Morgunblaðið - 28.07.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988
35*
Hestamót unglinga
á Yindheimanielum
Morgunblaðið/Páll Dagbjartsson
Hópreið á hestamóti unglinga sem haldið var á Vindheimamelum helgina 23. og 24. júlí sl.
Varmahlíð.
HESTAMÓT var haldið á Vind-
heimamelum helgina 23.-24.
júlí með nýstárlegu sniði. Var
það hestamót fyrir börn og
unglinga einvörðungu 16 ára
og yngri. Um 80 ungmenni
komu á þetta æskulýðsmót með
hesta sína og voru þau -úr
Skagafirði og Húnavatnssýslum
báðum. Komu flest ríðandi að
heiman frá sér, sum um langan
veg. Stundaðar voru útreiðar í
tvo daga, sameiginlegt mötu-
neyti á staðnum og gist í tjöld-
um.
Kolbrún Kristjánsdóttir, ungl-
ingafulltrúi Landssambands
hestamanna, átti hugmyndina að
þessari samkomu og hefur annast
undirbúning ásamt þriggja manna
undirbúningsnefnd.
Dagskrá mótsins var í stórum
dráttum þannig, að þátttakendur
komu á staðinn á föstudagskvöld
og var þá mótið sett. Kl. 9 á laug-
ardagsmorgun hófst kennsla í
reiðmennsku og var leiðbeint í
fimm greinum. Kennt var að ríða
til skeiðs og þar leiðbeindi auðvit-
að Jóhann Þorsteinsson, lands-
frægur á því sviði, kennt að dæma
kynbótahross, leiðbeint í hestaí-
þróttum, hvemig keppt er í ungl-
ingakeppni á hestamótum og svo
hindrunarstökk. Hver þátttakandi
gat valið sér tvö viðfangsefni.
Seinnipart laugardags var svo far-
ið í langan útreiðartúr. Um kvöld-
ið voru grillaðar pylsur á stóru
útigrilli við miklar vinsældir,
tendraður varðeldur og diskótek.
A sunnudaginn hófst svo dag-
skráin með myndarlegri hópreið
unglinganna og síðan voru sýning-
ar á þeim atriðum sem kennd voru
á laugárdeginum. Mótinu var svo
slitið um kl. 15.00 á sunnudag og
hélt þá hver til síns heima.
Kolbrún Kristjánsdóttir sagðist
vera mjög ánægð með hve vel
þetta hefði gengið allt saman,
þátttaka hefði verið góð. Sem
dæmi um það sagði hún yngsta
knapann hafa verið 5 ára. Ingimar
Ingimarsson, formaður undirbún-
ingsnefndar og mótsstjóri, tók í
sama streng og sagði að svona
mót ættu að vera árlegur við-
burður alls staðar þar sem hesta-
mennska væri stunduð. Kolbrún
væri að koma á fleiri svonamótum
og myndi hún aðstoða hesta-
mannafélögin við slíkt svo sem hún
gæti.
Umgengni barna og unglinga
við íslenska hestinn bætir þau og
göfgar, og máltækið segir að lengi
búi að fyrstu gerð, því er nauðsyn
að leiðbeina hinum ungu í þessum
efnum sem öðrum. Leggja þarf
áherslu á prúðmannlega fram-
komu, snyrtimennsku og aðgæslu
í umgengni við hrossin um leið og
undirstöðuatriði reiðmennskunnar
eru kennd. Hér á árum áður lærðu
börn til sveita svona eins og af
sjálfu sér að sitja hest. Sem betur
fer er svo víða enn í dag, en þó
minnkandi. Hestamannafélögin
þurfa að sinna unglingastarfinu
vel sem þau reyndar gera flest
hver í vaxandi mæli. Mótið, sem
fram fór á Vindheimamelum um
helgina, er gott dæmi um ungl-
ingastarf sem er til fyrirmyndar
og eftirbreytni.
- P.D.
