Morgunblaðið - 09.08.1988, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 09.08.1988, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988 41 Að loknum lestri „eintalsu Bundið mál og laust eftir Gísla á Uppsölum Líklega gleyma fáirþeirri stund um jólin 1984 þegar Omar Ragn- arsson leiddi þjóðina heim á hlað að bæ einum í Selárdal til manns sem hét Gísli. Fullt nafn hans var Gísli Oktanavíus Gíslason og kenndur við þennan bæ sem heitir Uppsalir. Það er áreiðanlegt að þá stund- ina sem Ómar reyndi að nálgast þennan einstakling hafi næstum tvö hundruð og fjörutíu þúsund skoðanir, hugmyndir, viðhorf og jafnvel dómum skotið upp í heilabúum landsmanna. En líklega hafa þeir samt ekki verið margir sem hafa nálgast sannleikann sem að baki því bjó að þeir sáu þessa sjón á skjánum og upplifðu þær tilfinningar sem fylgdu. Þeir hafa líklega ekki séð aftur til fyrsta og annars áratugar þess- arar aldar og upplifað það sem fátækur drengur mátti þola af samfélaginu fyrir að vera tötrum búinn. Þeir hafa líklega ekki heidur skynjað þann tilfinningalega kulda sem þetta sama barn varð að þola í háðung fyrir að hreinlæti var áfátt og að lúsin var viðloðandi. Líklega hafa ekki heldur margir áttað sig á að í slíku samfélagi leiðir eitt slíkt atriði af sér annað og að mannlegur skilningur var á öðrum nótum þá en nú. Þeir hafa líklega ekki heldur áttað sig á að þrátt fyrir þennan tilfinningakulda og hroka hafi samt verið til við- kvæmar og næmar sálir sem þráðu góðmennsku og hjartahlýju sam- borgara sinna. Líklega hefur það einnig verið fyrir utan innsæi margra að átta sig á því að marg- endurtekið kaldranalegt og óvin- veitt viðmót við slíkan einstakling gerði það að verkum að hann brynjaði sig æ betur með þeirri einu skel sem kúldalegt viðmót og skilningsleysi byggir utan um ein- lægar og hjartahlýjar sálir. Að öllum líkindum hafa fáir hugsað út í það að á þeim árum voru önnur viðhorf ríkjandi. Ein- staklingshyggja varð að víkja fyrir ættarhyggju. Börn fengu ekki að fara að heiman ef enginn annar var til að taka við búinu. Ættar- stoltið, að búi yrði viðhaldið, var mun mikilvægara málefni en óskir og lífshamingja einstaklingsins. Orð foreldra voru lög yfir böm- um langt fram eftir aldri. Líklega hafa flestir fellt sína dóma í ljósi nútíma hugsunarháttar og við- horfa einstaklingshyggjunnar. Já, það var svo margt sem þjóð- inni láðist að hugleiða þegar hún horfði á þennan mann sem hafði lifað sínu lífi án flestra þeirra hluta sem við hin veraldarsinnuðu álit- um lífsnauðsynlega. En gefur slík mynd okkur ekki tilefni til að spyija. Hvað er í raun lífsnauðsyn? Gefur minningin um þennan mann og innihald bókarinnar okk- ur ekki tækifæri til að nema stað- ar og spyrja okkur sjálf. Erum við ekki á öllum tímum að reka falleg- ar sálir í útlegð með skorti á alúð og einlægni og virðingu fyrir ein- staklingnum, aðeins vegna þess að umbúðirnar koma okkur fram- andlega fyrir sjónir. Hugsum um það með opnum hug í minningu Gísla á Uppsölum. P.S. Þökk sé Ólafi Gíslasyni fyrir að kynna okkur fyrir hinum eiginlega Gísla á Uppsölum. Matthildur Björnsdóttir, Adelaide, Astralíu. DELSEY PARIS Söngkonurnar Fay Smith og Sigrún Valgerður Gestsdóttir. Söngtónleikar í Hveragerðiskirkju SÖNGTÓNLEIKAR verða haldnir í Hveragerðiskirkju miðvikudaginn 10. ágúst kl. 20. Þar koma fram söngkonurnar Fay Smith og Sigrún Valgerður Gestsdóttir ásamt píanóleikar- anum Þóru Fríðu Sæmunds- dóttur. Á efnisskrá tónleikanna eru sönglög og dúettar, meðal annars eftir Mozart, Schumann, Sigfús Einarsson, Pál Isólfsson, Jórunni Viðar og fleiri. Söngkonan Fay Smith er frá Michigan í Bandaríkjunum. Hún hefur einnig starfað sem leikstjóri og kennari. Sigrún Valgerður Gestsdóttir söngkona stundaði nám í Bandaríkjunum undir hand- leiðslu Fay Smith og hófst þá sam- vinna þeirra. Sigrún starfar sem söngkona og kennari. (Úr fréttatilkynningu) Paraguay: Fjölmennar mót- mælaaðgerðir Asuncion, Paraguay. Reuter. TALIÐ er að um 45.000 manns hafi komið saman i borginni As- uncion í Paraguay á laugardag- inn til að mótmæla ofsóknum sem fólkið telur að stjóm Alfredo Strossner, forseta landsins, beiti meðlimi rómversk-kaþólsku kirkjunnar í landinu. Um það bil 5000 lögregluþjónar fylgdust með mótmælendunum þegar þeir gengu fylktu liði í gegn- um borgina og að dómkirkjunni þar sem háldin var messa undir berum himni. Stjórnarandstæðingar segja mót- mælin á laugardaginn fjölmennustu mótmæli gegn forseta landsins í þrjá áratugi. Stroessner, sem er 75 ára gamall, hefur ríkt í Paraguay síðan 1954. Kirkjunarmenn og stjórnin í Paraguay hafa að undanförnu átt í deilum um ýmis félagsleg málefni svo sem mannréttindi og stjóm- málafrelsi. Stjómvöld hafa sakað kirkjuna um að skipta sér of mikið af stjómmálum. Útsölustaðir: PENNINN, Hallarmúla • PENNINN, Austurstræti • PENNINN, Kringlan • GEYSIR, Aðalstræti • HAGKAUP, Skeifunni og Kringlunni •MIKLIGARÐUR v/Holta- veg • BÓKABÚÐ KEFAVÍKUR, Keflavík • BÓKABÚÐIN HLÖÐUM, Egilsstöðum • Kf. HÉRAÐSBÚA, Egilsstöðum • TÖLVUTÆKI-BÓKVAL, Akureyri • Kf. HÚNVETNINGA, Blönduósi • Kf. BORGFIRÐINGA, Borgarnesi • BÓKABÚÐ ANDRÉSAR NÍELSSONAR, Akranesi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.