Morgunblaðið - 28.07.1988, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988
Staðinn að verki
Der Spiegel
Walter Geyer, þingmaður græningja í Austurríki, vakti glæpa-
hneigðina hjá samstarfsmönnum sínum á dögunum þegar hann
hélt maraþonræðu um skógardauðann í Ölpunum. Eftir átta
klukkustunda orðaflaum var gert þinghlé til að menn gætu rétt
úr sér og hreinsað hlustirnar. En á meðan var handriti ræðunnar
stolið úr púltinu. Auðvelt reyndist þó að finna hina fingralöngu
þingmenn. Á myndbandi sem var í gangi þennan dag sást að þar
var Heribert Steinbauer, þingmaður hins hægrisinnaða Þjóðar-
flokks Austurríkis, á ferð og flokkssystir hans Marilies Flemming
umhverfismálaráðherra. Steinbauer sagði að stuldurinn hefði
verið „smágrín" en græningjar sjá málið í öðru ljósi. Þeir tala
um „Watergate í austurríska þinginu" og krefjast opinberrar
afsökunarbeiðni þjófsins og vitorðsmanns hans.
0
Olympíuleikarnir i Seoul:
Suður-Kóreumenn hyggj-
ast ræða við Norðanmenn
Seoul. Reuter.
SUÐUR-Kóreumenn hafa ákveðið að ganga til viðræðna við Norð-
ur-Kóreumenn um hugsanlega þátttöku Norðanmanna í Ólympíu-
leikunum í Seoul, að sögn talsmanns suður-kóreska þingsins.
Að sögn talsmannsins urðu
helztu leiðtogar suður-kóreska
stjómárflokksins og stjómarand-
stöðunnar, sem hefur meirihluta á
þingi, sammála um það í gær að
gera Norðanmönnum næstkom-
andi mánudag formleg tilboð um
viðræður í landamæraþorpinu Pan-
munjon. Verða Norðanmenn beðnir
að velja fundartíma um miðjan
næsta mánuð.
Samkvæmt samkomulaginu
verða 15 þingmenn valdir til við-
ræðnanna við Norðanmenn og auk
þess sem rætt verður sérstaklega
um hugsanlega þátttöku Norður-
Kóreumanna í Olympíuleikunum,
sem verða settir í Seoul 17. sept-
ember, verður rætt um ýms mál
er snerta sambúð ríkjanna.
Norður-Kóreumenn kröfðust
þess í fyrra að fá að halda hluta
Friðarhorfur ber að þakka
samstöðu lýðræðisríkjanna
- segir Frank Carlucci, vamarmálaráðherra Bandaríkjanna
Washington. Reuter.
FRANK Carlucci, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær
að bættar friðarhorfur á hinum ýmsu átakasvæðum heims bæri að
þakka styrk og samstöðu aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins en
ekki umbótastefnu Míkhaíls S. Gorbatsjovs Sovétleiðtoga. Carlucci,
sem heldur í heimsókn til Sovétríkjanna í næstu viku, kvaðst í við-
tali við Reuíers-fréttastofuna ekki sjá nein merki þess að Sovétstjórn-
in hefði látið af útþenslustefnu sinni, um það bæru gríðarleg fram-
lög til varnarmála og samsetning heraflans skýrt vitni.
Carlucci kvað stjómvöld í Banda-
ríkjunum hafa tekið skýra afstöðu
til málefna hinna ýmsu átakasvæða
og nefndi einkum Afganistan, An-
gólu og Kambódíu. „Bandamenn
okkar hafa staðið með okkur og
kommúnistaflokkunum í ríkjum
þessum hefur orðið ljóst að þeir
munu ekki ná markmiðum sínum,"
sagði ráðherrann og bætti við að
þessi stefna lýðræðisríkjanna hefði
valdið mestu um þróun mála en
ekki stefna Gorbatsjovs Sovétleið-
toga. Carlucci kvaðst fagna því
mjög að stjómvöld á Kúbu hefðu
fallist á að kalla hermenn sína heim
frá Angólu og Víetnamar skuld-
bundið sig til að draga herlið sitt
frá Kambódíu. Þá væri heimkvaðn-
ing sovéska innrásarliðsins frá Afg-
anistan einnig mikið fagnaðarefni.
í máli Carluccis kom fram að
Bandaríkjastjórn væri tilbúin til að
ræða þátttöku Sovétmanna í friðar-
gæslu á vegum Sameinuðu þjóð-
anna við Persaflóa tækist að koma
á vopnahléi í stríði írana og íraka.
