Morgunblaðið - 09.08.1988, Side 1

Morgunblaðið - 09.08.1988, Side 1
72 SIÐUR B 178. tbl. 76. árg.___________________________________ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Persaflóastríðið: Framkvæmdastj óri S.Þ. boðar vopnaMé 20. ágúst Tilkynningn framkvæmda- stjóra Sameinuðu þjóðanna um dagsetningu vopnahlés í stríðinu milli Irana og íraka var fagnað í Öryggisráðinu í gær. Hér sjást þeir Moh- ammad Jafar, fulltrúi írana hjá S.Þ. (skeggjaður fyrir miðju), og Ismat Kittani frá Irak (annar frá hægri) taka á móti hamingjuóskum. Sameinudu þjóðunum. Reuter. „ÉG SKORA á Hið islamska lýðveldi í íran og lýðveldið írak að virða vopnahlé frá og með klukkan 3.00 hinn 20. ágúst og hætta hernaði á landi, á sjó og í lofti,“ segir í tilkynningu frá Perez de Cuellar, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, sem hann las í troðfullum sal Öryggisráðsins siðdegis í gær. De Cuellar sagðist ætla að bjóða fulltrúum írans og íraks til beinna viðræðna í Genf 25. ágúst. Yfir- lýsingar framkvæmdastjóra S.Þ. um dagsetningu vopnahlés í Persa- flóastriðinu, sem staðið hefur í átta ár, var beðið með eftirvæntingu um allan heim og var henni fagnað með lófataki í Öryggisráðinu. Reuter VopnaMé tekur gildi í Angólu og Namibíu Pretóríu. Reuter. í SAMEIGINLEGRI yfirlýsingu talsmanna stjórnvalda í Suður-Afríku, Angólu og Kúbu sem birt var í Pretóríu sagði að vopnahlé hefði tekið gildi i suðvestur-Afriku klukkan 15.00 að íslenskum tima i gær. Yfirlýs- ingin kemur í kjölfar friðarviðræðna í Genf i liðinni viku sem Banda- ríkjamenn stjórnuðu. Tilkynningin í gær er mikilvægasta skrefið í átt til friðar i Angólu og Namibíu siðan viðræður hófust í London í maí, en þeim var fram haldið í Kairó, New York og Genf. I yfirlýsingunni sagði jafnframt að fallist hefði verið á að ryðja sjálfstæði Namibíu braut í samræmi við ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer „Báðir stríðsaðilar hafa fullvissað mig um að þeir muni virða vopna- hléð innan ramma ályktunar Sam- einuðu þjóðanna númer 598,“ bætti de Cuellar við. „Ríkisstjómir írans og íraks hafa einnig fallist á að Friðargæslusveitir Sameinuðu þjóð- anna taki til starfa um leið og vopnahléð tekur gildi.“ Ályktun Sameinuðu þjóðanna gerir auk þessa ráð fyrir því að horfið verði til landamæranna sem giltu áður en stríðið braust út, skipst verði á stríðsföngum, fundin verði framtíð- arlausn á sambúð ríkjanna og að hlutlaus nefnd rannsaki upj)tök stríðsins. Öllum á óvart féllust Iran- ir á ályktun Sameinuðu þjóðanna fyrir þremur vikum og gaf sú ákvörðun friðarviðleitni byr undir Neyðar- ástand í Súdan Khartoum. Reuter. UM ÞAÐ bil ein og hálf inilljón manna er heimilislaus í Khartoum, höfuðborg Súdans, éftir að flóð ollu gífurlegu tjóni i lok síðustu viku. Ekkert rafmagn hefur verið í borginni í fimm daga en þar búa 4,5 mil(jónir manna. I flestum hverfum er ekkert drykkjarvatn að fá og simasamband við um- heiminn er rofið. Ríkisstjóm Súd- ans hefur lýst yfir 6 mánaða neyð- arástandi i landinu. Flóð gengu yfír Khartoum á föstu- dag eftir 13 klukkustunda samfellt úrhelli. Nokkrir létust þegar hús hrundu og urðu vatnselgnum að bráð. Sjónarvottar segja að tveggja metra há flóðbylgja hafí riðið yfir úthverfí Khartoum. Mörg hundruð þúsund manna eyddu sinni þriðju nótt, aðfaranótt mánudags, úti undir beru lofti án matar að mestu. í úthverfunum Omdurman og Bahari söfnuðust þús- undir manna saman á húsgagnastöfl- um sem þeim hafði tekist að bjarga úr húsum slnum. Yfírvöld í Súdan hafa farið fram á víðtæka alþjóðlega aðstoð vegna flóðanna. Evrópubandalagið sam- þykkti í gær að veita neyðaraðstoð til Súdans að upphæð 33 milljónir íslenskra króna. Rauði krossinn í Danmörku og frönsku samtökin, Læknar án landamæra, munu skipu- leggja aðstoðina. báða vængi. írakar höfðu faliist á ályktunina skömmu eftir að hún var samþykkt í júlí í fyrra. Undanfamar tvær vikur hefur de Cuellar miðlað málum milli ut- anríkisráðherra