Morgunblaðið - 28.07.1988, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 28.07.1988, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988 59 Þessir hringdu . . . Útvarpstækin búin Klara hringdi: Eg vil kvarta vegna leiks Vífilfells, Stöðvar 2 og Bylgj- unnar. Fólk átti að safna flipum af gosdósum og fyrir hverja 60 flipa var heitið útvarpstæki, ále- truðum bol og viðurkenningar- skjali. Ég safnaði 170 flipum og litla systir mín fór og skilaði þeim þann 23. júlí, en síðasti skiladagur var degi seinna. Ég var búin að lofa henni útvarps- tæki, en hún kom til baka með sex boli, sem allir voru ,eins. Hvað mundu aðstandendur leiksins segja ef þeir fengju ekki launin sín á þeim forsendum að óvart hefðu of margir verið ráðnir til starfa? Þetta er alveg sambærilegt þar sem talsverð vinna fór í það að safna þessum 170 flipum. Hvar er Berlínarbjörninn? Jórunn hringdi: „Mig langar að koma með þá fyrirspurn til borgaryfirvalda hvar styttan af Berlínarbirninum sé nú niðurkomin, en hún hefur alltaf staðið við tjörnina." Söluskattinum ekki öllum skilað Bjarni Helgason hringdi: „I Velvakanda á laugardaginn svarar upplýsingafulltrúi fjár- málaráðuneytisins einhveijum manni vegna matarskattsins. Hann segir þar meðal annars að söluskatti af landbúnaðarafurðum sé að fullu skilað. í tengslum við þessi ummæli vil ég láta vita af því, að söluskattur er ekki endur- greiddur af hrossakjöti og gróður- húsa- og garðrækt. Þarna á sér stað mismunun, sem ég vildi benda á.“ Lélegur golfvöllur Siggi Sig. hringdi: „Eg er mikill golfáhugamaður og ég vil kvartá yfir lélegum holu- skiptingum á golfvellinum á Leir- um, sem Golfklúbbur Suðumesja hefur með að gera. Starfsmenn vallarins mættu vera vandvirkari með holuskiptingar, það þarf að raka sandgryfjumar betur og margt fleira þarf að bæta.“ Ánægjuleg Mallorcaferð Herborg Antoníusdóttir hringdi: „Eg sit hér heima hjá mér og er að hugsa um ánægjulega ferð sem ég fór á vegum ferðaskrif- stofunnar Atlantik til Mallorca. Fólkið á ferðaskrifstofunni er til fyrirmyndar og allt stendur sem það segir. Og það þarf ekki klíku eða kunningsskap svo að allt sé gert ef á þarf að halda, eins og orðið er áberandi í þessu leiðinlega þjóðfélagi. Að endingu vil ég þakka og óska ferðaskrifstofunni velgengni á komandi árum.“ Minnisvarði um Thor Jensen Fellitjöld og göngutjöld, m.a. Tjaldborgartjöldin vinsælu, sér- hönnuð fyrir íslenskar aðstæður. Sólbekkir.stólar og borð I sumarbústaöinn.tjaldiö ogá svalirnar. Vandaðir svefnpokar, dýnur, vindsængur og bakpokar i útileguna. 'Hagstætt verð. Til Velvakanda. Það hafa verið sýndar tvær myndir í sjónvarpinu frá búskapn- um á Korpúlfsstöðum þegar Thor Jensen heitinn bjó og breytti þeirri jörð í stórbýli og byggði þar hina veglegustu byggingu hér á landi, sem var sveitinni til sóma. Thor Jensen hefur verið mikill framkvæmdamaður á sínum tíma og útvegaði fleiri hundruð manns atvinnu, bæði við landbúnað og sjávarútveg því hann rak víðar bú- skap en á Korpúlfsstöðum. Þetta voru frekar hallærisár á þeim tíma og erfitt með vinnu að hafa. Það þótti flestum gott að vinna hjá hon- um hef ég heyrt, nógur matur og reglubundin vinna. Þegar Spánska veikin gekk árið 1918 hér í Reykjavík þa'gaf Thor Jensen fleiri tUgum manna fæði, eina máltíð á clag. Það hefur verið æði mikið góðverk því það áttu margir