Morgunblaðið - 28.07.1988, Side 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988
RAMBO LEMURA
RAUÐA HERNUM
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóborgin/Bíóhöllin:
RAMBO III.
Leikstjóri Peter MacDonald.
Handrit Sylvester Stallone og
Sheldon Lettich. Kvikmyndatöku-
stjóri John Stanie. Tónlist Jerry
Goldsmith. Aðalleikendur Sylvest-
er Stallone, Richard Crenna, Kurt-
wood Smith, Sasson Gabai, Marc
de Jonge, Yosef Shiloah.
Bandarísk. Carolco 1988.
Stríðsmaskínan Rambó er komin
í gang eina ferðina enn, sem verður
sjálfsagt ekki hans síðasta. Og aldrei
hefur karl verið jafn ábúðamikill,
markviss og háleitur; hér er augnatil-
litið engu síður banvænt en blýið
hans. Og aldrei hafa óvinimir verið
jafn ósjálegir og illmannlegir, Sovét-
mennirnir hans Stallone eru með
þeim fólskulegustu skrattakollum
sem sést hafa á tjaldinu, enda mynd-
in ekki ætluð á Rússlandsmarkað.
Á móti öfgunum vega stórkostleg
bardagaatriði og er mér til efs að
þau hafi sést betri, enda mun Rambo
III vera með dýrustu myndum sem
gerðar hafa verið í Vesturálfu.
Söguþráðurinn er einfaldur sem í
undanförum myndarinnar. I upp-
hafsatriðinu er Rambó sestur í helg-
NÁMSKEK)
Sækið námskeið hjá traustum
aðila gegn vægu gjaldi
Tölvunotkun:
t
Grunnnámskeið:
Einkatölvur og DOS stýrikerfið.....
Ritvinnsla:
WordPerfect (Orðsnilld)..........
Word IV (frá Microsoft)..........
Word IV-framhald (frá Microsoft).
Gagnagrunnur:
dBaselV..........................
dBaselVforritun.................
Töflureiknar:
Lotus 1-2-3......................
Multiplan........................
Multiplan-framhald...............
Tölvubókhald:
Laun - launaforrit...............
Ópus-fjárhagsbókhald............
Ópus-viðskiptamannabókhald.......
Ópus - birgða- og sölukerfi......
Frá Tölvuháskóla:
Forritahönnun....................
Assembly mál á PC tölvur.........
Turbo Pascal fyrir byrjendur.27. ág.,
....... 8.-11.ágúst
.......13.-14. ágúst
.......15.-18. ágúst
.......22.-25. ágúst
........15.-17. ágúst
.......29.-31. ágúst
...tími ekki ákveðinn
.......27.-28. ágúst
..........3.- 4. sept.
.......... 5.-7. sept.
........10.-11. sept.
.........17.-18. sept.
........24.-25. sept.
........ 8.-11.ágúst
........22.-24. ágúst
3.,10.,17., 24. sept.
1., 8.og 15. okt.
Turbo Pascal fyrir forritara og þá sem
kenna á tölvur.........22., 24., 26., 29., 31 ág. og 2. sept.
Tölvusamskipti og tenging við gagnabanka...29. ág.-1. sept.
Kerfisgreining fyrirforritara og kerfisfræðinga.26.-30. sept.
Stjórnun fyrirtækja og deilda:
Verslunarréttur (réttarreglur viðskiptalifsins)
Starfsmannahald/þjónusta.....
Reksturfyrirtækja...........
Samskipti og hvatning í starfi..
Markaðsmál..................
Fjármál fyrirtækja..........
20.-22. sepf.
.27.-29. sept.
... 3.- 4. okt.
... 5.- 6. okt.
...10.-12. okt.
...17.-20. okt.
Skrifstofu- og verslunarstörf:
Bókfærsla I (einfaldar dagbókarfærslur
oguppgjör)............ 9., 11., 13., 14., 16. og 18. ágúst
Bókfærsla I (flóknari færslur
og uppgjör)...........20., 21., 23., 25., 27. og 28. ágúst
Bókfærsla II (Þungar færslur
og uppgjör)...........30. ágúst, 1., 3., 4., 6. og 8. sept.
Bókfærsla I (Þyngri færslur
og uppgjör)...........10., 11., 13.,15., 17.og 18. sept.
Vélritun (byrjendanámskeið) ....22.-25., 29.-31. ág. og 1. sept.
Þjónustunámskeið (samskipti við
viðskiptavini)................................20.-21. sept.
Verslunarreikningur (prósentureikningur
og verðútreikningar).......................... 3.- 6. okt.
Skjalavarsla - virk skjöl.......................10.-12. okt.
Árangur í sölu- og afgreiöslustörfum............10.-13. okt.
BHM, BSRB, VR og fleiri stéttarfélög
styrkja sína félaga til þátttöku.
