Morgunblaðið - 09.08.1988, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988
43
náttúru. Hjá þjóðinni sló hjarta
hans, þar fann hann til, hér tók
hann afstöðu.
Olafur Jóhann var jafnvígur á
skáldsögur. smásögur og ljóðagerð.
Á seinni árum varð ljóðið, sem far-
vegur ljóðrænnar tjáningar og inni-
leiks fyrirferðarmeira, í skáldskap
hans.
Sumir sakna þess að Olafur Jó-
hann skyldi ekki takast meira á við
snarpar og hrikalegar andstæður,
en sennilega hefur hin ljóðræna
fiðla verið of viðkvæm, vefjaþræð-
irnir of fínir til að takast á við gróf-
leik og hrotta stríðandi tíma.
Ég kynntist manninum Ólafi Jó-
hanni ekki fyrr en alllöngu eftir að
ég. hafði þekkt skáldið Ólaf Jóhann.
Þá hafði hann í smíðum skáldsög-
una Seið og hélog og ljóðabókin
Virki og vötn lét hann aldrei í friði,
eins og hann sagði mér. Um langan
tíma hafði ekki komið skáldsaga frá
hendi Ólafs og biðu lesendur hans
fullir eftirvæntingar eftir þessari
nýju skáldsögu.
Útkoma hennar var stórviðburð-
ur á íslenska bókamarkaðinum. Þá
var og skollinn á heimur auglýs-
ingaprjáls og fjölmiðlar vöktuðu
hvert fótspor!
Þeir tímar, þegar jákvæð umsögn
Kristins E. dugði til að selja bók,
voru liðnir. Það var Ólafi heitnum
ekki auðvelt að laga sig að þessum
breyttu aðstæðum, en útgerðin, eins
og hann kallaði það, tókst vel,
móttökurnar voru prýðilegar.
í framhaldi af þessu árang-
ursríka samstarfi var ákveðið að
gefa út heildarútgáfu af verkum
hans.
Á þessum árum áttum við saman
marga samræðustund þar sem
spjallað var um stjórnmál, útgáfu-
mál, skáldskap og annað sem á fjör-
ur okkar rak.
Einu sinni spurði ég hann, hvert
verka hans væri honum kærast.
Hann hikaði en svaraði síðan eftir
nokkra þögn: „Hreiðrið — það
stendur mér næst." Það mun þó
vera „Bréf séra Böðvars" sem er
hans þekktasta verk innanlands
sem utan.
Ólafur Jóhann var sósíalisti að
lífsskoðun, sem ásamt því vega-
nesti, sem kreppan og sérstæðar
aðstæður heimsmála gáfu ungum
mönnum, mótaði afstöðu og lífsvið-
horf hans.
Sigurganga nasismans í Þýska-
landi hlaut að kalla á menningar-
legt endurmat allra hugsandi
manna. Háskinn og hyldýpið voru
of nálæg til að hægt væri að kom-
ast hjá því að taka afstöðu. Þær
vonir sem bundnar voru við hin
ungu Ráðstjómarríki, sem í senn
var eina tilraunin til gera að raun-
vemleika síungan draum mannkyns
um stéttlaust alþýðuríki, og harð-
asta andstaðan við Hitler-Þýska-
land hlaut að fylkja mönnum saman
til nýrrar liðsskipunar. Hann var
félagi í Félagi byltingarsinnaðra
rithöfunda og einna af höfundum
Rauðra penna.
Ekki er mér kunnugt um hvort
Ólafur Jóhann sat stofnfund Máls
og menningar þann 17. júní 1937,
en hann gerðist ömgglega félagi
þar það sama ár og í félagsráði var
haiin til æviloka.
Allt frá því að „Fjallið og draum-
urinn" kom út árið 1944 hafa öll
hans helstu verk, að frátöldum
tveimur ljóðabókum, komið út hjá
Máli og menningu.
Fyrir hönd Máls og menningar
vil ég hér að leiðarlokum þakka
Ólafi Jóhanni fyrir samfylgdina,
tryggð hans við félagið og frjótt
samstarf í hálfan fimmta áratug.
Sjálfur þakka ég honum og konu
hans, Önnu Jónsdóttur, einlæga og
góða vináttu og mjög ánægjuleg
kynni.
Aðstandendum öllum votta ég
innilega samúð mína.
Þröstur Ólafsson
STQR
MnnivÉLM
AMERICAN íninuw
Úrval þvottavéla og þurrkara
fyrir stór og smá verkefni.
Kjörin fyrir fjölbýlishús,
þvottahús, veitingahús,
hótel, frystihús og víðar.
VERSLUNARDEILD
HOLTAGÖRÐUM • SÍMI 681266
Birting af-
mælis og
minningar-
greina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í
Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
I minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna. Leyfilegt er að
birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3
erindi og skal þá höfundar get-
ið. Sama gildir ef sálmur er
birtur. Meginregla er sú, að
minningargreinar birtist undir
fullu nafni höfundar.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
Graegum
Graeoum
ÁTAKILANDGRÆÐSLU
LAUGAVEG1120.105 REYKJAVlK
SlMI: (91) 29711
Hlaupareikningur 251200
Búnaðarfaankinn Hellu
DRATTARVELAR
Mest seldar
íV-Evrópu
Globusi
LÁGMÚLA 5. S. 681B55.
f 1 (
M
er stór-
kostleg nýjung í
íslenskri málningar-
framleiðslu.
_____ er fljótþornandi og
auðunnin akrýlmálning ætluð á
litað stál, þök og vegg-
klæðningar, því allt litað stál þarf
viðhald. T.d. er ekkert litaö stál
varió gegn mengun úr
andrúmsloftinu. Þótt stálið hafi
ekki ryðgað eða yfirborð þess
ekki byrjað að flagna, þarfnast
þaö samt sem áður viðhalds.
HJÖRV! er fáanlegur í 8
staöallitum og hægt aö fá hann í
yfir 2000 sérlöguðum litum eftir
litakerfi ALCRO. fJÖ! fæst í
1,4, og 10 lítra umbúðum.
||| '%“■
L
r
ÁK R Ý L M Á L N I
' AÞAK- OG VEGGKLÆÐNII -1) _
akrýlmáliI
AþAK- OG VEGGKIÆÐN11*14
i Máfningarverk&miðja
. Slip