Morgunblaðið - 09.08.1988, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.08.1988, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988 Varnarræða fyrir lagadeild eftirJónatan Þórmundsson Stúdentar taka á sig rögg Hinn 5. ágúst sl. birtist í Morg- unblaðinu tveggja síðna umfjöllun um lagadeild Háskóla íslands, með viðtölum við 5 laganema og form- ann Lögmannafélags íslands. Ekki þótti ástæða til að ræða við einn einasta kennara iagadeildar, enda algjör óþarfi að vera að flækja málið með einhveijum leiðrétting- um á missögnum, misskilningi og rangfærslum stúdentanna! Það er því einstaklega þakkarvert að fá nú eftir á tækifæri til að læða á blað fátæklegum vamarorðum fyr- ir lagadeild. Ég er eiginlega mest hissa á því, að blessaðir stúdentam- ir og allir þessi fjöldi annarra stúd- enta skuli streyma hundruðum saman í lagadeild þrátt fyrir úrelta námstilhögun, ómannúðlega kenn- ara sem sjaldan em við, kenna lítið og illa og nemendur almennt bera ekkert traust til. Ifyrr má nú vera lögfræðiáhuginn! WIKA Þrýstimælar Allar stœrölr og gerölr ^aajxrQao(U)SPUxr VMturgötu 16, sími 13280 Sérkennileg' röð tilviljana Ég hef aldrei verið mjög trúaður á einkennilega röð tilviljana. Þar ræður sennilega eilítil nasasjón mín af sakamálum og refsirétti. En viti menn, ég held að ég hafí nú skipt um skoðun. Svo hagar nefnilega til, að í smáupphlaupi, sem verið hefur í kringum lagadeild á annars friðsælum sumardögum, úir og grúir af tilviljunum. Eftir að tveir stúdentar féllu á prófí í júníbyijun var fyrst allt með kyrrum kjörum og enginn talaði við starfandi deild- arforseta. Svo liðu vikumar. Þá hófst enn eitt bramboltið út af dr. Hannesi og allt fór í bál og brand milli Háskólans og menntamála- ráðuneytis. Loks uppgötvaði ráðu- neytið sér til skelfíngar, að það var orðið rökþrota — þegar öll sönnun- argögn dómnefndar lágu á borðinu. Nú voru góð ráð dýr. Þrír dagar liðu. Þá fundu stúdentar það upp svona rétt hjá sjálfum sér um mitt sumar, að lagadeild væri bæði óal- andi og ófeijandi. Svo hófust blaða- skrifín, meira að segja áður en lagadeild hafði nokkra ákvörðun tekið. Á einu dagblaðinu var blaða- maðurinn laganemi nýfallinn í al- mennri lögfræði, á öðru blaði var það stúdent, sem hafði fallið í 1. hluta laganáms, á þriðja blaðinu var það enn einn laganeminn. Svo kom viðtal við tvo laganema í tíma- riti einu, sem gefíð er út af sama fyrirtæki og tímarit, sem annar þessara laganema er ritstjóri fyrir. Og lái mér svo hver sem vill, þótt ég trúi orðið á einkennilegar tilvilj- anir. Haltu mér, slepptu mér! Stúdentar segjast vilja halda í strangar námskröfur í lagadeild, en sumir vilja jafnframt veita þeim undanþágu til próftöku, sem búnir eru að sitja í deildinni nógu lengi,' til þess að seta þeirra þar teljist til „sérstakra ástæðna" fyrir und- anþágu. Ef mér skjátlast ekki er Hópferðabflar Ailar stœröir hópferöabila í lengri og skemmri feröir. Kjartan Inghnaraaon, afml 37400 og 32716. hér annaðhvort um tvískinnung að ræða varðandi kröfumar eða stúd- entar hafa fundið upp eins konar eilífðarvél. Sá, sem ræður ekki við tiltekið nám eða getur ekki sinnt því nægilega vel fyrir vinnu annars staðar, hann hlýtur samkvæmt þessu að fá undanþágu aftur