Morgunblaðið - 28.07.1988, Síða 12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988
Steinakrýl
er meira en
venjuleg
málning
málning't
T-Jöfðar til
XX fólks í öllum
starfsgreinum!
Vísað til vegar
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
Einar Þ. Guðjohnsen: GÖNGU-
LEIÐIR Á ÍSLANDI. 1. Suðvest-
urhornið. 74 bls. Almenna bóka-
félagið. Reykjavík, 1988.
Einar Þ. Guðjohnsen hefur ára-
tugum saman unnið að ferðamál-
um. Hann er því flestum hnútum
kunnugur á því sviði. í þessari bók
bendir hann á gönguleiðir í ná-
grenni Reykjavíkur, annars vegar
með Vesturlandsvegi allt til Hval-
fjarðar, hins vegar með Suður-
landsvegi. Lengst staldrar hann
við á svæðinu kringum Hengilinn.
Þar er líka hvort tveggja, sérkenni-
legt landslag og fjöldi gönguleiða.
Hveijum kafla fylgja kort. Einnig
nokkrar litmyndir. Kortin eru
greinileg. Myndirnar eru hins veg-
ar of dimmar. Þar hefur eitthvað
farið úrskeiðis á einhveiju stigi
prentvinnslunnar.
Einar minnir á að unnt sé að
skreppa með rútu þangað sem
ganga skal hefjast. Að öðru leyti
gerir hann ráð fyrir að hver og
einn skjótist á eigin bíl.
»Ekki leggja allir af stað í göngu
með sama hugarfari eða af sömu
Þýskur kór með tónleika
Húsavík.
ÞÝSKI kórinn Kantorei an der
Pauluskirche, sem er á söngferð
um Norðurland, söng í Húsavík-
urkirkju sl. mánudagskvöld við
góða aðsókn og mikla hrifningu
áheyrenda.
Stjómandinn, Carola- Bischoff,
er ungur og velmenntaður stjóm-
andi sem hefur gott vald yfir kóm-
um. Einsöngvari var Margrét Bó-
asdóttir en hún hefur sungið með
kómum í Þýskalandi. Prófessor
Heinz Markus Göttsche orgelleik-
ari lék einleik og jafnframt lék
tríó svo að hljómleikar þessir voru
mjög fjölbreyttir.
Þetta voru einir af fimm svoköll-
uðum sumartónleikum sem áhuga-
menn hér norðan heiða stofnuðu
til í fyrrasumar og eru sömu verk-
efnin flutt í Akureyrarkirkju,
Húsavíkurkirkju og Reykjahlíðar-
kirkju um hveija helgi í fimm vik-
ur og hefur áhugi og aðsókn farið
vaxandi fyrir þessu menningará-
taki.
Kórinn syngur í Hallgrímskirkju
á sunnudaginn kl. 17 og er ástæða
til að hvetja tónlistarunnendur til
þess að hlusta á það sem hér er
boðið upp á.
- Fréttaritari
Einar Þ. Guðjohnsen
ástæðu,« segir Einar. »Sumir hafa
einkum í huga hreyfinguna og vilja
þá gjama ganga hratt og fara
lengri leið. Aðrir leggja mesta
áherslu á að fara rólega og skoða
umhverfi sitt vel, jafnvel leggjast
í góða laut og fara í sólbað, ef
þannig viðrar. Enn aðrir leggja af
stað með einhvers konar land-
könnunaráhuga í veganesti.« Al-
gengast mun að nokkrir gangi
saman í hóp: fjölskylda, félagar,
klúbbur — og nýtur fólk þá félags-
skapar með hreyfingunni. Einn og
einn kýs hins vegar að komast frá
erli dagsins og streitu og njóta
kyrrðar og einveru við friðsæld
óspilltrar náttúru. Hvort tveggja
hefur sinn kost með sér.
Og öllum göngumönnum mun
bók þessi koma að gagni, hvernig
sem þeir haga ferð sinni. Tími sá,
sem Einar ætlar til göngu á hverri
leið, er þó síst sniðinn að þörfum
þess sem er staðh'áttum kunnugur
og gengur rakleitt og greitt, enda
mundi sá vart þurfa á ráðum að
halda. Víða bendir Einar á hring-
leiðir. Er vert að gefa gaum að
þeim möguleikanum svo ekki þurfi
að ganga sömu leiðina fram og til
baka. Marga auðvelda leið má
finna í nágrenni Reykjavíkur. En
fjallgangan er að sjálfsögðu með
í dæminu, enda nóg af Ijöllum til
að klífa innan sjónhrings höfuð-
staðarins. Er þá auðvitað nærtæk-
ast að horfa til Esjunnar. En þeim,
sem sýnist hún of brött og há, er
meðal annars bent á Lyklafell með
Suðurlandsvegi. Þá er minnt á sér-
kennilega bletti eins og Maradal
og Kattatjarnir svo dæmi séu tek-
in. Ennfremur á fomar leiðir eins
°g þjóðleiðina gömlu yfir Hellis-
heiði. Hana er tilvalið að ganga í
rólegheitum og virða fyrir sér
hvemig hófar hestanna hafa mark-
að slóð í Helluhraunið aldirnar í
gegnum. Þar er saga kynslóðanna
bókstaflega meitluð í bergið.
