Morgunblaðið - 06.07.1988, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988
27
Tékkóslóvakía:
Gífurlegt fjölmenni á
trúarhátíð kaþólskra
Levoca, Tékkóslóvakía. Reuter.
YFIR 100.000 kaþólikkar komu saman í útjaðri smábæjarins Levoca
í Tékkóslóvakíu á sunnudag til þess að taka þátt í einni mestu trúar-
hátíð sem haldin er í Austur-Evrópu. Þátttaka í hátiðarhöldunum
þykir sýna vel hversu mikil gróska er nú á meðal kaþólikka í
landinu. Talsmenn kaþólsku kirkjunnar hafa að undanförnu farið
fram á aukið fijálsræði kirkjunni til handa.
Fólkið kom flest gangandi til
Levoca, lítils bæjar við rætur
Tatra-fjalla, en hann hefur verið
AskaBartoks
flutt til Ung-
verjalands
Hegyeshalom, Ungverjalandi. Reuter.
UNGVERSK yfirvöld tóku í gær
með mikilli viðhöfn við ösku tón-
skaldsins Belas Bartoks, 48 árum
eftir að hann varð að flýja landið
vegna ofsókna þarlendra fasista.
Bartok settist að í Bandaríkjun-
um.
Bartok lést árið 1945 í New
York. Tveir synir hans sáu um að
flytja duftkerið með jarðneskum
leifum tónskáldsins sjóleiðis frá
New York til Evrópu. Við ung-
versku landamærin var hátíðleg
athöfn sem sjónvarpað var frá. Flutt
var ljóð til heiðurs Bartok og kór
söng verk eftir tónskáldið.
í tónlist sinni notaði Bartok þjóð-
lög frá Ungveijalandi og fleiri Mið-
Evrópulöndum sem undirstöðu.
Hægrisinnaðir valdamenn millistr-
íðsáranna gagnrýndu hann fyrir
nútímalega uppbyggingu tónverka
sinna og skort á eindreginni þjóð-
rækni. Kommúnistastjórnin, sem
tók völdin 1948, var einnig lítt hrif-
in af Bartok en á sjöunda áratugn-
um breyttist sú afstaða og hann
var tekinn í tölu þjóðhetja.
helgistaður pílagríma allt frá því á
13. öld. Fremst fór ungt fólk sem
bar róðukrossa þakta blómum.
Göngufólkið hélt síðan rakleiðis í
gegnum bæinn og að styttu af
Maríu mey sem stendur efst á lítilli
hæð rétt fyrir utan bæjarmörkin
en þar fóru aðalhátíðarhöldin fram.
Það sem vakti sérstaka athygli í
ár var hversu mikið af ungu fólki
tók þátt í hátíðarhöldunum.
Fólkið, sem flest var komið á
samkomustaðinn á laugardag, vakti
aðfaranótt sunnudagsins. Þá voru
haldnar messur á tveggja klukku-
stunda fresti og skriftað undir ber-
um himni. Þess á milli voru sungn-
ir sálmar og hluti unga fólksins fór
í fylkingum um hæðimar í kring,
veifandi gulum og hvítum fána
Páfagarðs. „Svona sýnum við trú
okkar og okkur finnst við vera
sterk, svona mörg saman,“ sagði
hagfræðistúdent frá Bratislava í
samtali við Reuter-fréttastofuna.
„Okkar guð er guð unga fólksins,"
sagði ungur gítaristi við sama tæki-
færi.
Enda þótt trúfrelsi sé bundið í
tékkneskum lögum þá vantar enn
nokkuð á að það standist í raun,
að minnsta kosti hefur þótt ástæða
til að hafa lögregluvörð á þessum
árvissu samkomum kaþólikka í
landinu. Að sögn þátttakenda var
þó návist þeirra í ár ekki jafn trufl-
andi og oft hefur verið. Stjórn
kommúnistaflokksins í landinu
lagði blátt bann við að Jóhannesi
Páli páfa yrði boðið til samkomunn-
ar og harmaði einn aðstandenda
hennar þá ákvörðun í ræðu sem
hann flutti fyrir þátttakendur á
sunnudag.
Eins og áður sagði hefur ka-
þólska söfnuðinum í Tékkóslóvakíu
aukist fylgi að undanförnu og sífellt
fleiri úr röðum kaþólikka hafa orðið
til að benda á þörfina fyrir raun-
verulegt trúfrelsi í landinu. Nú ligg-
ur t.a.m. fyrir stjómvöldum bænar-
skjal undirritað af hálfri milljón
manna sem krefjast skilyrðislauss
trúfrelsis í landinu. Kaþólskir menn
segja bænarskjalið hafa átt stóran
þátt í að yfírvöld lögðu blessun sína
yfir vígslu þriggja nýrra biskupa
fyrir stuttu. Þá hafði ekki verið
vígður biskup í landinu síðan 1973.
Reuter
Milli Asíu og Evrópu
Síðastliðinn sunnudag vígði Turgut Ozal, forsætisráðherra Tyrk-
lands, nýja brú yfir Sæviðarsund (Bosporus). Liggja nú tvær brýr
yfir sundið sem aðskilur Evrópu og Asíu. Öryggisráðstafanir
tyrknesku lögreglunnar við vígsluna voru þær mestu i manna
minnum enda stutt siðan forsætisráðherranum var sýnt banatil-
ræði. A myndinni sjást nokkrir öryggisverðir við brynvarinn vagn.