írans og íraks í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. í miðpunkti var spum- ingin um beinar viðræður; Irakar kröfðust slíkra viðræðna áður en til vopnahlés kæmi en Iranir vildu vopnahlé á undan beinum viðræð- um. Síðastliðinn laugardag hjó Sadd- am Hussein, forseti íraks, á hnútinn er hann féllst á að leggja niður vopn að því tilskildu að íranir tækju þátt í beinum viðræðum strax að því búnu. Undanfama daga hafa átök milli írana og íraka nær legið niðri og sagði de Cuellar í gær að endur- heimt friðar við Persaflóa væri stærri sigur fyrir þjóðir beggja en nokkur ávinningur í stríði. Ef vopnahlé kemst á er lokið einni blóðugustu stytjöld frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Talið er að allt að ein milljón manna hafí týnt lífí í Persaflóastríðinu. . írakar hafa boðað þriggja daga hátíðahöld frá og með degínum í dag í tilefni samkomulagsins um vopnahlé. Dagskrá útvarps og sjón- varps var rofín í stundarfjórðung til að segja frá fundi Öryggisráðs- ins. Strax á eftir lýstist himinninn yfír Bagdað upp er skotið var af fallbyssum. Þúsundir manna komu saman á götum úti til að fagna fyrirsjáanlegum friði. Fyir um daginn höfðu yfírvöld í írán í fyrsta skipti tilkynnt opin- berlega að friður væri í augsýn. Sjá fréttir á bls. 29. 435. Stjómvöld í Suður-Afríku hafa sett það skilyrði fyrir sjálfstæði Namibíu, sem hefur verið undir þeirra stjóm frá fyrri heimsstyijöld, að 50.000 kúbverskir hermenn hverfí heim frá Angólu. Ríkin þijú sem stóðu að yfírlýsingunni í gær segjast hafa orðið sammála um að hvetja Perez de Cuellar, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, til að hefja framkvæmd ályktunar 435 hinn 1. nóvember. í ályktuninni er gert ráð fyrir kosningum í Namibíu undir handleiðslu S.Þ. áður en S-Afríku- menn hverfa á brott. Reiknað er með að útkoman verði stjóm svarta meiri- hlutans undir forystu skæruliða í Namibíu (SWAPO). Samtökin hafa barist í 22 ár gegn stjóm S-Afríku. P.W. Botha forseti Suður-Afríku hef- ur boðið de Cuellar til Pretóríu til að ræða framtíð Namibíu. Stjómin í Pretóríu hefur áður gagnrýnt Sam- einuðu þjóðimar fyrir að segja SWAPO vera eina lögmæta fulltrúa Namibíu. Mörgum stjómmálaskýr- endum þykir ótrúlegt að stjóm hvíta minnihlutans í S-Afríku ætli að láta Namibíu af hendi. Angóla og Kúba hafa fyrir sitt leyti fallist á brottflutning kúbverska herliðsins frá Angólu og stendur til að ganga frá dagsetningum fyrir 1. september. Kúbumenn hafa stutt marxistastjómina í Angólu f viður- eign við UNITA-skæruliða undir for- ystu Jonasar Savimbi en hann nýtur stuðnings Suður-Afríku. Stjómin í Angólu boðaði í gær nánustu banda- menn sína frá Mozambique, Zimbab- we, Zambíu, Tanzaníu og Botswana á sinn fund í Luanda til að ræða samkomulagið sem náðist í Genf í síðustu viku. Pik Botha, utanríkisráðherra Suð- ur-Afríku, sagði í gær að ríki sitt myndi hefja brottflutning herliðs frá Angólu á miðvikudag og yrði honum lokið fyrir mánaðamót. í yfírlýsingu frá UNITA-skæruliðum sem gefin var út í Lissabon í gær sagði að vopnahléð næði ekki til þeirra. Hétu þeir að beijast áfram uns marxista- stjómin í Angólu hefði a.m.k. fallist á að ræða við UNITA. Pik Botha hafði þetta um vopna- hléssamkomulagið að segja í gær: „Þetta er fyrsta skrefíð á mjög löng- um og grýttum vegi til stöðugleika á þessu mikilvæga landsvæði í Afríku." Stríðið í Angólu hefur færst mjög í vöxt undanfama tíu mánuði og hafa herir S-Afríku sótt mörg hundr- uð kílómetra inn fyrir landamærí Angólu á meðan kúbverskt herlið hefur nálgast landmærin við Namibíu. Næsta umferð friðarvið- ræðnanna hefst 22. ágúst. Flóðhestur ífríi Hitabylgja gekk yfir Niðurlönd um helgina og leituðu menn og skepnur svölunar í ám og vötnum. Flóðhestinum Goedel þótti svo heitt í sirkusnum sínum að hann stakk sér í næsta skipaskurð. Þar undi hann sér vel og og naut óskiptrar athygli nærstaddra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.