og aftur, svo lengi sem hann kýs, en nær svo ekki prófí, nema slakað sé á kröfunum! Og hvað mundu skattborgaramir segja um slíkt ráðslag? Ef það er ómannúðlegt, að nemandi falli í 2. tilraun eftir 5 ára nám, er þá ekki líka ómannúð- legt, að nemandi falli í 3. sinn eft- ir 6 ára nám eða í 4. sinn eftir 7 ára nám? Svari hver sem betur getur. Lögskýring eða flumbrugangur Það þykir ekki tiltökumál nú til dags, þótt laganemar komi fram á ritvöllinn og segi lögskýringar deildarforseta bull og vitleysu, jafn- vel þótt hann hafí átt þátt í að endurskoða viðkomandi ákvæði. Verst er, þegar það hendir stúd- enta að koma upp um hvimleiða fljótfæmi sína og opinbera hana öllum almenningi. Svo slysalega tókst til, þegar stúdentar fóra að skýra ákvæðið um prófmat kennara og prófdómara (49. gr. háskóla- reglugerðar), að þeir litu aðeins á hluta ákvæðisins, en gleymdu að líta á upphaf þess, þar sem aðal- reglan um sameiginlega fyrirgjöf er mörkuð. Auk þess er það skyn- samleg regla við laganám að lesa ákvæði í heild og kanna innbyrðis tengsl einstakra liða þess svo og að hlusta á útlistun kennara í al- mennri lögfræði á þvi, hvemig lagaákvæði beri að skýra, t.d. að athuga tilgang ákvæðis, forsögu þess, venjubundna framkvæmd o.s.frv. En auðvitað er langþægi- legast að taka bara tvær línur út úr textanum og segja: Þetta er reglan og hana nú! Ef hlutaðeig- endur hefðu aðeins staidrað við og ekki bara verið að leita að tæki- færi til að „negla" deildarforset- ann, hefðu þeir kannski áttað sig á, að tilfærð orð eiga við, þegar kennari og prófdómari era ósam- mála um einkunnagjöf. Engin heimild felst þó í ákvæðinu til að gefa upp annað en lokaeinkunnina, enda styðst sá skilningur nú við Jónatan Þórmundsson „Sá, sem ræður ekki við tiltekið nám eða getur ekki sinnt því nægilega vel fyrir vinnu annars staðar, hann hlýtur samkvæmt þessu að fá undanþágu aftur og aftur, svo lengi sem hann kýs, en nær svo ekki prófi, nema slakað sé á kröfunum! Og hvað mundu skattborgararn- ir segja um slíkt ráðs- lag? Ef það er ómann- úðlegt, að nemandi falli í 2. tilraun eftir 5 ára nám, er þá ekki líka ómannúðlegt, að nem- andi falli í 3. sinn eftir 6 ára nám eða í 4. sinn eftir 7 ára nám? Svari hver sem betur getur.“ áratuga framkvæmd. Annað, sem stúdentamir verða að læra, áður en þeir koma út í alvöra lífsins, era þau sannindi, að ekkert þýðir að halda því fram, að einhveijar sérstakar óvenjulegar aðstæður séu fyrir hendi, en hafa þó engin gögn eða sannanir fram að færa. Skyldi fólkið virkilega meina, að það eigi að fá aukatæki- færi hvenær sem illa gengur, bara með því að segja mörgum vikum síðar: „Mér leið svo illa, ég var veikur eða með prófskrekk." Hvar er þá hinn almenni, málefnalegi mælikvarði réttaröiyggis, hvað um jafnræði námsmanna, hvað um fjármuni. Háskólans og hvað um skynsamlega nýtingu á vinnu kenn- ara? Hinn nýi stíll Þá er rétt að kynna almenningi hinn nýja stíl stúdenta í skiptum við kennara sína. Kennarar era ekki lengur taldir hæfír til að taka ákvarðanir um vandamál, sem upp koma í deildinni. Þeir era orðnir að „deiluaðila" við stúdenta og era því meira og minna vanhæfír að fjalla sjálfír um málin. Nú þarf að leita álits annarra aðila um ákvarð- anir