Frekari upplýsingar fást í síma 688400.
- Innritun fer fram á skrifstofu skólans -
W VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS
Á þá bíta engin járn. Trautman og Rambó i þriðju myndinni um þann siðarnefnda.
an stein, í orðsins fyllstu merkingu,
einhversstaðar í Thailandi. Er hand-
verksmaður hjá Búddhamunkum
milli þess sem hann önglar inn fyrir
þá fé með því að lumbra á slagsmála-
hundum uppá veðmál. Á slíkri sam-
kundu hefur hans eini vinur, Traut-
man ofursti (Crenna), uppá honum,
og vill fá hann með sér innfyrir
landamæri Afganistans tii að þagga
niður í yfirmanni Rauða hersins á
svæðinu. En Rambó mælir, af sinni
alkunnu speki, að sínum stríðum sé
lokið. En kempan verður að láta nir-
vana bíða, því besti vinurinn er tek-
inn til fanga af andskotum sínum í
Afganistan og Rambó, haukur hau-
kanna í homi heldur gustmikill til
vígstöðvanna. Fólk getur ráðið í
endalokin.
Framhaldsmyndir verða að skáka
forverum sínum, það gerði önnur
myndin ekki, en þessi nýjasta slagar
hátt uppí First Blood, sem hleypti
öllum ósköpunum af stað. En nú eru
aðrir tímar en 1982, er hún kom á
markaðinn, þá varð þessi þögla Víet-
nam-vígvél að hálfgerðri þjóðhetju.
Raunsæar stríðsmyndir á borð við
Full Metal Jacket, en þó einkum
Platoon, hafa gert þessar einsmanns-
herdeildir að hálfgerðum bjálfaskap
og reyndar var Rambo III stöðvuð í
framleiðslu í nokkra mánuði, eftir
sigurför Platoon. Sagt er að handri-
tið hafí verið tekið til gagngerrar
endurskoðunar, einkum reynt að
hressa uppá ímynd Rússanna, þökk
sé glasnost-stefnunni, og krydda
söguþráðinn gamni. Því áhorfendur
voru búnir að fá sig fullsadda á þögl-
um og ódrepandi hetjum.
Ekki er að sjá að þessar andlits-
lyftingar hafi gengið upp. Rússamir
hinir ferlegustu (Víetnam-stríðið
reyndar gagnrýnt), og ekki ryður
Rambó af sér bröndurunum, frekar
en fyrri daginn. Rambo III er því
heldur innantóm, sigurför mannlegr-
ar stríðsvélar sem við vitum í upp-
hafi að ekkert vinnur á. En hún er
einnig dágóð afþreying og tækni-
vinnan er stórkostleg. Stríðsátökin^
eru hrikalega vel útfærð, einkum er
vandasöm stjómun stríðsdansa bar-
dagaatriðanna með því besta sem
gert hefur verið í því efni. Hér
springa sprengjur mitt í leikhópum
og byssukúlum af öllum stærðum og
gerðum rignir yfir mannskapinn.
Búkar fljúga um loftin blá líkt og
blöðrur á sautjánda júnf og springa
jafnvel í tætlur. Ofbeldið er yfir-
þyrmandi en það þarf engum getum
að því að leiða að það eru engir
smákarlar í kvikmyndagerð sem
stjóma slíkri kóreógrafíu. Gott dæmi
um hina nauðsynlegu framþróun
brellnanna og andkafaatriða áhorf-
enda er að nú særist Rambó svöðus-
ári miklu og til vamar ígerð ryður
hann í það púðri og kveikir í svo
logamir standa fram og aftur úr
kauða. í fyrstu myndinni dugði
brellumeisturum (sem áhorfendum),
að láta garpinn rimpa saman á sér
benin með nál og tvinna. Heimur
versnandi fer. Þá kemur nokkuð á
óvart að finna af jafn dýrri fram-
leiðslu B-myndalykt sem þá að láta
yngismánninn afganska tala ensku
reiprennandi þegar reynt var yfir
höfuð aó láta þjóðimar tala eigin
tungumál og veriá hefur aðal stór-
mynda sem taka sljg alvarlega, allt
frá The Longest Day. En Stallone
er reyndar enginn Zanuck.
Rambo III er því ein heljarmikil
skrautsýning afbragðs brellumeistar
(varast ber að minnast á leik eða
boðskap í myndum sem þessum),
furðu rútínuleg samt sem áður, en
örugglega ákjósanleg afþreying
aðdáendum erarosins.
OCCADWAY
Passaporte
Vegabréf 700,- kr. + 20 ára Ökuskírtelni
NEITAKK!
Til lukku með helgina verslunarmennl
Viö höldum upp á helgina og höfum opiö
föstudags- og laugardagskvöld. Við, sem
heima sitjum, hittumst um helgina og
heigum helginni Helga, he... púff!
Að sjálfsögðu