Morgunblaðið - 28.07.1988, Page 60

Morgunblaðið - 28.07.1988, Page 60
60 MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 28. JÚIÍ 1988 FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR / HÁSTÖKK Hví má ég ekki njóta IHsins eins og aðrir, þó ég sébestur í hástökki í heimi? - spyr heimsmethafinn í há- stökki, Svíinn Patrik Sjöberg, íviðtali við Morgunblaðið Heimsmet Patrik Sjöberg setur heimsmet í Stokkhólmi 2. júlí 1987. Þá stökk hann 2,42 metra, en það met stendur enn. Á myndinni hér að ofan svífur Patrik vel yfir rána, og fagnar ógurlega, sem von er, eftir að ljóst er að ráin hreyfist ekki. PATRIK Sjöberg hefur um nokkurra ára skeið verið meðal bestu hástökkvara heims. En það var ekki fyrr en á síðasta ári að hann virkilega sló í gegn, «t. með því að setja tvisvar sinn- um heimsmet. Hann stökk 2,41 m innanhúss og 2,42 m utan- húss. Auk þess sigraði hann á heimsmeistaramótinu í Róm. Hann er án efa ein helsta von Svía á Ólympíuleikunum í Seoul í haust. Sagan byrjaði í raun er Patrik, 10 ára gamall stökk 1,30 m í hástökki á stóru bamamóti heima í Gautaborg. Það var eimmitt á þessu móti sem Erlingur fínnski íþróttakenn- Jóhannsson arinn Viljo Nousia- skri,ar inen tók eftir að strákurinn átti ein- ■staklega auðvelt með að stökkva hástökk og síðan þá hefur Finnan- um, sem einnig er fósturfaðir Pat- riks, tekist að gera hann að besta hástökkvara heims í dag. Samhliða því hefur Patrik einnig verið iðinn við að sýna á sér ýmsar aðrar hliðar. Hann hefur mjög ákveðnar skoðanir og fer að sama skapi sínar eigin leiðir. Hann kærir sig oft á tíðum kollóttan um hvað löndum hans þykir um hin ýmsu uppátæki hans. Þetta hefur haft það í för með sér að enginn annar sænskur íþróttamaður hefur verið jafn oft á síðum slúðurblaðanna og hann. Glaumgosi Fjölmiðlar eru iðnir við að draga upp þá mynd af Patrik að hann líkist einna helst „glaumgosa". Þetta kemur til af því að Patrik kann vel við að keyra hraðskreiða bíla. Sem dæmi um það, þá ekur hann um á „lúxus kerru“, flottasta og dýrasta Porsche. Ofugt við marga aðra heimsfræga íþrótta- menn lifir hann líflegu skemmtana- lífí, og er tíður gestur á diskótekum og hefur gaman af. Einnig má geta þess að í trássi við viðvaranir um að reykingar og íþróttir fari ekki saman reykir hann að meðaltali einn pakka á dag. Þótt þessi atriði séu mest í sviðs- ljósinu, þegar minnst er á Patrik, eru þau ekki á neinn hátt mest ein- kennandi fyrir þennan 23 ára gamla Svía. Hann hefur nefnilega náð að halda þessari þreytandi umfjöllun fjölmiðla í góðri fjarlægð, þegar íþróttimar eru annars vegar. Sem íþróttamaður er hann mjög metnaðargjam og allt sem hann innir af hendi, vill hann gera vel. Hann er að margra áliti atvinnu- maður í hástökki. Hann þykir frek- ar hógvær og rólegur og það þarf varla að taka það fram að hann býr yfír geysilega miklum hæfileikum sem íþróttamaður. Þeir sem em mikið í návist Patriks segja að létt- leiki og góður andi einkenni hann hvað mest. Hann er á allan hátt afar „sjarmerandi“ íþróttamaður. Fréttaritari Morgunblaðsins kom að máli við Patrik á Bislett-leikun- um í Osló á dögunum, en því miður gat hann ekki verið með á Ieikunum sökum smávægilegra meiðsla. Reykir pakka á dag Það lá beinast við að spyija Patrik fyrst hvað honum fyndist um öll þessi blaðaskrif sem ætíð fylgdu honum? Á meðan hann velti spurningunni fyrir sér tók hann upp sígarettu og kveikti