Einar rifjar gjarnan upp sögur
sem tengjast örnefnum. Sum ör-
nefni hafa öðrum fremur örvað
ímyndunarafl þjóðarinnar. Svo er
t.d. um Lyklafell og Jórukleif. Ör-
nefnaskrá fylgir sem mjög auð-.
veklar notkun bókarinnar.
I stuttu máli: Handhæg bók.
Og hæfilega ítarleg.
• •
Oryggis-
þjónusta
fyrir
ferða-
menn
Reyndir ferðamenn gera ailtaf
ráð fyrir því óvænta og þeir láta
því alltaf einhvem vita af ferðum
sínum. Með því að skilja eftir
ferðaáætlun hjá kunnugum tryggja
þeir öryggi sitt.
Ferðamenn ættu einnig að not-
færa sér öryggisþjónustu Lands-
sambands hjálparsveita skáta og
Landssambands flugbjörgunar-
sveita, sem starfrækt hefur verið
undanfarin ár í samvinnu við Secur-
itas. Þjónustan er ókeypis. Tekið
er á móti upplýsingum um ferða-
áætlun og áætlaða heimkomu í síma
91-686068 og ef eitthvað ber útaf
hefst eftirgrennslan. Öryggisþjón-
ustan er á vakt allan sólarhringinn
— allan ársins hring.
Ferðamenn ættu einnig að hafa
á takteinum sameiginlegan neyð-
arsíma björgunarsveitanna, en
hann er 91-627111.
Hentugnr búnaður til
gönguferða í óbyggðum
Þegar haldið er í fjallaferðir er
gott til þess að vita að ekkert hafi
gleymst. Landssamband hjálpar-
sveita skáta tók saman þennan
minnislista fýrir þá ferðamenn sem
vilja vera rétt búnir frá toppi til
táar:
• Lambhúshetta eða pijónahúfa
• Stakkur, og í honum:
— Landakort
— Áttaviti
— Flauta
— Vettlingar
• Ullarpeysa
• Bómullarskyrta
• Ullarnærföt
• Bakpoki
— aukafatnaður
— regngalli
— nesti
essi
stendur
fynr sínu!
MAZDA T 3500 er langvinsælasti bíllinn í 3.5 tonna
stærðarflokki hérlendis og var liðlega helmingur
þeirra bíla sem seldust hér á síðasta ári af þessari
gerð og engin furða.
Hann ber 3.5 tonn á grind, vélin er 3500 cc 86 DIN
hestöfl og gírar eru 5 með háu og lágu drifi.
Húsið er stórt og bjart (veltihús) og þægileg sæti
eru fyrir 2 farþega auk ökumanns. Fjöðrunin er
mýkri og þýðari en gerist í bílum af þessari stærð.
Ríkulegur búnaður fylgir MAZDA T 3500, svo sem:
• Vökvastýri • Veltistýri • Mótorbremsa • Yfirstærð
afdekkjum (700x16) • Yfirstærð af rafgeymi • Bakk-
flauta • Útispeglar beggja vegna • Luxusinnrétting
• Tauáklæði á sætum • Þaklúgur • Höfuðpúðará
sætum • Halogen aðalljós • Litað gler í rúðum •
Aflmikil miðstöð • Viðvörunartölva og margt fleira.
Við getum afgreitt þessa bíla með vönduðum pöll-
um eða vörukössum, sem vakið hafa verðskuldaða
athygliog fengiðfrábæradómaatvinnumanna. Enn-
fremur léttar álvörulyftur, sturtur og vökvakrana.
Tæknimenn okkar veita ráðgjöf við val á búnaði og
annast hönnun með þínar sérþarfir í huga. Við leggj-
um ríka áherslu á góða þjónustu og er viðhalds- og
varahlutaþjónusta okkar rómuð af öllum, sem til
þekkja. Þú ert því í góðum höndum hjá okkur!
Við eigum örfáa bíla óráðstafaða á gömlu verði.
Hafið samband við sölumenn okkar, sem veita fús-
lega allar nánari upplýsingar.
Opið laugardaga frá kl. 1-5
BÍLABORG H.F.
FOSSHÁLS11, SÍMI68 12 99