Morgunblaðið - 06.07.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988
21
Læknis-
fræðin sam-
einar áhug-
ann á raun-
greinum
og f ólki
HRAFNHILDUR S. Guðbjörns-
dóttir og Kristján Kárason hafa
bæði nýlokið embættisprófi í
læknisfræði og náðu þau bestum
árangri af þeim 49 sem útskrif-
uðust úr læknadeildinni í vor.
Þau Kristján og Hrafnhildur eru
á förum til Svíþjóðar eftir nokkrar
vikur, þar sem þau ætla að dvelja
í eitt ár. „Við ætlum að vinna á
heilsugæslustöð og á lyflæknisdeild
í litlum bæ í Suður-Svíþjóð, sem
heitir Várnamo. Síðan komum við
heim og klárum kandídatsárið hér
heima."
Af hverju varð Svíþjóð fyrír val-
inu? Stefnið þið á framhaldsnám
þar?
„Nei, við reiknum nú ekki með
því að fara þangað í framhaldsnám.
Við höfum meiri áhuga á ensku-
mælandi landi. Annað hvort Bret-
landi eða Bandaríkjunutn- En okkur
langar til að læra sænsku og kynn-
ast heilbrigðiskerfinu í Svíþjóð, sem
sagt er að sé mjög gott. Nú, ein
ástæðan fyrir því að við förum út
núna er líka sú að það er bið eftir
að komast að sem kandídat hér.“
Er það þá rétt að það sé offram-
boð á nýútskrifuðum læknum?
Þau líta hvort á annað, ekki viss
hverju þau eiga að svara. Síðan
segir Hrafnhildur: „Það er enginn
skortur á læknum, en hvort það er
offramboð, ég veit það ekki. En það
vantar lækna úti á landi í Svíþjóð
og þess vegna förum við þangað."
Blaðamaður þóttist einhverntíma
hafa heyrt að menn yrðu að taka
kandídatsárið í héraði . „Það var
einu sinni svoleiðis, en það eru
nokkur ár síðan því var breytt. En
við höfum verið í héraði á sumrin,
því þar er auðveldara að fá vinnu.
Reyndar gerðist það í fyrsta sinn
nú í vor að allar stöður í héraði eru
mannaðar, en læknanemar geta
komist í afleysingar þar á sumrin.
Við komum því til með að taka
kandídatsárið á sjúkrahúsi í
Reykjavík."
Fara allir læknar í framhalds-
nám?
„Já, flestir gera það nú orðið,“
svarar Hrafnhildur. „Það þýðir eig-
inlega ekkert annað ef þú ætlar að
fá vinnu. Sérfræðingarnir ganga
fyrir þeim sem enga sérmenntun
hafa.“
Eruð þið búin að gera upp við
ykkur hvaða sérgrein þið ætlið að
leggja fyrír ykkur?
„Ahugi okkar beinist að lyf-
lækni,“ svarar Kristján og lítur á
Hrafnhildi til að fá staðfestingu
hennar. Þegar þau eru síðan innt
eftir því hvaða greinar lyflæknis-
fræðinnar þau ætli að leggja fyrir
sig eru svörin ekki eins skýr. „Það
er hægt að velja um svo fjölmargar
sérgreinar innan lyflæknisfræðinn-
ar,“ svarar Hrafnhildur. „Maður
lætur heldur ekki uppi hvað maður
ætlar í,“ bætir Kristján við. „Því
um leið og þú gerir það er ertu
búinn að fá á þig stimpil. En auðvit-
að er maður með ákveðnar hug-
myndir. Það er þó öruggt að við
förum ekki í það sama. Við kynnt-
umst á fyrsta ári og erum búin að
vera saman í þessu í sex ár, auk
þess sem við værum komin í sam-
keppni ef við veldum sömu sérgrein-
ina.“ Og þau eru alveg sammála
um að það væri ekki sniðugt enda
óvíst að þau hafi áhuga á því sama.
En skipta atvinnumöguleikarnir
þegar heim er komið einhverju um
valið?
Viðtöl: Margrét Elísabet Ólafsdóttir
Hrafnhildur og Kristján Morgunbiaðið/KGA
„Nei, ég held ekki. Það er enginn
skortur á sérfræðingum hér núna
svo það er ekki eins og það sé beð-
ið eftir því að maður komi heim.
Ætli valið fari ekki frekar eftir
áhuga. Það er betra að vera ánægð-
ur og atvinnulaus," segir Hrafn-
hildur. „En af því við ætlum ekki
að sérhæfa okkur í því sama verður
vandamálið auðvitað að finna stað
þar sem við getum bæði hugsað
okkur að læra. Ætli við endum
ekki á stóru sjúkrahúsi í einhverri
stórborg.“
Hvað tekur sérnámið langan
tíma? Eru það ekki önnur sex ár?
„Jú, það má eiginlega segja að
þessi áfangi sé aðeins byijunin.
Sérnám tekur ekki skemmri tíma
en fjögur ár og oft mikið lengur
en það.“
í lokin langaði blaðamann að
forvitnast um hvers vegna þau
hefðu farið í læknisfræði. Spurning-
in kom eiginlega hálf flatt upp á
þau bæði og Hrafnhildur sagðist
bara alls ekki getað svarað þessu.
Kristján sagðist vera hræddur um
að verða væminn ef hann kæmi
með einhveijar yfirlýsingar. Eftir
nokkrar vangaveltur og þegar
Kristján var búinn að minna Hrafn-
hildi á að einu sinni hefði hana lang-
að til að verða blaðamaður varð hún
fyrir svörum: „Já, fyrstu' árin í
menntaskóla hafði ég mestan
áhuga á íslensku, sem síðan færðist
yfir á raungreinar. Síðasta árið var
ég orðin ákveðin í að fara í læknis-
fræði. Sú ákvörðun kemur þó ekki
allt í einu, heldur smám saman.
Eiginlega notar maður útilokunar-
aðferðina. Áhuginn liggur á raun-
greinasviðinu og þó maður hafi
áhuga á efnafræði og stærðfræði
þá vill maður hafa fólk til að vinna
með. Læknisfræðin sameinar ágæt-
lega þetta tvennt, áhugan á raun-
greinum og að vinna með fólki.“
Og á þetta svar féllst Kristján.
ÍTALSM
..
UTIUF
Sími 82922
Nú er komin á markaðinn ný endur-
bætt gerð af þessum vinsælu bílum.
Þeir fást í fjölmörgum gerðum, sem
opnireða lokaðir sendibílar með eða
án aftursæta. Hægt er að velja milli
bensín- eða dieselvéla og vökvastýri
er nú í öllum gerðum. Hafið sam-
band við sölumenn okkar, sem veita
fúslega allar nánari upplýsingar.
Opið laugardaga frá kl.1-5
BÍLABORG H.F.
FOSSHÁLSl 1, SÍMI6812 99