Morgunblaðið - 28.07.1988, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988
55
Nikita litli og njósnararnir
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Nikita litli („Little Nikita“). Sýnd
í Stjörnubíói.
Bandarísk. Leikstjóri: Richard
Benjamin. Handrit: John HiII og
Bo Goldman. Framleiðandi:
Harry Gittes. Kvikmyndataka:
Laszlo Kovacs. Tónlist: Marvin
Hamlisch. Helstu hlutverk: Sidney
Poitier, River Phoenix, Richard
Jenkins og Caroline Kava.
Eftir því sem sagan segir á rússn-
eska leyniþjónustan, KGB, að vera
svo bíræfin að planta niður njósnur-
um sínum á meðal venjulegra
Bandaríkjamanna þar sem þeir lifa
og starfa eins og venjulegir Banda-
ríkjamenn þangað til KGB telur
henta að nota þá til njósnastarfa.
Slíkir njósnarar eru kallaðir „svefn-
genglar" í njósnaþrillernum Nikita
litli („Little Nikita"), sem sýnd er í
Stjömubíói, en KGB-sagan hefur
áður verið notuð í myndum, síðastí
„No Way Out“.
Annars eiga þær fátt sameiginlegt
þessar tvær myndir. Nikita litli er
frekar máttlaus þriller sem leggur
meira uppúr tilfinningasemi og fjöl-
skyldumelódrama en hraða og
spennu enda leikstjórinn, Richard
Benjamin („The Money Pit“), lítt
reyndur spennumyndasmiður sem
fengist hefur meira við léttar gam-
anmyndir. Leikstjórnin er óathyglis-
verð og sumstaðar vandræðaleg og
ósamkvæm sjálfri sér; þegar morð-
ingi myndarinnar er fyrst sýndur er
passað uppá að sjáist ekki framan
í hann eins og til að fela hver hann
er en næst þegar hann birtist er
byrjað að sýna andlitið. Uppbygg-
ingin er að sama skapi fyrirsjáanleg
og æði klisjukennd og það er per-
sónugerðin líka.
Sidney Poitier, með allan sinn
sjarma og eitthvað er kalla má
prakkaraleg elskulegheit sem Benja-
min leggur mikla áherslu á en ég
veit ekki hvort fer þessum virðulega
leikara svo vel eða efnivið myndar-
innar, fær það verkefni að hafa uppá
ákveðnum morðingja af því hann er
„besti“ FBI-maðurinn (samt vinnur
hann bara við að kanna umsóknir í
Flugliðsforingjaskóla). Hann er líka
í hefndarhug því morðinginn drap
auðvitað félaga hans fyrir 20 árum.
Morðinginn er njósnari Rússa sem
Martin Short og Annette O’Toole, geðslegir leikarar sem ná ekki
nógu vel saman í Sofið hjá.
Amorsbrögð og
undanbrögð
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Laugarásbíó
Sofið hjá — Cross My Heart
Leikstjóri Armyan Bernstein.
Handrit Bernstein og Gail Par-
ent. Kvikmyndatökustjóri Thom-
as Del Ruth. Tónlist Bruce
Broughton. Aðaileikendur Martin
Short og Annette O’TooIe.
Bandarísk. Universal 1987.
Dálítið vandræðalegt gaman-
drama um ungan mann og stúlku
(Short og O’Toole), sem eru að draga
sig saman. Myndin gerist mikið til
inní svefnherbergi, þar sem elsta
þráskák mannkynsins er í fullum
gangi. Short beitir hróksókn ákaf-
lega, en O’Toole verst með slælegri
drottningarvörn. En reyndar snýst
Sofíð hjá ekki eingöngu um hið gam-
alkunna markmið, „að fá’ða“, heldur
er hér einnig skyggnst undir yfír-
borð persónanna. Short reynir að
berast á á kostnað annarra; fær lán-
aðan glæsibíl og lúxusíbúð til að
flýta O’Toole úr fötunum, en hún
reynir hinsvegar að fela fyrir Short
að hún á sjö ára dóttur og reykir
(sic).
