Morgunblaðið - 09.08.1988, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSKIPn/AlVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1988
Byggingaiðnaður
Bygginga,vöruverslaiiir
spretta upp
- en er það afleiðing þenslunna'r eða eðlileg þróun?
GRÓSKA á sviði byggingavöruverslunar undanfarið hefur orðið til
að vekja athygli margra, ekki síst á þessum tímum, þegar samdrátt-
arskeið virðjst runnið upp og fyrirtæki kippa að sér höndum í fjár-
festingum. Á sama tíma og spáð er samdrætti í byggingaiðnaði sem
flestum öðrum greinum, spretta upp byggingavöruverslanir sem eru
hver annarri stærri. Nýlega opnaði ein slík í Mjódd, við Skútuvog
hefur verið opnað 5600 fermetra verslunar- og vörulagershúsnæði
á snærum byggingavörufyrirtækis, verið er að hefja byggingu á
5000 fermetra byggingavöruverslun á Ártúnshöfða, og svo mætti
lengi telja.
Þessi mikla uppbygging vekur þá spurningu hvort þessi gróska
sé eðlilegt framhald af því sem hefur verið að gerast á þessum
markaði undanfarið, eða hvort þarna sé um að ræða arfleifð frá
undanförnum þensluárum, þegar miklar fjárfestingar blöstu hvar-
vetna við. Morgunblaðið átti stutt spjall við forsvarsmenn fjögurra
byggingavöruverslana, og spurði þá álits á þeirri þróun sem nú á
sér stað i þessarri grein.
Á ekki von á hruni
Jón Snorrason, einn af eigendum
Húsasmiðjunnar hf., sagði að sú
verslun sem Húsasmiðjan hf. hefði
nýverið opnað við Skútuvog væri
fyrst og fremst ætluð til þess að
breikka vöruúrval fyrirtækisins,
auk þess sem henni væri ætlað að
bæta úr þeim þrengslum sem versl-
unin bjó við á gamla staðnum, en
verslunin var áður að hluta til í
leiguhúsnæði. „Þessi útvíkkun á
verslunarsviðinu er í raun aðeins
beint framhald af því sem við höfum
verið að gera hér undanfarin ár.
Fyrir þremur árum tókum við að
selja smávöru í einhverju mæli, og
höfum verið að stækka þann geira
ávallt síðan. Þetta er ekki síst gert
til þess að dreifa áhættunni," sagði
Jón. „Ég á ekki von á að það verði
neitt hrun á þessum markaði. Það
hefur oft áður orðið samdráttur í
byggingariðnaði, en þá hefur verk-
svið iðnaðarmanna enfaldlega færst
yfir í viðhald og endurnýjun. Verk-
efnin færast bara til,“ sagði Jón
ennfremur. Húsasmiðjan hf. hefur
verið í rekstri síðan árið 1953, en
það var árið 1960 sem fyrirtækið
hóf að versla með timbur. Fram að
þeim tíma má segja að það hafi
verið hefðbundið trésmíðafyrirtæki.
„Því má heldur ekki gleyma," segir
Jón, „að sú þróun sem í dag á sér
stað er ekki eingöngu fjölgun versl-
ana og stækkun verslunarrýmis.
Mörg eru fyrirtækin að flytja sig
um set, leigja kannski dýrt hús-
næði, og margar byggingavöru-
verslanir hafa hætt starfsemi. Ég
nefni Timburverslun Árna Jónsson-
ar, og þá minnkun verslunarrýmis
sem varð þegar JL og Völundur
sameinuðust,“-sagði Jón að lokum.
Treysti á guð o g lukkuna
BB byggingavörur hf. er verslun
byggð á gömlum merg, nánar til-
tekið byggingavöruverslun H.
Benediktssonar hf. Birgir Bernhöft
þáverandi verslunarstjóri festi kaup
á henni ásamt ijölskyldu sinni þeg-
ar fyrri eigendur drógu síg út úr
rekstrinum, og hefur nú átt verslun-
ina og rekið { ellefu ár. Hún er nú
á tveimur stöðum í bænum, við
Suðurlandsbraut og á Ártúnsholti.