hinnar „vanhæfu" lagadeildar. Brátt verða sjálf prófin talin deilu- efni stúdenta og kennara. Þá eygi ég e.t.v. hina langþráðu stund, þeg- ar ég get sem „deiluaðili" við stúd- enta mína vísað prófúrlausnum til lögskýringanefndar, áfíýjunar- nefndar, réttindaskrifstofu eða hvað þetta nú allt heitir. Og það er ekki svo vel, að hlustað sé á það, þegar við minni spámennimir, sem nú kennum við lagadeild, ómannúðlegir og áhugalausir um hag stúdenta, reynum að klóra í bakkann með því að segja, að eins hafí nú verið litið á málin í tið fyrir- rennara okkar, sem lengi hafa út- hlutað alþýðu þessa lands brauði og réttlæti sem ráðherrar og hæstaréttardómarar. Annríkiskenningin Kennarar era svo uppteknir við önnur störf, að þeir mega ekki vera að því að sinna okkur, segja stúd- entar. Þeir eiga að hafa fastan við- talstíma, segja þeir líka. Nú fer að káma gamanið. Hvemig fór með föstu viðtalstímana? Kennarar hafa vist flestir gengið í gegnum þá reynslu. Stúdentar vildu koma á öllum öðram tímum, m.a. af þvi að þeir vora svo uppteknir í vinnu annars staðar. Á meðan beið kenn- arinn uppfullur af áhuga á hag nemenda sinna, en fékk í besta falli stöku upphringingu með beiðni um annan viðtalstíma. Stúdentar hafa auðvitað gleymt því í amstri hjáverkanna, að kenn- arar hafa fleiri skyldur við Háskól- ann en að kenna, taka á móti stúd- entum og spjalla við þá. Það heitir víst rannsóknarskylda. Þegar hún er til umræðu hjá stúdentum, er þess raunar krafíst, að menn hristi heilu bækumar fram úr erminni á skömmum tíma. I öðram löndum þykir ekkert tiltökumál, þótt það taki heila starfsævi að byggja upp fræðigrein sína. Sennilega hefur það ekki hvarfl- að að gagnrýnendum deildarinnar, að þjóðfélagið kunni að ætlast til þess af okkur kennuram, að sér- þekking okkar nýtist til fleiri rann- sóknarverkefna en grandvallar- rannsókna og kennsluritasamning- ar. Til er nokkuð, sem heitir hag- nýtar rannsóknir, og era þær stundaðar meira og minna í öllum deildum og námsbrautum Háskól- ans. Geta nemendur kannski sýnt RITVÉLIN sem fylgir þér hvert sem er Ferðarltvél í sérflokki einungis 6,5 kg og meö innbyggðum spennubreyti, loki og handfangi. Skólaritvél í sérflokki með lyklaborð aðlagaö að fingrunum sem auðveldar hraða og villulausa vélritun. Skrifstofurltvél (sérflokki með ásláttarjafnara, síendurtekningu á öllum tökkum, leiðróttlngarminni o.m.fl. sem tryggir góðan frágang án fyrirhafnar. OLYMPIA CARRERA er tengjanleg vlð allar töl vur. ÚTSÖLUSTAÐIR: Penninn, Hallarmúla 2, Austurstræti 10, Kringlunni, Rvk. Tölvuvörur, Skeifunni 17, Rvk. Bókabúð Brynjars, Sauðárkróki. K.f. Árnesinga, Selfossi. Bókabúðin Édda, Akureyri. K.f. Borgfirðinga, Borgarnesi. Bókabúð Jónasar, ísafirði. Prentverk Austurlands, Egilsstöðum. Bókaskemman, Akranesi. Radíóver, Húsavík. Fyrirtækjaþjónustan, Hvolsvelli. Sjónver, Vestmannaeyjum. K.f. A-Skaftfellinga, Höfn. Stapafell, Keflavík. LÉTTAR FLOTBRYGGJUR Á SJÓ OG VÖTN STÆRÐIR: 1,5x6 MTR 2,0x6 MTR 2,4x6 MTR kf©llii KRISTJÁN ÓLI HJALTASON IÐNBUD2. 210 GARÐABÆ SÍMI46488 ENIMFREMUR FLOT- TENGIBÚNAÐUR FYRIR FISKELDISSTÖÐVAR. UPPLÝSINGAR GEFUR UMBOÐSAÐILI SF-GRUPPEN SVEINSKA. FuTBLOCK AB MODERFORETAG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.