Morgunblaðið - 28.07.1988, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.07.1988, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988 AKUREYRI Dýraspítali og dýra- hótel rís í Eyjafirði Feðginin Ágúst Þorleifsson héraðsdýralæknir og Eifa Ágústsdóttir dýralæknir á Ak- ureyri hafa nýverið fengið leyfi til byggingar dýraspitala og dýrahótels í landi Syðri-Vargj- ár í Ongulstaðahreppi. Þau hyggjast hefjast handa strax með haustinu og gera ráð fyrir að hægt verði að hefja þar fulla starfsemi að ári liðnu. Þetta verður þá fyrsti dýraspitalinn, sem reistur er utan höfuð- borgarsvæðisins. Áætlaður kostnaður við bygginguna, sem telja mun um 100 fermetra, er i kringum fjórar milljónir og munu þau Ágúst og Elfa standa straum af honum sjálf. Elfa sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að brýn þörf væri norðanlands bæði á spítala og ekki síst á hóteli fyrir dýrin ef eigendur vildu bregða sér bæjar- leið, en sl. þrjú ár hefur Elfa rek- ið dýraspítala á neðri hæð heimil- is síns við Laxagötuna á Akur- eyri. Hugmyndin af dýraspítala er orðin tæplega ársgömul og það var ekki fyrr en nýlega að Skipu- lagsnefnd ríkisins samþykkti framkvæmdirnar. Elfa sagði að innan dyra yrði biðstofa, skurð- stofa, meðhöndlunarherbergi og dýrageymsluherbergi. Elfa sagði að með þjónustunni, sem hún ræki í kjallaranum hjá sér, hefði fólk getað komið með veik dýr. Hinsvegar hefði hún ekki aðstöðu til að leggja dýrin inn og geyma þau á meðan á veikindunum stæði. Fólk hefði þurft að taka þau aftur heim með sér. Aðstaðan myndi því gjör- breytast með tilkomu fullkomins dýraspítala. Ágúst sinnir sveitunum í ná- grenni Akureyrar sem héraðs- dýralæknir, en hefur haft skrif- Elfa Ágústsdóttir með einn af sjúklingunum. stofu sína heima hjá sér til þessa. Með tilkomu nýja hússins, mun hann flytja sig alfarið þangað. Hann þjónar öllum Eyjafirðinum og allt austur í Fnjóskadal, en Elfa er aðstoðarmaður tveggja dýralæknishéraða, bæði Austur- Eyjafjarðarumdæmis og Vestur- Eyjafjarðarumdæmis. Elfa hóf dýralæknisnám í Ósló árið 1979. Hún lauk því árið 1985 og flutti þá heim til Akureyrar og hefur rekið dýralæknisstofu síðan og er svo til eini dýralæknirinn á svæð- inu sem sinnir gæludýrum eitt- hvað að ráði. Elfa kvað heilsufar dýra vera all-þokkalegt núorðið. Dýrin væru eins og mannfólkið, veiktist annað slagið og næði sér síðan upp úr því. Elfa sagði algen- gustu aðgerðimar vera fæðinga- hjálp, keisaraskurði, sauma og geldingar. Elfa sagðist venjulega sinna gæludýrunum seinnihluta dags þegar hún kæmi heim úr sveitinni. Morgunblaðið/Rúnar Þór Reynir Kárason, settur stöðvarstjóri á Sauðárkróki, Páll Pálsson, tæknifræðingur Pósts og sima, Ár- sæll Magnússon, umdæmisstjóri á Akureyri, Birgir Sigurjónsson, yfirdeildarstjóri Pósts og síma og Alexander Pálsson, umdæmistæknifræðingur á Akureyri. Ljósleiðari milli Sauðárkróks og Ákureyrar: Ljósleiðarar eru bylt- ing í flutningsgetu - segir Birgir Sigurjónsson, yfirdeildarsljóri Pósts og síma HAFNAR eru framkvæmdir við lagningu ljósleiðara frá Sauðár- króki til Akureyrar á vegum Póst- og símamálastofnunarinn- ar, alls um 113 km leið. Heildar- kostnaður við verkið er áætlaður 64,4 milljónir króna sem skiptist þannig að 48,2 milljónir eru áætl- aðar í strengi og lagnir, en 16,2 milljónir í búnað. Lögnin er hluti af þeirri áætlun stofnunarinnar að koma á stafrænu sambandi milli Akureyrar og Reykjavíkur. Nú þegar er búið að leggja ljós- leiðara milli Akraness og Borg- arness, milli Blönduóss og Sauð- árkróks, frá Reykjavík til Selfoss og Hvolsvallar og frá Egilsstöð- um til Reyðarfjarðar, Eskifjarð- ar og Neskaupstaðar. Ennfrem- ur er stafrænt samband milli Gamli og nýi tíminn mætast. Loftlínur heyra fortíðinni til og ljósleið- arar eru það sem koma skal. Hér er unnið við að grafa ljósleiðar- ann niður. Fasteignamarkaðurinn: Tregða í sölu eigna því lánsféð skortir Fólk streymir til bæjarins, segja fasteignasalar MIKIL eftirspurn er eftir fasteignum á Akureyri en lítil sala þessa stundina, að sögn fasteignasala sem blaðið ræddi við. Ástæðuna telja þeir skort á lánsfé. Þeir fjölmörgu sem leita sér að húsnæði geta ekki boðið í þær eignir sem til sölu eru, því hægt gengur að af- greiða umsóknir hjá Húsnæðisstofnun ríkisins. Almennt voru viðmæ- lendur blaðsins þeirrar skoðunar að margir væru að flytja til bæjar- ins og bjartsýni ríkjandi í atvinnumálum. eignir og geta fremur keypt hús- næði hér á Akureyri