Morgunblaðið - 06.07.1988, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 06.07.1988, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988 Stöðug fjölgun ferðamanna til Seyðisfjarðar Morgunblaðið/Garðar Rúnar Menn bjartsýnir á aukin ferða- mannaviðskipti Seyðisfirði. Undanfarin ár hefur ferða- mannastraumur til Seyðisfjarðar aukist jafnt og þétt með hveiju árinu. Þegar Smyrill byijaði að sigla til Seyðisfjarðar árið 1975 frá Færeyjum, Noregi og Skot- landi má segja að þessi þróun hafi hafist. Þessar siglingar urðu fljótlega mjög vinsæll ferðamáti hjá þeim Evrójjubúum sem hugð- ust heimsækja ísland, sérstaklega voru þessar siglingar vinsælar hjá Þjóðveijum og eru þeir ennþá í miklum meirihluta þeirra útlend- inga sem koma beint til Seyðis- fjarðar. Það var þvi snemma ljóst að gamli Smyrill var alltof lítill til þessara fólks- og bílaflutninga. Þess vegna ákváðu forsvarsmenn Smyril Line, útgerðarfélags skips- ins, að kaupa annað og stærra skip árið 1983. Þá má segja að reynslutímabilinu væri lokið og alvaran byijuð. Þessi þróun hefur gerbreytt allri ferðamannaþjón- ustu á Seyðisfirði, áður var Seyð- isfjörður endastöð en með tilkomu beinna farþegasiglinga til og frá Evrópu er hann nú orðinn annar stærsti viðkomustaðurinn fyrir Norröna í Seyðisfjarðarhöfn. ferðamenn sem koma til og fara frá landinu. Þróun ferðamannaiðnaðar á Seyð- isfirði samfara þessu hefur verið mikil, fyrsta árið sem Smyrill sigldi hingað var ekki mikið um að vera fyrir ferðamenn sem lögðu leið sína hingað. Þó má segja að þá hafi þró- un ferðamannaþjónustu hafist því þá var opnað farfuglaheimili á Seyð- isfirði sem fljótlega varð eitt af betri farfuglaheimilum landsins og hefur verið starfandi öll þessi ár og var endurbyggt í fyrravor. Og Stál hf., umboðsaðili Flugleiða á Seyðisfirði og sérleyfishafi á leiðinni Seyðis- fjörður-Egilsstaðir-Seyðisfjörður, voru með fastar rútuferðir tengdar afgreiðslu Smyrils á Seyðisfírði og flugi á Egilsstaðaflugvelli. Árið 1984 byggði Austfar hf., sem er umboðs- aðili Smyril Line á Seyðisfirði, nýtt skrifstofuhúsnæði og aðstöðu fyrir komu- og brottfararfarþega. Þetta hús reyndist fljótlega vera of lítið fyrir þessa starfsemi svo að ráðist var í að byggja nýtt og stærra hús undir þessa þjónustu og stendur nú til að byggja við það hús fljótlega. Og má þá segja að þarna sé komin IHIHHIHHttlHHUUI ’HiiimuHtmmi inniiíuiivn~ ÖMV-FMt mjög góð aðstaða bæði fyrir farþega og vöruafgreiðslu og aðra þjónustu sem þarf að inna af hendi gagnvart ferðamönnum sem koma og fara frá Seyðisfirði. Árið 1983 var hafist handa við að endurbyggja hótelið á Seyðisfírði og var gistiaðstaðan í því tekin í notkun sumarið 1984 og veit- ingasalur sumarið eftir og nú er ver- ið að hefjast handa við að bæta við gistirými þess. Öll aðstaða við tjald- stæðin var endurbyggð árið 1984 og 1985 og er þar nú öll hreinlætisað- staða fyrir hendi. Tveir skyndibita- staðir hafa verið byggðir í tengslum við bensínafgreiðslur olíufélaganna í bænum. Svo eru rekin hér þrjú gisti- heimili í heimahúsum og er eitt þeirra opið allt árið. Auk þessa hefur verið rekinn hér útimarkaður á sumrin og ýmsar uppákomur, skemmtanir og hljómleikar hafa verið Félagsheimil- inu Herðubreið og kallast hafa „mið- vikudagar á Seyðisfírði" og er ætlun- in að reyna að halda því áfram í sumar, að vísu í höndum annarra aðila, því kvennahópurinn „Frú