ísfisksölur í Bretlandi:
Kolbrún Kristjánsdóttir, unglingafulltrúi Landssambands hesta-
manna, og Ingimar Ingimarsson, formaður undirbúningsnefndar og
mótsstjóri.
Verð á þorski og ýsu lækkar
MEÐALVERÐ á þorski og ýsu
á mörkuðunum í Bretlandi hef-
ur lækkað frá því í síðustu viku
þegar meðalverð á þorski var
97,67 krónur og meðalverð á
ýsu 93,57 krónur. Astæðan fyrir
verðlækkuninni gæti t.d. verið
meira framboð á mörkuðunum
vegna slæms veðurs við Bret-
landseyjar í byrjun þessarar
viku, að sögn Sveins H. Hjartar-
sonar fulltrúa hjá Landssam-
bandi íslenskra útvegsmanna.
Úr Særúnu ÁR voru seld í
Grimsby sl. mánudag 94,5 tonn
af þorski fyrir 67,44 króna meðal-
verð og 12 tonn af ýsu fyrir 105,85
króna meðalverð. Úr Hugin VE
voru seld í Hull sk mánudag 77
tonn af þorski fyrir 76,39 króna
meðalverð og 47 tonn af ýsu fyrir
86,67 króna meðalverð. Úr
Katrínu VE voru seld í Hull sl.
þriðjudag 73 tonn af þorski fyrir
61,09 króna meðalverð og 16 tonn
af ýsu fyrir 70,55 króna meðal-
verð.
I Bretlandi voru seld úr gámum
sl. mánudag 193 tonn af þorski
fyrir 66,14 króna meðalverð og
16 tonn af ýsu fyrir 70,99 króna
meðalverð. Sl. þriðjudag voru seld
þar úr gámum 176 tonn af þorski
fyrir 63,89 króna meðalverð og
45 tonn af ýsu fyrir 80,65 króna
meðalverð. í gær voru seld þar
úr gámum 56 tonn af þorski fyrir
85,50 króna meðalverð og 25 tonn
af ýsu fyrir 106,88 króna meðal-
verð.
Leiðrétting í Lesbók
I Lesbók 23. júlí var birt ræða
Jóns Sigurðssonar ráðherra, sem
hann flutti á Hrafnseyri 17. júní
sl. Vegna mistaka er fyrsta máls-
grein eftir inngang birt aftur. Hún
er rétt á þessa leið: „Þetta er ekki
lítilsiglt rím. En samt voru það
ekki aðeins þessi orð sem hugurinn
nam af blaðinu næstum án þess
að lesa, heldur ekki síst línurnar
í kvæðinu."
Beðist er velvirðingar á prent-
villu sem raskaði meiningunni.
ðuT,\e\VdönQ,
ftewa
hetb. Kr. 16.900.- \j\*
KAUP«MSi
„atatnaðui
öðut n
2.450.- 1 490
1.990.-
1.895-
1.890.-
2980-
2.270.-
3.130.-
13.980.-
790, ;
990, •
990, •
1.790, ;
1.490, •
1.590, •
2990, .
4.990, •
3.400, ;
2.920,
6.990,
Kveníatnaður
N óðut
Barnatatnaður
óðut
Sótoolir,
siunetmabojr
jogg'n99a ar
Kvenblússur
590,
795,
1.495,
750,
Leðuriakkat
Kvenbuxur
Kvendress
1.150,
1.795,
2.990-
15700-
joggtogbo''r
joggtogg°''ar
joSg'n9buxut
Sumardress
telpna
Te\pup"s
1.250,
1.760,
1.460,
550,
2.700,
940,
nu
375,
440,
890,
330,
1.590,
560,
óður
Ferðaútv.taeki 5530,
m/segu'bandi
Heyrnatcekt . ^ 55o,
t.vosadiskö
Leiktöng
óðut
Sand'e'kfangasett
Bottar
3.900,
990,
nu
195,
F'ugvé'are"ur
Garparn'r
Móde'
330,
120, 25,
175, 50-
525,
260, l55'
1.370,
450,
795,
270,