Morgunblaðið - 06.07.1988, Síða 43

Morgunblaðið - 06.07.1988, Síða 43
V fjir. MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988 Ur Davíðsborg eftir Sigurð Antonsson Hér á árum fyrr þegar sjálfstæð- ismenn réðu borginni og Kringlu- mýrin var óvefengjanleg mýri og kartöflugarður auglýsti borgar- stjórinn eftir kaupmönnum til að byggja í framtíðarlandinu. Fáir gáfu sig fram og þeir sem svöruðu auglýsingu sjálfstæðis- manna voru ekki svo mikið sem virtir viðlits með svörum við um- sóknum þeirra. Eftir að núverandi borgarstjóri náði aftur meirihlutanum fyrir sjálf- stæðismenn og eftir að öll bygging- aráform höfðu legið í láginni í ijög- ur ár hjá vinstri mönnum tók Davíð Oddsson upp þráðinn að nýju í mýrinni. Nýr kaupmannsaðili var nú kom- inn til skjalanna, Hagkaupsmenn með um 10% af allri matvöruverslun borgarbúa. Hagkaup er þá var allra manna „kjarabót“ vildi fá allra mýrina undir aukna útþenslu sína (verslun sína) og borgin vildi láta byggja og fá þannig til borgarinnar ný og ómæld fasteigna-, aðstöðu- og útsvarsgjöld án þess að kosta miklu til. Einfaldara var fyrir borg- ina að semja við einn sterkan aðila heldur en að standa í samningum við marga smærri umsækjendur. Borgarstjóri fullvissaði kaup- menn á sérstökum fundi að Hag- kaup væri síst of stórt á þessum stað. Kaupmenn báru upp mótmæli við því að uppbygging á verslunar- húsnæði tæki svo stórt stökk og að einu fyrirtæki væri veitt slík aðstaða. Davíð virti skoðanir kaup- manna ekki viðlits frekar en sjálf- stæðismenn fyrrum og fór sínu fram. Nú er komið á daginn að Hagkaupsmenn eru með um 25% af verslunarveltu í matvöru á höfuð- borgarsvæðinu. Þeir stefna í að ná enn meiri ítökum og markaðshlut- deild á svæðinu. SIS þykir stórt í sniðum með sinn verslunarrekstur, en það er nú einu sinni samvinnufélag sem lifir betur af kynslóðaskipti en hlutafélögin í núverandi löggjöf. Einhvern tíma kemur að því að Hagkaupsættingj- arnir vilja skipta upp fyrirtækinu. Þegar Hagkaupsrisinn fellur þá verður fallið því stærra. Hugsanlegt er einnig að fyrirtæki með tugi pró- sentna af verslunarveltu lands- manna geti og náð einokunarvaldi í skjóli stærðar sinnar og lifað leng- ur. Engu skal um það spáð. Þegar Silli og Valdi komu til skiptanna varð menningarveisla og öll njótum við góðs af uppbyggingu feðranna, enda voru þeir aldrei ýkja stórir í sniðum. T.d. hefur borgin eignast mörg stórhýsi Thors eins og Korp- úlfsstaði og íbúðarhús hans við Tjörnina. Tjörnin lifi Davíð Oddsson, borgarstjóri, stakk ábendingum og óskum kaup- manna, smna stuðningsmanna, nið- ur í sk..r'fur og komst upp með það. En í dag hittir hann fyrir harð- ari andstöðu, manna sem ekki vilja gefa láta undan. Andstaða íbúðar- samtaka við Tjörnina er vel skiljan- leg. Þeir vilja ekki láta borgina komast upp með lögleysur í bygg- ingamálum, þegar borgararnir hafa árum saman þurft að ganga í gegn- um nálaraugu með sín byggingar- áform. T.d. hafa eigendur lóða í miðborginni þurft í áraraðir að bíða eftir skipulagi og svörum frá ýms- um ráðum og nefndum. Þegar skipulagið er svo loks samþykkt er mönnum hótað hækkuðum gatna- gerðargjöldum byggi þeir ekki fyrir næstu áramót. Margir hafa gefist upp eins og SH í Aðalstræti. Leitun er að höfuðborg þar sem miðborgin er í jafn mikilli niðurníðslu og hjá Reykjavíkurborg. Gömul og illa við- haldin hús og auðar lóðir blasa hvarvetna við. Gatnakerfið er sprungið til miðborgarinnar og far- ið er að bera. á fjölda