Morgunblaðið - 06.07.1988, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 06.07.1988, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988 r POLISARIO OG MAROKKÓ Marokkó hefur veitt miklu fé til að byggja upp bæi og þorp á hernámssvæði sínu í Vestur-Sahara. Eyðimerkurstríðið sem eng- inn getur unnið og flestir kæra sig kollótta um „Stríð verða að hafa stæl... o g okkur hefur ekki tekist að ná áhuga fjölmiðlanna og þar með ekki heimsins“ FYRIR sunnan Marokkó og í suð vesturátt frá Alsír er einhver gróðursnauðasta eyðimörk í heimi. Samt hefur þetta sandflæmi, sem er um 266 þúsund ferkílómetrar að stærð, þ.e. rúmlega tvisvar og hálfum sinnum stærra en Island, verið orsök djúpstæðrar deilu og átaka í tólf ár. Stríðið um Vestur-Sahara hefur valdið því að stjórn í Máritaníu hefur hrökklast frá völdum og einnig verið ástæða óopinberrar styijaldar milli Marokkó og Alsírs. Málið snýst um söguleg yfirráð svæðisins og hernaðarátök sem ekki sér fyrir endan á, fremur en þegar deilan blossaði upp. Fyrir röskum mánuði tóku Alsír og Marokkó upp stjórn- málasamband á nýjan leik. Nauð- synlegt var að ganga frá því fyrir fund leiðtoga Arababandalagsins í Alsír í byijun júní. Enn er óljóst, hvort þessi viðleitni ráðamanna Alsírs og Marokkó muni ráða ein- hveiju um stríðsástandið í eyði- mörkinni, en það er í sjálfu sér hugsanlegt. Stríðið í Vestur-Sahara er ekki oft fréttaefni og nýtur lítillar hylli Ú'ölmiðla. „Forsenda þess að mál- staður okkar fái stuðning er að fréttamenn gefi okkur gaum. A þessum síðustu tímum hafa §öl- miðlar það nánast á valdi sínu, hver framvindan verður, ekki síður en baráttuglaðir frelsis- hermenn," sagði Polisario-maður sem fréttamaðurinn Alison Perry, ræddi við í bækistöðvunum í Alsír. Perry skrifar ítarlega grein í nýj- asta hefti tímaritsins The Middle East. Og öldungis er það rétt að fréttamenn gera sér ekki tíðförult á þessar slóðir; stríðið er eiginlega háð í kyrrþey og þykir ekki nógu spennandi til að halda áhuga fréttamanna. „Til að fjölmiðlar geri stríði skil nú um stundir verð- ur það að hafa yfir sér einhvern stæl sem fellur í kramið hjá fjöl- miðlaneytendum,“ sagði Polisari- o-maðurinn einnnig. Þó lætur Polisario-hreyfingin engan bilbug á sér finna. Hvað sem líður skeytingarleysi um- heimsins. I flóttamannabúðunum rétt innan landamæra Alsírs búa um 170 þúsund Sahrawi-þjóðar- innar. Þar hefur Abdelaziz forseti aðsetur sitt og útlagastjórn Arabíska Sahrawi-lýðveldisins. í bæjum og þorpum Vestur-Sahara búa nokkur hundruð þúsund Sa- hrawiar. Um rétta tölu er ekki vitað, þar sem Marokkómenn hafa í verulegum mæli sest að á þessum slóðum hin síðari ár og þeir kæra sig vitanlega ekki um að athuga það. Með því myndu þeir í aðra röndina viðurkenna tilveru Sa- hrawi-þjóðarinnar. Sú tilhugsun er eitur í þeirra beinum. Alison Perrry, sem áður er nefnd, var fyrir nokkru á þessu svæði og hér er stuðst við greinar hennar í júlí- hefti The Middle East. Öldum saman voru Sahrawar hirðingjar og lifðu í mörkinni, samkvæmt bedúínalögmálum. Upphafið að frelsisbaráttu þeirra hófst seint á 19.öld. Spánveijar höfðu fengið Vestur-Sahara í sinn hlut á hinum fræga fundi í Berlín 1884, þegar Evrópuþjóðir gerðu sér lítið fyrir og skiptu Afríku á milli sín. Það er þó varla fyrr en eftir lok síðari heimsstyijaldarinn- ar, að þjóðernishreyfingin fær byr undir vængi. Þetta átti við um fleiri lönd Norður-Afríku ekki hvað síst í Alsír. Þar braust út blóðug frelsisstyijöld og að lokum urðu Frakkar að hverfa frá Alsír og landið varð sjálfstætt 1962. Smám saman fengu öll lönd Afríku svo sjálfstæði frá hinum ýmsu nýlendustjórnum. En í upp- hafi gilti það sama um gervalla álfuna; þegar fór að örla á þjóð- ernishreyfingum svöruðu ný- lendustjórnirnar alltaf með of- beldi, og reynt var að beija niður allar hugmyndir Afríkumanna um sjájfstæði. í júní 1970 réðust vopnaðir spánskir hermenn á friðsama mótmælagöngu við Zemla sem er í útjaðri höfuðborgarinnar E1 Ayoun. Grimmd þeirra vakti við- urstyggð og íjöldamorðin í Zemla leiddu til þess. að þjóðfrelsishreyf- ingin ákvað að fylkja liði. Þremur árum síðar stofnuðu nokkrir Sahr- war Polisario-hreyfinguna. Ákveðið var að taka upp vopnaða baráttu til þess að landið fengi sjálfstæði, enda lá þá fyrir, að Spánveijar ætluðu sér ekki að láta af stjórn. Þó kváðust Spán- veijar vilja koma til móts við íbú- ana og fullvissuðu þá um að ósk- um þeirra um sjálfsákvörðunar- rétt yrði sinnt. Þegar hér