Morgunblaðið - 06.07.1988, Page 55
MORGUNBLAÐE) IÞROTTIR MrovntUDAGUR 6. JÚLÍ 1988
55
KNATTSPYRNA / MJOLKURBIKARKEPPNIN
KR fékk skell á Sauðárkróki
Leikmenn Tindastóls komu skemmtilega á óvart og slógu KR-inga út úr bikarkeppninni
TINDASTÓLL frá Sauðár-
króki, sem leikur í 2. deild,
gerði sér lítið fyrir og sigraði
KR 4:3 á heimavelli sínum í
16-liða úrslitum bikarkeppni
KSÍ í gærkvöldi. í leikslok
brauzt út gífurlegur fögnuður
meðal þeirra mörg hundruð
áhorfenda, sem komið höfðu
til að berja viðureignina aug-
um. Sigur Tindastóls á KR er
sennilega bezti árangur, sem
Tindastóll hefur nokkurn tíma
náð í knattspyrnu en liðið
vann sig upp úr 3. deild
síðasta sumar.
KR-ingar vanmátu greinilega
andstæðinga sína í upphafi
leiksins. Leikmenn Tindastóls
nánast yfírspiluðu KR-inga fyrsta
hálftímann. A 14.
Bjöm mínútu skoraði
Bjömsson Eyjólfur Sverris-
skrifar son beint úr auka-
spymu utan teigs
og aðeins tveimur mínútum síðar
bætti Guðbrandur Guðbrandsson
við öðru marki eftir þvögu í teig
KR. Guðbrandur var síðan aftur
á ferðinni á 25. mínútu og skor-
aði þá gott skallamark. Þar með
var staðan orðin 3:0 fyrir Tinda-
stól og þá loksins komust KR-
ingar inn í leikinn én ekkert var
skorað eftir þetta fram að leikhléi.
í seinni hálfleik mættu KR-ingar
ákveðnir til leiks, staðráðnir í að
vinna upp þriggja marka forskot
Tindastóls. Sóttu þeir ákaft en
Tindastóll dró sig til baka á vellin-
um. Gunnar Oddssón minnkaði
muninn á 64. mínútu með skoti
af stuttu færi og sjö mínútum
síðar skoraði hann fallegt skalla-
mark. Á 76. mínútu jöfnuðu KR-
ingar og var Bjöm Rafnsson þar
að verki.
Héldu nú flestir að KR-ingar
myndu vinna sigur en annað kom
í ljós. Aðeins tveimur mínútum
eftir jöfnunarmark KR fékk Ey-
jólfur Sverrisson góða sendingu
inn fyrir vörn KR og vippaði
knettinum snyrtilega yfír mark-
vörðinn í netið og kom þar með
Tindastól yfir að nýju, 4:3. Eftir
þetta sótti KR en Tindastól tókst
að halda sínu og vinna sigur.
Leikmenn Tindastóls börðust vel
í leiknum með Eyjólf Sverrisson,
Guðbrand Guðbrandsson og Gísla
markvörð sem beztu menn. Gunn-
ar Oddsson var beztur KR-inga,
sem annars voru frekar daufir.
Jósteinn Einarsson, KR, meiddist
snemma í leiknum og varð að
fara af leikvelli en meiðsli hans
eru ekki talin alvarleg.
Áhorfendur skemmtu sér konung-
lega á leiknum í frábæm veðri.
Stemningin í leikslok var ólýsan-
leg og eftir leikinn brauzt út gífur-
legur fögnuður á Sauðárkróki.
Bæjarbúar vonast nú til að fá
aftur eitt af toppliðum 1. deildar
heim á Krókinn í næstu umferð.
Leiftur
gerði
góðaferð
til Húsa-
víkur
LEIFTURSMENN slógu þar
Völsunga út í 16 liða úrslitum
bikarsins með 3:1 sigri ítil-
þrifalitlum leik.
Leikurinn fór rólega af stað og
var fátt um fína drætti í fyrri
hálfleik. Spilið einkenndist af mik-
illi baráttu á miðju vallarins. Strax
í upphafi fékk Völs-
Anton ungur aukaspymu
Benjaminsson rétt fyrir utan víta-
skrifar teig Leiftursmanna.
Snævar Hreinsson
átti þmmuskot að marki Leifturs
en Þorvaldur Jónsson markvörður
varði vel.
Á 42. mínútu fékk einn vamar-
manna Leifturs boltann í hendina
inni í teig og Guðmundur Haralds-
son dómari benti umsvifalaust á
vítapunktinn. Jónas Hallgrímsson
var ömggur í vítaspymuni og kom
Völsungi yfir, 1:0. Á síðustu sek-
úndum fyrri hálfleiks kom annað
víti. í þetta sinn var það leikmaður
Völsungs sem handlék knöttinn inn-
an vítateigs. Gústaf Ómarsson skor-
aði og jafnaði leikinn fyrir Leiftur.
MorgunblaðiÖ/Bjarni
Karl Þórðarson og Aðalsteinn Víglundsson sjást hér fagna sigurmarki Aðalsteins gegn KA á Akranesi í gærkvöldi.