húsa sem standa auð í miðborginni. Fólkið í samtökunum Tjörnin lifi vill ekki lengur við una hvernig ráðhússmálið er rekið áfram af þjösnaskap og lögleysum og í engu samræmi við hagsmuni íbúanna. Ástæða er til að óska samtökunum við tjörnina til lukku með staðfestu sína og áhuga fyrir að vernda og fá ráðið að einhverju um umhverfi sitt. Nýjasta uppákoman er nú að gera gömlu slökkvistöðina að bíla- geymslu og sýnir hve ráðþrota ráð- hússmenn eru orðnir. Nær hefði verið fyrir borgina að byggja bílageymslur á lóð sinni við Lækjargötu í stað þess að gefa hana skjólstæðingi sínum fyrir lítið. Á fleiri stöðum mætti borgin byggja bílageymslur eins og við Laugaveg- inn, lífga þar með upp á vérslunina sem borgin hefur ærnar tekjur af. Unglingasveitir Davíðs Samkvæmt nýjum umferðarlög- um getur borgin látið bjóða upp bíla séu stöðumælasektir ekki greiddar. Okumaðurinn þarf ekki að vera ábyrgur en bíleigandinn alltaf. Hífibílar eru látnir fjarlægja ólöglega bíla og stöðumælasektum er beitt í auknum mæli. Sektir og stöðumælagjöld hafa verið hækkuð um mörg hundruð prósent í mið- borginni en aðrir hlutar hennar búa við enga stöðumæla. Slíkar hækk- anir eru verðbólguhvetjandi og eru í andstöðu við ummæli borgarstjóra að ekki ríki þensla í borgarmálefn- um. Meðal stöðumælavarða eru hafð- ir í hópum óþroskaðir unglingar, „sérsveitir Davíðs" til að líta eftir stöðumælum og skrifa út sektir. Oft eru þessi ungmenni vart skrif- andi og ekki að sjá nema undir lög- aldri. Spyija mætti hvort hér sé ekki verið að misnota skólaæskuna og hvort gjörningar þessir séu ekki lögleysur? Að sekta menn vegna lagabrota er ábyrgðarstarf sem verður að vera í höndunum á embættismönn- um sem eru til þess menntaðir og komnir af skólaaldri. Miðbæjarsamtökin undir forystu Sigurður Antonsson „Leitun er að höfuð- borg þar sem miðborg- in er í jafn mikilli nið- urníðslu og- hjá Reykjavíkurborg. Göm- ul og illa viðhaldin hús og- auðar lóðir blasa hvarvetna við.“ Guðlaugs Bergmanns hafa háð langa baráttu til að fá bílastæðis- málin í viðunandi horf. Margt hefur áunnist og ber það að þakka. Hins vegar er leitt til þess að vita að undirskriftasöfnun þurfi til að koma þessum málum áleiðis hjá borgar- yfirvöldum. Sýnir það best hvernig borgaryfirvöld hafa íjarlægst borg- arana. Til að miðbærinn og starf- semi þar geti staðið jafnfætis öðrum borgarhlutum verður að koma til stórátak af hálfu borgarinnar í bíla- geymslumálum. Gjald við stöðu- mæla verður að vera frítt fyrsta hálftímann eins og gert er víða í Evrópu með klukkukortum. Eigendur fasteigna í miðbænum hafa í áraraðir greitt einhver hæstu fasteignagjöld í borginni. Auk þess kemur um hálf milljón á degi hveij- um út úr stöðumælabröltinu og allt það fé og gott betur rennur í Egilsstaðir: Hjálparsveitin fær nýjan beltabíl Egilsstöðum. HÉRAÐSBÚAR hafa nú fengið nýtt og fullkomið björgunartæki i þjónustu sína. Er hér um að ræða sænskan beltabíl sem getur athafnað sig jafnt á láði sem legi, auðri jörð eða snjó. Það er Hjálp- arsveit skáta á Fljótsdalshéraði sem keytpi þennan bíl sem kostaði rúmar þijár milljónir án aðflutn- ingsgjalda og rúmar allt að 16 manns. Beltabíllinn er af Hágglund-gerð, búinn fjórum beltum með drifi á þeim öllum og liðstýrður. Á landi nær bíllinn um 550 km hraða en í vatni um tveggja mílna hraða. Bíllinn er sérstaklega hannaður fyrir notkun í miklum kulda og hefur sænski herinn notað bíla af þessari gerð um árabil við ólíklegustu