var komið sögu hafði Marokkó fengið sjálfstæði frá Frökkum árið 1956. Fyrstu árin eftir að Marokkó fékk sjálfstæði einkenndust af innanlandsólgu og óstöðugleika. Upp spruttu ógrynni stjómmálaflokka og þeir klofnuðu síðan hver um annan þveran og hver höndin var uppi á móti ann- arri. Átök voru daglegt brauð. Sú skoðun er almenn, þótt ekki sé vitað með vissu hvort hún er rétt, að upphaf alls þessa megi rekja til þess að að Marokkókonungur hafi viljað leiða athyglina frá þess- um innanlandsvandamálum, sem stefndu í voða sjálfstæði landsins. Það gæti hann best gert með því að setja fram kröftuglega kröfu til Vestur-Sahara, Máritaníu og hluta Alsir. Þessi krafa var rökstudd með því að Marokkó hafði ráðið þess- um svæðum á miðöldum. Síðar dró Marokkó til baka tilkall til yfirráða í Máritaníu og alsírsku Sahara. En ráðamenn héldu fast Hassan Marokkókonungur. Abdelaziz forseti útlagastjórnar Sahrawa. við þá kröfu að Vestur-Sahara yrði viðurkennd sem hluti konung- dæmisins Marokkó. Árið 1975 skaut það máli sínu til Alþjóða- dómstólsins í Haag. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að hvorki Marokkó né Máritanía, sem einnig heimtaði nú yfirráð yfir Kortið sýnir Vestur-Sahara. Marokkómenn hersitja allt svæðið fyrir norðan og vestan múrinn. Vestur-Sahara, ætti rétt til lands- ins. Hvorugt ríkið hefði haft tengsl við Sahrawi-þjóðina áður en Spánveijar gerðust þar ný- lenduherrar. Dómstóllinn úrskurð- aði að Vestur-Sahara ætti að verða sjálfstætt ríki. Við þessa niðurstöðu vildi Hass- an Marokkókonungur ekki una. í október 1975 skipulagði konungur „Grænu gönguna" og fóru þá 350 þúsund manns yfir landamæri Marokkó og inn í Vestur-Sahara. Hassan lýsti yfir að ríkið Stór- Marokkó væri nú raunveruleiki. Auðvitað var þetta bein innrás enda tóku hersveitir þátt í Grænu göngunni. Ráðamenn í Máritaníu höfðu samið við Hassan og márit- anskir hermenn gerðu nokkru síðar innrás úr suðri. Græna gang- an bar tilætluð áhrif; í stað ókyrrð- ar og ólgu blossaði nú upp meðal Marokkómanna metnaður í þá átt að Vestur-Sahara yrði óijúfanleg- ur hluti landsins. Töldu Marokkó- menn að vegur landsins yrði þar með meiri ef tækist að koma eyði- merkurlandinu undir þeirra stjórn. í nóvember 1975, þegar Franco einvaldur Spánar lá á banabeði, lýsti spánska stjórnin því skyndi- lega yfir að hún hygðist láta und- an kröfum Marokkó. Skrifað var undir Madrid-samkomulagið þar sem gert er ráð fyrir að tveir þriðju hlutar Vestur-Sahara skyldu renna undir Marokkó, en einn þriðji landsins kæmi í hlut Máritaníu. Þýðingarmest var að Marokkómenn fengu 65% þess svæðis þar sem auðugar fosfat- námur eru og rétt til að nýta þær. Ekki er minnsti vafi á því að fosfatauðlegðin og gjöful fiski- mið undan ströndinni eru undirrót og skýring á þeirri hatrömmu og löngu baráttu um eyðimerkurl- andið. Spánn hvarf með heri sína frá Vestur-Sahara í febrúar 1976 og hermenn Marokkó og Máritaníu komu í staðinn. Fáeinum dögum eftir að Spán- veijar fóru með heri sína burt úr Vestur-Sahara lýstu Sahrawar yfir stofnun sjálfstæðs ríkis og sögðu nýlenduherrunum stríð á hendur. Grimmilegir bardagar brutust út milli Polisario-manna og hermanna frá Marokkó og Máritaníu og beittu þeir síðar- nefndu napalsprengjum. Skömmu síðar flýðu 100 þúsund Sahrawar, einkum konur og börn, inn fyrir landamæri Alsírs. Stjómin ákvað að leyfa þeim að setja upp stöðvar sínar í Tindouf. Sambandið milli sósíalistastjórnar Alsírs og kon- ungsstjórnar Marokkó hafði verið stirt. Deilur urðu um landamæri eftir að Alsír fékk sjálfstæði. Sam- bandið versnaði og eftir að Alsír- menn lýstu nú yfir afdráttarlaus- um stuðningi við Polisario urðu Marokkómenn æfir. Þrátt fyrir að við ofurefli væri að etja og stuðningur lægi ekki alls staðar á lausu tókst Polisario þó um hríð að halda sveitum Marokkómanna og Máritaníu í skefjum. Árið 1978 var svo komið að stríðið hafði valdið stjórn Má- ritaníu alvarlegum búsifjum. íbú- ar voru sárreiðir yfir því að stjórn- in mokaði peningum í stríðsrekst- urinn, en sinnti ekki bágum kjör- um manna í Máritaníu. Loks sauð upp úr og öuld Daddah var hrak- inn frá völdum. Nýir leiðtogar í Máritaníu skrifuðu undir friðar- samninga 1979. Þar féllu þeir frá öllum landakröfum og fóru síðan með lið sitt frá Vestur-Sahara. Marokkó var nú orðið eitt eftir að stríða við Polisario-menn. Síðan eru nú senn liðin tíu ár. Hermenn Marokkó og skæruliðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.