Morgunblaðið - 28.07.1988, Side 1
72 SIÐUR B
170. tbl. 76. árg.__________________________________FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988________________________________Prentsmiðja Morgnnblaðsins
AP
Einkavæddir
almennings
símar
Fyrstu einkavæddu símklefarnir
á Bretlandi voru teknir í notkun
í gær þegar Young lávarður, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra Bret-
lands, afhjúpaði símklefa einka-
fyrirtækisins Mercury. Símkle-
famir verða af þremur tegund-
um, en hin nýklassíska, sem sést
að ofan, hefur vakið mestar efa-
semdir sjálfskipaðra fagurkera.
Aðrir segja þá þó vart ljótari en
„hin gulu plastskrímsli" British
Telecom. Einungis er hægt að
nota simakort eða greiðslukort í
klefum Mercury.
25 síkkar á rekí
undan Jótlandi
Ahöfn skipsins gufuð upp
Thyboren, Danmörku. Reuter.
TUTTUGU og einum sikka frá
Indlandi var bjargað í gær úr
strandferðaskipi við mynni
Limafjarðar á Jótlandi og var
áhöfnin á bak og burt.
Ekki var ljóst hvaðan skipið kom
en talsmaður dönsku lögreglunnar
sagði að akkerum hefði verið kastað
útaf bænum Thyboren vegna vélar-
bilunar. Þegar annar bátur kom þar
að voru skipveijarnir famir frá
borði en sikkarnir einir eftir. Tals-
maðurinn gat ekki staðfest þær
fregnir danskra fjölmiðla að skipið
hefði verið á leið frá Belgfu til
Kanada. Hann sagði ekki ólíklegt
að sikkamir ætluðu að biðja um
hæli í Danmörku.
I júlí í fyrra handtóku yfirvöld í
Kanada 174 Asíumenn, flesta
sikka, sem lónuðu fyrir utan Nova
Scotia eftir að þeim hafði verið
smyglað yfir Atlantshaf frá Rott-
erdam. Sænskur skipstjóri sem
flutti þá var síðar fangelsaður fyrir
að taka þátt í þessum ólöglega inn-
flutningi.
Wörner í kurteisisheimsókn
Manfred Wörner, hinn nýi framkvæmdastj óri
Atlantshafsbandalagsins, kom í kurteisisheim-
sókn til Lundúna í gær og átti þar viðræður við
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta. Að
sögn talsmanns forsætisráðherrans var hér fyrst
og fremst um óformlegar viðræður í kynningar-
skyni að ræða, en Wörner er nú á ferðalagi um
bandalagslöndin 16. Þegar hefur hann komið til
Noregs, Spánar og Frakklands, en hann er vænt-
anlegur til íslands í byijun október.
Allt er fertugum fært
David Horning frá Berkeley í Kaliforníu ákvað að gera víðreist
á fertugsafmælinu í gær. Hann byijaði daginn á þvi að synda
6V2 km í Moskvufljóti og hér sést hann ausa sig kranavatni með
Kreml'í baksýn. Síðan flaug hann til New York þar sem til stóð
að synda undir Brooklyn-brúna. Kvöldinu ætlaði afmælisbarnið
svo að eyða á sundi yfir San Francisco-flóa.
Bandaríkin:
Yerðbólga hin
mesta í fjögnr ár
Washin^ton, Reuter.
HAGVÖXTUR í Bandaríkjunum
nam 3,1% á öðrum ársfjórðungi
1988 og er talið að aukinn út-
flutningur og fjárfestingar fyrir-
tækja ráði þar mestu um. Þetta
kom fram í hagtölum, sem Banda-
ríkjastjóm birti í gær. Þann
skugga bar þó á, að þær tölur,
sem helst segja til um verðbólgu,
vom hinar hæstu frá árinu 1984.
Samkvæmt þeim tölum nam hún
4,1% á þessum ársfjórðungi, en
var aðeins 1,7% í hinum næsta á
undan.