í. „Blaðamenn hafa oft á tíðum verið mér mikill þymir í augum og á stundum hef ég verið afskaplega þreyttur á þeim. Það er í raun al- veg sama hvað ég geri, allt kemur fram í blöðunum. Það sem fer einna mest í skapið á mér er að ég fæ litla samúð þegar illa gengur, en allir eru þess í stað tilbúnir að vera vinir mínir þegar vel gengur. En þetta eru bara eðlilegir hlutir sem oft fylgja afreksmönnum í íþróttum. Af þessum sökum veit sænska þjóðin mjög mikið um mig og mínir jandar gera miklar kröfur til mín. Ég verð helst að stökkva 2,38 m eða setja heimsmet á hverju móti til að sem flestir verði ánægð- Maðurinn á bak við Patrik Sjöberg VILJO Nousiainen heitir mað- urinn sem bæði hefur alið Patrik upp og gert hann að afreksmanni í íþróttum. Allt frá því Patrik byijaði í hástökki hefur fósturfaðir hans, Finninn Viljo, séð um þjálf- un hans. Þótt Viljo hafi sagt skil- ■■■ ið við móður Pat- Etlingur riks fyrir sex Jóhannsson árum, þá hefur skrifar samband hans og Patriks orðið betra og betra með árunum. Hér koma helstu atriði úr viðtali við Viljo er birtist í sænsku blaði nýlega. Virtur þjálfari Viljo Nousiainen er mjög virtur þjálfari í Svíþjóð og sem dæmi um það þá þjálfar hann, fyrir utan Patrik, marga bestu fijálsíþrótta- menn Svía. Viljo hefur starfað við þjálfun í Qölda ára, bæði hjá sænska frjálsíþróttasambandinu og félögum í Gautaborg. Viljo sér algjörlega um þjálfun Patriks, hann er með honum á flestum æfingum og lítur eftir að hann geri eins og ætlast er til. Á þennan hátt á hann auðveldara með að fylgjast með breytingum hjá Patrik. Þegar Viljo var spurður um hvaða atriði væru mikilvægust í sam- bandi við þjálfun hástökkvara svaraði hann: „Að mínu áliti þá eru tvö atriði mikilvægust í allri hástökksþjálfun. í fyrsta lagi að samræma hin ólíku tækniatriði í atrennunni og í öðru lagi að ná sem mestum sprengjukrafti í sjálft uppstökkið." Alhllða æfingar Hvernig æfir Patrik? „Æfingarnar hjá Patrik eru mjög alhliða. Ég skipti æfingaárinu gjarnan niður í margar smærri lotur. I sérhverri æfíngalotu er tekið fyrir ákveðið þema eða at- riði. En svona yfír höfuð þá legg ég mikla áherslu á alhliða æfing- ar, mikið af ólíkum hoppum, æf- ingar með bolta, almenna leikfimi og geysilega mikið af teygjuæf- ingum. Patrik hefur aldrei æft mikið og þá á ég við margar æfingar í viku. Hann þolir illa mikið álag í langan tíma. Venjulega er Patrik frekar af- slappaður og rólegur á æfingum. Stundum er hann meira að segja latur og þá verð ég að reka á eftir honum. En hann missir sjald- an áhugann og hann æfir yfírleitt mjög vel. Hann er líka mjög metn- aðargjarn. Það er að vissu leyti ókostur að ég skuli mæta á allar æfingar. Það hefur meðal annars í för með sér að Patrik er oft og tíðum frek- ar ósjálfstæður í hugsun hvað varðar æfingarnar. Hann á það á hættu að vera fylli- lega ánægður með þann árangur sem náðst hefur og sökum þess hefur hann lítinn áhuga á áfram- haldandi verkefnum. I þessu sam- bandi má meðal annars geta þess að skömmu eftir að hann setti heimsmet í fyrrasumar var erfitt að fá hann til að takast á við önnur verkefni og að setja sér önnur markmið. Það er alltaf þannig að þegar stórum áfanga er náð er erfitt að byija á þeim næsta. Það getur því orðið frekar óhagstætt ef Patrik setur heims- met rétt fyrir ÓL í Seoul { haust,“ sagði Viljo Nousiainen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.