Nú á næstunni ætlar fyrirtækið enn
að færa út kvíamar, því það hefur
nú hafið byggingu á 5000 fermetra
húsnæði á Artúnsholti fyrir starf-
semina. „Ástæðan er sú að við leigj-
um dýrt húsnæði í dag, og erum
þess fullviss að það borgar sig að
fara út í þessar framkvæmdir, ekki
síst með það í huga að við áttum
lóðina skuldlausa fyrir," sagði Birg-
ir í samtali við Morgunblaðið. „Hitt
er svo aftur annað mál að ákvÖrðun-
in um bygginguna var ekki tekin í
gær, og það er nú ekki ýkja langt
síðan hamrað var sem mest á góð-
ærinu. Svo eru menn núna að spá
því með spekingssvip að árið 1989
verði ár hinna miklu gjaldþrota. Það
UTVIKKUN —Húsasmiðjan hf. hefur nú nýlega opnað þessa
stóru verslun við Skútuvog, en þar er boðið upp á breiðara vöruúrval
en áður var hjá Húsasmiðjunni.
fóri sama fyrirtækis. BYKO rekur
nú verslanir á Nýbýlavegi í Kópa-
vogi, og við Dalshraun í Hafnar-
firði, auk timburverslunarinnar við
Skemmuveg. Þá rekur fyrirtækið
verslunina Byggt og Búið í Kringl-
unni.
Þeir Jón Þór og Árni sögðu að
kosturinn við nýju verslunina, um-
fram það að vera svo nærri timbur-
verslun fyrirtækisins, væri sá að
bílastæði og aðkoma væru engin
vandamál. „Það er ekki að vænta
annarra breytinga á rekstrarformi
fyrirtækisins í kjölfar flutninganna.
Við höldum áfram óbreyttri starf-
semi í Hafnarfirði og í Kringlunni.
Þetta er sú þróun sem hefur átt sér
stað í öðrum löndum, verslanir hafa
verið að fjárfesta í stærra húsnæði
og byggingavöruverslanir hafa ekki
síður en aðrar verslanir þörf á
nægu rými fyrir vörur sínar. Að-
koma viðskiptavinar að versluninni
og vörunni þarf ætíð að vera sem
best. Við erum þeirrar skoðunar að
í kjölfar samráttar í byggingariðn-
aði komi uppsveifla í viðhalds- og
endurnýjunarframkvæmdum,
þannig að við sjáum ekki fram á
að þurfa að draga saman seglin.
Allar okkar söluáætlanir standast
og vel það,“ sögðu þeir Jón Þór og
Árni að lokum.
Verslunin Metro í Mjódd er þrátt
fyrir ungan aldur orðin vel þekkt,
en hún var opnuð í lok júní. Að
GAMALGRONIR — BB byggingavörur hf. er verslun byggð
á gömlum merg, sem er í startholunum með nýbyggingu.
Morgunblaðið/Sverrir
HAGRÆÐING —— BYKO er nú að setja upp byggingavöru-
verslun við í næsta nágrenni við timburverslun sína á Skemmuvegi,
sem sést á þéssari mynd.
NYTT — Metró í Mjódd, nýjasta afsprengi íslenskrar bygginga-
vöruverslunar.
á að sjálfsögðu eftir að gæta sam-
dráttar, hér sem annars staðar. En
svona er nú ísland einu sinni, það
eru annað hvort öldutoppar eða
lægðir. Fólk getur ekki annað en
veðjað á sinn hest og treyst á guð
og lukkuna. Það dugir ekki að sitja
kyrr og láta drepa sig niður, og við'
ætlum að vera með í baráttu næstu
ára,“ sagði Birgir ennfremur.