Mjólkurbikarinn
16-liða úrslit
Tindastóll — KR.....4:3
Eyjólfur Sverrisson 2, Guð-
brandur Guðbrandsson 2 —
Gunnar Oddsson 2, Björn
Rafnsson.
ÍBV —Fram...........1:2
Ólafur Árnason — Pétur Arn-
þórsson, Ómar Torfason.
IA-KA...............1:0
Aðalsteinn Víglundsson.
Þór — Víkingnr......1:2
Siguróli Xristjánsson — Hlyn-
ur Stefánsson, Bjöm Bjartm-
arz.
Völsungur—Leiftur .1:3
Jónas Hallgrímsson (vsp.) —
Gústaf Omarsson (vsp.),
Steinar Ingimundarson,
Markús Geirsson.
Reynir — FH.........0:5
Hörður Magnússon 3, Jón
Erling Ragnarsson, sjálfs-
mark.
Einherji — Valur....0:6
Jón Grétar Jónsson 3, Tryggvi
Gunnarsson 2, Siguijón
Kristjánsson.
ÍBK— Selfoss..(0:0) 2:1
„Stórkostlegt að sjá
knöttinn í netinu“
Síðari hálfleikur var öllu líflegri en
sá fyrri og sóknir liðanna mun bein-
skeyttari. Á 60. mínútu átti Völ-
sundur góða sókn. Henni lauk með
því að Kristján Olgeirsson fékk
sendingu utan af kanti sem hann
afgreiddi viðstöðulaust í átt að
marki, en boltinn smaug fram hjá
stönginni.
Tveimur mínútum seinna var Stein-
ar Ingimundarson á auðum sjó hin-
um megin á vellinum. Hann fékk
langa sendingu þvert yfrir völlinn
og var ekki í vandræðum með að
koma boltanum í neti fram hjá
Þorfinni Hjaltasyni markverði Völs-
unga.
Daufir Völsungar tóku við sér
síðustu fimmtán mínútur leiksins.
Leikmennimir fóru mun framar á
völlinn í því skyni að freista þess
að jafna, en við það opnaðist vömin
illilega og rétt fyrir leikslok skoruðu
Leiftursmenn sitt þriðja mark eftir
skyndiupphlaup. Steinar Ingimund-
arson óð upp kantinn og sendi fyrir
markið. Boltinn barst inn í vítateig
og eftir töluvert hnoð skoraði Mark-
ús Geirson af stuttu færi.
„ÉG náöi að renna mér á
knötttinn og það var stórkost-
legt að sjá hann hafna í netinu.
Þetta var mark sem ég hef
beðið lengi eftir. ÉG hef ekki
skorað mark í fimm deildar-
leikjum í röð,“ sagði Aðalsteinn
Víglundsson, sem tryggði
Skagamönnum sigur, 1:0, yfir
KA á elleftu stundu á Akranesi
í gærkvöldi.
að vom aðeins þtjár mín. til
leiksloka þegar Aðalsteinn
sendi knöttinn fram hjá Hauki
Bragasyni, markverði KA. eftir
sendingu frá Heimi
Sigþór Guðmundssyni.
Eiríksson Flestir þeirra 859
skirfar áhorfenda sem sáu
leikinn, fögnuðu og
fóru ánægðir heim. Skagamenn eru
komnir í 8-liða úrslit Mjólkurbikar-
keppninnar.
Guðjón Þórðarson, þjálfari KA, sem
þjálfaði Skagamenn sl. keppn-
istímabil, var ekki ánægður. „Við
fengum tvö bestu marktækifæri
leiksins, sem nýttust ekki - því fór
sem fór,“ sagði Guðjón.
Það var mikil bikarstemmning yfír
leiknum sem var nokkuð harður á
köflum. Skagamenn byijuðu leikinn
af miklum krafti og fengu tvö góð
I
tækifæri. Karl Þórðarson einlék í
gegnum vörn KA, en honum brást
bogalistin. Rétt á eftir átti Karl
sendingu til Gunnars Jónssonar,
sem skallaði knöttinn að marki KA.
Haukur Bragason varði vel.
Eftir þetta jafnaðist leikurinn og
harka færðist í hann. Leikmenn lið-
anna fengu lítið svigrúm til að spila.
Skagamenn byrjuðu seinni hálfleik-
inn eins og þann fyrri. Haukur
Bragason varði gott skot frá Mark
Duffíeld á 59. mín., með því að slá
knöttinn yfír þverslá. Það var svo
á 72. og 74. mín. sem leikmenn
KA fengu.tvö gullin tækifæri til
að setja mark. Heimir Guðmunds-
son bjargaði skalla frá Anthony
Karli Gregory, með því að skalla
knöttinn frá á marklínu. Rétt á eft-
ir var Anthony Karl í dauða færi
fyrir framan opið mark Skaga-
manna, eftir að Þorvaldur Örlygs-
son hafði sent knöttinn fyrir mark-
ið. Anthony Karl var of seinn til
að ná til knattarins.
Undir lok leiksins sóttu Skagamenn
meira og þegar framlenging blasti
við náði Aðalsteinn að skora sigur-
markið, eins og fyrr segir.
Erlingur Kristjánsson var besti
maður KA - mjög sterkur í vöm-
inni. Gunnar Jónsson og Guðbjöm
Tryggvason voru bestir hjá Skaga-
mönnum.