Morgunblaðið - 06.07.1988, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988
Þessir hringdu ..
Gæðaáburður
Kona í Vesturbænum hringdi:
„Mig langar til að segja
„blómakonum" frá hollenska
blómaáburðinum POKON, en
hann hefur reynst blómum mínum
langbest af þeim áburðartegund-
um sem ég hef prófað. Blómin
mín döfnuðu dável þrátt fyrir sól-
arleysi júnímánaðar og þakka ég
það POKONáburði. Eins þykir
mér það einstök þjónusta að hafa
leiðbeiningar á íslensku og mættu
fleiri taka þá þjónustu upp.“
Þakkir frá fötluðum
Haukur Friðriksson frá
Króksfjarðamesi, Sjálfsbjörg,
Hátúni 12 hringdi:
„Mig langar tii að þakka forr-
áðamönnum Rásar 2 og Hótels
íslands fyrir að bjóða íþrótta-
mönnum fatlaðra í þátt Bjarna
Dags og Sögu Jónsdóttur 1. júlí.“
Sundlaug í
Fossvoginn
Fossvogskona hringdi:
„Mig langar til að benda Davíð
Oddssyni á að það býr líka fólk í
Bústaða- og Fossvogshverfí sem
hafa ekkert á móti að fá sundlaug
í hverfín. Fossvogurinn er heitasti
staðurinn í borginni og þess vegna
kjörinn staður fyrir sundlaug.
Einnig vil ég fá niðurgrafna
Fossvogsbraut til að létta á um-
ferð af Bústaðavegi því böm okk-
ar fara þangað yfir í skólann og
þurfa oft að bíða lengi eftir því
að einhver stoppi. Þið í Kópavogi,
ég veit að þið akið um Bústaðaveg
og margar götur borgarinnar, en
ég vildi hafa ykkur á Fossvogs-
braut."
Sjónvarpsdagskrá
seint á ferð
Kona á Snæfellsnesi hringdi:
„Okkur hér á Snæfellsnesi þyk-
ir slæmt að fá ekki sjónvarps-
dagskrá fyrir næstu viku, sem
kemur í föstudagsblaði Morgun-
blaðsins, fyrr en á þriðjudegi.
Okkur þykir að vonum lítið í það
varið að fá að vita hvetju við
misstum af í sjónvarpinu. Væri
ekki hægt að flytja tilkynningar
af sjónvarpsdagskrá yfír á
fímmtudaga, eða að öðmm kosti
að pósturinn væri örlítið snarari
í snúningum?
Þar standa bankarnir
í röðum...
H.S.J. hringdi:
„í þeirri auglýsingahrinu banka
og annarra peningastofnanna sem
nú dynur á okkur held ég að Sam-
vinnubankinn eigi metið í hávær-
um gylliboðum um sparifé okkar
og sennilega geyma samvinnu-
menn spariféð sitt hvergi annars
staðar en í þeirra eigin banka, sem
mætti kalla banka allra samvinnu-
manna, eins konar útibú frá S.Í.S.
Hins vegar er talað um að
Landsbanki íslands riði til falls
vegna skulda samvinnumanna þar
og eigi nú að bjarga þeim með
því að gera formann S.I.S. skuld-
ugasta fyrirtækis landsins, að
bankastjóra þar.
Er ekki tímabært fyrir sparfjár-
eigendur að endurskoða afstöðu
sína til Landsb'ankans?"
Bærileg
borgarstjórn
Reykvíkingur hringdi:
„Ég fór niður í miðbæ á sunnu-
daginn, loksins þegar sá til sólar
eftir langan óþurrkadag og var
það ánægjuleg sjón að sjá hvernig
búið er að laga tjamarbakkana.
Þar var fullt af fólki í ró og friði
fyrir umferðinni.
Ég þakka borgarstjóm okkar
fyrir hve vel hún hefur staðið sig
í flestum málum. Ég man eftir
því fyrir síðustu borgarstjórnar-
kosningar að vinstra „dótið“ böl-
sótaðist yfír því að nú væri verið
að eyðileggja Tjömina. Svona
hefur það verið með flest mál
þess. Það berst á hæl og hnakka
á móti öllum breytingum, en þeg-
ar þær hafa verið framkvæmdar
kemur í ljós að oftast nær hafa
þær verið vel úr garði gerðar."
Páfagaukur
Gulur páfagaukur tapaðist í
Norðurbænum í Hafnarfirði fostu-
daginn 1. júlí. Finnandi hringi í
síma 53335.
HEILRÆÐI
IVúunoV'
36777
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÓTA HF
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR
Laugarásvegur39staka
talan og uppúr
Dyngjuvegur
Langholtsvegur 110-150
Langholtsvegur 152-208
Karfavogur
Barðavogur
Háahlíð
Skeifan
Hvassaleiti 27-75
Háahlíð
Stigahlíð 34-48
KOPAVOGUR
Holtagerði
Borgarholtsbraut
SELTJARNARNES
Miðbraut
VARÚÐ
Geymið lyf þar sem börn ná ekki til.
ELLEN
BETRIX
HENRY MARIA BETRIX GMBH & CO
BODYCARE
Baðlínan vinsæla komin aftur.
BODY CONTOUR
Gegn cellulitis.
BUSTSERUM
Styrkir brjóstvöðva.
ANTIAGE
SYSTEMSET
Dregur úr hrukkumyndun.