan alþýðusambandsins og utan,
sem best kjör hafa í þjóðfélaginu.
Baráttan virðist vera í þágu þeirra,
sem jafnan hafa nýtt aðstöðu sína
til að knýja fram sér til handa
meiri kjarabætur en láglaunahóp-
arnir hafa fengið. ASÍ rekur sitt
mál að vísu sem spurningu um
meginreglur, — um réttinn til að
semja um kjör sín. Það væri í sjálfu
sér gott og blessað, ef öðm vísi
stæði á, en við skulum líta fram
„Það, sem fyrst og
fremst er athugavert
við aðferð Aiþýðusam-
bands Islands í þessu
máli, er að það skuli
ætla að kalla erlenda
menn til að dæma um
ágreiningsmál þess og
ríkisstjórnar íslands.“
hjá því.
Það, sem fyrst og fremst er at-
hugavert við aðferð Alþýðusam-
Jón Sigurðsson
bands íslands í þessu máli, er að
það skuli ætla að kalla erlenda
menn til að dæma um ágreinings-
mál þess og ríkisstjórnar íslands.
Alþýðusamband íslands er að
kalla eftir utanstefnum til að skera
úr um efni, sem em íslensk ágrein-
ingsmál og koma engum öðmm
við. Tilfinning skrifara þessara orða
er, að þetta sé eitt af því, sem
menn geta ekki leyft sér og varði
sjálfstæði þjóðarinnar.
Því biður skrifarinn félaga í
verkalýðsfélögum í landinu,-stjórn-
armenn þeirra og stjórnendur ASÍ
að skoða hug sinn vandlega í þessu
máli og sjá svo um, að þessi kæra
verði dregin til baka. Það er hluti
af sjálfstæði okkar íslendinga, að
við setjum sjálfir niður okkar deilur
hvemig sem á stendur. Það sjálf-
stæði ber samtökum launþega á
Islandi að veija. Því að rétt eins
og forðum: „Utanstefnur viljum vér
engar hafa . ..“
í upphaflegum texta mun hér
standa orðið „utanstefningar", en
það er hér fært til nútímamáls.
Höfundur er framkvæmdastfóri
íslenskajárnblendifélagsins hf.
S:ll
mm
Hér renna bifreið og náttúra
saman í eina listræna heild.
Óendanleg orka sem aldrei bregst.
Sígiit útlit.
Fullbúinn m. sjáHsk.: Verð kr. 2.638.000.-
Fullbúinn m. beinsk.: Verð kr. 2.474.000,-