Morgunblaðið - 06.07.1988, Síða 53
MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 1988
53
KNATTSPYRNA / MJÓLKURBIKARKEPPNIN
„Gátum ekki annað en
leikið vel á Akureyri"
- sagði Júrí Sedov, þjálfari Víkings, sem lagði Þór
VÍKINGAR gerðu góða ferð til
Akureyrar í gær er þeir tryggðu
sér sæti í 8-liða úrslitum bikar-
keppninnar með sigri á Þór,
2:1. Aðstæður voru hinar
bestu, gott veður og frábær
völlur, en það Víkingar sem
virtust kunna betur við sig og
höfðu mikla yfirburði.
Vilji og baráttugleði aðkomu-
manna kom heimapiltum úr
jafnvægi, því þeir, hinir síðar-
nefndu, voru ætíð skrefínu seinni
HBHi og gátu þakklátir
Magnús gengið til hvíldar
Már einungis 0:1 undir í
skrifar leikhléi.
Víkingar náðu for-
ystunni á 28. mínútu eftir vel út-
færða sókn. Trausti Ómarsson
skallaði fyrir fætur Hlyns Stefáns-
son sem skoraði með góðu skoti.
Víkingar héldu uppteknum hætti í
síðari hálfleik og Hlynur Stefánsson
átti m.a. skot í stðng og á 61.
mínútu skoraði Björn Bjartmarz
framhjá uppgefnum vamarmönn-
um Þórs.
Eftir mörk Víkinga jafnaðist leikur-
inn nokkuð og á 82. mínútu minnk-
aði Siguróli Kristjánsson muninn
með hörkuskoti.
A síðustu mínútum leiksins var
mikið um færi á báða bóga. Kristj-
án Kristjánsson átti skot í stöng
og hinum megin varði Baldvin Guð-
mundsson vel frá þeim Lárusi Guð-
mundsssyni og Trausta Ómarssyni.
Á síðustu mínútu leiksins varði
Guðmundur Hreiðarsson svo glæsi-
lega aukaspymu frá Guðmundi Val
Sigurðssyni, sló boltann í þverslá
og yfir markið.
Sigur Víkinga var sanngjam og lið-
ið átti sinn besta leik í sumar. Atli
Einarsson átti mjög góðan leik í
framlínunni og þeir Bjöm Bjart-
marz, Andri Marteinsson og Hlynur
Stefánsson stóðu sig einnig vel.
Hjá Þór stóðu þeir upp úr Baldvin
Guðmundssson, Birgir Skúlason og
Guðmundur Valur Sigurðsson.
„Ég er ánægður með leikinn. Við
spiluðum vel, en mörkin vora of
fá,“ sagði Júrí Sedov, þjálfari
Víkings eftir leikinn. „Völlurinn og
aðstæður vora það góðar að við
gátum ekki annað en spilað vel.“
Morgunblaðið/Rúnar
Hlynur Birgirsson sést hér sækja að marki Vikinga. Guðmundur Hreiðars-
son og Atli Helgason eru til vamar.
Tómas Tómasson sést hér sækja að marki Framara. Kristján Jónsson er til vamar. Mor9unblaðlð/S|9urgeir Jónsson
Omar Torfason opnaði
markareikning sinn
Skoraði sigurmark Fram, 2:1, íVestmannaeyjum
ÓMAR Torfason opnaði marka-
reikning sinn hjá Fram í gær-
kvöldi, þegar hann setti sigur-
mark bikarmeistarana, 2:1,
gegn Vestmannaeyingum í Eyj-
um. Ómar skoraði markið með
skalla á 61. mín., eftir sendingu
frá Ormarri Örlygssyni. Fram-
arar gátu vel við unað, því að
Eyjamenn veittu þeim harða
keppni.
Pétur Amþórsson opnaði leikinn
strax á 17. mín., þegar hann
sendi knöttinn í netið með góðu
skoti utan vítateigs - knötturinn
^^■g^ hafnaði f bláhorn-
Sigtús inu. óverjandi fyrir
Gunnar Adolf Óskarsson,
Guómundsson markvörð Eyja-
skidar manna, sem varði
vel í leiknum.
Adolf var í sviðsljósinu stuttu
seinna. Fyrst varði hann vel skqt
frá Pétri Ormslev og síðan aftur frá
Ómari Torfasyni.
Eyjamenn náðu að jafna metin, 1:1,
á 33. mín. Hlynur Elísson renndi
knettinum þá til Ólafs Ámason, sem
þramaði knettinum upp í bláhomið
á marki Framara. Sannkallað
glæsimark, sem hinir 457 áhorfend-
ur kunnu vel að meta.