Á hinn bóginn gætu Bandaríkja-
menn ekki samþykkt neitt það sem
verða myndi til þess að auka áhrif
Sovétmanna í þessum heimshluta.
Carlucci heldur til Finnlands á
fimmtudag og dvelst þar yfir helg-
ina. Á mánudag heldur hann í aust-
urátt til Moskvu þar sem hann
ræðir við Dímítrí Jazov, vamar-
málaráðherra Sovétríkjanna, og
skoðar m.a. sovéskar herstöðvar.
Svíþjóð:
Ekki framar minnst á
kynhneigðir Carlssons
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
EBBE Carlsson, sænskur bókaút-
gefandi, sem sakaður er um
smygl og ólöglega einkarann-
sókn á morðinu á Olof Palme
forsætisráðherra, kom í gær fyr-
ir stjórnarskrárnefnd þingsins.
Mótmælti hann þar ákaflega
vangaveltum og getsökum um,
Thailand:
Flóttamennirnir ör-
vænta um framtíðina
Ban^kok. Reuter.
ÞRJATÍU víetnamskir flóttamenn í búðum í Thailandi hafa reynt
að svipta sig lífi á siðustu mánuðum. Var þetta haft eftir starfsmönn-
um hjálparstofnana, sem sögðu, að flóttafólkið örvænti um að fá
nokkru sinni hæli í öðru landi.
í Phanat Nikom-búðunum í Thai-
landi eru 15.000 flóttamenn frá
Víetnam en í janúar sl. bönnuðu
stjórnvöld fólkinu að sækja um
hæli í þriðja landinu. Er ástæðan
ekki sú, að þau vilji ekki sjá á bak
flóttamönnunum, heldur vill hún
með þessu draga úr flóttamanna-
straumnum til landsins. Fyrir hálf-
um mánuði reyndi 10 manna fjöl-
skylda í búðunum að ganga öll í
dauðann í einu en sem betur fer
tókst að koma í veg fyrir það. Nú
hefur hún fengið hæli í Banda-
ríkjunum. Þeir, sem reyna að stytta
sér aldur, eru einkum þeir, sem
hefur verið synjað um hæli á Vest-
urlöndum.
Talið er, að sumt af fólkinu vilji
snúa aftur heim til sín geti það
treyst á, að stjómvöld láti það í
friði þegar þangað kemur, og Víet-
namstjóm hefur raunar lýst yfir í
fyrsta sinn, að hún sé reiðubúin að
taka aftur við flóttafólkinu. Meira
en milljón manns hefur flúið frá
Víetnam síðan kommúnistar tóku
þar öll völd.
leikanna, ellegar myndu þeir snið-
ganga þá. Buðust Sunnanmenn til
að láta hluta leikanna af hendi.
Alþjóðaólympíunefndin (IOC)
reyndi að miðla málum en þótti
kröfur Norðanmanna ganga of
langt. Juan Antonio Samaranch,
forseti IOC, ítrekaði í gær „lokatil-
boð“ nefndarinnar frá því í janúar
um skiptingu leikanna. Það gerði
ráð fyrir að keppt yrði í bogfimi,
borðtennis, blaki kvenna, hjólreið-
um og knattspymu, ýmist að öllu
leyti eða hluta til, í Norður-Kóreu.
Fullkominn ' ijandskapur hefur
ríkt með kóresku ríkjunum frá því
í Kóreustríðinu, sem stóð yfir á
ámnum 1950 til 1953.
Skipulögð glæpastarf-
semi í Sovétríkjunum
MAFÍAN lifir góðu lífi í Sovétríkjunum. Starfsemi hennar er í
flestu lík því sem þekkist í Bandaríkjunum og á Ítalíu. Guðfeðurn-
ir hika ekki við að leggja undir sem svarar 40 miUjónum króna
í spilum eða ráða leigumorðingja fyrir aUt að áttahundruðþúsund
krónur, vilji þeir losna við keppinauta sína.
Mafían teygir anga sína um öll kúga fé út úr samvinnufélögum
Sovétríkin en mest er starfsemin
syðst í landinu, frá Moldavíu og
Úkraínu í vestri til Úzbekístan og
Mið-Asíu í austri. Hún tengist inn-
brotastarfsemi, eiturlyQa- og
vodkasölu og vændi. Sovéska maf-
ían fór að blómstra á tímum Brez-
hnevs enda þrífst hún best undir
höftum og skrifræði. Lögreglan
er ekki nógu vel búin til að takast
á við hana og auk þess eru engin
lög sem banna sérstaklega skipu-
lagða glæpastarfsemi.