Af þessum völdum lækkaði
Bandaríkjadalur talsvert í verði á
gjaldeyrismörkuðum, en það hafði
einnig nokkuð að segja, að hagvöxt-
urinn var minni en gjaldeyrisvíxlarar
höfðu talið.
Olíuverð tók litlum breytingum í
gær og kenna menn um eftirvænt-
ingu eftir tíðindum af Persaflóa. í
gær var tilkynnt að verðlagsnefnd
OPEC, samtaka olíuútflutningsríkja,
myndi koma til fundar hinn 3. ágúst,
en á þeim fundi verða ræddar að-
gerðir vegna offramboðs á olíu, sem
á sér stað þrátt fyrir framleiðslu-
kvóta samtakanna. Talið er að lítilla
breytinga sé að vænta á olíuverði
fram að fundinum.
Persaflói:
Átök harðna í upphafi
friðarumleitana SÞ
Nikósíu og New York-borg, Daily Telegraph.
FREKARI bardagar brutust út á
mílli írans og íraks í sama mund
og friðarumleitanir Sameinuðu
þjóðanna hófust af alvöru í New
York-borg og Perez de Cuellar,
framkvæmdastjóri SÞ, lýsti því
yfir að friðarvilji væri fyrir hendi
hjá báðum styijaldaraðilum. Af
miðsvæði víglínunnar við Persa-
flóa bárust þær fregnir að her-
sveitir íraka og iranskra upp-
reisnarmanna hefðu náð bænum
Islamabad aftur á sitt vald, en um
hann hefur verið hart barist frá
því á þriðjudag.
íranir sögðust í gær hafa náð tals-
verðum árangri á suðurhluta
víglínunnar og kváðust hafa hrakið
Íraka frá landræmu norður af
írönsku hafnarborginni Khorrams-
hah, en sú borg er nánast í eyði eft-
ir hemaðinn undanfarin ár.
írakar sögðust á hinn bóginn hafa
skotið niður íranska orrustuþotu af
gerðinni F-5, en gátu ekki um að
frekari átök hefðu átt sér stað.
Bardagamir undanfama daga
hafa að miklu leyti snúist um bæinn
Islamabad, sem er um 100 km innan
við írönsku landamærin. Á þriðjudag
skýrðu talsmenn Þjóðfrelsishers
Mujahideen-E Khalq, sem írakar
styðja, frá því að þeir hefðu hemum-
ið Islamabad hjálparlaust auk þorps-
ins Karand, sem er skammt frá.
íranir skýrðu síðar fTá því að þeir
hefðu náð Islamabad aftur á sitt
vald, en játuðu að írakskar hersveit-
ir og „andbyltingarsinnaðir málalið-
ar“ hefðu enn á ný hemumið bæinn
og kváðu „gífurlega harða“ ormstu
vera háða um yfírráð svæðisins.
írakar segjast hafa tekið 12.207
stríðsfanga í liðinni viku og hafa
þeir því alls tekið um 30.000 manns
til fanga frá því að stríðsgæfan sner-
ist þeim í hag í apríl síðastliðnum.
írakar leggja áherslu á að taka
stríðsfanga til þess að hafa að veði
þegar viðræður hefjast um fanga-
skipti og aðra skilmála hugsanlegs
vognahléssamnings ríkjanna.
Irakar komu til fyrstu vopnahlés-
viðræðnanna í höfuðstöðvum SÞ í
gær, en áður en utanríkisráðherra
Irans, Tariq Aziz, fór til fundar við
de Cuellar ítrekaði hann fyrri kröfur
stjómar sinnar um beinar vopnahlés-
viðræður við írani og sagði þær skil-
yrði fyrir því að ríkin gætu treyst
hvort öðru. Samþykktu lranir slíkar
viðræður ekki „þýðir það að friðar-
vilji þeirra er ekki einlægur — og
við munum hafa í huga hvað leiðtogi
þeirra sagði." Khomeini erkiklerkur
sagði þegar hann kynnti ákvörðun
sína um að íranir myndu fara að
samþykkt Öryggisráðs SÞ um tafar-
laust vopnahlé, að hún hefði reynst
sér erfiðari en „að taka inn eitur."