bágt á þeim tíma. Mér finndist að þjóðin ætti að reisa Thor heitnum myndar- legan minnisvarða, annað hvort á Korpúlfsstöðum eða við FríkirkjU- veg 11. Hann ætti það skilið. Það var góð hugmynd hjá Áma Jóhannssyni, sem hann kom með á aðalfundi Eimskipafélagsins, að fé- lagið ætti að skipta við Reykjavík- urbæ og fá Korpúlfsstaði í skiptum fyrir eignina við Skúlagötu. Korp- úlfsstaði ætti svo að hafa fyrir sjó- menn og verkamenn, sem hætta hjá félaginu vegna aldurs. Þetta var góð tillaga. Mér finnst Sjónvarpið sýna of lítið frá búskaparháttum, réttum, smölun fénaðar, hestum og kúm. Einnig mætti sýna myndir af sjó- mennsku, fiskvinnslu og breiðslu á fiski, auk fuglalífs. Þá á Sjónvarpið að sína þessar myndir hægar en það gerir svo ungdómurinn hafi gott af. Það væri skemmtilegra að sýna svona myndir heldur en glæpa- myndir og manndráp. Það fer illa með ungar barnssálir og af því kemur spillingin. Ég má til með að minnast á for- setakosningamar því frú Sigrún Þorsteinsdóttir eignaði sér atkvæði þeirra sem heima sátu. Ég get full- vissað hana um það, að hún átti ekkert af þeim atkvæðum. Frú Thor Jensen Vigdís forseti átti þau öll og ég óska henni allrar blessunar og vona að hún verði sem lengst forseti. Ég bið Guð að blessa hana og hennar störf. Með þökk fyrir birtinguna, Ingimundur Sæmundsson. V erslunarmannahelgin: Heilræði frá Slysavaraafélagi íslands 1. í sumarbústöðum er sjaldnast rafmagn. Þess vegna eru þar oftast gastæki eða olfuofnar til eldunar og upphitunar. Því fylgir aukin eld- hætta. Munið að það er nauðsynlegt að hafa reykskynjara og slökkvi- tæki í sumarbústaðnum. Það getur svo sannarlega borgað sig. \ 2. Farið ekki til fjalla án þess að láta einhveija í byggð vita um ferðaáætlun ykkar. Segið þeim frá væntanlegum áfangastöðum og hvenær þið áætlið að koma heim aftur. Haldið sem best ferðaáætlun og reynið að koma boðum til byggða ef hún breytist. 3- Þeir sem leggja upp í ferð til fjalla verða að gæta þess að vera vel klæddir. Klæðist hlýjum fötum og hafið meðferðis léttan hlífðar- fatnað í áberandi lit, sem líklegt er að sjáist langt að. Vandið fóta- búnaðinn, óhentugir skór geta gert ykkur erfitt fyrir og beinlínis skap- að hættu. 4. Þeir sem aka um öræfi landsins þurfa að kynna sér leiðina vel. Afl- ið sem nákvæmastra upplýsinga um þær ár sem þið þurfið að aka yfir. Leggið aldrei út í á á litlum aflvana bílum með illa varða vél og raf- geymi. Kannið vöðin af fyrirhyggju. Til er hlutur sem kallaður er vað- stafur og hann getur verið ómetan- legur þegar kanna þarf ár! 5. Farið ekki einbíla um fáfarnar öræfaslóðir. Munið að litlar og sak- leysislegar ár geta á stuttum tíma breyst í skaðræðisfljót. Treystið aldrei að óreyndu að hjólför sem liggja út í ár séu sönnun þess að þar sé greiðfært. 6. Ferðafólk athugið: Flest slys og óhöpp eru af völdum fyrirhyggju- leysis og vanmati á aðstæðum. Sjálfsagt er að gefa sér góðan tíma til undirbúnings ferðar, tryggja að öryggið sé í fyrirrúmi og vera þann- ig viðbúinn að mæta hinu óvænta. Þá reynir á hversu menn eru vel búnir að heiman. PÖNTUNARLISTINN Vetrartískan frá Roland Klein - Kit - Burberrys - Mary Quant - YSL o.fl. Búsáhöld - leikföng - sælgæti jólavörur o.fl. RM B.MAGNUSSONI ■ HÓLSHRAUNI 2 - SÍMI 52866 - P.H. 410 - HAFNARFIRÐI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.