Morgunblaðið - 28.07.1988, Blaðsíða 9
'IBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988
9
SÖLUGENGI VERÐBRÉFA ÞANN 28. JÚLl 1988
EININGABRÉF 1 3.139,-
EININGABRÉF 2 1.805,-
EININGABRÉF3 1.999,-
LÍFEYRISBRÉF 1.578,-
SKAMMTÍMABRÉF 1.112,-
f f KASUPtHNG HF
Húsi verslunarinnar ■ sími 68 69 88
Miðstöð
verðbréfaviðskiptanna
Sérfræðingar Kaupþings í verðbréfaviðskiptum
aðstoða þig við kaup á hagstæðustu verðbréfunum
hverju sinni. Á þann hátt lætur þú peningana
vinnafyrirþig.
Kaupþing býður allar gerðir verðbréfa.
Einingabréf 1,2,3
Lífeyrisbréf
Bankabréf
Veðskuldabréf
Skuldabréf stærstu fyrirtækja
Spariskírteini ríkissjóðs
Hlutabréf í fyrirtækjum
Skammtímabréf
Láttu peningana vinna?
„Yfirráð útlendinga í
istóriðju fráleitur kostur“
I- segir Hjörleifur Guttormsson
1 EF ráðist verður í stóriðju, er íslenskt forræði og meirihlute eigna- 1
raðild íslendinga algert skilyrði af hálfu okkar alþyðubandalags-
manna. Trúboðið varðandi þátttöku útlend.nga er m.k.l t.maskekkje
' i hugmyndir þessarar rikisstjámar þar að iutondi^eru^fróleitu^
Hjörleif ur vígreifur
Iðnaðarráðherratíðar Hjörleifs Guttormssonar verður líklega
helst minnst fyrir þann fádæma klaufaskap sem þá óð uppi og
skaðaði möguleika íslendinga á að ná samningum við erlend
stóriðjufyrirtæki um orkusölu verulega. Hjörleifur er þó vígreifur
enn þann dag í dag og iðrast einskis. Af orðum hans í Morgun-
blaðinu í gær má helst ráða að kæmist Alþýðubandalagið til
valda myndi þjóðin á ný upplifa þann hrunadans sem hún kynnt-
ist á árunum 1981-1983.
Forsendur
Hjörleifs
Þegar Morgunblaðið
innti Hjörleif Guttorms-
son álits á áformum um
nýtt álver í Straumsvík
var svarið eftirfarandi:
„íslendingar eiga að
skoða kosti i atvinnuupp-
byggingu út frá eigin
forsendum. Það verður
að kanna, hvaða þættir
eru hagkvæmir fyrir
íslenska þjóðarbúið og
þar er álver ekki efst á
blaði.
Við höfum frekar bol-
magn til að koma á fót
smærri fyrirtækjum i
orkufrekum iðnaði,“
bætti Hjörleifur við.
„Hins vegar eru fáir
kostir góðir í sambandi
við stóriðjuna. Ég tel að
síðustu tvær ríkisstjómir
hafi nálgast þau mál út
frá afar fávislegum for-
sendum og í raun gengið
blindandi beint i fangið
á erlendum aðilum."
Hjörleifur sagði, að i
raun hefðu aðstséður
ekkert breyst varðandi
erlenda stjóriðju og þvi
væri sú stefna, sem hann
fylgdi í ráðherratíð sinni
enn í fullu gildi.“
Kjósendum er mikiil
fengur af þessari yfirlýs-
ingu skuggaráðherra Al-
þýðubandalagsins i iðn-
aðarmálum. Seint gieym-
ist sú tið er Hjörleifur
hafði forystu um það nið-
urrifsstarf sem unnið var
í iðnaðar- og orkumálum
1981-1983. Það er fyrst
nú sem íslendingum hef-
ur á ný tekist að vinna
upp traust erlendra aðila
á fjárfestingum á ís-
landi. Á máli Hjörleifs
má glögglega skilja að
hann vill það traust feigt
og hverfa aftur til þeirra
ára er þeim atvinnutæki-
færum og gjaldeyristekj-
um er í stóriðju felast var
glutrað niður engum til
hagsbóta. Hefur þjóðin
virkilega efni á þvi?
