Morgunblaðið - 28.07.1988, Síða 37

Morgunblaðið - 28.07.1988, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988 Heíllandi heimur í kringnm bjórinn Rœtt við Robert Thomson bruggmeistara Sana Morgunblaðið/Rúnar Þór Robert Thomson bruggnieistari aðgætir hitastigið i einum af bjór- geymum Sana. Hér er verið að framleiða sterkari bjórtegundina, Viking, sem gerjast í fimm vikur og nær 6,5% styrkleika. Thule er örlítið veikari, 5,5% að styrkleika, en við framleiðslu hans er notað- ur meiri humall sem gefur beyskt bragð en breytir ekki eiginleikum bjórsins að öðru leyti. Thule er einnig notaður sem uppistaða í Pilsn- er, þynntur út með koltsýrðu vatni til þess að lækka áfengishlut- fallið niður að löglegu marki. Við framleiðslu Lageröls er þriðja bjórtegundin brugguð og þynnt á sama hátt. „DAGINN sem ég fékk stúdents- prófið mætti ég til bruggmeistar- ans og bað um að fá að hefja nám- ið. Hann sagði mér að taka hlutun- um með ró, það væri að koma helgi en ég mætti byija á mánu- daginn. Upp frá því hef ég ekki horft um öxl,“ sagði Robert Thom- son sérlegur ráðgjafi Sana um bjórbruggun. Hann stjórnar fram- leiðslu verksmiðjunnar á bjór til útflutnings og pilsner fyrir innan- landsmarkað, en vinnur jafnframt að þróun nýrra tegunda fyrir markaðinn sem opnast þegar bjór- banninu verður aflétt í mars á næsta ári. „Að minu mati er Vik- ing ein af tfu bestu bjórtegundum I heiminum. í reglulegu bragð- prófi sérfræðinga hjá Alfred Jörgensen i Kaupmannahöfn hlaut Viking oftar ágætiseinkunn á síðasta ári en nokkur önnur teg- und,“ sagði Thomson. Thomson hlaut menntun sína í brugghúsi í Edinborg og á að baki háskólapróf í greininni; BA-gráðu í lífefnafræði og meistarapróf í bjór- bruggun frá Edinborgarháskóla. Hann réðst á sjötta áratugnum til til starfa hjá Alfred Jörgensen í Kaup- mannahöfn, ráðgjafafyrirtæki sem veitir brugghúsum um alla veröld aðstoð við framleiðsluna. Thomson hefur ferðast um allan heim í starfi sínu og á heiður að uppsetningu verk- smiðja i öllum heimsálfum, Astralíu, Indlandi, Vestur-Indíum, Möltu, Kýp- ur, Nicaraqua, Grenada og Banda- ríkjunum svo nokkrir staðir séu nefndir. „Bjórinn er líf mitt og yndi. Þetta er heillandi heimur og undantekning- arlaust er það gott og skemmtilegt fólk sem fæst við bruggun. Viking- bjórinn hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér, þannig að það var auðsótt mál þegar ég var beðinn um að koma hingað til starfa. Formlega lét ég af störfum hjá Jörgensen í haust og starfa þvi sem ráðgjafi á eigin vegum fyrir Sana,“ sagði Thom- tima á föstudagskvöld. Að sögn mótshaldara eru hlutimir að smella saman og sögðust þeir vera nokkuð ánægðir með frammi- stöðu veðurfræðinga, sem spá hægri norðanátt og þurru veðri. Unnið var að uppsetningu hljómflutningskerfis Reykjavíkurborgar í gær og haldinn var fundur með öllu starfsfólkinu, um 250 manns. Þá var jafnffamt unnið að uppsetningu ljósake'rfísins og sölutjalds, þar sem hægt er að Hjá Sana eru þegar hafnar fram- kvæmdir við stækkun verksmiðjunar. Ætlunin er að auka afköst við bmgg- un um helming fyrir næsta vor. Þá er unnið að þróun nýrrar bjórtegund- ar sem svipar meira til bjórs frá meginlandi Evrópu Thomson kveðst sjálfur hrifnari af bragðsterkum bjór og telur það einn af höfuðkostum íslenska pilsnersins að hann tapi ekki einkennum sínum þótt útþynntur sé. „Um þetta eru skiptar skoðanir og ekki mitt að ákveða hvað er fram- leitt. Heilsubylgjan virðist hafa leitt til þess að fólk kjósi léttan bjór og fremur bragðdaufan. íslensku brugg- húsin hafa náð góðum árangri við að framleiða bragðsterkan pilsner. Ég kynnti ástralskt brugghús fyrir þeirri aðferð sem Sana notar við fá ýmsar veitingar keyptar. Útbúinn heftir