Sovétríkin:
Liðhlaupum heitið sakaruppgjöf
Moskvu, Reuter.
SOVÉSKUR embættismaður
skýrði frá því á blaðamanna-
fundi í Moskvu á mánudag að
V estur-Þýskaland:
Níu farast í flugslysi
Weilheim, V- Þýskaland. Reuter.
NÍU farþegar, þar á meðal tvö
börn, létu lífið á sunnudag þeg-
ar vestur-þýsk herþyrla hrapaði
nærri Weilheim í Garmisch-
Partenkirchen í þýsku Ölpun-
um.
Talið er að slæmt skyggni hafi
valdið því að þyrlan rakst á klett,
sprakk í loft upp og hrapaði 200
metra niður í þéttan skóg. Að sögn
talsmanns lögreglu í Weilheim
fannst brak þyrlunnar, sem var af
gerðinni Bell UH-ID, á dreif um
500 fermetra svæði í skóginum.
ákveðið hefði verið að veita
sovéskum hermönnum, sem
gerst hefðu liðhlaupar í Afgan-
istan, uppgjöf saka. Kvað emb-
ættismaðurinn sakaruppgjöfina
án allra skilyrða og sagði hana
taka til allra þeirra sem flúið
hefðu og vildu snúa aftur heim
til ætljarðarinnar.
Alexander Sukharev, sem gegn-
ir embætti ríkissaksóknara, sagði
312 sovéska hermenn hafa verið
tekna til fanga í Afganistan og
talið væri að rúmlega 200 þeirra
væru enn á lífi. Margir þeirra
væru enn í fangabúðum í Afganist-
an og Pakistan en öðrum hefði
verið sleppt úr haldi og hefðu þeir
farið til Bandaríkjanna, Kanada
og ríkja Vestur-Evrópu. „í nafni
ríkisins lýsi ég yfir því að þeir
hermenn sem gegndu herþjónustu
í Afganistan og snúa aftur til hei-
malands síns, erlendis frá eða úr
fangabúðum, munu njóta allra
þeirra réttinda sem þeim eru
tryggð samkvæmt stjórnarskrá
Sovétríkjanna," sagði Sukharev.
Hann bætti við að þeir sem ekki
hefðu fengið „staðist erlendan
áróður" og gerst hefðu sekir um
lögbrot með því að vinna gegn
hagsmunum Sovétríkjanna yrðu
einnig náðaðir.
í máli Sukharevs kom fram að
sovéskir hermenn hefðu margir
hveijir sætt pyntingum í fangabúð-
um afganskra skæruliða auk þess
sem þeir hefðu mátt þola skipuleg-
an „heilaþvott". Almenningur í
Sovétríkjunum gerði sér ljóst að
hermennirnir í Afganistan hefðu
liðið miklar hörmungar og alþýða
manna vonaði að áralöng vera
þeirra fjarri föðurlandinu hefði
ekki orðið til þess að breyta sýn
þeirra til lífsins, sósíalismans og
ættjarðarinnar.
Bretland:
Þekktir rithöfundar
stofna hugmyndabanka
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
NOKKRIR í h ópi þekktustu rithöfunda í Bretlandi hafa ákveð-
ið að stofna hugmyndabanka fyrir vinstrimenn og Verka-
mannaflokkinn til að vinna gegn áhrifum Margaretar Thatc-
her. forsætisráðherra Bretlands.
Hugmyndabankar hafa verið
áhrifamiklir í stefnumótun
íhaldsflokksins í næstum tvo
áratugi. Þekktastir þeirra eru
Centre for Policy Studies og
Institute for Economic Affairs.
Thatcher hefur sótt flestar af
sínum bestu hugmyndum til
þeirra og þeir móta mjög alla
stjórnmálaumræðu í landinu.
Verkamannaflokkurinn hefur
ekki brugðist við þessu, en
álormar nú að koma nokkmm
slíkum stofnunum á fót. Rithöf-
undarnir John Mortimer, Lafði
Antonia Fraser og eiginmaður
hennar, Harold Pinter leikskáld,
Margaret Drabble og eigin-
maður hennar, Michael Holroyd,
og Anthony Howard, aðstoðar-
ritstjóri The Observer, hafa
bundist samtökum um að stofna
hugmyndabanka, að sögn
Sunday Telegraph síðastliðinn
sunnudag.
Rithöfundarnir vonast til að
efla nýjar hugmyndir meðal
vinstrimanna. Margir þeirra
telja verkalýðshreyfinguna og
Verkamannaflokkinn skorta þá
fijósemi, sem einkennt hefur
Íhaldsflokkinn á valdatíma
Thatcher.
John Mortimer, sem einu sinni
kallaði sig kampavínssósíalista,
vildi ekkert um málið segja við
Sunday Telegraph á þessu stigi.
n Jeep
Wagoneer - Cherokee
- ekki bara glæsilegir
heldur gædin í gegn
Fyrir þá
sem vilja
það besta.
EGILL VILHJÁLMSSON HF.
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 — 77202