En sannleikurinn kemur smám
saman í ljós um nóttina, á þriðja
stefnumóti þeirra, sem næstum end-
ar með ósköpum.
Svefnherbergisdrömu hafa löng-
um verið góðskáldum yrkisefni. En
Bemstein er greinilega enginn Tenn-
essee Williams né Bernard Slate.
Umfjöllunin um þetta nútímapar er
þó um margt forvitnilegt og skyn-
samlegt en forsendurnar næsta
bamalegar. Persónusköpunin er
nokkuð skýr en meginvandamál Sof-
ið hjá er samt val Shorts í hlutverk
Casanova. Pilturinn er framúrskar-
andi gamanleikari (Three Amigos,
þó öllu frekar Inner Space), dramað
lætur honum engan veginn eins vel.
Og hann er hálfálappalegur við hlið-
ina á hinni losta- og tígulegu O’To-
ole. Short væri ágætur Ketill skræk-
ur, en afleitur Skugga-Sveinn. Samt
sem áður er viss hlýja í verkinu og
heilindi koma fram sem er ungu
fólki ágæt lexía. Handrit Bernsteins
er upp og ofan en leikstjórn hans
er ekki uppá marga fiska. Sofið hjá
minnir alltof mikið á leikhús þar sem
tökuvélinni er stillt upp frammí sal
og taka hefst.
ÁTAK í LANDGRÆÐSLU
LAUGAVEG1120,105REVKJAVIK
SlMI: (91)29711
Hlaupareikningur 251200
Búnaðarbankinn Hellu
'g.te
ro «o
,J2 &
E »
ál
<B -2
cn
O'—
Sidney Poitier í mynd Stjörnu-
bíós, Nikita litli.
tekið hefur uppá því að drepa kol-
lega sína í Bandaríkjunum í fjárkúg-
unartilraun og Poitier rekur morð-
slóð hans til venjulegrar amerískrar
millistéttarfjölskyldu. Það eru hjón
sem eiga einn son, sem River Phoen-
ix leikur af miklu kappi, en Poitier
hafði einmitt um þetta leyti verið
að grennslast fyrir um hvernig stæði
á því að foreldrar stráksins væru
skráð látin á 19. öld þegar hann var
að kanna umsókn hans í liðsforingja-
skólann. Við nánari athugun kemst
hann að sannleikanum; foreldrar
stáksins eru „svefngenglar” KGB.
Handritið blandar stundum saman
léttu gamni við söguna en fjarlægist
mest njósnaþrillerinn þegar drengur-
inn kemst að hlutverki foreldra sinna
og heldur lýjandi melódrama tekur
stjómina í sínar hendur. Hugmyndin
er góð og hér standa margir ágætis-
menn að baki, Hamlisch sér um tón-
listina og Kovacs um kvikmyndatök-
una, en úrvinnslan hefði getað orðið
miklu betri.
KRISTJAN
KRISTJÁNSSON
OG
EINAR JÚLÍUSSON
leika í kvöld
FLUGLEIDA HOTEL
Fritt innfyrirkl. 21.00 -
Aögangseyrir kr. 300,- e/ kl. 21.00
Zanzibar
á fimmtudagskvöldi
ki.22-01.
Uppákomur kvöldsins:
Síðan skein sól o.m.fl.
SRúlagötu 30, slmi 11555.
Tískusýning
í Blómasal á morgun
á íslenskum fatnaði.
Módelsamtökin sýna ullarlinuna '88 i hádeginu alla föstu-
daga frá Rammagerðinni, Hildu, Finull, Álafossi
ásamt skartgripum frá
Jens Guðjónssyni gullsmið.
Vikingaskipið er hlaðið islenskum úrvalsréttum
alla daga ársins.
Sjávarréttahlaðborð á aðeins 99S kr.
Borðapantanir í sfma 22321.
HOTEL
LOFTLEIÐIR
FLUGLEIDA HÓTEL
BINGO!
Hefst kl. 19.30 í kvöld
Aðalvinninqur að verðmæti
________100 þús. kr._______
Heildarverðmæti vinninqa um
_________300 þús. kr.________
TEMPLARAHÖLLIN
Eiríksgötu 5 — S. 200/0