Morgunblaðið - 28.07.1988, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988
47
skeið fyrirtækið Rafiðjuna með
bræðrum sínum og fleiri. Árið 1981
setti hann á stofn fyrirtækið
Hrísnes í Kópavogi ásamt eiginkonu
sinni, og hafa þau rekið það síðan.
Frændsemi okkar Höskuldar var
vissulega sá sterki þráður í kynnum
okkar, en vinskapur hans og íjöl-
skyldu hans við mig og mína var
sannur og nutum við hans í
hvívetna. A góðum stundum og í
glaðværum orðaskiptum létum við
oft hlutina heita sínum réttu nöfn-
um, og þeim stundum er mér alltaf
ljúft að minnast. Að lokum vil ég
þakka elskulegum frænda allt það
sem hann hefur gert fyrir mig og
mína. Hann var ekki aðeins bóngóð-
ur ef til hans var leitað, heldur var
hann oftar óboðinn kominn til hjálp-
ar ef á þurfti að halda.
Öllum ástvinum hans séndi ég
innilegar samúðarkveðjur. Hvíli
hann í friði.
Eirný Sæmundsdóttir
Stundum berast svo váleg tíðindi
að menn neita að trúa. Af öllum
sálarkröftum er hrópað hið innra:
„Nei, þetta getur ekki verið.“
Svona varð okkur við er fréttir
bárust af hinu hörmulega slysi er
leiddi til fráfalls frænda okkar og
vinar, Höskuldar R. Stefánssonar,
hinn 18. þessa mánaðar.
Höskuldur var fæddur á Kirkju-
bóli í Korpudal við Önundarfjörð.
Foreldrar hans voru hjónin Guðrún
Össurardóttir frá Kollsvík og Stefán
R. Pálsson á Kirkjubóli. Þar ólst
Höskuldur upp með systkinum
sínum á fjölmennu heimili sem
þekkt var fyrir gestrisni, framsýni
og dugnað. Svipmót þessa bar
Höskuldur alla tíð.
Að loknu grunnnámi fór Hös-
kuldur til Reykjavíkur og lærði raf-
vélavirkjun hjá Axel Sölvasyni.
Hann vann um árabil með bræðrum
sínum við Rafiðjuna — Raftorg í
Reykjavík en síðan stofnaði hann
og starfrækti, ásamt konu sinni,
heildsölufyrirtækið Hrísnes í Kópa-
vogi.
Þeir sem þekktu Höskuld virtu
hann og dáðu, hann var drengur
góður og tryggur vinum sínum.
Ætíð var hann reiðubúinn til að
hjálpa, gefa góð ráð, eða láta eitt-
hvað af hendi rakna. Allt slíkt var
gert af heilum hug og ekki rætt
frekar. Þetta var honum eðlislægt.
Sérstaklega var hugulsemin gagn-
vart þeim sem erfitt áttu einstök
og mun þakklæti ofarlega í hjörtum
margra er syrgja hann nú.
Höskuldur var heill og hreinskil-
inn í orðum og öllum samskiptum.
Hann hafði fastmótaðar skoðanir
og þor til að segja það sem honum
bjó í brjósti. í hópi félaga var hann
oft fullur gáska og vék þá alvaran
fyrir gleði og gamni. Árið 1965
kvæntist Höskuldur Sigurbjörgu
Bjömsdóttur frá Fremri-Gufudal á
Barðaströnd. Þau hjón voru einkar
samhent, bæði heima og á vinnu-
stað. Heimilið við Hjallabrekkuna
er bæði hlýlegt og fallegt en saman
unnu þau við að fegra það og bæta.
Þar ríkti góður andi, þar var gott
að koma og þess nutu margir. Sigga
og Haddi eignuðust þijá syni,
mannvænlega og elskulega drengi.
Þröstur Þór, 12 ára gamall, og Stef-
án Rúnar, 16 ára, eru enn í for-
eldrahúsum, en Valbjöm Jón, sem
er elstur, hefur stofnað eigið heim-
ili með Hrönn Önundardóttur, og
eiga þau stúlku á fyrsta ári, Heiðu
Björgu.
Enn hefur maður í blóma lífsins
verið kvaddur á braut. Maður sem
var hvers manns hugljúfi og elsku-
legur heimilisfaðir. Enn eitt slysið
veldur ótímabærri brottför en við
ráðum engu um það hvenær kallað
er. Guð einn ræður og veit tilgang-
inn. Við skiljum ekki hvers vegna
og okkur er vafálaust ekki ætlað
að skilja. En treginn er sár við frá-
fall eins okkar besta vinar og
frænda. Við þökkum samfylgd hans
og alla velvild. Við þökkum hjálp-
semi hans og holl ráð gegnum árin.
En sorgin er sárust og söknuðurinn
mestur hjá hans nánustu. Við biðj-
um góðan guð að styrkja og styðja
konuna hans og börnin, móður og
systkini.
Blessuð sé minning hans.
Þórólfur og Kristín