Morgunblaðið - 09.08.1988, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 09.08.1988, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson LjóniÖ í bernsku í dag ætla ég að fjalla um Ljónið (23. júlí—23. ágúst) í bemsku. KraftmikiÖ og lifandi barn Litla Ljónið er yfirleitt kraft- mikið, bæði hvað varðar líkamlega og andlega orku. Það er lifandi og athafna- samt, en getur verið frekt og stjómsamt. Ljónið er fyrir- ferðarmikið bam sem krefst athygli og vinnu í uppeldi. Það á t.d. til að vera hávaðasamt og opið í tjáningu. Ef það er ánægt er það fallegasta og yndislegasta bam í heimi, en ef það er óánægt þá öskrar það og lætur öllum illum lát- um. Ekki þýðir að segja Ljón- inu að þegja eða læðast með veggjum, því slíkt er andstætt eðli þess og hefði það eitt upp á sig að bijóta það niður. Vin- gjamleg ákveðni er það sem dugar best. Tjáning og stjórnun í eðli Ljónsins er fólgið að þroska égið, skapandi sjálfs- tjáningu og stjómunarhæfi- leika. Ljónið er merki stjóm- unar. Foreldrar þurfa því að virða þörf þess fyrir persónu- legt sjálfstæði og persónulega ákvarðanatöku og hjálpa því að styrkja égið. Það er því mikilvægt að Ljóninu sé snemma falin ábyrgð, það lát- ið ráða yfir ákveðnum þáttum lífs síns og smám saman falin aukin stjóm á eigin lífi. Einn- ig er æskilegt að gefa Ljóninu kost á að leggja stund á leik- ræna tjáningu o.þ.h., enda þrífst það á athygli. Tillitssemi Samfara því sem Ljónið er hvatt til að þroska eigið ég er rétt að efla skilning þess á þörfum annarra og kenna því að taka tillit. Skuggahlðin á því að efla égið er sú að leggja of mikla áherslu á mig og mitt, en taka ekki eftir öðram. Ljónið þarf að læra að allir eiga rétt á jafn stórri sneið af kökunni. Það Ljón sem er sjálfstætt en jafnframt tillits- samt hefur náð þeim gullna meðalvegi sem gerir því kleift að stjóma af sanngimi með samþykki annarra. Bœlt Ljón Ef Ljónið er bælt af foreldram og ekki gefinn kostur á að tjá sig og ráða einhveiju um líf sitt, getur valdaþörf þess fengið útrás eftir krókaleiðum, í neikvæðri stjómun, eins og t.d. í því að búa til veikindi til að láta aðra snúast í kring- um sig, taka reiðiköst sem lama umhverfið eða bijóta lög og reglur. Afskiptaleysi í bemsku getur farið illa með Ljónið, sem tekur slíku sem persónulegri móðgun og lítils- virðingu. Það þarf að vera sérstakt og ef enginn tekur eftir því eða það gagnrýnt er hætt við að það fái minnimátt- arkennd og fari að telja að eitthvað sé að. Framar öðrum merkjum þarf litla Ljónið á jákvæðri hvatningu og hrósi að halda. Það er hins vegar rétt að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt, til að það fari ekki að leita aðdáunar og virðingar fyrir það eitt að vera til. Heiðarleiki og trygglyndi í eðli sínu er Ljónið heíðarlegt og trygglynt. Ef það hefur verið rætt hvað sé rétt og hvað rangt og Ljónið gefíð loforð um góða hegðun má alltaf höfða til þessa þáttar Ljónsins. Það kann ekki að Ijúga og á erfitt með að ganga á bak orða sinna. Að því leyti er auðvelt að eiga við litla Ljónið. Það er einlægt og grannt er á göfugleika í skap- gerð þess. GARPUR ^ D C 1 Tl D uKt 1 1 IK TA R/IRAI ICMRII 1 UIVIIVI1 Uu JclMIMI UÓSKA FERDINAND SMÁFÓLK Thií ísthestory of a free-spirited doq. Hucklebeagle Finn © 1988 Unlted Feature Syndlcate, Inc. -^yiiiijimiiiinw^ Þetta er sagan af frjáls- Stikilshunda Finni huga hundi. Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Hindrun austurs er lykillinn að vel heppnaðri slemmu NS, bæði í sögnum og úrspili. Norður gefur; enginn á hættu. Norður ♦ ÁK93 ¥K8542 ♦ K5 ♦ KD Vestur *D10742 iiiin JD1096 llllll ♦ G862 Austur ♦ G8 ' ¥7 ♦ Á1087642 ♦ 1072 Suður ♦ 65 ♦ ÁG3 ♦ DG93 ♦ Á954 Vestur Norður Austur Suður — 1 hjarta 3 tíglar 3 grönd Pass 6 grönd Pass Pass Pass Útspil: spaðatvistur. Þar eð hjartað liggur í hel eru beinir slagir aðeins tíu: 2 á spaða, 2 á hjarta, 3 á tígul og 3 á lauf. En á vestri hvílir sú skylda að veija þijá liti og það er meira en hann ræður við. Fyrsti slagurinn er drepinn á spaðaás og tígulkóng spilað. Austur drepur og spilar laufi til baka (ekki verra en hvað ann- að). Sagnhafi tekur hinn lauf- hákarlinn, svínar tígulníunni og spilar tígli áfram. Þetta er stað- an áður en síðasti tígullinn er tekinn: Norður ♦ Á93 ♦ K854 ♦ - ♦ - Vestur Austur ♦ DG ♦ 8 VD109 II ¥7 ♦ - ♦ 10876 ♦ G8 Suður ♦ 10 ♦ ÁG3 ♦ G ♦ Á9 ♦ 10 Það er skásti kostur vesturs að henda laufi í tígulgosann, en laufnían endurtekur þá kvalir hans skömmu síðar. Þreföld kastþröng, eða þríþröng. Umsjón Margeir Pétursson Á alþjóðlega mótinu f Marseille í Frakklandi í sumar kom þessi staða upp f skák Frakkanna Laut- iers, sem hafði hvítt og átti leik gegn alþjóðameistaranum Andra- et. 22. Rd5! - Dd8 (Eftir 22. - exd5 23. Dxd5+ — Kh8 er 24. Hf7! ennþá betra en 24. Dxa8)23. Df4 — h6 24. Df7+ og svartur gafst upp, þvf eftir að kóngurinn víkur sér undan kemur 25. Re7.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.