Laxveiði
Steingríms
Eiður Guðnason, þing-
flokksformaður Alþýðu-
flokksins, ritar í gær
grein í Alþýðublaðið um
framtíð _ stjórnarsam-
starfsins. í grein sinni
segir Eiður m.a.: „Und-
anfarnar vikur hefur
gengið á ýmsu i stjómar-
samstarfinu. Forsætis-
ráðherra og utanrikis-
ráðherra hafa skipst á
glósum og hnútur hafa
flogið, sem hvorugum
þeirra eru sæmandi. Þá
sjaldan að formaður
Framóknarflokksins hef-
ur litið upp frá laxveið-
inni hefur hann verið
óspar á yfirlýsingar sem
lítt eru til þess fallnar
að efla trú almennings á
samheldni sljómarinnar,
eða samstöðu innan
stjómarinnar. Raunar
hefur Steingrímur Her-
mannsson utnaríkisráð-
herra lengst af stjómar-
samstarfsins talað eins
og stjómarandstæðing-
ur.
Forsætísráðherra á að
vera oddvití og verk-
stjóri. Hlutverk hans er
að sætta sjónarmið innan
stjómarinnar en ekki að
skara eld að glæðum
sundurlyndis með allt að
þvi strákslegu tali. Það
sæmir ekki. Hér þarf að
verða breyting á og
menn eiga ekki að láta
fréttahauka í gúrkutíð
teyma sig út í fen ótíma-
bærra yfirlýsinga.
í samtölum að undan-
fömu hef ég fundið
mæta vel hvemig þessi
afstaða ráðherranna og
endalaus barlómur full-
trúa atvinnurekenda i
öllum fjölmiðlum endur-
speglast í skoðunum
fólks. Þegar ráðherrar
og ráðamenn sífeUt tala
um sundurlyndi og að
aUt sé á vonarvöl, berg-
málar það i skoðunum
fólksins í landinu og það
er ofureðlUegt"
Að hlaupast
undan
merkjum
Síðar í greininni segir
Eiður: „Nú er eðlUegt að
menn spyiji og það gera
margir: Hvað er fram-
undan?
Þvi vU ég svara þann-
ig: Það er nú framundan
að ráðherrar komi sér
saman um stefnu og að-
gerðir sem verið geta
undirstaða fjárlaga, láns-
fjárlaga og annarra meg-
inþátta i þjóðarbúskapn-
um næstu misserin. Þetta
vitum við öU að kannski
er hægar sagt en gert.
Þetta er engu að síður
það sem verður að gerast
og allir hafa forvigis-
menn stjómarflokkanna
lýst yfir viija sinum tíl
þess að takast á við þessi
verkefni.
Það kemur i ljós á
næstu fjórum tíl sex vik-
um hveraig hér tekst tíl.
Brýnt er að skapa breiða
samstöðu um þau verk
sem nú þarf að vinna og
trú min er raunar sú að
það muni takast.
Innnn Framsóknar em
þeir tíl sem hafa haft á
orði að hlaupast undan
merkjtun og ungir fram-
sóknarmenn hafa
beinlinis krafist þess að
Framsókn sUtí stjómar-
samstarfinu. Gerist það
er tvennt tíl: Nýjar kosn-
ingar og hætt er þá við
að sá bögguU fylgi þvi
skammrifi að hér riki
efnahagslegur glundroði
i fjóra tíl fimm niánuði,
og er nú ekki á bætandi.
Hinn möguleildnn er
auðvitað sá að mynda
nýja ríkisstjóm án kosn-
inga og Framsókn er
kannski alls ekld ómiss-
andi eins og hún heldur.“
Borðbúnaöur — sem ber af
ASIMMETRIA matar- og kaffistell
frá Rosenthal.
Glös og hnífapör í sama stíl.
Hönnun: Björn Wiinblad, Danmörk.
studiohúsið
A HORNI laugavegs og snorrabrautar
SIMI 18400