Morgunblaðið - 28.07.1988, Side 64
upplýsingar
, u.Tnvörurog
W* # m Þjónustu.
tfgtniÞljifeife
ALLTAF
&00S&0010
SÓLARMEGIIV
FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
■Jm
' * 1
mSœS&gíz ■ - .■
-----.
Orka vitanna endurnýjuð
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar fara árlega hringferð um
landið og endurnýja orkubirgðir afskekktra vita. Sjálfvirkur ljósa-
búnaður er í þessum vitum og er gas ljósgjafinn. Varðskipið
Ægir fór í þessa för fyrir nokkru og var þyrlan TF-GRÓ með í
för. Hver ferð tekur venjulega um tíu daga og eru gashylki flutt
í um 40 vita og kveikt á þeim um leið. A myndinni er verið að
flytja tóm gashylki út í Ægi frá Klofningi, skeri sem er skammt
vestur af Flatey á Breiðafirði, en á firðinum eru fjórir vitar.
Samið um þátttöku Íslendinga í IADS:
Hefja þarf kennslu Ada-
forrítunar við Háskólann
Á milli 20 og 40 íslenskir forritarar vinna við kerfið
Hafnarfj örður:
193 sviptir
ökuréttindum
Rannsóknarlögreglan í Hafn-
arfirði hefur, það sem af er ár-
inu, svipt 193 ökumenn ökurétt-
indum, 142 vegna ölvunaraksturs
en 51 vegna hraðaksturs.
Af ölvunarakstursmálunum voru
53 sviptingar vegna brota sem
framin höfðu verið í öðrum umdæm-
um en 89 ökumenn voru staðnir
að verki á heimaslóðum. Að sögn
Eðvarðs Ólafssonar rannsóknarlög-
reglumanns er um að ræða verulega
fjölgun frá fyrra ári, einkum ef tek-
ið er tillit til þess að hinn 1. mars
færðist Seltjamames undir um-
dæmi Reykjavíkurlögreglu og Mos-
fellsbær einnig hinn 1. maí.
-----------
Skiptalok í 46
gjaldþrotum:
Engar eign-
irtilí44
þrotabúum
í NÝJASTA tölublaði Lögbirt-
ingarblaðsins er greint frá
skiptalokum í 46 gjaldþrotum,
þar af hjá 11 fyrirtækjum og 35
einstaklingum. í 44 þrotabúum
fundust engar eignir upp í kröf-
urnar.
Kröfumar í þrotabúin 46 nema
samtals um 91.800.000 krónum
auk vaxta og kostnaðar. Upp í þær
kröfur fékkst greidd rúm ein milljón
króna. Kröfumar í þrotabúin voru
mjög mismundandi eða allt frá rúm-
um 8.000 krónum og upp í 9,4
milljónir. í síðamefnda dæminu var
um gjaldþrot Nýsmíða'og viðgerða
hf. í Grindavík að ræða. Lægsta
krafan var hins vegar í þrotabú
Úteyjar hf., rúmar átta þúsund
krónur.
Af þekktum fyrirtækjum sem
finna má meðal þessara gjaldþrota
má nefna þrotabú Pöbbsins er áður
var til húsa á Hverfísgötunni. Kröf-
ur í búið n'ámu tæpum 4,4 milljón-
um en engar eignir reyndust til
staðar. Þá má einnig nefna S.G.
hljómplötur.' Þar vom kröfur 1,6
milljónir króna, en eignir fyrirfund-
ust engar.
UNDANFARNA daga hafa full-
trúar íslands og Bandaríkjanna
unnið að samningi um þátttöku
íslendinga í IADS-verkefninu
svokallaða eða íslenska loftvarn-
arkerfinu. Þar sem hugbúnaður-
inn í tölvukerfi IADS verður rit-
aður á nýtt og fullkomið forrit-
unarmál, Ada-forritun, er þörf á
því að komið verði á fót kennslu
í Ada-forritun við Háskóla ís-
lands. Reiknað er með að á milli
20 og 40 íslenskir forritarar
muni vinna við kerfið. Banda-
rískir sérfræðingar segja að með
þátttöku í kerfi þessu skipi ís-
lendingar sér í forystusveit á
vettvangi tölvumála í heiminum.
Þorsteinn Ingólfsson skrifstofu-
stjóri Vamarmálaskrifstofunnar
sagði í samtali við Morgunblaðið
að ekki væri enn ljóst hve mikill
hlutur íslendinga í IADS yrði en
markmiðið væri að hann yrði sem
mestur. Þorsteinn segir að koma
verði upp kennslu í Ada-forritun
við Háskólann í samráði við stjóm
skólans. „Hinsvegar er ekki farið
að ræða það mál að ráði við for-
svarsmenn Háskólans, en þeir vita
af þessu og hafa sýnt málinu
áhuga," segir hann.