aðstæður. Einng á Landsvirkjun þijá svona bíla sem notaðir eru við línueftirlit og snjó-. og vatnamælingar á hálendinu að vetrarlagi með góðum árangri. Bíllinn kostaði í innkaupum rúmar þijár milljónir króna með öllum bún- aði og var fjár til kaupanna aflað með almennri fjársöfnun á meðal einstaklinga og fyrirtækja á Héraði. Einnig veitti Skipadeild Sambandsins vildarkjör á flutningi bílsins til lands- ins og Flugleiðir veittu aðstoð vegna kaupanna. Stefán Guðmundsson, formaður Hjálparsveitar skáta á Fljótsdalshéraði sagði, að þeir hjálp- arsveitarmenn væru ákaflega þakkl- átir öllum þeim sem lagt hefðu þess- um kaupum lið. Reynslan undanfarin ár hefði sýnt að full þörf væri fyrir tæki sem þetta á svæðinu og sú þörf væri vaxandi með síauknum vélsleða- og jeppaferðum inn á há- Morgunblaðið/Bjöm Nýi láðs og lagarbíll Hjálparsveitar skáta á Fljótsdalshéraði. Birgir Símonarson og Stefán Guðmundsson formaður Hjálparsveitar skáta á Fljótsdalshéraði. lendið að vetrarlagi. Nú lægi næst fýrir að þjálfa áhafnir á bílinn en ætlun þeirra væri að hann væri ávallt reiðubúinn með sem stystum fyrirvara. Að sögn Stefáns Guðmundssonar eru 28 félagar starfandi í Hjálpar- sveitinni og er hún ágætlega búin tækjum til skyndihjálpar og sjúkra- flutninga. Einng eiga þeir klifurbún- að og tæki til leitar og björgunar í snjófljóðum. Síðar í sumar fá þeir svo nýjan fjórhjóladrifsbíl af gerðinni Ford Econoline. Næsta átak í tækja- kaupum yrði líklega að efla fjar- skiptabúnað sveitarinnar. - Björn 43 draumakjallara Davíðs borgarstjóra undir ráðhúsinu. Óskandi væri að þar með setti Davíð punktinn yfir i-ið og tyrfti bílakjallarann og frest- aði öllum áformum með ráðhúsið. Þensla Gífurleg þensla ríkir í borginni. Steypusala hefur sjaldan verið meiri og fjöldinn allur af utanbæjarmönn- um vinnur við ráðhússkjallarann sem annars staðar. Verslunar- og atvinnuhúsnæði stendur út um alia borg ónotað, eigendum til skulda og gjalda. Samt er enn ráðist í nýjar atvinnuhúsabyggingar. Of- fjárfesting er þar engu síður en í landbúnaði, sjávarútvegi eða heil- brigðisgeiranum, ef ekki meira áberandi. Af öllu þessu nýja húsnæði verð- ur að greiða fasteignagjöld að öllu óbreyttu og ólíklegt er að borgar- stjóri slaki á innheimtunni á meðan ráðhúsið rís. Segja má að borgin sendi aldrei frá sér innheimtubréf án þess að hótun um kostnaðarsamar inn- heimtuaðgerðir ekki í kjölfarið. Skyldi þannig eiga að reka skuld- lausa borg og hæla sér á eftir að allt sé í stakasta lagi? Eru stjórn- endur borgarinnar komnir úr tengslum við þá sem þeir eiga að þjóna? Sjálfstæðismenn bera mikla ábyrgð á ástandinu eins og það er í dag, því þeir hafa með langri meirihlutasetu í borgarstjórn ráðið stefnunni, engu síður en í þjóðmál- um þar sem þeir hafa ráðið mestu um árabil. Davíð Oddsson, borgarstjóri, er nú orðinn hinn nýi stefnumálaleið- togi sjálfstæðismanna og á að skýra stefnu flokksins til aldamóta. Von- andi ber hann gæfu til að taka mark á rökum og skoðunum sinna manna. Leiðara er að uppgötva eft- ir á að tengslum við kjósendur hafi verið ábótavant. Eftir hrakfarir er betra að láta ósagt hvað hefði átt að gera fyrir kosningar. Höfundur er kaupmadur. ÚTSALA FULLT HÚS FLÍSA8 ÚTSALA Vegna hagstæöra innkaupa sjáum viö okkur fært aö gefa 15% AFSLÁTT á allar marmaraflísar borðplötur og sólbekki. <%> ALFABORG J? BYGGINGAMARKAÐUR SKÚTUVOGI 4-104 REYKJAVÍK SÍMI 686755

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.