Morgunblaðið - 28.07.1988, Page 49
49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988
Hilmar Th. Theodórs-
son - Kveðjuorð
Fæddur 22. mars 1912
Dáinn 23. júlí 1988
Nú er hann afi minn, Hilmar Th.
Theodórsson, dáinn. í huga mínum
er myndin af honum hvað skýrust,
þar sem hann situr við eldhúsborðið
með normalbrauð og kæfu, því mik-
ið lifandi skelfing þótti honum góð
kæfa, og þá auðvitað búin til af
ömmu. Eða þá þegar ég var lítil
að vaska upp með honum og skar
mig á hnífi sem ég var að þurrka.
Hvað hann var leiður yfir því að
þessi hnífur þyrfti endilega að vera
í uppvaskinu núna, sagði hann.
Hann var mér alveg óskaplega góð-
ur. Að vera 11 ára og fá að sofa
hjá afa og ömmu um helgar var
hápunkturinn á tilverunni. Þegar
ég var að byrja að vinna á sumrin
sem unglingur fór ég alltaf til ömmu
og afa í hádeginu að borða. Hjá
þeim var sú regla á, að soðningin
var alltaf í hádeginu og kjötið á
kvöldin. Síðan eftir matinn lagðist
afi endilangur á eldhúsgólfið og
hvíldi sig áður en hann fór í vinn-
una aftur. Það hef ég aldrei séð
neinn annan gera en hann afa min.
Ég held að takmark hans hafi
alltaf verið að skaffa vel eins og
hann sagði einu sinni. Honum
fannst nóg að hafa vel fyrir sig og
sína, allt annað var óþarfi.
Sem unglingur byrjaði afi að
stunda sjóinn og þó hann ynni síðar
meir mörg ár í landi þá var það
alltaf sjórinn sem heillaði hann.
Hann var með duglegri mönnum í
vinnu og það hafa menn sagt mér
að það hafi fáir staðið honum á
sporði í beitningu. Ósérhlífinn var
hann mjög. Hann hefur ekki vanist
öðru á uppvaxtarárum sínum vestur
á ísafirði, þar sem hann fæddist
22. mars 1912. Hann var innan við
eins árs þegar faðir hans drukknaði
á sjónum. Það er víst að ekki hefur
framtíðin verið björt hjá móður
hans, Björgu Þorsteinsdóttur, ungri
ekkju með 3 börn á framfæri.
Svo fór að afi var að mestu alinn
upp hjá ömmu sinni, Halldóru, því
mamma hans varð að vinna úti til
að sjá fyrir þeim. Systur afa voru
Talaðu við
ofefeur um
eldhústæfei
XI
SUNDABORG 1 S. 68 85 88 -68 8589
tvær, önnur þeirra, Evfemía, dó
mjög ung. En hin systirin, Ella
frænka eins og ég kallaði hana, dó
1974.
Sem ungur maður kom afi suður
til Keflavíkur á vertíð eins og al-
gengt var að menn gerðu. En hans
dvöl varð lengri en margra ann-
arra, því hann kynntist ömmu
minni, Hrefnu Gunnlaugsdóttur
(Gunnlaugs Arnoddssonar), hér og
hófu þau búskap. Þau eignuðust tvö
böm, mömmu mína, Aslaugu og
Björgvin frænda minn.
Lengst af bjuggu þau á íshússt-
ígnum, en síðar á Vesturgötu 11,
þar sem ég á mínar minningar um
þau.
En svo kom reiðarslagið. 26.
febrúar 1984 dó hún amma mín.
Þá hófst iöng bið hjá afa því hann
vildi ekki vera hérna megin án
hennar. Lífslöngunin hvarf. Það var
allt reynt að gera fyrir hann en það
kom ekki að gagni. Heilsu hans
hrakaði hægt og bítandi upp frá
þeim degi er amma kvaddi þennan
heim.
En nú er þessu lokið og ég trúi
því að þau séu saman á ný.
Síðustu árin dvaldi afi á elliheim-
ilinu Garðvangi í Garði.
Ég vil þakka Sólveigu og hennar
samstarfskonum þar innilega fyrir
hvað þær voru góðar við gamla
manninn og hugsuðu vel um hann.
Nú kveð ég afa minn með hans
eigin orðum til mín: „Svona er lífið
Bían mín,“ því hann kallaði mig
alltaf Bíuna sina.
Talaðu við
obkur um
uppþvottavélar
SUNDABORG 1 S. 68 85 88 - 68 85 89
Treystirðuannarri filmu
fyrir dýrmœtu
minningunum þínum?
Rannsóknirsýna aö
dekkjaslit er helmingi meira
á 120 km hraða en 70 km hraða.
Auk þess er 120 km hraði
stórhættulegur og kolólöglegur.
s__ Hægðu á þér!
Rannsóknir sýna að
20% minna loft í dekkjum
en ætti að vera styttir endingar
tímann um 30%.
Mældu loftið!
r
stendur með dekkjavinum
Smiðjuvegi 32-34. Simi 43988.