Framarar fengu tvo góð marktæki-
færi fyrir leikshlé. Fyrst varði Adolf
þramuskot frá Pétri Amþórssyni
og síðan brást Ómari Torfasyni
bogalistin fyrir opnu marki, eftir
mikinn einleik Péturs Ormslev, sem
sendi knöttinn til hans.
Strax í upphafi seinni hálfleiksins
átti Páll Grímsson gott skot að
marki Fram, en knötturinn fór rétt
yfír. Ómar Torfason skoraði sigur-
mark Fram á 61. mín. eins og fyrr
segir. Birkir Kristinsson, markvörð-
ur Fram, átti síðan eftir að koma
mikið við sögu. Hann varði þrisvar
sinnum mjög vel. Fyrst skot frá
Hlyni Elfssyni, síðan skot frá Páli
Grímssyni og Ólafi Árnasyni.
Birkir og Viðar Þorkelsson voru
bestu leikmenn Fram, en bestir hjá
Eyjamönnum vora Adolf Óskars-
son, Ingi Sigurðsson og Páll
Grímsson.
4. DEILD
Friðrik setti
tvö mörk
Arvakur sigraði Hauka með
tveimur mörkum gegn einu
er liðin áttust við f gærkvöldi. Frið-
rik Þorbjörnsson skoraði bæði mörk
Árvakurs, en Páll Poulsen setti
mark Hauka.
Hörður með
þrennu í
Sandgerði
Reynismenn léku
FH—INGAR unnu öruggan sig-
ur á Reynismönnum f Sand-
gerði í gærkvöldi. Fimm sinn-
um hafnaði boltinn í marki
Sandgerðinga sem voru heill-
um horfnir í þessum ieik. Sand-
gerðingar komu FH-ingum á
bragðið með sjálfsmarki og á
eftir fylgdu þrjú mörk frá Herði
Magnússyni. I sfðari hálfleik
var einum úr liði Reynis vísað
af leikvelli og þrátt fyrir umtals-
verða yfirburði tókst FH-ingum
aðeins að skora eitt mark í
hálfleiknum.
Fyrstu mínútur sóttu FH-ingar
stíft, en Reynismenn fóra þá
að láta meira að sér kveða og jafn-
ræði var með liðunum. En á 24.
•■■■■■ mínútu náðu FH-
Bjöm ingar forystunni
Blöndal með sjálfsmarki
skrifar Þóris Eiríkssonar.
Boltinn var gefínn
fyrir markið og Þórir sneiddi bolt-
ann í bláhornið.
Við markið var sem allur vindur
væri úr heimamönnum og fjóram
mínútum síðar skoraði Hörður
Magnússon gott mark með skalla
eftir homspymu. Hörður var aftur
á ferðinni einni mínútu síðar og
skoraði þá með þramuskoti eftir
fyrirgjöf og á 43. mínútu skoraði
tíu í síðari hálfleik
Hörður Magnússon skoraði þtjú
mörk fyrir FH
hann sitt þriðja mark eftir að hafa
stungið sér inn fyrir vöm Reynis.
í síðari hálfleik var Siguijóni
Sveinssyni í liði Reynis vikið af leik-
velli á 51. mfnútu. Fyrst fékk Sigur-
jón gult spjald, hann mótmælti og
það kostaði brottvísun. Þrátt fyrir
að Sangerðingar væra aðeins 10
það sem eftir var leiksins tókst
þeim furðu vel að verjast. FH-V
ingum tókst aðeins að bæta einu
marki við og var þar að verki Jón
Erling Ragnarsson sem skoraði með
þrumuskoti af stuttu færi.
Jón Grétar skoraði
þrjú mörk fyrir Val
Veörið lék við íbúa Vopnafjarð-
ar í gærkvöldi er Valsmenn
sóttu heim knattspyrnulið
staðarins, Einherja. Valsmenn
unnu öruggan sigur - settu sex
mörkum gegn engu.
Strax í byrjun var ljóst hvert
stefndi. Valsmenn voru frískir
frá fyrstu mfnútu og átti þriðju
deildar lið Einhetja í vök að vetj-
ast. Valur skoraði þtjú mörk í hvor-
um hálfleik og hefðu þau hæglega
getað orðið fleiri eftir gangi leiksins
að dæma.
Jón Grétar Jónsson, framhetjinn
knái í Val átti góðan leik og skor-
aði sína fyrstu þrennu fyrir liðið.
Tryggvi Gunnarsson setti tvö mörk
og Sigutjón Kristjánsson skoraði
eitt.