Lára" ætlar að reka útimarkaðinn í sumar ásamt verslun með ýmsan heimilisiðnað og minjagripi fyrir ferðamenn. Ferðamálafélag Seyðis- fjarðar og átakshópur um ferðamál ætla í sumar að bjóða upp á skemmti- og veiðiferðir út á fjörðinn fyrir ferðamenn í samvinnu við smábáta- eigendur. Verslanir eru margar sem bjóða upp á allskonar vörur fyrir ferðamenn og svo eru auðvitað mat- vöruverslanir hér eins og annars staðar sem bjóða meðal annars upp á fjölbreytilegan mat tilbúinn á útigr- Sérblöð A LAUGARDÖGUM SSI s=» Auglýsingar íLesbók með ferðablaði þurfa aðhafa borist auglýsingadeild fyrir kl. 16.00á föstudögum, viku fyrir birtingu og í menningarblaðið fyrir kl. 16.00 á miðvikudögum. < fltottgtusÞfðfrffr V - bi^é allra landsmanna Frá afmælishátíð kvenfélaga og búnaðarfélaga í Þórsmörk. Kvenfélög og búnaðarfélög: Sameiginleg afmæl- ishátíð í Þórsmörk Holti. SAMEIGINLEG afmælishátíð kvenfélaga og búnaðarfélaga var haldin 29. júní í Þórsmörk. Um 800 manns í 17 rútum voru í ferð sem endaði með mikilli hátíð á flötunum í Húsadal. Þar voru hát- íðarræður fluttar, sungið og stað- Daad-félag- stofnað NÝLEGA stofnuðu þeir íslend- ingar sem þegið hafa styrk frá þýsku stofnuninni Deutscher Akandemischer Austauschdi- entst (DAAD) félag til að efla innbyrðis tengsl þeirra sem notið hafa fyrirgreiðslu stofnunarin- anr svo og tengsl við Sambands- lýðveldið Þýskaland. Hafa stuðn- ingsfélög sem þetta verið stofnuð víða um lönd. Stofnunin veitir árlega fjóra styrki til háskólanáms eitt skólaár í senn auk þess sem hún veitir að jafnaði einnig skemmri styrki til færðimanna og nokkra styrki til þýskunáms. Þá er staða sendikenn- ara í* þýsku við Háskóla íslands greidd gf stofnuninni. Stjórn félagsins er þannig skip- uð. Formður Þórir Einarsson, próf- essor, ritari dr. Jónas Bjarnason, efnaverkfræðingur, gjaldkeri dr. Jakob Magnússon, fiskifræðingur og meðstjórnandi Guðmundur S. Jónsson, eðlisfræðingur. (Fréttatilkynningf) ið að mikilli grillveislu. Á þessu ári er Búnaðarsamband Suðurlands 80 ára og Samband sunnlenskra kvenna 60 ára. Þessi afmæli voru haldin á þann hátt að búnaðarfélög og kvenfélög á Suður- landi efndu til Þórsmerkurferðar með tilheyrandi fagnaði. Farið var í öllum tiltækum rútum á Suðurlandi og keyrt sem leið liggur að Jökulsárl- óni, síðan inn í Bása og þaðan inn í Langadal. Gengið var inn í Húsad- al þar sem komið hafði verið upp hátíðaraðstöðu, palli og tjöldum á flötunum. Ræður fluttu Drífa Hjart- ardóttir, formaður SSK, og Lísa Thomsen, sem flutti kveðjur frá Kvenfélagasambandi íslands. Enn- fremur flutti Magnús Sigurðsson, formaður BS, ræðu og Steinþór Gestsson á Hæli. Karlakór undir stjóm Viðars Bjamasonar söng. Gamanþættir voru sýndir og farið í leiki en inn á milli var Qöldasöngur. Þá sagði Þórður Tómasson, safn- vörður í Skógum, frá byggð og mannlífi áður fyrr í Þórsmörk. Að loknum hátíðarhöldum var gengið inn á svæði Austurleiða hf. þar sem markaðsnefnd landbúnaðar- ins með aðstoð „fjallalambskokka" og aðföngum frá Sláturfélag Suður- lands og Mjólkurbúi Flóamanna hafði látið útbúa veizluföng. Vom fjalla- lambsskrokkar grillaðir og á eftir var safnaast saman í kring um varðeld og sungið af miklum krafti. Þótti þessi sameiginlega afmælis- hátíð kvenfélaga og búnaðarfélaga takast með ágætum í góðu veðri og fágætu umhverfi. - Fréttaritari H
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.