Nú nýlega birti þjóðhagsstofnun
tölur yfir veltubreytingu í einstok-
um greinum verslunar, sem byggð-
ar voru á söluskattstölum. Þar kom
fram að á tímabilinu janúar-apríl
minnkaði velta í heildsölu bygg-
ingavöru um þrjú prósent, ef verð-
bólga tímabilsins er tekin með í
reikninginn. Nefnt hefur verið að
offramboð verslunarhúsnæðis sé á
þessum markaði, og talað hefur
verið um að fyrirtækin séu of mörg
til að þau geti öll borið sig. Einn
viðmælandi Morgunblaðsins spáði
því að stærstu fyrirtækin i grein-
inni myndu halda sínu, þrátt fyrir
harðnandi samkeppni. Þessa skoð-
un sína rökstuddi hann með því að
í framtíðinni muni sérhæfíng í þess-
ari verslun minnka, og til marks
um það hafi fyrirtæki sem áður
einskorðuðu sig við timburverslun
víkkað svið sitt og hafið sölu á al-
mennri byggingavöru og húsbún-
aði, en þar með væri fótunum kippt
undan þeim fyrirtækjum sem áður
versluðu eingöngu með slíkt. Þetta
ætti svo að leiða til þess að minni
verslanir færu að dragast aftur úr,
nema að því gefnu að þær stækk-
uðu við sig. Ef svo færi væri fram-
boð á byggingavörum orðið of mik-
ið til þess að markaðurinn stæði
undir verslununum í greininni.
Munu viðskipti dragast
saman?
Hvort þessi spádómur rætist eður
ei verður tíminn að leiða í ljós, en
víst er að tilhneigingar í átt til breið-
ara vöruúrvals eru fyrir hendi á
markaðnum í dag. Um það vithar
hin nýja verslun Húsasmiðjunnar,
og þá er BYKO að setja upp versl-
un á Skemmuvegi, á sama stað og
timburverslun þeirra er í dag. „Við
höldum ekki út neinni útþenslu-
stefnu, við ætlum einfaldlega að
koma til móts við okkar viðskipta-
vini með því að bjóða nú í fyrsta
sinn allt vöruúrval okkar á sama
stað, og munum í framhaldi af því
breyta núverandi formi verslunar-
innar á Nýbýlaveginum," sögðu
þeir Jón Þór Hjaltason forstjóri
BYKO, og Árni Árnason fjármálast-
sögn Sigurðar Björnssonar, versl-
unarstjóra Metro er markmið versl-
unarinnar að bjóða meira vörufram-
boð í hveijum vöruflokki en áður
hefur þekkst, og það félli greinilega
í góðan jarðveg hjá landanum, þar
sem viðskiptin hafi farið fram úr
björtustu vonum. „Við bjóðum upp
á allan almennan húsbúnað og
byggingavöru, í raun allt nema
spýtur, skrúfur og nagla. Það er
skoðun okkar að verslun af þessari
gerð hafi vantað á markaðinn hér-
lendis, en slíkar verslanir er að finna
víða erlendis. Við kappkostum ,að
selja aðeins viðurkennd vörumerki,
og fagleg þjónusta við viðskiptavin-
inn er okkur mikilvæg. Við munum
verða með sérstök mánaðartilboð,
auk þess sem iðnaðarmenn munu
þegar fram líða stundir njóta sérkj-
ara hjá okkur,“ sagði Sigurður.
Hann taldi að samkeppnin á bygg-
ingavörumarkaðnum væri af hinu
góða, svo framarlega sem hún væri
í þágu viðskiptavina.
Er bjartsýnin of mikil?
Það verður fróðlegt að sjá hver
framvindán verður á byggingavöru-
markaðnum, í ljósi þeirra orða sem
hafa fallið hér að framan. Innan
skamms hlýtur að koma í ljós hvort
útþenslan á þessum markaði fær
staðist. Hitt er eins víst að forsvars-
menn þeirra fyrirtækja sem hér
hafa verið til umfjöllunar eru hvergi
bangnir, og fullvissir am bjarta
framtíð byggingavöruverslunar í
landinu.