Morgunblaðið - 09.08.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, VIDSMPn Kn/INNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988
35
Danmörk
Minkar í staðinn
fyrir kýr
FJÖLDI loðskinnaframleiðenda í
Danmörku og þá einkum í minka-
rækt hefur vaxið hratt að und-
anförnu. Ástæðan er sú, að fleiri
og fleiri danskir bændur eru að
gefast upp á hefðbundinni kjöt-
og mjólkurframleiðslu. Á síðasta
ári voru skinnaframleiðendur
þar orðnir fleiri en 5.000, en
voru ekki nema 4.465 árið þar á
undan.
Minkaræktin er nú að verða
fjórða stærsta grein landbúnaðar í
Danmörku og á þessu ári sjást þess
augljós merki, að greinin er enn
að þenjast út, einkum á Vestur-
Bandaríkin
Jótlandi. — Minkaræktiri hefur ver-
ið mjög arðvænleg, en það hefur
dregið úr arðseminni af mörgum
ástæðum, sagði Jens 0stergaard,
framkvæmdastjóri Félags danskra
loðskinnaframleiðenda í blaðaviðtali
fyrir skömmu. Kvaðst hann álíta,
að mildir vetur víða um heim að
undanfömu hefðu átt sinn þátt í
að draga úr eftirspurn eftir loð-
skinnum, sem svo hefði leitt til vax-
andi framboðs. Það að auki væri
verð á loðskinnum háð Bandaríkja-
dollar og lágt gengi dollarans að
undanfömu hefði að sjálfsögðu ekki
verið loðskinnaframleiðéndum í
hag.
Pantanirí
iðnaði hafa
aukist um 5f5%
Mesta aukning milli mánaða í 18 ár
Boston, frá óla Birni Kárasyni, fréttaritara Morgnnbladsins.
VÍSITALA helstu hagstærða
hækkaði um 1,4% í júní og er
það mesta hækkun frá þvi í
desember 1986. Þá hækkaði
vísitalan um 2,2%. Upplýsingar
um nokkrar helstu hagstærðir
sem birtar voru síðastliðinn
þriðjudag benda til að hagvöxt-
ur í Bandaríkjunum sé góður
og stöðugur.
Pantanir í framleiðsluiðnaði
jukust um 5,5% í júní, einkum
vegna nýrra pantana frá vamar-
málaráðuneytinu og meiri eftir-
spurnar eftir flugvélum. Þetta er
mesta aukning í einum mánuði í
18 ár. Ef undan eru skildar pant-
anir frá hemum júkust pantanir í
iðnaði um 2,7% í umræddum mán-
uði. Sala á einbýlishúsum var 8,4%
meiri í júní en í undangengnum
mánuði. Aukin sala á einbýlis-
húsum er ekki síst vegna þess að
almenningur býst við að vextir
eigi eftir að hækka síðar á þessu
ári og því em hús keypt fyrr en
ella.
Hækkun vísitölu helstu hag-
stærða má einkum rekja til meiri
pantana í iðnaði, hækkandi verðs
á hlutabréfum og minna atvinnu-
leysi. Atvinnuleysi hefur ekki verið
minna í 14 ár, en um 5,3% em
án atvinnu.
Þjóðarframleiðsla í Banda-
ríkjunum jókst um 3,1% á öðmm
ársfjórðungi miðað við eitt ár.
Hagfræðingar telja almennt að
vöxtur efnahagslífsins verði góður
og stöðugur það sem eftir er árs-
ins og jafnvel fram á mitt næsta
ár. Margir hafa hins vegar áhyggj-
ur af þvi að mikill vöxtur efna-
hagslífsins þrýsti mjög á verðlag
og að verðbólga eigi því eftir að
aukast. Vegna þess er búist við
því að bandaríski seðlabankinn
eigi eftir að grípa til aðhaldsað-
gerða og hækka vexti. Það ætti
að hægja á hagvexti og leiða til
stöðugra verðlags.
Kaupahéðnar á Wall Street tóku
fréttunum á þriðjudag með jafnað-
argeði og Dow Jones-hlutabréfa-
vísitalan (hlutabréf 30 traustra
fyrirtækja) hækkaði aðeins um
0,71 stig og var 2131.22 stig við
lokun hlutabréfamarkaðarins.
Framan af degi lækkaði vísitalan
og það var ekki fyrr en undir lok
viðskiptanna á þriðjudag að hluta-
bréf tóku að hækka.
Bandaríkin á útsölu?