verið fjöldinn allur af samlok- um, hamborgurum og pizzum, sem ætlunin er að hafa á boðstólum fyrir gesti og verður starfsfólk í samloku- gerð, pizzugerð og hamborgaragerð á bakvakt alla helgina ef svo fer að „matarskortur" geri vart við sig á svæðinu, að sögn Jóns Bjamasonar hjá Fjöri hf. framleiðsluna og þegar þeir byrjuðu að framleiða bjór eftir líkri uppskrift náði hann 23% markaðshlutdeild á ijórum mánuðum. Vestanhafs nýtur „léttur bjór“ vaxandi vinsælda og er alls ekki loku fyrir það skotið að hægt væri að flytja íslenskan bjór út til austurstrandar Bandaríkjanna. Allar aðstæður hér á íslandi eru einstaklega góðar til bruggunar. Sér- staklega er vatnið hreint, án allra bætiefna og inniheldur rétt steinefni. Þótt flytja þurfi hráefnið inn er sam- keppnisstaða íslensku brugghúsanna góð. Hér hjá Sana er maltið og hum- allinn undantekningarlaust keypt frá bestu heildsölunum enda nær engri átt að spara við hráefniskaup. Hráef- nið er alls ekki dýrasti hluti vörunn- ar, kostnaðurinn hleðst fyrst og fremst upp við pökkun, flutning og sölu.“ Thomson kvaðst álíta bjórbannið heimskulegt og ranglátt. „Bjórinn er fyrir hófdiykkjumenn. Það drekkur sig enginn dauðadrukkinn af bjór, maður belgist bara út. Mín reynsla er sú að danir, sem eru mestu bjór- drykkjumenn á Norðurlöndum, kunni best með áfengi að fara af þessum þjóðum. Þeir sem vanið hafa sig á sterka drykki, eins og Finnar, eru verstir. Bönn stuðla aðeins að því að menn fari í kringum lögin og venjist á slæma siði. Nýlega hafa kráareig- endum í Skotlandi verið gefnar fijáls- ar hendur um opnunartíma, en í Englandi tíðkast enn að loka ölstofum klukkan ellefu. Þeir sem lögðust gegn breytingunni í Skotlandi hafa orðið að kyngja því að breyttur opnun- artími Qölgar ekki glæpum né hvetur fólk til að keyra frekar drukkið. Frel- sið leiddi ekki af sér nein vandamál." Thomson dvaldi á Akureyri í þijá mánuði síðastliðið haust en snéri aft- ur í mars og býst við að verða hér fram á næsta vor hið minnsta. Hann er ekkjumaður og bömin eru öll flog- in úr hreiðrinu. „Þegar ég var ungur kom ekkert annað til greina en að verða bruggmeistari. Eg ólst upp í Edinborg innan um allar stærstu viskí-verksmiðjumar. Ég horfði með aðdáun upp á strákana á hvítu slopp- unum sem óku um á flottum bílum og náðu í fallegustu stúlkurnar. Eina leiðin inn í það fag var í gegnum klíkuskap, svo ég valdi næstbesta kostinn. Þá skall stríðið á og meistar- amir voru báðir kallaðir í herinn. Óðar en varði stóð ég uppi sem brugg- meistari með heila bjórverksmiðju á mínum herðum. Þetta var erfíður skóli en ég hef aldrei séð eftir þessu," sagði Robert Thomson. Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir Nýstofnað fyrirtæki, Fjör hf., stendur fyrir útiskemmtun að Melgerð- ismelum um helgina. Hér eru þrír af eigendum fyrirtækisins, þeir Pétur Bjarnason, Ómar Pétursson og Jón Bjarnason, á nýbyggðu sviði, sem þeir hafa reist fyrir þær hljómsveitir er koma til með áð troða upp í Eyjafirðinum. Opnað á Melgerð- ismelum í kvöld Útihátíðasvæðið að Melgerðismelum verður opnað almenningi klukk- an 18.00 í kvöld, en formlega hefst skemmtunin ekki fyrr en á sama 37 V DAGVIST BARIVA HRAUNBÆR Árborg v/Hlaðbæ Forstöðumaður óskast til starfa á leik- skólann Árborg frá 1. ágúst n.k. eða eftir samkomulagi. Upplýsingar gefur Fanný Jónsdóttir deildarstjóri í síma 27277 daglega milli kl. 8.30 - 10.00. Símar 35408 og 83033 AUSTURBÆR Hverfisgata 63-115 Skúlagata Laugavegur 101-171 Sólheimar Háaleitisbraut 117-155 Miðtún Samtún Gnoðarvogur Drekavogur Álftamýri, raðhús Langholtsvegur 1-43 ARBÆR Rafstöð v/EHiðaár GRAFARVOGUR Fannafold Dverghamrar Logafold

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.