Nákvæm lýsing á skipulagðri
glæpastarfsemi í Sovétríkjunum
birtist nýlega í blaðinu Litera-
tumaya Gazeta í viðtali við Alex-
ander Gurov, undirofursta, sér-
fræðing á þessu sviði. Að hans
sögn á sovéska mafían ekki margt
ólært af mafíunni á Italíu, Banda-
ríkjunum og öðrum löndum. Hún
er í Ieynimakki með embættis-
mönnum, mútar lögreglunni og
kúgar vemdarfé út úr fómarlömb-
um sínum. Hún er m.a.s. farin að
og að koma nýjum á fót til að
„hreinsa" illa fengið fé.
Mafían er ekki heildarsamtök
heldur er um að ræða marga hópa
sem ráða yfir eigin svæði og hver
hefur sinn guðföður, en þeir
þekkja vitanlega hvom annan og
halda jafnvel sín eigin þing. Eitt
slíkt var haldið við Svartahafið
árið 1985 og efni þess var „Áhrif
perestrojku á störf lögreglunnar."
Margar aðrar athafnir minna á
mafíuna á vesturlöndum. T.d. eru
jarðarfarir sovésku mafíunnar
íburðarmiklar. Síðasta vetur
mættu félagamir til jarðarfarar í
Moskvu, á 40 bílum, margir
klæddir eins og tíðkaðist í Chicago
á þriðja áratugnum. Eftir á dreifðu
þeir blómum á veginn frá kirkju-
garðinum. Annars staðar mættu
tvöþúsund manns, alls staðar að
af landinu, í jarðarför mafíufor-
ingja og líkfylgdin olli umferða-
röngþveiti í bænum.
að leita mætti mætti skýringa á
málinu í samkynhneigð hans eða
einhverra kunningja hans.
Við yfirheyrslur stjómarskrár-
nefndarinnar sagði Carlsson, að
einkarannsókn hans á Palmemorð-
inu væri ekki af stjómmálalegum
rótum runnin, heldur hefði hann
aðeins viljað rétta lögreglunni hjálp-
arhönd. I síðasta mánuði neyddist
Anna-Greta Leijon dómsmálaráð-
herra til að segja af sér þegar upp
komst, að hún hafði lagt blessun
sína yfír rannsókn Carlssons.
Fyrir tæpri viku hvatti kunnur
lögfræðingur til, að kannað yrði
sérstaklega hvaða áhrif samkyn-
hneigð Carlssons og sumra kunn-
ingja hans hefði haft á málið en
Carlsson fór mjög hörðum orðum
um þessar vangaveltur í gær.
„Eg er samkynhneigður og er
ekki vanur að fara í felur með það.
Ég hélt, að hér byggi fijálslynt fólk,
sem virti einkalíf þegnanna,“ sagði
Carlsson og lagði áherslu á, að
kynhneigðir hans skiptu engu máli
f þessu sambandi.
Olle Svensson, formaður stjóm-
arskrámefndarinnar, svaraði og
sagði, að ekki yrði minnst framar
á kynhneigðir einstakra manna,
hveijar sem þær væru.
Carlsson-málið tekur á sig nýjar
myndir daglega og skyggir alger-
lega á baráttuna fyrir þingkosning-
amar, sem verða 18. september.
Reuter
Grosz hittir Shultz
Karoly Grosz, forsætisráðherra Ungverjalands, er nú í tíu daga
heimsókn í Bandaríkjunum. í gær hitti hann Ronald Reagan
Bandaríkjaforseta og George Shultz, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna. Grosz sem álitinn er mikill bandamaður umbótastefnu
Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleiðtoga er fyrstur ungverskra
kommúnistaleiðtoga til að koma í opinbera heimsókn til Banda-
ríkjanna. Um þau tímamót segir dagblaðið Washington Post í
leiðara í gær: „Það er ágætur mælikvarði á breytingar í heimin-
um að kommúnískur leiðtogi Ungveijalands, lands sem flestir
Bandaríkjamenn tengja við hryllinginn þegar Sovétmenn bældu
niður uppreisnina árið 1956, skuli líta inn í Hvíta húsinu.“