Dr. Þorgeir Pálsson segir að þróa
verði hæfni kerfisins, vélar og bún-
að, við Háskólann og að mikill áhugi
sé innan tölvu- og verkfræðiskorar
skólans á því máli.
Bandarískir sérfræðingar frá
þeim deildum hersins sem fara með
IADS-málið hafa dvalið hérlendis
vegna samninganna um þátttöku
íslendinga. Þeir segja að Ada-for-
ritun sé enn skammt á veg komin
í heiminum en þátttaka íslendinga
á þessum vettvangi muni leiða til
þess að Islendingar skipi sér í for-
ystusveit á vettvangi tölvumála í
heiminum, enda muni Ada hafa
gífurleg áhrif á hinn almenna mark-
að á þessu sviði er fram í sækir.
Sem kunnugt er af fréttum
Morgunblaðsins er það Mannvirkja-
sjóður Atlantshafsbandalagsins
Atburðurinn átti sér stað við
heimili skotmannsins á bæ í Suður-
Þingeyjarsýslu. Þangað óku menn-
imir honum eftir dansleik. Er heim
var komið fór maðurinn inn, sótti
riffíl, hlaupvídd .223, og skaut að
bílnum, að því er virðist að tilefnis-
lausu. Kúlan kom í framrúðuna og
fór milli mannanna tveggja, sem í
bílnum sátu, án þess að þá sakaði:
Þeir óku á brott og rakleiðis til lög-
reglunnar á Húsavík þar sem þeir
tilkynntu atburðinn.
sem stendur straum af kostnaðinum
við IADS og áformar að veija til
þess sem svarar 13 milljörðum
íslenskra króna. íslendingar verða
undirverktakar við byggingu kerfís-
ins en aðalverktakar við rekstur
þess og viðhald er það kemst í gagn-
ið árið 1994.
Að morgni laugardagsins fóru
lögreglumenn heim á bæinn, hand-
tóku þann sem kærður var og lögðu
hald á vopnið. Maðurinn var síðan
færður til yfirheyrslu á Húsavík og
að morgni sunnudagsins var kveð-
inn upp gæsluvarðhaldsúrskurður
yfir honum. Seint að kvöldi þriðju-
dagsins þótti málið það vel upplýst
að maðurinn var látinn laus en harin
mun sæta geðrannsókn. Að sögn
Þrastar Brynjólfssonar verður mál-
ið sent ríkissaksóknara á næstunr.i.
Siglufjörður:
Leitin að mönnun-
um árangurslaus
Báturinn fannst mannlaus í gærmorgun
UM 35 félagar í björgunarsveit-
inni Strákum á Siglufirði
gengu í gær meðfram strönd-
inni frá Sauðanesi að Selgili í
leii'að tveimur fjölskyldumönn-
um á þrítugsaldri, sem fóru á
gúmmíbáti frá Siglufirði og
saknað hefur verið siðan í
fyrrakvöld. Bátur þeirra fannst
mannlaus undir" Strákafjalli í
gærmorgun. Einnig var leitað
af sjó og þyrla Landhelgis-
gæslunnar leitaði úr lofti. Hlé
var gert á leitinni í gærkvöldi
og hafði hún þá engan árangur
borið. í gær var norðanátt og
3-4 vindstig.
Að sögn Sigurðar Stefánssonar
formanns björgunarsveitarinnar
Stráka hefst leit aftur árdegis i
dag og er þá von á liðsauka frá
björgunarsveitunum Skagfírðingi
á Sauðárkróki og Gretti á Hofs-
ósi. Þá verða einnig gengnar fjör-
ur frá Þórðarhöfða að Sauðanesi.
Ekki er unnt að greina frá nöfn-
um mannanna tveggja að svo
stöddu.
Sjá grein á bls. 26.
Þingeyjarsýsla:
Skaut úr riffli að
tveimur mönnum
ÞINGEYSKUR karlmaður hefur játað að hafa skotið úr riffli á fram-
rúðu bifreiðar þar sem í sátu tveir ungir menn aðfararnótt laugar-
dagsins. Þeir sluppu ómeiddir. Að sögn Þrastar Brynjólfssonar, yfir-
lögregluþjóns á Húsavík, hefur ekki reynst unnt að finna aðrar ástæð-
ur fyrir verknaðinum en mikla ölvun mannsins.