Morgunblaðið - 06.07.1988, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra:
Möguleiki á að byggja
upp þorskstofninn 1991
„ÞETTA er ekkert nýtt, það eru almenn sannindi að það er hag-
kvæmara að veiða fiskinn þegar hann er þyngri og það hefur
orðið töluverð röskun á þessu á undanförnum áratugum," sagði
Halldór Ásgrimsson, sjávarútvegsráðherra, aðspurður um hug-
myndir Ragnars Árnasonar, fiskihagfræðings, um friðun smá-
þorsks. „Helsta von okkar er að þorskseiði sem fóru til Græn-
lands 1984 komi aftur inn í hrygningarstofninn árið 1991, en við
getum vænst þess samkvæmt fyrri reynslu. Þá er mjög áríðandi
að við notum það tækifæri til að byggja stofninn upp, en ekki til
að auka við veiðamar."
Samkvæmt útreikningum
Ragnars Ámasonar ætti tveggja
ára friðun smáþorsks að geta leitt
til 50-60.000 tonna aflaaukningu
á ári til frambúðar, sem skilaði 3
milljörðum króna. Ragnar segir
þetta mögulegt með 70-80.000
tonna aflaminnkun fyrsta árið og
15-20.000 minnkun annað árið,
en hugsanlega verði að bíða og
sæta lagi þegar nýir, stórir ár-
gangar komi inn í þorskstofninn.
„Vaxandi togaraveiðar áttu að
koma í staðinn fyrir veiðar er-
lendra togskipa, en ég er þeirrar
skoðunar að við höfum gengið
heldur langt í þessum efnum. Við
sjáum það núna að uppistaðan í
aflanum er fjögurra og fimm ára
fiskur. Það er ekki nægilega góð
samsetning í veiðunum, það vant-
ar eldri fiskinn, en að mínu mati
verður aldrei komist hjá því að
verulegur hluti veiðinnar sé þessir
yngri árgangar.
Við eigum að halda veiðunum
í skefjum eins og við frekast get-
um og auka þær ekki þó að þessi
nýi fiskur komi inn. Til þess þurf-
um við að standast ýmsar freist-
ingar og það er gott að ræða það
fyrirfram, en ekki eftir að það er
búið að moka öllu á land,“ sagði
sj ávarútvegsráðherra.
Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ:
Þyrftí að halda þorsk-
aflanum betur niðri
„ÉG HEF sagt það margsinnis að við nýtum þorskstofninn
óskynsamlega með því að veiða þorskinn allt of smáan. Þegar
ekki hefur verið gengið eins nærri honum og nú er gert höfum
við fengið afrakstur af stofninum,“ sagði Kristján Ragnarsson,
formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, er hann var
spurður álits á þeim hugmyndum Ragnars Arnasonar, fiskihag-
fræðings, að með tveggja ára friðun á smáþorski væri hægt að
uppskera 50-60.000 tonnum meira af þorski á ári í framtiðinni,
sem þýddi 3 milljarða í auknar þjóðartekjur.
„Ég er algjörlega ósammála að það er hægt að ala fiskinn leng-
þeim hugmyndum að grisja fisk-
inn í sjónum vegna þess að það
sé of mikið af honum, ég held að
við höfum margsinnis séð að það
er hægt að ala fiskinn upp í sjón-
um. Það munu hafa verið veidd
um 550.000 tonn um 1950 eftir
friðunina í stríðinu, eða um
200.000 tonnum meira en nú, þó
að það hafi verið veiddir jafn
margir fiskar. Þetta segir okkur
ur upp í sjónum og ná betri nýt-
ingu út úr stofninum." Kristján
kvaðst sammála Ragnari um að
besta aðferðin til að friða smá-
þorsk væri að draga úr sókninni
og þá sérstaklega sumarsókninni.
Kristján var spurður um hvar
helst mætti vænta fyrirstöðu gegn
því að þessum hugmyndum yrði
hrint í framkvæmd. „Það er hjá
þjóðinni sjálfri, sem gerir svo
miklar kröfur að það má ekki
slaka á nokkrum hlut. Ætli þjófé-
lagið sé nokkuð tilbúið að viður-
kenna slíka þörf og draga saman
seglin í samræmi við það.“
Kristján sagði að auðveldast
væri að sæta lagi og auka ekki
veiðina þegar stórir árgangar af
þorski kæmu inn, eins og Ragnar
Árnason benti á í samtaii við
Morgunblaðið. „Við höfum fiskað
50-60.000 tonnum of mikið
síðustu ár. Við hefðum aldrei átt
að fara yfir 3Ó0.000 tonn á með-
an við vorum að ná þessu upp.