Fjárfestingar útlendinga hafa margfaldast á undanförnum
árum
Boston, frá Óla Birni Kárasyni, fréttaritara Morgunbiaðsins
ERU útlendingar að kaupa upp
Bandaríkin? I skýrslu um fjár-
festingar erlendra aðila í
Bandaríkjunum, sem birt var í
síðustu viku, kemur fram að
eignir útlendinga hafa þrefald-
ast frá 1980 og nema um 1.500
milljörðum dollara (um 69.000
milljörðum ísl. króna). Þetta
jafngildir að hver Bandaríkja-
maður ætti eignir fyrir liðlega
6.200 dollara (um 287 þúsund
ísl. króna). En eins og ætíð
gréinir sérfræðinga á um hvort
nauðsynlegt sé að setja hömlur
á erlendar fjárfestingar.
Skýrslan var unnin af nýrri
stofnun, Congressional Economic
Leadership Institute, sem 50 þing-
menn og 30 athafnamenn standa
að. Þar kemur fram að um 3 millj-
ónir Bandaríkjamanna vinna hjá
erlendum aðilum í Bandaríkjunum.
í framleiðsluiðnaði eru 7% vinnu-
aflsins á launum hjá erlendum
fyrirtækjum. Utlendingar eiga um
1.300 milljarða dollara í ríkis-
skuldabréfum, bankabréfum og
hlutabréfum. Beinar fjárfestingar
þeirra i verksmiðjum og fasteign-
um eru 262 milljarðar dollara eða
215% meiri en 1980. Á sama tíma
hafa beinar fjárfestingar banda-
rískra fyrirtækja erlendis aðeins
aukist um 40%. Og á síðasta ári
keyptu útlendingar 306 bandarísk
fyrirtæki fyrir 25,6 milljarða doll-
ara og sérfræðingar búast við allt
að 50% aukningu á þessu ári.
Um 20% af eignum banka eru
í höndum erlendra aðila, sam-
kvæmt umræddri skýrslu og út-
lendingar eiga 5 milljónir hektara
af ræktuðu landi.
í frétt bandaríska dagblaðsins
USA Today síðastliðinn fimmtu-
dag kemur fram að í nýlegri skoð-
anakönnun Smick-Medley &
Associates ráðgjafarfyrirtækisins,
eru um 78% Bandaríkjamanna á
því að takmarka eigi fjárfestingar
útlendinga. En þrátt fyrir þetta
eru að minnsta kosti 40 ríki með
skrifstofur erlendis sem hafa það
verkefni að fá erlenda aðila til að
fjárfesta í viðkomandi ríki.
Lágt gengi dollaráns gagnvart
öðrum helstu gjaldmiðlum er ein
ástæða þess hve útlendingar sækj-
ast eftir að festa peninga sína í
eignum í Bandaríkjunum. En vax-
andi verndarhyggja bandarískra
stjórnmálamanna hefur einnig
hvatt erlend fyrirtæki til að „bak-
tryggja" sig og tryggja sér aðgang
að stærsta markaði heims, með
því að koma upp verksmiðjum og
dótturfyrirtækjum í Bandaríkjun-
um. Bretar hafa verið fremstir
útlendinga í beinum fjárfestingum,
(þ.e. kaup á verksmiðjum, bönk-
um, fyrirtækjum og fasteignum).
Um síðustu áramót námu fjárfest-
ingar þeirra 75 milljörðum dóllara
og jukust þær um 431% frá 1980.
Hollendingar eru næstir með 47
milljarða dollara og þá Japanir
með 33 milljarða dollara í beinar
fjárfestingar. Fjárfestingar Jap-
ana jukust um 611% milli áranna
1980 og 1987.
Liggur þú
með fé
á lausu?
Ertu
tryggður
gegn verðbólgu?
í óðaverðbólgu átta sig ekki allir
á því, að jafnvel himinháir vextir
geta í raun verið neikvæðir, eða
rétt skriðið yfir raungildi.
Pá skiptir máli að ávaxta sparifé
sitt með fullri verðtryggingu.
Við bendum sparifjáreigendum
því á, að ÁVÖXTUNARBRÉF
og REKSTRARBRÉF
- hafa skilað eigendum sínum
verulegri ávöxtun umfram
verðbólgu.
ÁVÖXTUNARBRÉF eru
óbundin og hægt að öllu jöfnu,
að innleysa hvenær sem er
án alls aukakostnaðar.
AVOXTUNSf^
Fjármálaráðgjöf - Ávöxtunarþjónusta -
Verðbréfamarkaður
LAUGAVEGI 97 - SÍMI 621660