en fyrir sunn- an. Einnig er áberandi hversu margir brottfluttir norðlendingar hafa ákveðið að snúa heim,“ sagði Páll Halldórsson sölumaður hjá „Það er ánægjulegt að heyra hversu margir vilja flytjast til Akur- eyrar. Fólk kemur hvaðanæva að af landsbyggðinni. Þeir sem vilja flytjast frá minni stöðunum úti á landi standa uppi með verðlitlar Blaðburðarfólk óskast í eftirtalin hverfí.: Dalsgerði - Grundargerði. Uppl. í Hafnarstræti 85, Akureyri - sími 23905. Eignakjörum. Lítil raðhús á einni hæð virðast njóta mestra vinsælda um þessar mundir. Nokkrir verktakar eru að byggja slík hús en framboðið svarar þó ekki eftirspurn að sögn fast- eignasala. Vegna ástandsins í lána- málum er mikið leitað eftir eignum með áhvílandi húsnæðislánum. „Það spyija flestir fyrst um slíkt húsnæði og vonast eftir því að geta þannig brúað bilið þangað til lánin verða afgreidd. Því miður er lítið um húsnæði á markaðinum sem svarar þessum kröfum. Þeir sem eiga íbúðir með Húsnæðisstjórnar- lánum eru ekki fúsir að selja vegna þeirrar óvissu sem tekur við,“ sagði Sævar Jónatansson sölumaður hjá Fasteignasölunni í Brekkugötu. „Það mætti svo sannarlega vera meiri fjölbreytni á markaðinum, því flestir eru að leita að minni húsum og íbúðum en mikið er um stór ein- býlishús til sölu. Fáir treysta sér út í byggingarframkvæmdir eða hafa bolmagn til þess að kaupa af verk- tökunum eins og stendur.“ Reykjavíkur og Akraness og búið er að leggja ljósleiðara á milli allra símstöðva á höfuðborgar- svæðinu. Á næsta sumri standa vonir til að hægt verði að ljúka tengingu á stafrænum samböndum milli Akur- eyrar og Reykjavíkur með lagningu ljósleiðara milli Borgamess og Blönduóss í gegnum Búðardal. Vegalengdin nemur alls 169 km. Tilgangur ljósleiðaralagna er að Ijölga samböndum milli landshluta og bæta þau. Lagning ljósleiðar- anna eykur einnig möguleika á að senda sjónvarps- og útvarpsefni milli landshluta, annaðhvort fyrir almenning eða milli einkaaðila til dæmis í sambandi við fjarkennslu og sjónvarpsfiindi. Leiðin, sem valin var milli Akur- eyrar og Sauðárkróks, liggur frá Akureyri í átt að Björgum og þaðan í norður til Dalvíkur, frá Dalvík mun strengurinn vera lagður fram Svarfaðardal og yfir Heljardalsheiði og Kolbeinsdal, Viðvíkursveit og Aðeins tólf vinnustundir í frétt á Akureyrarsíðu í gær var sagt frá því að löndun úr Akur- eyrinni EÁ hefði tekið þijá daga. Gunnar Jónsson verkstjóri hjá Eim- skip sagði að hið rétta væri að lönd- unin hefði aðeins tekið 12 vinnu- stundir. Byijað hefði verið kl. 8.00 á mánudagsmorgun og unnið til 18.00. Síðan hefði verkinu verið lokið um hádegi á þriðjudag. Morg- unblaðið biður löndunarmenn hjá Eimskip á Akureyri velvirðingar á þessu. yfir Hegranes til Sauðárkróks. Við leiðaval og útstikun hefur verið haft samráð við þá aðila, sem mál- ið varðar, landeigendur, bæjaryfir- völd og Náttúruvemdarráð og hefur Póstur og sími hvarvetna. mætt skilningi. Sú stefna var tekin að lögnin skyldi vera sem mest utan þeirra svæða, þar sem ætla megi að framkæmdir verði í framtíðinni, að sögn Ársæls Magnússonar um- dæmisstjóra á Akureyri. Aðalverktaki við framkvæmdina er Grafan hf. í Reykjavík. Ýtan sf. á Dalvík mun sjá um að vinna Helj- ardalsheiðina undir plægingu. Inn- anbæjar verða lögð rör, sem streng- imir em dregnir í. Niðurlagningu á rörum sjá um: Pálmi Gestsson á Sauðárkróki, Garðverk hf. á Dalvík og Vör hf. á Akureyri. Ljósið, sem sent er inn á leiðar- ann, er á stafrænu formi, það er röð af ljóspúlsum og er fjöldi púlsa á sekúndu 140 milljónir. Val á bylgjulengd fer síðan eftir fjarlægð á milli símstöðva. Flutningsgeta hvers þráðar er tæplega 2.000 sím- rásir. Einnig er hægt að senda 1 til 4 sjónvarpsrásir eftir hveijum glerþræði. Með aukabúnaði er flutningsgeta Ijósleiðaranna marg- falt meiri. Ljósleiðarar em nú hugs- aðir sem meginflutningsæð fyrir síma, telex, fax, tölvusambönd, út- varp og sjónvarp um landið allt, að sögn Páls Pálssonar, tæknifræðings hjá Pósti og síma. Birgir Siguijónsson yfirdeildar- stjóri Pósts og síma sagði stafræna símkerfið mikla byltingu, svipað og þegar skipt hefði verið úr loftlínu- kerfinu yfir. í örbylgjukerfið fyrir um 12 ámm. Loftlínan hefði borið 16 rásir, örbylgjulínan um 900 rás- ir og nú með tilkomu ljósleiðara væri verið að tala um allt frá 2.000 rásum og upp í 15.000 á hvem þráð. Ljósleiðarar væm bylting hvað flutningsgetu varðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.