Það þyrfti að halda niðri heildar-
aflanum og það þyrfti að gera í
meira mæli en gert er. Það hefur
ýmislegt verið gert til að draga
úr sókninni, en það má gera enn-
þá betur." ,
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Ferðaþjónustan Langholt, Görðum í Staðarsveit.
Ferðaþjónusta
efld í Staðarsveit
Stykkishólmi.
STÁÐARSVEITIN á Snæfellsnesi er með fegurstu og hlýlegustu byggð-
um þessa lands og þar hefur fólk um aldir lifað góðu lífi. I miðri sveit-
inni er jörðin Garðar, gjöful og gróðursæl. Þangað kom sem bóndi
1948 Sigurmon Símonarson og kona hans, Jórunn Helgadóttir, með
börnum sínum. Sonur þeirra Símon býr nú þar ásamt konu sinni, Svövu
Guðmundsdóttir frá Dalsmynni. Sl. 20 ár hafa þau búið á jörðinni sem
hann tók við af móður sinni þá. Dugnaðarfólk.
Undanfarin ár hefir hann verið að
koma þarna upp ferðaþjónustu sem
virðist njóta vaxandi vinsælda enda
hefír hann og þau hjón aukið við
hana og endurbætt, þau nefna ferða-
þjónustuna Langholt. Árið 1984 var
fyrsta áfanga komið í gagnið og þá
gengið frá fyrstu innréttingum og
síðan hefír þetta þróast í rétta átt.
{ fyrra var svo nýbyggingu Iokið og
allt þar gert sem viðkunnanlegast
fyrir gestina. Nú er hægt að taka á
móti 26 gestum í rúm, og eru í báð-
um álmum 8 herbergi, bæði tveggja
og fjögurra manna. Styrtiaðstaða hin
fullkomnasta, alls 5 snyrtingar með
sturtum, sólstofu, sjónvarpsherbergi
og setustofu. Þá er eldhús sem gest-
ir geta fengið til afnota með öllum
tækjum, og eins er annað eldhús þar
sem matur og kaffi er lagað. Borð-
stofur eru rúmgóðar og þægilegar.
Á efri hæð nýbyggingar eru tvær
baðstofur ætlaðar sem svefnpoka-
pláss. Vistlegar og rúmgóðar. Allt
er húsið þannig til að gera gestum
sem ánægjulegasta dvölina. Sjór og
sendin strönd er í nálægð og útsýni
fagurt til allra átta. Það hafa marg-
ir komið og notfært sér þetta. Að-
sókn er vaxandi. Auðvelt að taka á
móti ferðahópum. í eldhúsinu eru
Rotaryklúbbur
Selfoss40ára
Selfossi.
ROTARYKLÚBBUR Selfoss hélt
nýlega upp á 40 ára afmæli sitt
með hátíðafundi á Hótel Sel-
fossi. Klúbburinn var stofnaður
4. júní 1948, rúmu ári eftir að
Selfoss varð sjálfstætt sveitarfé-
lag.
Á hátíðafundinum rakti Páll
Jónsson sögu klúþbsins og félagar
minntust ýmissa atburða og tíma-
móta í starfsemi hans. Fyrsti for-
seti klúbbsins var Lúðvík Norðdal
héraðslæknir. Núverandi forseti er
Jónas Magnússon. Starfandi félag-
ar í Rotaryklúbbi Selfoss eru 33.
Fundir eru haldnir vikulega á
þriðjudögum þar sem flutt eru er-
indi um hina ýmsu málaflokka.
Á hátíðafundinum var eini starf-
andi stofnfélagi klúbbsins, Gísli
Bjamason, gerður að heiðursfélaga-
— Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Frá hátíðafundinum, Jónas Magnússon forseti klúbbsins í ræðustól.
íbúar aldrei verið
fleiri á Akranesi
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Jónas Magnússon afhendir Gísla Bjarnasyni heiðursfélagaskjalið.
Akranesi.
IBÚAR á Akranesi hafa aldrei
verið fleiri heldur en nú. Þeir
teljast vera 5.426 en flestir hafa
þeir áður verið 5.420 árið 1982.
Sjálfsagt koma þessar tölur ýms-
um heimamanninum á óvart því
mikið hefur verið talað um að fólks-
flótti sé frá Akranesi til Reykjavík-
ursvæðisins. Sem betur fer á það
ekki við rök að styðjast. Vissulega
eru þetta góðar fréttir sagði Gísli
Gíslason bæjarstjóri á Akranesi í
samtali við Morgunblaðið. Það er
ljóst að þrátt fyrir tímabil vandræða
í atvinnurekstri á síðari hluta ársins
1987, þá hafa bæjarbúar engan
bilbug látið á sér finna og ákveðið
að taka sameiginlega á vandamál-
unum. Gísli sagðist að lokum vona
að árangur yrði í uppbyggingu at-
vinnulífsins í bænum svo að íbúa-
fjö'lgun megi halda áfram. — JG
ísskápar sem ferðamenn geta nýtt.
Hægt er að afgreiða mat og kaffí í
rúmgóðum matsal.
Fréttaritari ræddi við þau hjón um
allar aðstæður. „Ég veit ekki annað
en héðan hafi allir farið ánægðir.
Ég hefi sjálfur unnið talsvert að þess-
um byggingum með ágætum smið-
um, þeim Þórði Gíslasynin í Mýrdal
og Hauki Þórðar. frá Ölkeldu. Þeir
eru traustir menn. Mér telst til að
allt svæðið sem þjónustan hefir til
afnota séu um 400 fermetrar," segir
Símon.
„Við seldum búið og leigðum full-
virðisréttinn og þar kom umtalsverð
fjárhæð. Byggðastofnun veitti okkur
lán til 10 ára og í þriðja lagi höfum
við látið allt sem inn hefur komið í
rekstrinum ganga til að gera hann
betri og þægilegri og síðast en ekki
síst viljum við taka það fram að við
höfum lagt til hliðar allt sem við
teljum að við hefðum eytt í tóbaki
og áfengi og það hefir verið okkur
mikil fjármögnun. Sjálf neytum við
hjónin hvorki tóbaks né áfengis og
það er sú fjárfesting sem er best í
öllum okkar búskap og rekstri.
Ómælanleg og ómetanleg. Og er það
ekki ánægjuefni að sjá fyrirtæki og
hús rísa til hagsbóta, eða hitt að
láta allskyns eiturefni ráða ferðinni
og grafa undan allri framtíð og
leggja lífsgæfuna að velli. Þetta er
okkar gæfa og gleði", sögðu hjónin
og ljómuðu af ánægju. Jú, vissulega
og mættu landsmenn taka þetta til
athugunar og fyrirmyndar. „Þá vil
ég sérstaklega vekja athygli á því,“
segir Símon, „að þetta er ánægjuleg
atvinnugrein. Hingað koma svo
margir skemmtilegir og fróðir gestir
og veita manni innsýn í ótal viðhorf
og auka manni bjartsýni. Þetta tekið
með í reikninginn eru þau andleg
verðmæti sem ekki eru á hveiju
strái. Þá höfum við ágæt samskipti
við Eyjaferðir í Stykkishólmi sem ná
meiri vinsældum með hveiju ári.
Samstarf okkar við hótel Búðir er
gott og óborganlegt. Svo fer best á
að við styðjum hver annan. Eins vil
ég geta þess að samstarf er gott
milli okkar og hótelsins í Stykkis-
hólmi."
Fréttaritari skoðaði byggingar og
alla tilhögun og dáðist að hversu
góðu og veglegu framtaki hér er lyft
af stokkunum og vel hefði verið að
öllu staðið. Þetta var ánægjuleg
heimsókn.
Árni
Leiðrétting
Á viðskiptasíðu Morgunblaðsins
í gær urðu þau mistök að í um-
íjöllun um fyrirtækið Starfsþjón-
ustuna hf. var það kynnt sem nýtek-
ið til starfa. Þetta var á misskiln-
ingi byggt, fyrirtækið hefur verið
starfrækt í rúm tvö ár. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar á þessum
mistökum.